Morgunblaðið - 12.06.2018, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 163. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Sjómaðurinn er látinn
2. Frænka henti fornum munum
3. Berglind Icey komin með kærasta
4. Boeing-þota í fánalitunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Luiza & Pedro leika
á Kex hosteli í kvöld
Brasilíska dúóið Luiza & Pedro
kemur fram á djasskvöldi á Kex hos-
teli í kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni
eru lög af fyrstu plötu dúósins, Ver-
sos do Capitão, en hún inniheldur
frumsamdar tónsmíðar undir áhrif-
um djass og suðuramerískrar tónlist-
ar. Með þeim leika Alexandra Kjeld á
kontrabassa og Kristofer Rodriguez
Svönuson á trommur.
Tónskáldið og
söngkonan María
Magnúsdóttir,
MIMRA, leikur á
Græna hattinum á
Akureyri á
fimmtudag kl. 21.
Þar leikur hún
ásamt hljómsveit
efni af nýútkom-
inni plötu sinni,
Sinking Island.
MIMRA treður upp
á Græna hattinum
Litháísk-bandaríska tónskáldið,
hljóðfæraleikarinn og listamaðurinn
Abraham Brody kemur fram í Klúbbi
Listahátíðar annað kvöld kl. 20. Á
tónleikunum hyggst hann kafa
djúpt í marglaga sjálfsmynd nú-
tímalistamannsins í
hnattvæddum heimi.
Gestaleikari á
tónleik-
unum er
Ásta María
Kjartansdóttir á
selló.
Abraham Brody í
Klúbbi Listahátíðar
Á miðvikudag Breytileg átt, 3-8 m/s og skúrir, en norðlægari og
súld eða rigning við austurströndina um kvöldið. Hiti 7 til 15 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða súld eða rigning síðdegis, stöku skúrir
austanlands. Hiti yfirleitt 7 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
VEÐUR
„Undanfarið hef ég verið að
skora meira sem er alger-
lega nýtt fyrir mér. Ég veit
reyndar ekki hvað gerðist í
fyrra markinu. Ég var hlaup-
in niður eða eitthvað og svo
bara datt boltinn niður fyrir
framan mig,“ sagði Glódís
Perla Viggósdóttir meðal
annars í samtali við Morg-
unblaðið eftir að hafa skor-
að bæði mörk Íslands
gegn Slóveníu í undan-
keppni HM. »2-3
Algerlega nýtt
fyrir Glódísi
„Það var mjög gott að fá smáfrí
eftir tímabilið, hlaða batteríin og
koma ferskur inn í þetta. Maður er
heldur ekki að fara að kvarta yfir
neinu þegar maður er mættur á
HM. Þá er ekki til nein þreyta. Ég
er í toppstandi og ætla mér að
spila eins vel og ég hef gert í vet-
ur,“ segir Jóhann Berg Guðmunds-
son, landsliðsmaður í knattspyrnu,
sem býr sig undir
leikinn stóra
gegn Arg-
entínu á
laugardag-
inn. »1
Ekki til þreyta þegar
maður er mættur á HM
Fjórir leikmenn eru efstir og jafnir í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins, M-gjöfinni,
í Pepsi-deild karla í knattspyrnu, en átt-
unda umferð deildarinnar var leikin um
helgina. Guðjón Baldvinsson, framherji
úr Stjörnunni, var einn af fjórum leik-
mönnum sem fengu 2 M fyrir frammi-
stöðu sína í umferðinni og er nú með 7
M samtals. Lið 8. umferðar er birt í
Morgunblaðinu í dag. »4
Fjórir eru efstir og
jafnir í M-gjöfinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Íslandsmótinu í skák lauk á laugar-
dag í Valsheimilinu. Þar bar Helgi
Áss Grétarsson stórmeistari sigur úr
býtum og vann sinn fyrsta Íslands-
meistaratitil, í elleftu tilraun.
Óvæntur sigur
Sigurinn er óvæntur, en 142 Elo-
stigum munar á Helga og stigahæsta
skákmanni mótsins, Héðni Stein-
grímssyni. Helgi endaði með 8 og
hálfan vinning af 10 mögulegum og
hafði eins og hálfs vinnings forskot á
næstu menn. „Ég er bara í skýj-
unum,“ segir Helgi.
Þetta er ellefta skiptið sem hann
teflir í mótinu, en hann tók iðulega
þátt þegar hann var yngri. Árið 1994
varð Helgi Áss Grétarsson heims-
meistari ungmenna og er hann fjórði
stigahæsti skákmaður landsins. Árið
1998 var hann með yfirburðaforystu á
Íslandsmótinu og var nálægt því að
vinna mótið. „Fyrir 20 árum fór ég á
taugum en nú er meiri lífsviska og
sjálfsviska komin og ég hélt ró
minni.“
Mikilvægt að njóta þess að tefla
Helgi, sem er dósent við lagadeild í
Háskóla Íslands, hefur lítið sem ekk-
ert teflt á þessu ári. Áður en mótið
hófst hafði hann teflt 15 kappskákir
það sem af er ári. „Mig langaði að
vera með í þessu móti fyrir tveimur
mánuðum, þegar Reykjavíkurmótið
stóð yfir í Hörpu. Ég hef ekki tekið
þátt í því síðan árið 2002. Svo liðu
þessir tveir mánuðir og ég var svo
upptekinn í vinnu og öðru að ég gat
ekkert hugsað um skák. Svo ákvað ég
að vera með á síðustu stundu.“
Helgi segist hafa mætt í mótið með
því hugarfari að njóta þess að tefla.
,,Það er lykillinn að árangri að fók-
usinn sé að hafa gaman, hafa ástríðu
fyrir skák og njóta þess að vera í
augnablikinu.“ Spurður hvað hann
hafi gert öðruvísi á þessu móti en öðr-
um segir Helgi að hann hafi haft
mikla ástríðu fyrir skákinni, áhuga,
góðar taugar og úthald. „Ég hef verið
í einkaþjálfun síðan í lok janúar.
Þannig að ég hef verið í stífu líkams-
ræktarátaki á þessu ári. Það hafði
það að segja að ég var með meira út-
hald þegar leið á skákina.“ Aðal-
atriðið hafi verið að hann byrjaði
hvern dag snemma og stundaði svo-
kallað Qigong, ævaforna kínverska
leikfimi, á hverjum morgni. „Það
hjálpar mér mjög að halda andlegu
úthaldi og að vera í núinu.“
Í verðlaun hlaut Helgi þátt-
tökurétt á EM einstaklinga í
Slóveníu og sæti landsliði Ís-
lands á Ólympíuskákmótinu í
Georgíu, auk peningaverðlauna.
Varð meistari í 11. tilraun
Helgi Áss náði
loks Íslandsmeist-
aratitlinum í skák
Ljósmynd/Kjartan Maack
Íslandsmeistarar Lenka Ptacniková, Helgi Áss Grétarsson og Gauti Páll Jónsson voru að vonum kát þegar þau
tóku við verðlaunum sem Íslandsmeistarar í skák, en athöfnin fór fram í Valsheimilinu um helgina.
Samhliða Íslandsmótinu í skák
fóru einnig fram Íslandsmót
kvenna og Unglingameistaramót
Íslands. Lenka Ptacniková sigraði
á Íslandsmóti kvenna sjöunda árið
í röð, en mótið hefur hún unnið
alls tíu sinnum. Lenka vann með
vinningsforskoti og hækkar um 17
Elo-stig eftir mótið. Önnur varð
Guðlaug Þorsteinsdóttir og Sig-
urlaug Friðþjófsdóttir í þriðja sæti.
Gauti Páll Jónsson er sigurvegari
Unglingameistaramóts Íslands
(u22). Gauti hækkar um 30 Elo-
stig fyrir frammistöðuna á mótinu.
Í öðru sæti varð Vignir Vatnar
Stefánsson og í þriðja sæti Alex-
ander Oliver Mai. Íslandsmótið var
haldið til minningar um Hemma
Gunn. Fín þátttaka var í mótinu að
sögn Gunnars Björnssonar, forseta
Skáksambands Íslands, en 51
skákmaður var skráður til leiks.
Lesa má nánar um mótið á skak.is.
Lenka og Gauti sigurvegarar
ÍSLANDSMÓT KVENNA OG UNGLINGAMEISTARAMÓT ÍSLANDS