Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Meira til skiptanna
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þrjár trommur og fána Tólfunnar
var að finna í miklum farangri lands-
liðsins í fótbolta á leið til Rússlands í
síðustu viku. Þessi þarfaþing á
landsleikjum eru nú í geymslu á hót-
eli landsliðsins í borginni í Kabard-
inka og verða þar þangað til lands-
liðið fer til Moskvu á morgun.
Á leikdegi sér KSÍ um að koma
fánum og trommum á leikvanginn
þar sem Tólfumenn hitta Víði
Reynisson, öryggisstjóra KSÍ, að
morgni leikdags. Trommunum verð-
ur síðan komið fyrir í fremstu röð í
hólfum Íslendinga tímanlega fyrir
leikinn við Argentínu á laugardag.
Ærið starf í forystu Tólfunnar
Sveinn Ásgeirsson, varaformaður
Tólfunnar, segir að það hafi einfald-
að alla flutninga að Knattspyrnu-
samband Íslands tók þá að sér.
Einnig hafi KSÍ komið til móts við
Tólfuna með því að borga flug, hótel
og aðgöngumiða fyrir tíu manns á
hvern leik í riðlakeppninni. Tólfan
skipti liði og fari 10 manns á hvern
leik. „Vonandi verða endalaust
margar Tólfur á leikjunum í Rúss-
landi því að allir sem styðja lands-
liðið eru í raun í Tólfuhópnum,“ seg-
ir Sveinn. Hann segir að sendiherra
Rússlands á Íslandi hafi talað um
fimm þúsund Íslendinga, en Sveinn
segist sjálfur gera sér vonir um að
3-4 þúsund landar verði á fyrsta
leiknum.
„Við munum sannarlega láta
heyra í okkur,“ segir Sveinn. „Við
höfum verið að undirbúa okkur á síð-
ustu þremur landsleikjum karla og
kvenna á Laugardalsvellinum og það
kemur í ljós hvort við verðum með
nýjungar og hvort þær virka eða
ekki.“
Hann segist ekki enn vera orðinn
spenntur, verði það tæpast fyrr en
hann verði búinn að innrita töskuna
á Keflavíkurflugvelli á föstudaginn.
„Það hefur verið meira en nóg að
gera og endalaust eitthvað sem kom-
ið hefur upp á. Fyrir þetta mót hefur
hvert verkefnið tekið við af öðru og
það hefur næstum því verið full
vinna við hliðina á aðalstarfinu að til-
heyra forystu Tólfunnar.“
Stuðningshátíð verður í miðborg
Trommurnar
í farteski KSÍ
Vonandi endalaust margar Tólfur
Vinsæll Úlfurinn Zabivaka er í Kabardinka eins og víðar í
Rússlandi. Vinsælt er að láta mynda sig við hlið lukkudýrs HM.
Varnartaktík Aron Einar landsliðsfyrirliði ber sólarvörn á
skallann í upphafi æfingar og talar í síma Víðis öryggisstjóra!
Áfram Ísland! Ungar stúlkur biðu eftir því að sýna dans á torgi
í Kabardinka. Fánar Íslands, Rússlands og svæðisins í baksýn.
Að hafa mikla hjátrú á íslenska liðinu
Íslendingar afslappaðir en fullir eftirvæntingar Íbúarnir stoltir af að hýsa eitt HM-liðanna
DAGAR Í FYRSTA
LEIK ÍSLANDS3
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Vinsæll Gylfi Þór Sigurðsson var meðal þeirra sem ræddu við fjölmiðlamenn í gær. Þeir útlendu sátu allir um Gylfa.
Í KABARDINKA
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Gestir Kabardinka, litla strandbæj-
arins við Svartahaf, þar sem íslenska
landsliðið í fótbolta hefur bækistöð
meðan á HM stendur, urðu ekki
mikið varir við að í gær var þjóðhá-
tíðardagur Rússlands. Að vísu var
skotið upp flugeldum en slík sýning
var einnig í boði á laugardags- og
sunnudagskvöld.
Margt var um manninn á strönd-
inni í gær eins og síðustu daga, enda
veðrið ákjósanlegt til slíkrar iðju.
Heiðskírt, steikjandi hiti og dálítill
blástur, þó ekkert í líkingu við rokið
í fyrradag.
Íslensku leikmennirnir virkuðu
sælir og glaðir á æfingunni í gær-
morgun, nokkrir komu í viðtal við
fjölmiðlamenn (eins og sjá má á
íþróttasíðunum og á mbl.is), allir af-
slappaðir en þó vitaskuld fullir eftir-
væntingar og bæjarbúar hér eru
stoltir af að hýsa HM-lið. Sýna Ís-
lendingunum mikinn áhuga.
Í fyrsta leik karlaliðs Íslands á
stórmóti, EM 2016, mættu strák-
arnir Cristiano Ronaldo og sam-
herjum í Portúgal en á laugardaginn
verður argentínski snillingurinn
Lionel Messi í hópi mótherjanna.
Flestir spá argentínskum sigri, eins
og eðlilegt má teljast, en Íslendingar
eru þó hvergi bangnir.
Allt getur samt gerst. Einhvern
tíma hefði þótt saga til næsta bæjar
að forseti Bandaríkjanna og leiðtogi
Norður-Kóreu mynduðu „sérstök
tengsl“ og einfaldlega óhugsandi eft-
ir stórskotahríð þeirri í millum á
samfélagsmiðlum síðustu mánuði.
Samt er afar kært þeirra á milli eftir
sögulegan fund í Singapúr. Margir
telja út í hött að gera ráð fyrir því að
Ísland geti náð í stig gegn Argentínu
á laugardaginn. Hvað þá sigrað.
Hjátrúarfullum má benda á að hér
í Kabardinka er ekki sandströnd
heldur tiplar fólk á steinvölum. Ná-
kvæmlega eins og í Nice á frönsku
rívíerunni, þar sem Ísland vann sig-
urinn sögulega á Englendingum á
EM. Að vísu er ekki spilað við
Argentínu í Kabardinka heldur í
Moskvu. Gæti það samt ekki vitað á
gott að íslenska liðið býr hér?