Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. J Ú N Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  137. tölublað  106. árgangur  ÞRJÚ NÝ ÖR- LEIKRIT FLUTT Í BLESUGRÓFINNI MÆTUM MODRIC, MESSI OG MOSES Á HM SÉRBLAÐ UM HM 2018 Í RÚSSLANDILISTAHÁTÍÐ 30  Létt var yfir borgarfulltrúum og þeir ánægðir með nýjan meiri- hlutasáttmála Pírata, Samfylk- ingar, Viðreisnar og Vinstri grænna þegar hann var kynntur og undirritaður í rjóðri við Breiðholts- laug í gærmorgun. Grínast var með það að reynsla Þórdísar Lóu Þór- hallsdóttur sem framkvæmdastjóra Eurovision-hópsins árið 2010 hefði hjálpað til í viðræðunum en þar vann hún að sögn í þéttri vinnu með ólíkum aðilum. Dagur B. Eggerts- son verður áfram borgarstjóri og fagráðum og nefndum fækkar. Fulltrúum minnihluta hugnast ekki nýr meirihluti sem þeir telja lítt breyttan frá kosningum þrátt fyrir innkomu Viðreisnar. Eyþór Arnalds segir athyglisvert að ekkert sé minnst á aðalkosninga- loforð Samfylkingarinnar um Miklubraut í stokk og Vigdís Hauksdóttir segir nýjan meirihluta horfa á borgarlínu sem alfa og ómega alls. Kolbrún Baldursdóttir segir minnihlutann hafa hist og þau séu sterkur samstiga hópur. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Meirihluti Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri með málefnasáttmála flokkanna. Dóra Björt forseti borgarstjórnar  Bæjarstjórn Akraness skoraði í gær á Reykjavíkurborg og ríkið að hefja án tafar undirbúning að lagn- ingu Sundabrautar, sem bæti um- ferð til og frá höfuðborginni og auki umferðar- og almannaöryggi. Bæjarstjórnin gagnrýnir að í málefnasamningi nýs meirihluta í borgarstjórn sé ekkert fjallað um þessa nauðsynlegu vegafram- kvæmd. Hafa beri í huga að Reykja- vík sé höfuðborg Íslands og því beri borgarfulltrúum að hugsa um og taka tillit til hagsmuna og lífsgæða allra landsmanna. »2 Gagnrýna nýja meirihlutann  Íslenska karlalandsliðið í hand- bolta mun leika hreinan úrslitaleik gegn Litháen í kvöld, um hvort liðið kemst á HM í handbolta. „Annað tækifæri verður ekki í boði og við treystum á að fólk fjölmenni í höll- ina og styðji við bakið á okkur,“ segir Guðmundur Þórður Guð- mundsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta. Jafntefli varð í fyrri við- ureigninni við Litháa, 27:27, í Vil- níus og þar af leiðandi er allt opið fyrir leikinn í kvöld sem Guð- mundur segir vera einn mikilvæg- asta landsleik handboltalandsliðs- ins um árabil. » Íþróttir Hreinn úrslitaleikur framundan í höllinni Hún er létt í lund, langamma Alberts Guðmunds- sonar, yngsta leikmanns íslenska landsliðsins. Áslaug Guðlaugsdóttir varð hundrað ára 8. júní síðastliðinn og er því líklega einn elsti stuðnings- maður landsliðsins. Hún segist stolt af lang- ömmubarninu og hyggst horfa á leikinn á laug- ardaginn. Spurð hvort hún haldi að Íslendingar vinni leikinn, svarar hún hlæjandi: „Já, auðvit- að.“ »10-11 Morgunblaðið/Ásdís Langamma Alberts telur sigur vísan Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Þingmenn voru enn að störfum þegar Morgunblaðið fór í prentun, skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Þinglok voru áætluð seint í gær- kvöldi eða nótt, miðað við sam- komulag stjórnmálaflokkanna um afgreiðslu þingmála, og stóðu líkur til þess að frumvarp til nýrra laga um persónuvernd og vinnslu per- sónuupplýsinga yrði samþykkt af meirihluta þingmanna. Frumvarpið hafði verið harka- lega gagnrýnt af hagsmunaaðilum og öðrum sem lögðu inn umsögn um það. Þótti frumvarpið seint fram komið miðað við flækjustig og umfang þess auk ætlaðra áhrifa á þjóðfélagið. Aðeins 45 höfðu skilað umsögn um frumvarpið, en 298 um- sagnarbeiðnir verið sendar. Við upphaf þingfundar eftir há- degi í gær urðu deilur milli þing- manna Miðflokksins og ríkisstjórn- arflokkanna þriggja, en miðflokks- menn töldu að fyrra samkomulag um þinglok hefði verið svikið. Um kvöldmatarleytið tókst að ráða fram úr deilunni. „Það kom smá skúr þarna um miðjan daginn, en síðan stytti upp aftur,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon, forseti Alþing- is, í gærkvöldi. Meðal þeirra mála sem samþykkt voru í gærkvöldi er rafrettufrum- varpið svonefnda. »4 Alþingismenn að störfum fram á nótt  Samkomulag um þinglok náðist eftir ósætti við Miðflokk Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Snæbjörn Brynjarsson, þingmaður Pírata, gluggaði í bók um Panamaskjölin undir umræðum þingmanna í þingsal í gærkvöldi. Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, segir þá Donald J. Trump Banda- ríkjaforseta hafa ákveðið að skilja fortíðina eftir þegar leiðtogarnir und- irrituðu sáttmála sem sagður er færa Kóreuskaga nær kjarnorkuafvopnun. Trump og Kim hittust á Sentósaeyju í Singapúr í fyrrinótt. „Það hefur ekki verið auðvelt að ná þessum árangri. Hjá okkur var það fortíðin sem hélt aftur af okkur og gamlar venjur og fordómar skyggðu á sýnina,“ sagði Kim er hann ræddi við blaðamenn. Gunnar Snorri Gunnarsson sendi- herra segir fundinn sögulegan en að langt sé þar til hægt verði að skera úr um árangur hans. »17 og 18 AFP Sögulegt Leiðtogi Norður-Kóreu og Bandaríkjaforseti heilsast. Fortíðin skilin eftir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.