Morgunblaðið - 12.06.2018, Side 10
Tölvuteikning/PKdM arkitektar
Gistirými Borgin hefur veitt gistileyfi á hæðum 1 til 8 í vesturbyggingunni (sjá mynd). Íbúðaturninn er 12 hæðir.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur samþykkt umsókn
Höfðaíbúða um leyfi til að breyta skilgreiningu
á 38 íbúðum á Höfðatorgi sem gististað í flokki
II. Íbúðirnar eru í Bríetartúni 9-11. Stefnt er
að því að afhenda íbúðirnar í byrjun næsta árs.
Sagt var frá því í Morgunblaðinu í lok apríl
að umhverfis- og skipulagsráð hefði synjað
umsókn Höfðaíbúða um gistileyfin. Af því til-
efni var rætt við Hjálmar Sveinsson, formann
umhverfis- og skipulagsráðs. Taldi Hjálmar þá
aðspurður ólíklegt að byggingarfulltrúi myndi
snúa ákvörðuninni við. Það gerðist hins vegar.
Snúa að miðborginni
Bríetartún 9-11 er tvö sambyggð fjölbýlis-
hús. Þar verða alls 94 íbúðir. Hótelíbúðirnar
verða í vesturhluta hússins, sem snýr að mið-
borginni, á fyrstu átta hæðunum. Við hlið
íbúðaturnsins er Fosshótelsturninn, stærsta
hótel landsins. Þar eru 320 herbergi. Miðað við
tvo í herbergi og þrjá gesti í hverri hótelíbúð
munu húsin rúma um 740 næturgesti. Við það
bætast um 180 gestir á 93 herbergjum á Hótel
Stormi handan við götuna. Má segja að Höfða-
torg sé að verða eitt helsta hótelsvæði landsins.
Félagið Höfðaíbúðir er tengt byggingar-
félaginu Eykt, sem byggir upp Höfðatorg.
Ekki náðist í Hjálmar Sveinsson vegna
málsins í gær.
Frá efstu hótelíbúðunum verður útsýni yfir
Skuggahverfið. Þar er meðal annars áformað
að reisa 17 hæða hótelturn á vegum Radisson
RED. Þá er fjöldi hótela og gististaða í undir-
búningi í næsta nágrenni. Til dæmis eru Holtin
að festa sig í sessi sem gistihverfi.
Dæmi um umfangið er að umhverfis- og
skipulagsráði hafa borist umsóknir um gisti-
rými fyrir ríflega 1.900 gesti frá því í byrjun
apríl. Miklu munar um 900 gesta hótel við flug-
völlinn í Vatnsmýri, en það hefur lengi verið á
undirbúningsstigi. Samþykkt gistirými á tíma-
bilinu rúmar nærri 800 gesti.
Ásókn í Grensásveginn
Athygli vekur að félag með sama aðsetur og
Gamma hefur sótt um leyfi fyrir gististað fyrir
74 gesti í tveimur húsum á Grensásvegi 8 og 10.
Við hliðina, á Grensásvegi 12, er nú verið að
innrétta íbúðir sem leigðar verða Reykjavík-
urborg. Þá eru fjárfestar að breyta Grensás-
vegi 16a, gamla ASÍ-húsinu, í 80 herbergja hót-
el. Bendir þetta til að fjárfestar hafi trú á
þessum borgarhluta. Hefur borgin áform um
mikla þéttingu byggðar í Múlunum og Skeif-
unni. Með þeirri uppbyggingu er viðbúið að
þjónustustigið muni hækka. Á Grensásvegi 1
hafa fjárfestar áformað að byggja eitt stærsta
hótel landsins. Þau áform voru sett á ís.
Samhliða þessari þróun hefur borgin dregið
úr endurnýjun gistileyfa á vissum reitum mið-
borgarinnar.
Dæmi um umsóknir um gististaði í Reykjavík
apríl til júní 2018
Heimild: Fundargerðir umhverfis- og skipulagsráðs.
Heimilisfang Fjöldi gistirýma Fjöldi gesta Staða
Grensásvegur 8-10 Ekki gefið upp 74 Í vinnslu
Haukahlíð 2 (Vatnsmýri)* 448 900 Í vinnslu
Seljavegur 2 153 304 Samþykkt
Brautarholt 2 23 100 Samþykkt
Gnoðarvogur 44-46* Ekki gefið upp 14 Í vinnslu
Grensásvegur 22* Ekki gefið upp 10 Í vinnslu
Barónsstígur 47— stækkun* Ekki gefið upp 42 Samþykkt
Þverholt 18* Ekki gefið upp 48 Í vinnslu
Hverfisgata 78 6 12 Samþykkt
Laugavegur 55* 52 104 Samþykkt
Skipholt 1 78 156 Samþykkt
Ægisgata 5 6 24 Í vinnslu
Bríetartún 9-11 (m.v. 3 í íbúð) 38 114 Samþykkt
Samtals 804 1.902
Samþykkt 350 790
*Miðað er við tvo í herbergi/gistirými nema annað sé tekið fram.
Borgin veitir gistileyfi á Höfðatorgi
Samþykkir umsókn um gistileyfi í 38 íbúðum Rúm verður fyrir um 900 hótelgesti við Höfðatorg
Morgunblaðið/Baldur
Bríetartún Frá efri hæðum vesturbyggingarinnar er ágætt útsýni yfir miðborgina.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
Landsmót hestamanna
Veglegt sérblað tileinkað Landsmóti hestamanna
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. júní
Blaðið mun gera mótinu, og hestamennsku
góð skil með efni fyrir unnendur
íslenska hestsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
Sími: 569 1134
siggahvonn@mbl.is
SÉRBLAÐ
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra segir að Íslandsstofa
verði ekki undanskilin sam-
keppnis- og upplýsingalögum eins
og upphaflega stóð til í laga-
frumvarpi sem var ætlað að skýra
rekstrarform stofnunarinnar bet-
ur. „Það var komið til móts við
gagnrýni á þetta í utanríkismála-
nefndinni og gilda samkeppnis-
lögin um stofnunina eins langt og
það nær en þetta er auðvitað ekki
samkeppnisrekstur,“ segir Guð-
laugur.
Samkeppniseftirlitið sendi utan-
ríkismálanefnd langa umsögn um
frumvarpið þar sem það var meðal
annars gagnrýnt að Íslandsstofa
ætti að vera undanþegin sam-
keppnislögum. Tók Samkeppnis-
eftirlitið fram að engan rökstuðn-
ing væri að finna fyrir nauðsyn
þess að samkeppnislög giltu ekki
um Íslandsstofu.
Ekki ríkisstofnun
„Þetta átti aldrei að verða ríkis-
stofnun en lögin, eins og þau voru,
þóttu ekki nægjanlega skýr. Það
var krafa um að skýra þetta betur
og að öðrum
kosti hefði for-
stjórinn verið
settur á lista yfir
forstöðumenn
ríkisstofnana og
þá væntanlega
starfsmennirnir
ríkisstarfsmenn.
Það var aldrei
hugmyndin með
Íslandsstofu,“
segir Guðlaugur Þór.
Stofnuninni er með nýju lög-
unum breytt í sjálfseignarstofnun
og er það gert fyrst og fremst til
að skýra að hún sé rekin á einka-
réttarlegum grunni. „Þetta er
samstarfsvettvangur atvinnulífs og
stjórnvalda. Það er verið að skýra
stöðu stofnunarinnar og líka verið
að einfalda reksturinn þannig að
það sé auðveldara að ná mark-
miðum. Í framhaldinu verður farið
í vinnu við að koma með form sem
hentar,“ segir Guðlaugur.
Bryndís Haraldsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, var flutn-
ingsmaður nefndarálits meirihluta
utanríkismálanefndar í annarri
umræðu frumvarpsins á Alþingi í
gærkvöldi og er reiknað með að
frumvarpið verði samþykkt í dag.
Íslandsstofa ekki
undanskilin lögum
Samkeppnis- og upplýsingalög gilda
Guðlaugur Þór
Þórðarson