Morgunblaðið - 13.06.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Snúningslök geta aukið gæði svefns þegar fólk á erfitt með að snúa sér.
Quick On snúningslökin fást í flestum dýnustærðum og auðvelt er að setja þau á dýnuna.
Kíktu á úrvalið í verslun okkar í Síðumúla 16 og í vefverslun fastus.is
VAKNAR ÞÚ UPP
VIÐ AÐ SNÚA ÞÉR Í RÚMINU?
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Athygli þín beinist svo sannarlega
að heimili, fjölskyldu og fasteignum á næstu
vikum. Gefðu þér tíma til að skoða þær
breytingar sem eru að verða í lífi þínu.
20. apríl - 20. maí
Naut Því meira sem einhver sækist eftir
viðurkenningu þinni, því minna ertu til í að
veita hana. Frá og með deginum í dag ætti
vissum umbrotatímum að vera lokið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að hafa heildarsýn yfir
fyrirliggjandi verkefni og mátt ekki láta smá-
atriðin byrgja þér sýn. Láttu ekkert dreifa
huganum frá því.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Maður á að rétta öðrum hjálparhönd
af því að mann langar til þess en ekki til
þess að hljóta einhver laun fyrir. Það er um
að gera að njóta líðandi stundar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fylgdu engum að málum fyrr en þú ert
viss um að þínum hag sé borgið. Ekki er víst
að allir skilji það, en það skiptir engu máli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það dregur þig niður að umgangast
rangt fólk, en það rétta hjálpar þér að
fljúga. Ef þú vilt að aðrir sýni þér sanngirni
verður þú að vera þeim fyrirmynd.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft ekki að halda að fólk beini
sjónum sínum að þér, ef þú nennir ekki að
hafa fyrir því að vekja athygli þess. Reyndu
frekar að vinna svo að þeir geti ekki annað
en viðurkennt þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er kominn tími til að
bregða á leik og þú ert til í slaginn. Sýndu
háttprýði í allri framgöngu því þá mun þér
farnast vel. Aðrir munu njóta samvista við
þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur reynst nauðsynlegt að
koma að málum úr ólíkum áttum og er
raunar lykillinn að því að skilja þau og brjóta
til mergjar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Einhver átök gjósa upp á vinnu-
stað þínum, en þú skalt halda þig utan við
þau af fremsta megni. Vertu sveigjanlegur
og gamansamur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að gæta þess að týna
þér ekki í smáatriðunum í dag. Þú þarft að
skapa þér betri yfirsýn yfir verkefni þín. Ekki
láta kúga þig til þess sem þú vilt ekki.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að hafa mikið fyrir hlut-
unum sem er allt í lagi ef þú bara gætir
þess að skila vel unnu verki. Þú hefur þörf
fyrir að bregða út af vananum í dag.
Helga R. Einarssyni datt þettasvona í hug (út af heimsmeist-
arakeppninni):
Víkingaliðsheildin vaska
virðist á smámunum flaska.
Er lagði’ af stað út
allt fór í hnút.
Olli því tannlæknataska.
Hér er „Borgarblús“ eftir Helga
og hann spyr: „hvað er í veginum?“:
Þó að kempur þræti
(er þykjast sýna kæti)
allt snýst hér um
á endanum
eitt áhugavert sæti.
Á laugardag skrifar Davíð
Hjálmar Haraldsson í Leirinn að
þessi hafi orðið til á morgungöng-
unni um Krossanesborgir:
Nú er bjart um bæ og tún.
Blómi hlær í sverði.
Ropandi með rauða brún
er rjúpukarri á verði.
Ólafur Stefánsson fer ekki í met-
ing en svarar þó:
Þó að rekjan ráði för,
um Reykja tún og grundir,
á samt fólk og fuglapör,
feiknagóðar stundir.
Og bætir síðan við „ps. það er
líka rjúpukarri á verði í vegkant-
inum hjá mér“.
Ólafur á nýja færslu á Leir:
„Haldið að væri munur að vera
kominn norður á Fíuslóðir og láta
sólina verma sig ? Það mætti líka
fara að rifja upp kveðskapinn hans
DHH , Pílagrímsförina að Sandi,
sem ort var einhvern tíma á góðu
árunum þegar alltaf var gott veður,
– líka fyrir sunnan.
Nú er súld fyrir sunnan,
það seytlar og brátt fyllist tunnan.
Fyrir norðan er þurrt,
ég þangað vil burt.
Það vill ’ann Jón líka’ og Gunnan.“
Guðmundur Halldórsson yrkir á
Boðnarmiði:
Ef óvinur að ykkur þrengir
og ótal spjöld dómarinn hengir
á ykkur snáða
eitt er til ráða
Upp með sokkana, drengir
Það er gamla sagan, – Pétur
Stefánsson yrkir:
Á auraleysi er ekkert hlé,
eykst við skuldastafla.
Sælt finnst mér að sóa fé,
sýnu verra að afla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af tannlæknatösku,
rjúpukarra og súld
„JÁ, VIÐ EIGUM Í HAGSMUNAÁREKSTRI.
ER ÞAÐ EKKI BETRA EN VENJULEGUR
ÁREKSTUR?“
„GETURÐU SKIPT TÍKALLI SVO AÐ ÉG GETI
GEFIÐ ÞESSUM GAUR ÞJÓRFÉÐ SITT?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að borga saman en
ekki í sitthvoru.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÁI! SJÁÐU! ÞÚ ERT LÍKA AÐ FARA ÚR HÁRUM!
HEPPNI EDDI, EKKI HREYFA LEGG NÉ LIÐ!
EKKI
FÆRA ÞIG
FYRR EN
ÉG SEGI
TIL
FLÝTTU ÞÉR! ÞETTA ER SVO
VANDRÆÐALEG STAÐA!
Þegar matar er notið beinist at-hyglin yfirleitt að bragðinu.
Hvernig smakkast hann? Bráðnar
hann í munni? Er hann veisla fyrir
bragðlaukana? Hljóð er sjaldnast
tengt við mat, en skiptir þó máli.
Vísindamenn í Oxford hafa komist
að því að ánægja með kartöflu-
flögur veltur meðal annars á því
hversu stökkar þær eru. Því stökk-
ari, því betri þykja þær. Getur
þetta munað 15% samkvæmt mæl-
ingum vísindamannanna. Segja þeir
að skýringin á þessu gæti verið sú
að mannsheilinn tengi hljóðið þegar
stökkar kartöflurnar molna í munni
við ferskleika.
x x x
Utanaðkomandi hávaði mun einn-ig hafa áhrif á hvort við njót-
um matar. Mikill hávaði í bak-
grunni dregur úr getunni til að
greina sætleika og seltu. Mælist
hávaðinn, sem dynur á farþegum
frá þotuhreyflunum, til dæmis á
bilinu 75 til 80 desibel. Flugvéla-
matur bragðast því sjaldnast vel.
Það var sem sagt misskilningur hjá
Víkverja að flugfélög kynnu ekki að
ráða kokka, annáluðustu matar-
gerðarmeistarar ættu ekki mögu-
leika í samkeppninni við dyninn frá
þotuhreyflunum.
x x x
Ásýnd matar hefur einnig áhrif áneytandann. Gerð var könnun
þar sem matnum var raðað með
mismunandi hætti á diskinn og
tóku 12 þúsund manns þátt í henni.
Niðurstaðan var sú að þátttak-
endum fannst maturinn mun girni-
legri ef honum var raðað þannig á
diskinn að hann vísaði upp eða í
það minnsta til hliðar heldur en ef
hann vísaði í átt að þeim.
x x x
Vísindamenn hafa einnig velt fyr-ir sér hvað smekkur segi um
persónuleika. Austurríski sálfræð-
ingurinn Christina Sagioglou gerði
könnun þar sem hún komst að því
að tölfræðileg fylgni væri með
hneigð til kvalalosta og smekk fyrir
beiskri matvöru. Víkverja er nokk-
uð brugðið, en huggar sig við að
hann er öllu sólgnari í sætindi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, miskunn hans var-
ir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til
kyns.
(Sálm: 100.5)