Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 18
SVIÐSLJÓS
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Það eru góðar fréttir aðhreyfing sé á hlutunum ogundirbúningur vopnahléssé hafinn,“ segir Gunnar
Snorri Gunnarsson, sendiherra Ís-
lands gagnvart Kína, Norður-Kóreu
og átta öðrum ríkjum. Vísar hann í
máli sínu til fundar Kim Jong-un,
leiðtoga Norður-Kóreu, og Donalds
Trumps, forseta Bandaríkjanna,
sem fram fór í Singapúr í gær. Á
fundinum undirrituðu leiðtogarnir
sáttmála þar sem Kim lýsti sig
reiðubúinn til að taka fullan þátt í
kjarnorkuafvopnun á Kóreuskaga.
Gunnar segir að fundurinn sé
sögulegur en þrátt fyrir það sé lang-
ur vegur þar til hægt verði að skera
úr um hvort hann hafi verið árang-
ursríkur. „Ég held að fyrir jafn-
stuttan fund og þennan þá gat þetta
aldrei orðið meira en ágætis byrjun.
Það er auðvitað fagnaðarefni að eitt-
hvað sé að gerast, en ég held að við
þurfum að bíða og sjá hvernig þetta
þróast í framhaldinu,“ segir Gunnar
og bætir við að erfitt sé að lesa í
samkomulagið. Orðalag sam-
komulagsins sé fremur óljóst og
meira máli skipti hvaða orðaskipti
áttu sér stað á milli leiðtoganna á
fundinum.
„Ég átti í raun aldrei von á öðru
en að Trump myndi lýsa yfir sigri að
fundi loknum. Það er hins vegar erf-
iðara að lesa í hvað raunverulega
gerðist og hvaða loforð leiðtogarnir
gáfu hvor öðrum á fundinum,“ segir
Gunnar sem á von á því að embætt-
ismenn ríkjanna muni halda áfram
að ræða saman líkt og undanfarna
mánuði.
Jákvæð viðbrögð í Kína
Spurður hvort meira sé undir
nú en í fyrri sáttmálum Bandaríkj-
anna og Norður-Kóreu kveður
Gunnar já við. Vegur þar þungt
hversu mikið Trump lagði á sig til að
láta af fundinum verða.
„Það varð lítið úr samkomulag-
inu sem Bill Clinton, þáverandi for-
seti, gerði. Hann lagði hinsvegar
miklu minna í það en Trump, sem
var tilbúinn að ferðast yfir hálfan
hnöttinn til að láta þetta ganga,“
segir Gunnar sem kveðst undrandi á
því hversu langt Kim var tilbúinn að
ferðast til að mæta á fundinn. Þá séu
ferðalög leiðtogans undanfarin miss-
eri, m.a. til Kína, ekki í takt við
hegðun annarra einræðisherra í
gegnum tíðina. „Hann virðist vera
öruggur með stöðu sína heima fyrir.
Það voru sögur um miklar svipt-
ingar í ríkinu fyrir skömmu. Svo
virðist samt sem hann sé búinn að ná
tökum á stjórnkerfinu sem gerir
honum kleift að ferðast,“ segir
Gunnar.
Aðspurður segir Gunnar að við-
brögð Kínverja og íbúa Suður-
Kóreu við fundinum hafi verið mjög
jákvæð. Kínversk blöð hafi m.a. velt
því upp hvort fasteignaverð á landa-
mærum Norður-Kóreu geti hækkað.
„Þau telja að aukin velsæld og hag-
vöxtur geti valdið því að verðið
hækki í héruðunum í kringum Norð-
ur-Kóreu,“ segir Gunnar og bætir
við að helsta hagsmunamál stjórn-
valda í Kína sé að tryggja stöðug-
leika við landamærin við Norður-
Kóreu. Þá vilji þeir koma í veg
fyrir flóttamannastraum yfir
til Kína og tryggja hæga þró-
un breytinga í Norður-Kóreu.
„Þeir vilja að þetta gerist hægt
og rólega sökum þess að þeir
telja að annars geti skapast
hætta á átökum eða flótta-
mannastraumi. Þeir
leggja því mikið upp úr
því að þróunin sé hæg og
þannig verði hægt að
skapa stöðugleika,“ seg-
ir Gunnar.
Afar góð byrjun en
framhaldið enn óljóst
AFP
Leiðtogar Sendiherra Íslands í Kína, Norður-Kóreu og átta öðrum ríkjum
segir byrjunina góða. Fundurinn sé þó bara fyrsta skrefið í langri vegferð.
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Um sögu-legar við-ræður og
samkomulag Don-
alds Trump, for-
seta Bandaríkj-
anna, og Kims Jong-un,
leiðtoga Norður-Kóreu, gildir
eins og um annað af því tagi;
það sem gerist næst ræður
þýðingu viðræðnanna og sam-
komulagsins. Sagan segir að
stjórnvöld í Norður-Kóreu séu
afar óáreiðanlegur viðsemjandi
þegar kemur að kjarnorku-
málum. Þau hafa svikið flest
sem hægt er að svíkja í þeim
efnum. Þess vegna er sjálfsagt
að fara enn varlega í yfirlýs-
ingar um það hvað komi út úr
fundi Trumps og Kims. Og það
gerði Trump sjálfur þegar
hann sló þann varnagla að eftir
hálft ár kynni að vera að hann
þyrfti að viðurkenna að hann
hefði haft rangt fyrir sér um
samkomulagið við Kim.
Í þessu sambandi skiptir
litlu hvað staðið hefði á því
blaði sem Trump og Kim und-
irrituðu. Sé viljinn til að svíkja
samkomulag fyrir hendi breyt-
ir texti þess litlu. En þrátt fyrir
svo sjálfsagða fyrirvara er
óhætt að fullyrða að horfur um
lausn á deilunni um kjarn-
orkuvopn Norður-Kóreu hafa
ekki áður verið betri en eftir
fundinn í Singapúr í gær. Þar
skiptir meðal annars máli að
um var að ræða leiðtogafund
þeirra tveggja sem mestu ráða
um niðurstöðuna, og að þeir
virðast sammála um hvert skuli
stefna og að það
skuli gert hratt.
Það skiptir líka
máli að Trump hef-
ur frá því hann tók
við sem forseti tek-
ist að herða verulega efnahags-
þvinganir gagnvart Norður-
Kóreu og hefur greint frá því
að hann hafi uppi áform um að
herða enn frekar á þessum
þvingunum gangi kjarnorku-
afvopnun Norður-Kóreu ekki
eftir. Og af því að Trump hefur
sýnt að hann er líklegur til að
fylgja orðum sínum eftir eru
auknar líkur á að Kim geri það
einnig.
Í þessu sambandi er þýðing-
armikið að ekki var ákveðið að
draga strax úr þvingununum,
hvað þá að greiða Norður-
Kóreu stórfé fyrirfram eins og
gert var í samkomulaginu við
Íran sem Bandaríkin hafa sagt
sig frá. Norður-Kórea þarf að
sýna fram á árangur fyrst.
Það hefur líka þýðingu að
rætt var um að vinna hratt í að
útfæra og framkvæma sam-
komulagið. Æðstu embættis-
menn beggja eiga að hefjast
handa tafarlaust og ekki verð-
ur annað séð en að báðum sé
full alvara.
Það er þess vegna full
ástæða til að fagna fundi
Trumps og Kims í Singapúr.
Sumir spáðu því að hann færi
illa, og það hefði getað gerst.
En á þessari stundu er hægt að
segja að fundurinn gefi að
minnsta kosti vonir um hættu-
minni heim.
Leiðtogafundurinn
í Singapúr gefur
góðar vonir }
Bættar horfur
eftir sögulegan fund
Bersýnilegt erað sviðsett
samtöl í fjölbrauta-
skólanum FB um
„nýjan“ meirihluta
í Reykjavík hafa
verið sýndar-
viðræður. Ekkert nýtt eða
handfast kom út úr tveggja
vikna hjali.
Dagur B. Eggertsson hefur
svo sem sýnt að kímnigáfa er
ekki hans sterka hlið. En það
ber þó vott um ákveðna tegund
af gamansemi þegar hópurinn
sem stendur að meirihluta
(með minnihluta borgarbúa á
bak við sig) segir: „Nýr meiri-
hluti mun skoða sérstaklega
hvernig hægt er að byggja upp
ódýrt húsnæði fyrir ungt fólk
miðsvæðis í borginni …“ Mark-
miðið var sagt að draga úr bíla-
umferð. Í hálfan mánuð var
keyrt um bæinn þveran nokkr-
um sinnum á dag til að sam-
þykkja þetta.
Dagur hefur verið að skoða
þetta í fjögur ár og hafði áður
skoðað það með Jóni Gnarr í
önnur fjögur. Upp
úr krafsi Dags
hafðist 400 millj-
óna króna íbúð í
miðbænum eins og
frægt varð. Ekki er
vitað betur en að
æskan sé enn að slást um hana.
Þegar spurt var nánar hvort
hægt væri að byggja ódýrt hús-
næði í miðborginni var því
svarað játandi: „Það er það
sem við erum að fara að skoða í
tengslum við borgarlínuna!!“
Páll Vilhjálmsson orðar þetta
svo undir yfirskriftinni Vinstri-
Viðreisn fæst ódýrt: „Að kveldi
kjördags sagði formaður Við-
reisnar, Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, að flokkurinn
myndi selja sig dýrt í höfuð-
borginni. Verðmiðinn er kom-
inn, tildurembætti forseta
borgarstjórnar. Viðreisn selur
sig ódýrt vinstrimeirihlut-
anum, humarinn kemur án
hvítvíns – kók nægir. Vinstri-
Viðreisn stimplar sig inn á
óreiðuvæng stjórnmálanna
enda á flokkurinn þar heima.“
Það er óhugsandi að
setið hafi verið leng-
ur en í fáeinar mín-
útur yfir þessu}
Fór á ódýra markaðinn
G
aman væri að vita um hvað stjórn-
málin snúast í hugum fólks almennt.
Sumir telja að völd séu meginatriði.
Þeir hafa völd sem geta tekið
ákvörðun sem aðrir verða að hlýða.
Þannig hefur Alþingi sameiginlega lagasetning-
arvald. Þingmaður hefur ekki mikil völd, einn og
sér, en hann getur haft áhrif.
Jafnvel ráðherrar hafa ekkert sérlega mikil
völd hér á landi. „Ég man fyrst þegar ég kom hér
úr starfi borgarstjóra þá fannst mér ég vera mjög
valdalítill kall og hissa á þessu starfi,“ sagði Davíð
Oddsson um embætti forsætisráðherra í viðtali
árið 2003. Í framhaldi af því er rétt að minna á hin
frægu ummæli olíujöfursins JR í Dallas-
sjónvarpsþáttunum forðum daga: Power is not
what you are given. Power is what you take.
Sumir hugsa sér gott til glóðarinnar að komast
„að kjötkötlunum“. Ná fé eða gæðum til vinveittra. Dæmi
gætu verið lækkun gjalda á sína vildarvini. Flestar stöðu-
veitingar eru nú orðið háðar skilyrðum og eftirliti, til dæm-
is um mat ráðningarstofa eða nefnda sem velja úr um-
sækjendum. Stjórnmálamenn hafa oft áhrif, en geta
sjaldnast tekið ákvörðun einir, þó að fræg dæmi séu slíkt
hér á landi. Erlendis eru mörg dæmi um einstaklinga sem
geta tekið ákvarðanir upp á líf og dauða þegnanna.
Hjá flestum skiptir stefnan máli, en þegar inn í flokkinn
er komið sitja margir þar fastir meðan flokkurinn heldur
sama nafni, jafnvel þó að hann skipti um stefnu í megin-
málum. Gamall félagi minn úr menntaskóla, Skafti Harð-
arson, hefur verið í Sjálfstæðisflokknum frá
blautu barnsbeini. Nú bauð hann fram F-
listann á Seltjarnarnesi. Á kjördag setti
hann færslu á Facebook:
„Búinn að kjósa. Í fyrsta sinn var það ekki
merkt við D. Við vorum hópur sem ákvað að
standa frekar með hugsjónum en flokki. Og
það hefur verið gaman að vinna að fram-
gangi F-listans á Seltjarnarnesi. Og jafn-
framt mikill léttir að þurfa ekki að strika yfir
flesta efstu menn á lista eins og ég hef gert í
síðustu kosningum í þeim tilgangi að friða
samviskuna. … Það er dapurt að horfa upp á
góða félaga, sem hafa sömu skoðanir og ég,
tala sér þvert um geð og starfa að framgangi
fólks sem ekki stendur fyrir hugsjónir þeirra
og skoðanir; allt í nafni flokks. Margir höfðu
samband við mig til að telja mér hughvarf,
og sumir sem ég ber mikla virðingu fyrir, en hversu marg-
ir skyldu hafa haft samband við forystumenn flokksins á
Nesinu og spurt á hvaða vegferð þeir væru eiginlega?“
Í svari við stuttri athugasemd minni sagði Skafti:
„[L]íklega eru landsfundaályktanir Sjálfstæðisflokksins
ekki fjarri mínum hugsjónum. En þær eru auðvitað bara
til skrauts. Held að við þurfum að fara að kjósa ein-
staklinga, ekki flokka.“
Skrif Skafta vekja spurningu: Eiga flokkar og hugsjónir
ekki samleið lengur, nema til skrauts?
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Hugsjónir eða flokkur?
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
„Það verður sjálfsagt litið til
hans,“ segir Gunnar, spurður
um hvort líkur séu á því að Do-
nald Trump hljóti friðar-
verðlaun Nóbels fyrir aðkomu
sína að viðræðum Norður-
Kóreu og Bandaríkjanna. Gunn-
ar segir að varasamt sé þó að
veita verðlaun fyrr en kjarna-
vopnum í Norður-Kóreu hefur
að fullu verið eytt. Þá sýni sag-
an það að einræðisríki sem bú-
ið hafa yfir kjarnorkuvopnum
séu treg til þess að eyða þeim.
„Ég held að við þurfum að bíða
og sjá hvernig þetta mun
ganga,“ segir Gunnar en
tekur þó fram að gangi allt
eftir geti Trump komið til
greina þegar útdeila á
friðarverðlaununum.
„Við skulum
bíða og sjá
hvað kemur
út úr
þessu,“
segir
Gunnar.
Trump kem-
ur til greina
FRIÐARVERÐLAUN NÓBELS
Gunnar Snorri
Gunnarsson