Morgunblaðið - 12.06.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2018
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 GMC Sierra SLT
Litur: Stone blue, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
VERÐ
9.590.000 m.vsk
2018 Ford F-350 Limited
Litur: White gold, Limited Camelback að innan.
6,7L Diesel, 440 Hö, 925 ft of torque
með sóllúgu, FX4 off-road pakka, upphituð/loftkæld
sæti, heithúðaðan pall, fjarstart, trappa í hlera og
Driver altert-pakki.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
2018 Ford F-350 Limited
Litur: Stone Grey / Cocoa að innan.
6,7L Diesel, 440 Hö, 925 ft of torque
með sóllúgu (twin panel moon roof),
upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall,
fjarstart, trappa í hlera og Driver altert-pakki.
VERÐ
10.890.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Breyttur 35“
Litur: Red Quartz, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi,
upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur.
35” breyttur með kanta, 35” dekk og VISION felgur.
VERÐ
10.290.000 m.vsk
Hreinsunardagur á vegum Vinnu-
skóla Kópavogs stóð yfir í gær og
má áætla að um þúsund ungmenni
hafi þá tínt rusl í Kópavogi. Dagur-
inn ber yfirskriftina „Plokkum
saman“ og var haldinn í fyrsta sinn
í fyrra. Auk starfsmanna og krakka
úr Vinnuskóla Kópavogs tekur
Vinnuskólinn í Reykjavík þátt,
ásamt Þjónustumiðstöð Kópavogs-
bæjar, Bláa hernum, Landvernd og
Umhverfisstofnun sem öll liðsinntu
við hreinsun bæjarins.
Þúsund ungmenni tína rusl undir yfirskriftinni „Plokkum saman“
Hreinsunarátak Krakkar og starfsmenn á vegum vinnuskóla Kópavogs og
Reykjavíkur auk fleiri samtaka tína rusl í Kópavogi annað árið í röð.
Nýju skemmtiferðaskipi, Le Lapé-
rouse, verður gefið formlegt nafn
við athöfn í Hafnarfjarðarhöfn
þriðjudaginn 10. júlí næstkomandi.
Slíkar athafnir eru ekki daglegt
brauð á Íslandi.
Skipið var tekið í notkun í maí
síðastliðnum og kemur í fyrsta
sinn til Hafnarfjarðar 19. júní. Það
verður í ferðum frá Íslandi fram á
haust og færir sig þá á Miðjarðar-
hafið.
Ponant Explorers gerir skipið
út. Fyrirtækið hyggst á næstu ár-
um smíða fimm skip til viðbótar
eftir sömu teikningu. Skipin eru
10 þúsund brúttótonn og 131 metri
að lengd. Þau munu geta tekið 180
farþega og eru smíðuð í Noregi.
Mikill íburður verður um borð í
skipunum.
Ponant Explorers hefur sérhæft
sig í ferðum á norðurslóðum.
Þá hefur Ponant gengið frá
pöntun á 30 þúsund brúttótonna
skipi, sem kynnt er til sögunnar
sem „lúxusísbrjótur“. Það mun
taka 270 farþega og mun sigla í
norðurhöfum. Skipið verður fyll-
byggt árið 2021. sisi@mbl.is
Le Lapérouse Skipið er væntanlegt til Íslands seinna í mánuðinum.
Nýju skipi gefið
nafn í Hafnarfirði
Fyrir fáeinum dögum barst Náttúru-
fræðistofnun Íslands ábending um
agnarsmátt fiðrildi frá athugulum
áhugamanni. Hann var að skoða sig
um í trjásafninu í Meltungu í Kópa-
vogi og rakst þar á fiðrildin á surtar-
toppi. Skordýrafræðingar stofnunar-
innar ruku til og sáu nokkuð af fiðr-
ildunum bæði á surtartoppinum og
blátoppi. Við nánari athugun kom í
ljós að um var að ræða nýja tegund
sem kallast á fræðimáli því óþjála heiti
Phyllonorycter emberizaepenellus.
Þannig segir á vef Náttúrufræði-
stofnunar frá fundi á nýju fiðrildi, en
tegundin er af ætt gullmala og fékk
heitið toppagullmölur þar sem hún lif-
ir á toppum. Tegundin nær norður í
miðbik Skandinavíu og á því ágætan
möguleika á að lifa af hér en eingöngu
þó í görðum vegna sérhæfni á vali
fæðuplantna.
Landnámsgluggi opnast
„Smádýr hafa alla tíð borist til
landsins með hvers kyns varningi.
Fæst hafa þó náð hér varanlegri fót-
festu en með hagstæðara veðurfari
opnast ýmsum þeirra landnáms-
gluggi. Ýmis smádýr hafa fundið af-
drep í húsum okkar og þeim fer fjölg-
andi sem setjast að í umhverfi okkar
utanhúss, einkum í húsagörðum og
almenningsgörðum. Margar tegund-
anna eru sérhæfðar, lifa eingöngu á
ákveðnum tegundum garðplantna og
eiga því ekki möguleika á að færa sig
út í náttúru landsins. Aðrar eygja
hins vegar möguleika á að færa út
kvíar.
Í mörgum tilfellum þykir nokkuð
sjálfgefið að nýja landnema, sem
leggjast á garðplöntur, megi rekja til
óvarlegs innflutnings á plöntum og
jarðvegi. Á undanförnum árum hafa
ýmsir nýir skaðvaldar, líkast til þann-
ig til komnir, skotið upp kollum í
görðum okkar, sumir nú þegar illa
þokkaðir,“ segir á vef Náttúru-
fræðistofnunar.
Nánari upplýsingar um toppagull-
möl má lesa á Pödduvefnum og þar er
einnig að finna upplýsingar um annað
áhugavert smáfiðrildi af svipuðum
toga. Það er birkiglitmölur af ætt glit-
mala en hann leggst á karlrekla birk-
is og alar. aij@mbl.is
Landnemi á toppum
Ljósmynd/Erling Ólafsson
Nýbúi Toppagullmölur tekur sig vel út á grænu laufblaðinu, en landneminn er eitt smávaxnasta fiðrildi sem finnst
hér á landi. Hann er gott dæmi um smádýr sem borist hefur til landsins með innfluttum plöntum.
Toppagullmölur á möguleika á að lifa í görðum hérlendis
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Vestur-Íslendingurinn Janis Guð-
rún Johnson var í síðustu viku
gerð að heiðursdoktor við Háskól-
ann í Manitoba í Kanada. Í frétta-
tilkynningu frá háskólanum kemur
meðal annars
fram að Janis
hafi haft mikil-
væg áhrif á
kanadískt stjórn-
málalíf ásamt því
að hafa verið
forvígismaður
ýmissa gríðar-
mikilvægra
stofnana í Mani-
toba.
Janis var öldungadeildar-
þingmaður á kanadíska þinginu á
árunum 1990-2016 og er því sá
þingmaður sem lengst hefur setið
á þingi fyrir Íhaldsflokkinn í Kan-
ada. Janis varð árið 1983 fyrsta
konan til að gegna framkvæmda-
stjórastöðu Íhaldsflokksins en hún
hefur allan sinn feril barist fyrir
auknu jafnrétti milli kynjanna og
látið sig varða málefni frumbyggja
í Kanada.
Janis er dóttir Georgs Johnson
sem var lengi fylkisstjóri í Mani-
tóba en báðir foreldrar Janisar
voru af íslenskum uppruna. Janis
hefur alla tíð verið stolt af íslensk-
um rótum sínum og á sínum yngri
árum dvaldi hún um tíma á Íslandi
og starfaði í Landsbankanum.
Þá var hún árið 2000 sæmd
riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir störf sín í þágu
samskipta milli Íslands og Kanada.
Hún sótti Íslendinga aftur heim
á Þjóðræknisþing árið 2008 og sit-
ur í stjórn íslenskudeildar háskól-
ans í Manitoba.
Heiðursgráðan er mesta viður-
kenning sem skólinn veitir en Vig-
dísi Finnbogadóttur, fyrrverandi
forseta Íslands, var veitt þessi við-
urkenning 4. ágúst 1989.
Vestur-Íslendingnum Janis
Guðrúnu veitt heiðursgráða
Janis situr í stjórn íslenskudeildar háskólans í Manitoba
Ljósmynd/University of Manitoba
Virtur Tæplega þrjátíuþúsund nemendur stunda nám við háskólann í Mani-
toba. Hann var fyrsti háskólinn í Vestur-Kanada, stofnaður 1877.
Janis Guðrún
Johnson