Kiwanisfréttir - 01.12.2005, Qupperneq 19
19
Kiwanisklúbburinn Keilir fagnaði 35 ára afmæli fyrir stuttu en
klúbburinn var stofnaður 30. september 1970. Helsta fjáröflun
klúbbsins síðustu áratugi hefur verið sala á jólatrjám, greni og
skreyttum krossum og greinum sem unnið er af Sinawikklúbbn-
um Vík. Allur hagnaður af þessari sölu rennur til líknarmála.
Kiwanisklúbburinn Keilir vill þakka íbúum Suðurnesja fyrir stuð-
ninginn við jólatréssöluna og óskar eftir góðu samstarfi við þá í
framtíðinni.
Keilir hefur á þessum 35 árum veitt styrki fyrir um 35 milljónir
króna eða að meðaltali eina milljón á ári.
Eftirtaldir fengu styrk frá Keili í tengslum við afmælið 30. sept
s.l.
1. Sambýli fatlaðra Lyngmóa 17, Reykjanesbæ
Styrkur til húsgagnakaupa kr. 165.000
2. Íþróttafélagið Nes
Styrkur til búninga og tækjakaupa kr. 200.000
3. Þroskahjálp á Suðurnesjum
Styrkur vegna endurnýjunar á bifreið kr. 600.000
4. Kristín Njálsdóttir og fjölskylda
Styrkur vegna veikinda barns kr. 150.000
Sonur þeirra Birgir greindist með bráða hvítblæði á síðasta ári.
5. Guðmundur Guðbergsson og fjölskylda
Styrkur vegna veikinda barns kr. 150.000
Sonur þeirra Huginn Heiðar
6. Þórdís Elín Kristinsdóttir og fjölskylda
Styrkur vegna veikinda barns kr. 150.000
Dóttir þeirra, Regína Krista greindist
með hjartagalla og hefur farið í margar aðgerðir
Auk ofangreindra styrkja hefur Kiwanisklúbburinn Keilir úthlut-
að eftirtöldum styrkjum á afmælisárinu.
Baðstóll sem gefinn var til Sundmiðstöðvar Keflavíkur til nota
fyrir mikið fötluð börn kr. 180.000
Nýju athvarfi fyrir geðfatlaða í Reykjanesbæ til kaupa á tölvu,
húsgögnum o.fl. kr. 200.000
Ýmsir styrkir til einstaklinga og fjölskyldna sem hafa lent í erfið-
leikum kr. 332.000
Heildarúthlutun styrkja á afmælisárinu 2005 er kr. 1.747.000
Kiwanisklúbburinn Keilir 35 ára:
VEITTI STYRKI FYRIR TÆPAR 2 MILLJÓNIR
Það er ekki laust við að Gríms-
félagar séu svolítið montnir
um þessar mundir. Ástæðan
er kannski tvíþætt. Í fyrsta
lagi fékk klúbburinn viður-
kenningar á umdæmisþing-
inu meðal annars lykilinn
fyrir besta styrktarverkefnið
og svo viðurkenningu frá
heimsforseta fyrir áratuga
langa þjónustu við óvenjuleg-
ar aðstæður. Í annan stað var
verulega gaman að mæta
margir saman, á barnadeild
Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og afhenda þar stór-
gjöf. Þetta var tölvubúnaður
fyrir fjarfundi. Nú geta lækn-
ar og annað starfsfólk verið í
sambandi við Reykjavíkur-
spítalana og aðra staði og
haldið fundi saman. „Græjan”
kostaði um 1.200.000 kr.!
Klúbburinn ákvað fyrir rúmi
ári að reyna í þetta sinn, að
styrkja stórt og þar sem Fjórð-
ungssjúkrahúsið þjónar okk-
ur, var þetta ákveðið.
Annars er það af okkur að
frétta, að í júnílok var handa-
gangur í öskjunni eins og síð-
ustu ár. Sjóstangveiði þeirra
„Sjóvaksmanna” í Eyjafirði
fór fram í eynni. Um 130 gest-
ir mættu á svæðið. Kiwanis-
menn sköffuðu eins og venju-
lega báta, skipstjóra og annað
aðstoðarfólk. Mikið var veitt,
mikið var af veislumat og
mikið skemmtu menn sér.
Þetta er eitt af höfuðpóstum í
fjáröflun klúbbsins og gefur
vel af sér.
Svæðisráðsstefna Óðinssvæð-
is var á Akureyri um miðjan
október og Grímsfélagar
mættu vel. Um kvöldið var
haldinn „Stjórnarskiptahátíð-
arfundur” fyrir allt svæðið og
sáu „Emblukonur” um þetta
með glæsibrag. Við eyjar-
skeggjar um 25 félagar og
makar mættum á sam-
komuna.
Nú er vetrarstarfið að fara í
gang og eru menn bara bjart-
sýnir um áframhaldandi gott
gengi Gríms.
Dónald Jóhannesson.
Ritari og fjölmiðlapenni Gríms.
FRÉTTIR FRÁ GRÍMI, GRÍMSEY