Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Þarna er fuglinn,“ sagði kenn-arinn við nemendur sínasem stóðu á dekki björg-unarskipsins Ásgríms S. Björnssonar, sem skreið út Sundin við Reykjavík. Allt stóð þetta heima; í vestri yfir Engey kom TF GNÁ og fór hratt yfir. Lækkaði flugið og var brátt yfir skipinu þar sem um borð var fólk fært í flestan sjó. Allir voru komnir í vígalega galla og tilbúnir í svolitla æfingu á bláköld- um veruleika. Sjó- mennskan er ekk- ert grín, var einhverju sinni sungið í slagara um frækna hafsins hetju. Slíkar eru til enn, en hafa þó kannski aðra ásýnd og stíl en var fyrr á tíð. Og sem betur fer eru þeir tímar liðnir að haf- ið taki á hverju ári fjölda mannslífa; að skip farist eða um borð verði slys þannig að fólk slasist eða láti lífið. Mikil vakning Sjómenn eiga allt sitt undir því að öryggismálin séu í lagi og því að geta brugðist við. Langt er síðan öll- um sem stunda sjóinn til lengri tíma var gert skylt að sækja námskeið við Slysavarnaskóla sjómanna og í seinni tíð sækja um 2.500 manns á ári þenn- an skóla, sem hefur sannað gildi sitt fyrir margt löngu. Útfærslurnar á námi við skólann eru margar, en þekktust eru grunnnámskeið. Þar er farið yfir mikilvægustu atriðin og svo jafnan endað á æfingu á sjó þar sem nemendur eru hífðir um borð í fugl- inn; einhverja af Gæsluþyrlunum góðu. Þær æfingar eru jafnan haldn- ar fljótlega eftir hádegi á föstudög- um, eins og fólk sem fylgist með skipaferðum við Reykjavík þekkir væntanlega. Um 25 nemendur voru á grunn- námskeiði síðustu viku, flest fólk sem var komið með einhverja sjómanns- reynslu en þurfti í skólann, reglum samkvæmt. „Síðustu árin hefur orðið mikil vakning í öryggismálum meðal sjó- manna og raunar margra annara starfsstétta,“ segir Bogi Þorsteins- son kennari og yfirstýrimaður. Hann hefur starfað við skólann í átta ár; var áður stýrimaður meðal annars á frökturum og varðskipum og þekkir því vel til þessara mála. Flogið með vírnum Og nú var þyrlan komin, með þeim mikla gný sem jafnan fylgir. Nemunum í björgunarskipinu var skipt í þrennt; einn hópurinn var hífður um borð í þyrluna af dekki skipsins, annar hópur úr gúmbjörg- unarbát og nokkrir settu sig í sjóinn og voru hífðir beint upp – en þá hafði sigmaður komið að ofan og smeygt lykkju um fólkið sem svo flaug upp með vírnum. Allt gekk eins og í sögu og æfingin tók ekki langa stund. En nemarnir voru reynslunni ríkari á eftir og verða væntanlega farsælir sjómenn. „Eftir hrun fór fjöldi sjómanna og iðnaðarmanna til starfa í útlönd- um, þar sem vitund um öryggi og vinnuvernd er sterk og notkun nauð- synlegs hlífðarbúnaðar þykir sjálf- sögð,“ segir Bogi Þorsteinsson. „Með því að fleiri hafa starfað og verið er- lendis hafa öll viðhorf Íslendinga til öryggismála breyst og orðið sterkari. Það er er gott mál og á með öðru sinn þátt í þeim góða árangri í öryggis- málum sem náðst hefur til sjós og í öðrum atvinnugreinum á undan- förnum árum. Grunnnámskeiðin eru mikilvæg, en þau eru bæði fyrir ný- liða og menn sem koma í upprifjun á fimm ára fresti. Öllum finnst þetta nám sjálfsagt og mikilvægt.“ Aðsetur við Austurbakka Aðsetur Slysavarnaskóla sjó- manna, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg starfrækir, er um borð í Sæbjörginni sem hefur bólfesti við Austurbakka í Reykjavíkurhöfn. Skipið, sem áður hét Akraborg og var í siglingum milli Reykjavíkur og Akraness fyrir tíma Hvalfjarðar- ganga, hefur verið í núverandi hlut- verki frá árinu 1998 og lengi var skip- inu siglt árlega hringinn umhverfis landið og námskeið haldin í helstu höfnum. Í sparnaðarskyni hefur því verið hætt auk þess sem skipið, sem er meira en 40 ára gamalt, þarfnast viðgerða sem ekki hafa verið tök á að sinna. Vitund í öryggis- málum verður sífellt sterkari Færir í flestan sjó. Að sækja Slysavarnaskóla sjó- manna er skylda og námið sækja þúsundir sjómanna árlega. Námið er fjölbreytt og skilar sér, því sjóslysum hefur stórfækkað. Þyrlubjörgun þykir ævintýri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Híft Lykkju er brugðið um fólk og hún svo fest við vír og krók. Gunnar Guðmundur Arndísarson bíður björgunar. Bogi Þorsteinsson Sigling Komið með sjómannsefnin á gúmbát í björg- unarskipið eftir björgun og flug með gæsluþyrlunni. Björgun Nemendurnir voru hífðir um borð í þyrluna úr sjónum og var sigmaður úr áhöfn til halds og traust. „Ég verð miklu öruggari sem sjó- maður eftir að hafa sótt nám- skeiðið, sem er vel skipulagt og yfirgripsmikið og skýrt sett fram,“ segir Sveinar Gunnarsson, háseti á línubátnum Kristínu GK sem Vísir hf. í Grindavík gerir út. Hann var þátttakandi á námskeiði í síðustu viku. Hefur verið til sjós í tæplega eitt ár og þurfti því að fara í slysavarnaskólann til að geta haldið áfram. „Kennararnir fóru yfir mikilvæg atriði, svo sem skyndihjálp og eldvarnir. Framsetningin á námskeiðinu var skýr, klippt og skorin. Kennararnir segja að fólki séu eftir námskeiðið ýmis viðbrögð bókstaflega eðlislæg þegar og ef hætta steðjar að. Það síast eitthvað í undirmeðvitundina. Og sem betur fer hefur slysum til sjós fækkað mikið, á línubátum eins og ég er á verða einkum og helst smáslys en annað hefur að mestu verið fyrirbyggt,“ segir Sveinar. Bæta við þekkinguna „Námið er ótrúlega fjölbreytt og nýtist mér vel, bæði til sjós og eins í dag- legu lífi í landi. Svo voru kennararnir líka sérstaklega traustir og góðir og kunna greinilega sitt fag mjög vel,“ segir Vera Wonder Sölvadóttir leið- sögumaður hjá Ferðakompaníinu í Reykjavík. Fyrirtækið gerir út svonefnda ribb-gúmíbáta sem meðal annars eru notaðir í lundaskoðunarferðir að eyj- unum á Kollafirði, þar sem Vera segir farþegum frá því sem fyrir augu ber. Áður hafði hún tekið námskeið í hóp- og neyðarstjórnun jafnframt því sem hún vinnur með skipstjóra sem mánaðarlega tekur æfingu í öllum öryggis- atriðum. Undirstaðan er því góð. „Auðvitað er maður ekki fullnuma í öryggisatriðunum eftir þetta námskeið og verður sjálfsagt aldrei. Það er nauðsynlegt að halda sér við og bæta sí- fellt við þekkinguna með æfingum og þjálfun. Mest um vert er að vita hvað á að gera ef slys verður um borð, eldur kemur upp, yfirgefa verður skip eða láta hífa sig um borð í þyrluna en sú þjálfun var hápunkturinn á námskeið- inu,“ segir Vera. NEMENDUR ÁNÆGÐIR MEÐ HNITMIÐAÐA KENNSLU Sveinar Gunnarsson Vera Sölvadóttir Viðbrögð verða eðlislæg R GUNA GÓÐAR I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.