Fréttablaðið - 17.09.2018, Page 2

Fréttablaðið - 17.09.2018, Page 2
Veður Fremur hæg austlæg átt í dag, skýjað með köflum og líkur á skúrum. Norðaustanátt og rigning á Vestfjörðum og nyrst á landinu. Hiti 6 til 12 stig. SJÁ SÍÐU 18 BRIDS SKÓLINN Byrjendur (stig 1) 1. okt 8 mánudagar frá 20-23 Kerfið (stig 2) 3. okt 8 miðvikudagar frá 20-23 Stig 1 Byrjað er alveg frá grunni og farið vel yfir undirstöður hins vinsæla Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri sem sækir skólann og ekkert mál að mæta stakur/stök. Stig 2 Hvað meinar makker? Góð spurning. Farið er vel yfir framhald sagna í Standard og ýmsar stöður í sagnbaráttu. Mikið spilað og hægt að koma stakur/stök. Upplýsingar og innritun: í síma 898-5427 á netinu bridge.is Staður: Síðumúli 37, Reykjavík (Bridgesamband Íslands) ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Vættir komu saman í Miðgarði Ófreskjur, illmenni, hetjur og vættir af öllum toga komu saman á ráðstefnunni Miðgarður 2018 í Laugardalshöll um helgina. Á ráðstefnunni er ýmsum straumum og stefnum í nördamenningu stefnt saman, allt frá hlutverkaspilum til vísindaskáldskapar. Þrátt fyrir að sumir hafi verið heldur ófrýnilegir að sjá, eins og þessi orkur á myndinni, þá réð kærleikurinn ríkjum. Orkurinn ber barmmerki sem á stendur: „Ókeypis faðmlög“. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI Hagnaður Hlöllabáta ehf., sem rekur skyndibitastaðinn Hlölla á Höfðanum, jókst um ríflega 45 prósent milli ára og nam 51,5 millj- ónum króna á síðasta ári. Hlölli seldi sína landsfrægu samlokubáta og veitingar fyrir ríflega 213,7 millj- ónir í fyrra. Síðasta ár var það besta um árabil hjá félaginu hvað afkomu varðar. Í skýrslu stjórnar er lagt til að greiddur verði út arður á árinu 2018 allt að þeirri upphæð sem lög leyfa. Í fyrra greiddi stjórnin út 30 milljónir króna í arð til eigenda sem er félagið Ergosspa ehf. sem aftur er í eigu systkinanna Róberts Árna og Málfríðar Evu Jörgensen. Eignir félagsins námu í árslok 2017 111 milljónum króna og eigið fé var 57,5 milljónir. – smj Fimmtíu milljóna hagnaður hjá Hlölla Góður gangur á Hlölla. Besta afkoma um árabil í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR VEÐUR Snjókoma, slydda, hvassviðri og almennt leiðindaveður eru í kortunum fyrir vikuna. Á miðviku- dag gengur veðrið í norðan 15 til 23 metra á sekúndu, hvassast austast. Gera má ráð fyrir að úrkoman sem fylgir veðrinu falli í formi slyddu eða snjókomu til fjalla. Seinnipart miðvikudagsins kólnar og það getur snjóað neðar. Gul stormviðvörun er í gildi fyrir allt landið á miðvikudag og fimmtudag. Vetraraðstæður geta skapast á vegum með tilheyrandi samgöngu truflunum. Veðurstofa hvetur bændur til að huga að skjóli fyrir búfénað. Á sunnanverðu landinu verða ekki sömu lætin, þar sem engri úrkomu er spáð. „En þar geta snarp- ir vindstrengir verið varasamir fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi og lausamunir geta fokið.“ – bg Hvassviðri og úrkoma ALÞINGI „Ég fékk kynningu á þessu verkefni í London á síðasta ári. Það var magnað að heyra hvernig Bretar eru að innleiða núvitund í heilbrigðiskerfið, menntakerfið og réttarvörslukerfið,“ segir Halldóra Mogensen, formaður velferðar- nefndar Alþingis. Nefndin fær í dag kynningu á þverpólitískri nefnd breska þingsins um núvitund. Það er Chris Ruane, þingmaður Verkamannaflokksins og annar af formönnum bresku nefndarinnar, sem mun hitta velferðarnefnd. „Það verður líka opinn fundur fyrir alla þingmenn á morgun og Chris mun líka hitta borgarfulltrúa. Hann ætlar að kynna fyrir okkur hvernig Bretar hafa verið að gera þetta.“ segir Hall- dóra. Hún bendir líka á að Chris hafi verið að kenna breskum þing- mönnum um núvitund. „Ég held að við hér á Alþingi hefðum líka gott af því.“ Halldóra segir að fyrir velferðar- nefnd sé sérstaklega áhugavert að heyra hvernig núvitund sé notuð í heilbrigðiskerfinu. „Þetta er aðal- lega notað sem meðferðarúrræði en einnig fyrir starfsmenn heilbrigðis- kerfisins.“ Fundinn í London á síðasta ári sátu líka fulltrúar fræðasamfélags- ins. Þá var Jon Kabat-Zinn einn- ig á staðnum en hann er talinn frumkvöðull núvitundar á Vestur- löndum. „Við fengum að heyra margar áhugaverðar sögur. Meðal annars hvernig þessi úrræði hafa verið að hjálpa föngum. Þeir fara í meðferð í fangelsinu sem hjálpar þeim þegar þeir losna. Þarna var maður sem sagði frá sinni reynslu og hvernig þetta hjálpaði honum að komast út í lífið eftir fangavist. Þetta brýtur upp eitthvert mynstur og fólk nær snertingu við sig sjálft.“ Þá segir Halldóra að hægt sé að nota núvitund í menntakerfinu með því að ná til barna. „Það er mein í okkar samfélagi hvað neysluhyggjan og hraðinn er mikill. Svo hafa sam- félagsmiðlarnir mikil áhrif. Fólk gefur sér aldrei tíma til að stoppa og fara í innri íhugun, skoða hvernig við tengjumst hvert öðru og nátt- úrunni.“ sighvatur@frettabladid.is Þingmenn fræðast um notagildi núvitundar Formaður velferðarnefndar Alþingis segir að Bretar hafi notað núvitund með góðum árangri á mörgum sviðum samfélagsins. Nefndin fær í dag kynningu frá breskum þingmanni sem er annar formanna sérstakrar þverpólitískrar nefndar. Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Það var magnað að heyra hvernig Bretar eru að innleiða núvitund í heilbrigðiskerfið, mennta- kerfið og réttarvörslukerfið. Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar Alþingis 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 7 -7 A 4 4 2 0 D 7 -7 9 0 8 2 0 D 7 -7 7 C C 2 0 D 7 -7 6 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.