Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 6
CHAR-BROIL PROFESSIONAL 3 brennara 66.675 KR. CHAR-BROIL GASGRILL 2 brennarar 54.425 KR. GAS2COAL GAS- OG KOLAGRILL 3 brennara 59.925 KR. CHAR-BROIL BIG EASY Steikarofn, reykofn og grill 41.175 KR. Öll Char-Broil grillin eru með TRU-infrared tækninni sem kemur í veg fyrir eldtungur og tryggir jafnari steikingu. Rekstrarland er opið alla virka daga kl. 8–17. Rekstrarland verslun Vatnagörðum 10 104 Reykjavík Sími 515 1500 rekstrarland.is P IP A R \T B W A • S ÍA 25% AFSLÁTTUR 17.–21. SEPT. AF ÖLLUM GRILLUM VERÐ ÁÐUR 54.900 KR. VERÐ ÁÐUR 69.900 KR. VERÐ ÁÐUR 79.900 KR. VERÐ ÁÐUR 88.900 KR. MENNTAMÁL Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, mun á morgun leggja fram tillögu um breytingu á fjárframlögum til grunnskóla. Tillagan snýr í grunn- inn að því að sama fjárframlag fylgi hverju barni inn í grunnskóla, burt séð frá því hvort barnið gangi í sjálf- stætt rekinn grunnskóla eða grunn- skóla sem rekinn er af Reykjavíkur- borg. „Sonur minn gengur í Ísaksskóla. Skólinn er stórkostlegur og hefur ljóslega sannað gildi sitt. Þar sem skólinn er sjálfstætt starfandi greiðir borgin lægri fjárhæð með menntun nemenda hans en menntun barna í borgarreknum skólum. Foreldrar barna í Ísaksskóla, og öðrum sjálf- stæðum skólum borgarinnar, verða því að greiða skólagjöld,“ ritar Hild- ur á Facebook-síðu sína þar sem hún greinir frá tillögunni. Skólagjöld í Ísaksskóla eru 210.000 krónur á ári fyrir börn á aldrinum sex til níu ára og tíu þús- und krónum lægri fyrir fimm ára börn. Eins er hægt að fá systkinaaf- slátt. „Þetta hefur í rauninni verið eitt af baráttumálum sjálfstæðra skóla í langan tíma. Í dag er rekstrarum- hverfi þeirra erfitt því þeir fá ekki sömu fjárframlög og borgarreknu skólarnir og skólagjöldin duga ekki þannig að þeir standa í rauninni verr að vígi,“ segir Hildur. „Okkur þykir rétt að öll börn í borginni fái sama framlag með sinni menntun og það sé svo í höndum foreldra að velja í hvaða skóla barn- ið fer,“ segir hún. „Eins og staðan er í dag er það ekkert fyrir alla að borga skólagjöld með börnunum sínum.“ Aðspurð segist Hildur spennt að sjá hvernig tekið verði við tillög- unni, sem líkt og fyrr segir verður lögð fram á morgun. „Innan borgar- stjórnar eru margir sem aðhyllast hugmyndafræði um jöfn tækifæri fyrir börn og svo er kominn inn flokkur eins og Viðreisn sem talar fyrir því að styðja við sjálfstæða skóla. Þannig að ég bara vona að þetta fái góðan hljómgrunn,“ segir Hildur að lokum. – bsp Sama upphæð fylgi hverju barni óháð rekstrarformi Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, SKATTAR Yfirskattanefnd (YSKN) hefur staðfest úrskurð Tollstjóra um að einstaklingar þurfi að greiða virðisaukaskatt af innfluttri eins dollars mynt. Báðir aðilar töldu að um söfnunargrip væri að ræða en eigendur myntar- innar sögðu hana vera góðan og gildan gjaldmiðil. Atvik málsins eru þau að í fyrra flutti fólkið inn svokallaða „Amer- ican Silver Eagle Bullion“ silfur- mynt. Myntin er frábrugðin venju- legum myntum að því leyti að hún er gerð úr 31 grammi af nær hreinu silfri. Venjuleg mynt er hins vegar gerð úr blöndu af kopar, sinki, nikk- eli og mangani. Að baki ákvörðun Tollstjóra lá sú staðreynd að myntin væri gefin út í takmörkuðu upp- Þurfa að greiða virðisaukaskatt af skildingi lagi árlega og færi ekki í almenna umferð líkt og hefðbundinn skild- ingur. Myntir sem þessar gengju kaupum og sölum á netinu og væri kaupverðið margfalt nafnvirði myntarinnar. Af þeim sökum bæri að greiða 24 prósenta virðisauka- skatt af innflutningi hennar. Þessu undi fólkið ekki og kærði málið til YSKN. Byggði það á því að myntin hefði verið keypt í fjár- festingarskyni til að byggja upp sparnað sem nýta mætti sem gjald- miðil í viðskiptum. Ekki stæði til að eiga myntina sem safngrip. Á þetta féllst YSKN ekki og staðfesti niður- stöðu Tollstjóra. – jóe Umrædd mynt er gerð úr 31 grammi af nær hreinu silfri. Nafnvirði hennar er einn dollar. KÍNA Gífurleg eyðilegging varð í suðurhluta Kína þegar fellibylurinn Mangkhut fór þar yfir í gær. Minnst 64 fórust þegar fellibylurinn fór yfir Filippseyjar. Mangkhut er einn versti felli- bylurinn það sem af er ári en vind- styrkur hans var um og yfir 45 m/s. Storminum fylgdi gífurlegt úrhelli og þá gekk sjór víða á land. Áður en stormurinn náði landi mældist vindstyrkur mestur ríflega 70 m/s. Á föstudaginn fór stormurinn yfir norðurhluta Filippseyja. Eyjan Luzon, stærsta og fjölmennasta eyja klasans, varð verst úti en þetta er versta veður á eynni síðan árið 2010 þegar fellibylurinn Megi fór þar yfir. Filippseyjar urðu einnig illa úti árið 2013 þegar fellibylurinn Haiyan skall á suðurhluta þeirra. Yfirvöld sáu snemma í hvað stefndi og voru tugir þúsunda fluttir af þeim svæðum sem talið var að yrðu verst úti. Hæsta við- búnaðarstig var á eynni, skólum og opinberum stofnunum var lokað og fólk beðið um að vera í vari á meðan óveðrið geisaði. Sem fyrr segir fylgdi storminum gífurlegt úrhelli og féllu skriður á vegi og hús víða. Héruðin Cordill- era og Nueva Vizcaya urðu verst úti. Minnst 64 týndu lífi en þar af voru 26 námamenn í gullnámu í Itogon sem urðu innlyksa þegar skriða féll á námu þeirra. Þá létust tveir björg- unarmenn þegar þeir komu á vett- vang slyssins. Átta er enn saknað. Þá er óttast um afdrif fjölda bænda sem freistuðu þess að bjarga hrísgrjóna- og maísuppskeru ársins áður en stormurinn skall á. Mannvirki eru víða rústir einar og því erfiðleikum háð fyrir við- bragðsaðila að koma bágstöddum til aðstoðar. Yfirvöld telja víst að tala látinna víðs vegar um eyjuna muni hækka enn. Eftir að hafa farið yfir Filipps- eyjar lá leið Mangkhut til Kína. Þá hafði dregið nokkuð úr vindhraða. Yfirvöld létu flytja um 2,4 milljónir manna á brott áður en veðrið skall á. Stormurinn náði landi í gær í Jiangmen í Guangdong-héraði við suðurströnd landsins. Héraðið varð illa úti í hamförunum. Sömu sögu er einnig að segja af Hong Kong og Macau en spilavítum á síðarnefnda svæðinu var skipað að skella í lás. Er það í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist. Í Hong Kong var ástandið afar slæmt. Á veraldarvefnum má sjá myndbönd af því þegar veður- ofsinn rífur tré upp með rótum og hendir þeim svo til líkt og um smá- vægilegt plastrusl sé að ræða. Gler í fjölda húsa lét undan barningnum og sömu sögu er einnig að segja af klæðningum fjölda háhýsa og raflínum. Hús við ströndina urðu illa úti þegar sjór gekk á land. Raf- magnslaust er á stórum svæðum. Tölur um manntjón liggja ekki fyrir. joli@frettabladid.is Ógurlegt tjón eftir Mangkhut Minnst 64 eru látnir eftir að hitabeltisstormurinn Mangkhut fór yfir Filippseyjar og suðurhluta Kína. Talið er víst að tala látinna muni hækka enn. Illa gengur að koma björgunarfólki á þau svæði sem verst urðu úti. Björgunarfólk leitar að eftirlifendum í rústum í Baguio á Filippseyjum norður af höfuðborginni Manila. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Vindstyrkur Mangkhut mældist mestur ríflega 70 m/s. Talsvert hægði á honum þegar stormurinn fór yfir land á Filippseyjum og í Kína. BANDARÍKIN Konan sem sakað hefur dómarann Brett M. Kavanaugh um að hafa brotið gegn sér kynferðis- lega steig fram undir nafni í gær. Konan, Christine Blasey, segir að Kavanaugh hafi reynt að þvinga hana til kynmaka í samkvæmi fyrir 30 árum, með því halda henni niðri og káfa á henni. „Ég óttaðist að hann myndi óvart drepa mig,“ sagði Blasey í viðtali við Washington Post. Kavanaugh var tilnefndur af Bandaríkjaforseta til setu í Hæstarétti. Kavanaugh situr nú fyrir svörum á Bandaríkjaþingi vegna tilnefningarinnar. – khn Segir Kavanaugh hafa káfað á sér Fleiri myndir má nálgast á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs- appinu eða í PDF- útgáfu blaðsins sem er aðgengi- leg á frettabladid.is. +PLÚS 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 7 -A 1 C 4 2 0 D 7 -A 0 8 8 2 0 D 7 -9 F 4 C 2 0 D 7 -9 E 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.