Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177
13. júní 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 105.88 106.38 106.13
Sterlingspund 141.77 142.45 142.11
Kanadadalur 81.33 81.81 81.57
Dönsk króna 16.743 16.841 16.792
Norsk króna 13.202 13.28 13.241
Sænsk króna 12.262 12.334 12.298
Svissn. franki 107.54 108.14 107.84
Japanskt jen 0.9605 0.9661 0.9633
SDR 150.29 151.19 150.74
Evra 124.75 125.45 125.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.1207
Hrávöruverð
Gull 1296.05 ($/únsa)
Ál 2287.0 ($/tonn) LME
Hráolía 76.3 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Fjöldi vinnandi
fólks hefur aldrei
verið meiri en nú,
sé miðað við með-
altal síðustu 12
mánaða, en rúm-
lega 195 þúsund
voru starfandi að
meðaltali á því tímabili. Í Hagsjá hag-
fræðideildar Landsbankans segir að
þótt tölur Hagstofunnar að undanförnu
hafi bent til þess að toppinum á vinnu-
markaðnum væri náð og ýmsar stærðir
séu farnar að gefa eftir, þá bendi nýjar
tölur fyrir apríl til þess að enn sé mikill
kraftur á vinnumarkaðnum.
Landsbankinn bendir á að sé litið á
breytinguna milli fyrsta árfjórðungs
2017 og 2018 fari saman að vinnutími
hafi lengst um 0,7%, á meðan vinnandi
fólki hafi fjölgað um 1,6%.
Meðalatvinnuleysi síðustu 12 mán-
aða miðað við mælingar Hagstofunnar
var 2,9% í apríl og hefur það verið nær
óbreytt í eitt ár, segir í Hagsjánni.
Vinnutími lengdist og
vinnandi fólki fjölgaði
Afgreitt Enn kraft-
ur á vinnumarkaði.
STUTT
BAKSVIÐ
Steingrímur Eyjólfsson
steingrimur@mbl.is
Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir ís-
lenskan áliðnað að verða undanþeg-
inn nýjum tollum Evrópusambands-
ins, sem nú skoðar lagalegar leiðir
til þess að svo geti orðið.
Evrópusambandið samþykkti fyr-
ir skömmu mótvægisaðgerðir sem
viðbrögð við nýlegum tollahækkun-
um Bandaríkjanna. Aðgerðir ESB
felast í því að 10% tollur verður
lagður á innflutning áls og 25% toll-
ur á innflutning stáls. Tollarnir eru
hugsaðir sem gagnaðgerð Evrópu-
sambandsins við þeim tollum sem
Donald Trump, forseti Bandaríkj-
anna, hefur boðað á innflutning áls
og stáls til Bandaríkjanna.
EFTA-ríkin undanskilin
Samkvæmt svörum utanríkis-
ráðuneytisins við fyrirspurn Morg-
unblaðsins er framkvæmdaráð ESB
að leita lagalegra leiða til þess að
undanskilja EES/EFTA-ríkin, Nor-
eg, Ísland og Liechtenstein, tollum
sambandsins.
Á blaðamannafundi í síðustu viku
með Ernu Solberg, forsætisráð-
herra Noregs, hét Jean-Claude
Juncker, forseti framkvæmdaráðs
Evrópusambandsins, því að Noreg-
ur yrði undanskilinn tollum sam-
bandsins. Haft hefur verið eftir
Ernu Solberg í norskum fjölmiðlum
að hún vonist til þess að EES-samn-
ingurinn verji norskan iðnað þegar
tollastríð Bandaríkjanna og ESB
brestur á.
Þessum tíðindum hefur verið
fagnað í Noregi, þar sem tollahækk-
anirnar myndu hafa töluverð áhrif á
norskan ál- og stáliðnað. Aðalvið-
skiptalönd norsks ál- og stáliðnaðar
eru innan Evrópusambandsins og
hleypur útflutningur Noregs á
mörgum milljörðum norskra króna.
Útflutningur til Bandaríkjanna er
hins vegar tiltölulega lítill frá Nor-
egi og því hafa tollahækkanir þar
ekki jafn mikil áhrif.
ESB skoðar lagalegar leiðir
Í svörum utanríkisráðuneytisins
kemur fram að á EES-ráðsfundi
sem fram fór 23. maí hafi utanrík-
isráðherra Íslands lagt áherslu á að
verndarráðstafanir á innflutning
stáls og áls næðu ekki til fram-
leiðslu EES/EFTA-ríkjanna, þar
sem þau væru hluti af innri mark-
aðnum. Sendiherra Íslands fundaði
einnig með fulltrúum framkvæmda-
ráðs ESB til þess að koma sömu
skilaboðum á framfæri.
Ráðuneytið segir ESB hafa lýst
yfir vilja til þess að undanskilja
EFTA-ríkin frá aðgerðunum og að
verið sé að skoða lagalegar leiðir til
þess að ganga frá þeim málum. Ís-
lensk stjórnvöld gera því ráð fyrir
því að Ísland verði undanþegið toll-
unum þegar og ef gripið verður til
þeirra.
Miklir hagsmunir í húfi
Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri
Samál, Samtaka álframleiðenda,
segir að ESB hafi tilkynnt í lok
febrúar að kortleggja ætti innflutn-
ing á áli, en EFTA-ríkin væru und-
anskilin því eftirliti.
„Það eru miklir hagsmunir í húfi
fyrir íslenskan áliðnað,“ segir Pét-
ur, „og miðað við þau samtöl sem ég
hef átt við utanríkisráðuneytið virð-
ist vera vilji innan ESB að virða
EES-samninginn, eins og eðlilegt
er.“
Íslenskur áliðnaður í auga
tollastríðsstorms stórvelda
Iðnaður Utanríkisráðuneytið gerir ráð fyrir að Ísland verði undanskilið innflutningstollum ESB á ál og stál.
Tollastríð
» ESB samþykkti mótvægis-
aðgerðir sem svar við tollum
Bandaríkjanna á innflutning
áls og stáls.
» Íslensk stjórnvöld gera ráð
fyrir því að Ísland verði undan-
þegið tollum Evrópusam-
bandsins.
» Framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins er að skoða laga-
legan grunn fyrir því að undan-
skilja EFTA-ríkin tollum á
innflutning áls og stáls.
ESB skoðar lagalegar leiðir til að undanskilja EFTA-ríkin nýjum tollum
Töluvert færri fyrirtækjastjórnend-
ur en áður telja aðstæður vera góðar
í atvinnulífinu og væntingar til
næstu sex mánaða eru minni en
mælst hefur undanfarinn áratug.
Þetta eru niðurstöður nýrrar könn-
unar Gallup meðal stjórnenda 400
stærstu fyrirtækja landsins fyrir
Samtök atvinnulífsins og Seðlabanka
Íslands.
Samkvæmt könnuninni telja 40%
stjórnenda að aðstæður í atvinnulíf-
inu versni á næstu sex mánuðum og
aðeins 7% telja að þær batni. Vænt-
ingar stjórnenda til aðstæðna í at-
vinnulífinu eftir hálft ár eru minni en
þær hafa verið frá upphafi þessara
mælinga í miðju fjármálahruninu
fyrir tæpum 10 árum.
Vísitala efnahagslífsins, sem
endurspeglar mun á fjölda stjórn-
enda sem meta núverandi aðstæður
góðar og slæmar, hefur ekki verið
lægri síðan árið 2014. Telja nú 60%
stjórnenda aðstæður í atvinnulífinu
góðar og 12% telja þær slæmar. Inn-
an við helmingur stjórnenda fyrir-
tækja í alþjóðlegri samkeppni telur
aðstæður góðar, en það á við um tvo
þriðju hluta annarra stjórnenda.
Einungis 27% stjórnenda telja sig
búa við skort á starfsfólki nú, saman-
borið við 42% fyrir ári. Skortur á
starfsfólki er minni í útflutnings-
greinum og ferðaþjónustu en öðrum
greinum, en mestur skortur á starfs-
fólki er í byggingariðnaði og verslun.
Búast má við fjölgun starfsmanna
hjá fjórðungi fyrirtækjanna á næstu
sex mánuðum en fækkun hjá 16%
þeirra.
Að meðaltali vænta stjórnendur
3,0% verðbólgu næsta árið, sem er
nokkuð yfir 2,5% verðbólgumark-
miði Seðlabankans.
Morgunblaðið/Golli
Vinna Mestur skortur er á starfs-
fólki í byggingariðnaði og verslun.
Væntingar ekki
minni í áratug
40% stjórnenda
telja að aðstæður
muni versna