Morgunblaðið - 13.06.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Margar gerðir
af innihurðum
Hjá Parka færðu gullfallegar
innihurðir frá Grauthoff.
Mikið úrval, sjón er sögu ríkari!
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Margar gerðir
af innihurðum
Í Viðskiptablaðinu segir að JónSigurjónsson í úra- og skart-
gripaversluninni Jón & Óskar hafi
„áhyggjur af
ákvörðun nýs
meirihluta
Samfylk-
ingar, Við-
reisnar, Pí-
rata og
Vinstri grænna í Reykjavík um að
lokun Laugavegar fyrir bílaumferð
verði árið um kring:
Það er auðvitað verið að jarðastóran hluta af versluninni
hérna. Það er eins og þetta bless-
aða fólk gleymi því að það kemur
vetur og þá kemur kuldi og bylur.“
Jón spyr í framahaldi: „Hvað lifamenn lengi á götu þar sem er
engin umferð, því þú kemst ekki að
götunni?“ og nefnir að sífellt fleiri
Íslendingar séu hættir að fara í
miðbæinn að versla:
Það er eiginlega vonlaust, segjaþeir, það er ekkert gaman að
fara þangað lengur.
Ef loka á aðkomu svona að við-skiptasvæðum, þá færa menn
sig bara til, þar sem aðgengið
verður í lagi.
Það er akkúrat það sem við er-um að gera, við erum að
styrkja okkur í verslunarmiðstöðv-
unum.“
Jón hefur áhyggjur af þróuninniog segir að ef rótgrónar versl-
anir fari að yfirgefa miðbæinn
vegna stefnu meirihlutans þá geti
það haft dómínóáhrif á annan
rekstur á svæðinu:
Það er ekkert betra fyrir kaffi-húsið að þrauka af veturinn ef
það er blindbylur í marga daga.“
Byrjað á jarðarför
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 12.6., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 13 súld
Nuuk 6 þoka
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Stokkhólmur 17 léttskýjað
Helsinki 19 heiðskírt
Lúxemborg 15 skýjað
Brussel 17 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 18 skýjað
London 16 skýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 15 skýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 20 léttskýjað
Vín 22 skúrir
Moskva 16 skúrir
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 23 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 24 léttskýjað
Aþena 30 heiðskírt
Winnipeg 14 skúrir
Montreal 23 léttskýjað
New York 21 heiðskírt
Chicago 22 þoka
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
13. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:59 23:58
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:15 23:41
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætlað er að á þriðjudag verði búið að
grafa um helming Dýrafjarðarganga
eða um 2.650 metra. Göngin verða alls
5,6 kílómetrar og þar af 5,3 kílómetr-
ar í bergi, en vegskálar bætast síðan
við. Vinnan hefur gengið vel undan-
farið að sögn Karls St. Garðarssonar,
verkefnisstjóra fyrir Suðurverk, og
hver vika yfirleitt skilað frá 80 metr-
um og upp í tæplega 106 metra í lok
apríl.
Um 45 starfsmenn í sumar
Verktakar eru Suðurverk og Met-
rostav, sem hafa mikla reynslu af
gangagerð. Nú eru um 35 manns á
vegum fyrirtækjanna fyrir vestan, en
þeir verða um 45 í sumar þegar vinna
við brýr yfir Hófsá og Mjólká hefst af
fullum krafti.
„Áætlunin er upp á 65 metra á viku
og því er óhætt að segja að það hafi
gengið vel upp á síðkastið og flestar
vikur verið umfram áætlun. Mest er
þó um vert að verkefnið hefur verið
slysalaust. Í göngunum hafa verið
þokkalegar aðstæður til graftar og
svo styttist í að sumarið komi loksins
hér við Arnarfjörðinn, þó svo að um-
hverfið sé enn vetrarlegt,“ segir Karl.
Hann segir að miðað við 80-85
metra í þessari viku verði þeir hálfn-
aðir með gröftinn upp úr helgi, vænt-
anlega á þriðjudag, en tekur fram að
margt geti farið úrskeiðis í svona
verki. Hann segir að ekki sé unnið á
sunnudögum, en spurður hvort ekki
verði gert hlé á laugardag vegna leiks
Íslands og Argentínu segir hann svo
ekki vera. „Verktíminn er knappur og
okkur veitir ekkert af að halda
áfram.“
Flytja sig um set í haust
Til þessa hefur verið grafið Arnar-
fjarðarmegin og verður sprengt um
3,7 kílómetra inn í heiðina úr Arnar-
firði. Næsta haust flytja starfsmenn-
irnir sig yfir í Dýrafjörð og grafa þeim
megin það sem eftir er. Ýmsum öðr-
um störfum hefur verið sinnt að und-
anförnu, m.a. var í síðustu viku unnið
við að gera vinnuplan við Mjólká þar
sem gert er ráð fyrir að reka niður
steinsteypta staura fyrir nýju brú yfir
Mjólká. Við Hófsá var unnið við lagn-
ingu vegar að fyrirhugaðri bráða-
birgðabrú og gert klárt fyrir undir-
stöður brúarinnar. Þá var áfram
unnið við sprengivinnu í forskering-
unni í Dýrafirði.
Í allt verður vegurinn frá Mjólk-
árvirkjun, í gegnum göngin og að
Dýrafjarðarbrú tæpir 14 kílómetrar
og styttir Vestfjarðaveg á milli sunn-
an- og norðanverðra Vestfjarða um
rúma 27 kílómetra.
Gangagerð Þunnt setlag í stafni ganganna um 2.570 metra inni í fjallinu.
Nánast hálfnaðir
í gangagreftri