Morgunblaðið - 13.06.2018, Side 32

Morgunblaðið - 13.06.2018, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég mun bjóða gestum að kynnast listrænum bakgrunni mínum og því hvernig samtímalistamaður getur orðið fyrir áhrifum úr ólíkum áttum og nýtt sér það,“ segir litháísk- bandaríska tónskáldið, hljóðfæra- leikarinn og listamaðurinn Abraham Brody um tónleika sína, Crossings, í Klúbbi Listahátíðar í Hafnarhúsinu í kvöld, miðvikudag, kl. 20. „Ég ólst upp í Bandaríkjunum en ræturnar eru líka í Litháen, þar sem ég hef búið um skeið og líka í Austur- ríki, London – auk þess sem ég hef dvalið langdvölum hér á landi. Áhrif- in á listsköpun mína koma því víða að,“ segir hann. Brody nam klassíska tónlist við virta tónlistarskóla beggja vegna Atlantshafs en segist líka hafa orðið fyrir mikil áhrifum af þjóðlagatónlist og raftónlist. „Allt mætist það ein- hvern veginn í tónsmíðum mínum og í verkunum sem ég mun spila hér. Rótina í sumum þeirra má finna í fornum litháískum þjóðlögum sem ég legg við rafhljóðfæri, röddun og ýmis hljóðfæri. Önnur eru sam- tímalegri, þau eru nýrri og í raun nokkuð sjálfsævisöguleg. Þau fjalla um sambönd fólks af minni kynslóð, virkni samfélagsins og goðsagnir hversdagslífsins.“ Brody segist oftast nær koma einn fram á tónleikum og nota þá mikið af rafrænum lausnum í bland við spila- mennskuna á sviðinu. Hann komi þó í auknum mæli fram með öðru lista- fólki. „Góður samstarfsmaður og vinur, Ásta María Kjartansdóttir, mun leika á selló með mér í sumum lögunum á tónleikunum hér. Ég hef undanfarið unnið talsvert með ís- lenskum listamönnum, til að mynda höfum við Ásta María verið með tríó með Önnu Fríðu Jónsdóttur mynd- listarkonu og við höfum skapað per- formans-innsetningar, til að mynda tvisvar í New York og á LungA- hátíðinni á Seyðisfirði.“ Féll fyrir íslenskri vetrarbirtu Þegar Brody er spurður að því hvernig það hafi komið til að hann fór að heimsækja Ísland og dvelja hér rekur hann það aftur til þeirra daga er hann var við nám í Vínar- borg og kynntist þar Önnu Fríðu og Ástu Maríu. „Þá fór ég að koma hingað í heimsókn og eins og aðrir féll ég gjörsamlega fyrir náttúrunni. Ég kom fyrst að vetrarlagi og fór nánast að gráta yfir fegurðinni; vetrarsólin skapar hér einstaka birtu. Þá sá ég að ég yrði einhvern tímann að búa hér. Og svo hafði ég vitaskuld verið meðvitaður um ís- lenska tónlist árum saman og hún hefur haft mikil áhrif á mig.“ Abraham Brody hefur verið mikil- virkur á undanförnum árum við tón- leikahald og gjörninga sem eru tengdir tónlistarsköpun. Hann var nýverið í tónleikaferð um England og Skotland og kom fram á tónlistar- hátíð í Hollandi. Undanfarið ár hefur hann verið staðarlistamaður við nýtt og áhugavert leikhús í New York, National Sawdust, og áður var hann staðarlistamaður við Barbican- safnið í London. Gjörningar með Abramovic Þá hefur Brody unnið með hinni heimskunnu gjörningalistakonu Marinu Abramovic. „Ég hafði hrifist af því hvernig henni tekst alltaf að hafa áhrif á áhorfendur með beinum og afgerandi hætti. Með tónlistar- bakgrunn minn hafði mér þá lengi fundist ófullnægjandi að sitja bara á sviði og leika á hljóðfæri, langt frá áheyrendum, og langaði að breyta þessu sambandi. Þegar ég var í námi við Guildhall-skólann í London skrif- aði ég lokaritgerð um hvernig mætti fella gjörningalist að klassískri tón- list og svo gerði ég verk sem ég kall- aði „The Violinist Is Present“ og byggði á frægu verki Marinu, „The Artist Is Present“. Þar sat ég allan daginn í galleríi og spann út frá því sem ég sá birtast í augum fólks sem sat andspænis mér. Marina sá verkið og kunni að meta það, við vorum áfram í sambandi og svo bauð hún mér að vera með performans, sem hún stýrði, í Bayeler-safninu í Basel. Hún hefur verið mér mikil fyrir- mynd um það hvað gjörningur og op- inber flutningur getur verið; ekki bara sem skemmtun hefur upplifun sem umlykur gestinn.“ Fjölbreytileg verkefni Í framhaldinu hefur Brody skapað ýmis verk sem eru gerð fyrir sýn- ingarsali frekar en hefðbundið svið tónlistarmanna og taka oft nokkra daga í flutningi. „Nú hef ég færst frá því en reyni þó að halda ákveðnum þáttum í stuttum gjörningum og tón- leikum sem ég set saman,“ segir hann. Og nefnir sem dæmi tónleika- ferð sem hann fór í í apríl síðast- liðnum milli þekktra menningar- stofnana í Bandaríkjunum með fjórum konum sem fluttu gamla al- þýðusöngva frá Litháen. „Við köll- uðum verkið Ancestors og söngurinn fléttaðist saman við raftónsmíðar mínar og margmiðlunar- framsetningu,“ segir hann. En hvað er næst á döfinni? „Það eru tvö stór verkefni. Annað verður í New York í haust, flutningur hljóm- sveitar á tónlist eftir mig, og svo kem ég fram á djasshátíðinni í London með áhugaverðum strengjakvintett, Wooden Elephant. Ég hef áhuga á svo mörgu,“ segir Brody og brosir. Morgunblaðið/Einar Falur Fjölhæfur Á tónleikunum í kvöld býður Brody gestum að kynnast persónu- legri tónlist þar sem litháísk stef fléttast við margslunginn hljóðheim. Nýtir áhrif úr ýmsum áttum  Abraham Brody í Klúbbi Listahátíðar Undir trénu 12 Agnes grípur Atla við að horfa á gamalt kynlífs- myndband og hendir honum út. Atli flytur þá inn á for- eldra sína, sem eiga í deilu við fólkið í næsta húsi. IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 22.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,4/10 Bíó Paradís 20.00 Mýrin 12 Metacritic 75/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 18.00 Síðasta áminningin Mynd þar sem sjálfsmynd og hugarfar Íslendinga er skoðað út frá sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta og rætt er við þrjá leikmenn liðsins og aðra þjóðþekkta einstaklinga. Bíó Paradís 18.00 Jumanji: Welcome to the Jungle 12 Metacritic 58/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 20.00 In the Fade 12 Metacritic 64/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 22.15 Call Me By Your Name 12 Metacritic 93/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 17.30 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Þegar eldfjallið á eyjunni vaknar til lífsins þurfa Owen og Claire að bjarga risaeðl- unum frá útrýmingu. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 17.00, 19.50, 22.25 Sambíóin Álfabakka 16.45, 19.30, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 19.30, 22.15 Smárabíó 16.20, 16.50, 19.40, 22.30 Háskólabíó 17.50, 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30, 22.00 Adrift 12 Myndin fjallar um unga konu sem þarf að takast á við mikið mótlæti frá Kyrra- hafinu eftir að skúta, sem hún og unnusti hennar höfðu tekið að sér að sigla gjöreyðilagðist. Metacritic 56/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 17.50, 20.00, 22.10 Smárabíó 17.40, 19.10, 20.00, 21.30, 22.20 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.30, 19.30, 21.30 Terminal 16 Metacritic 26/100 IMDb 5,2/10 Sambíóin Egilshöll 20.00 Sambíóin Kringlunni 17.50, 20.00, 22.10 Sambíóin Akureyri 21.30 Vargur 16 Bræðurnir Erik og Atli eiga við fjárhagsvanda að stríða. Þeir grípa til þess ráðs að smygla dópi. Erik skipulegg- ur verkefnið og allt virðist ætla að ganga upp, en óvænt atvik setur strik í reikninginn. Morgunblaðið bbbmn IMDb 7,3/10 Smárabíó 22.30 Bíó Paradís 22.00 Avengers: Infinity War 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 68/100 IMDb 8,8/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.40 Sambíóin Egilshöll 17.00, 22.20 I Feel Pretty 12 Metacritic 47/100 IMDb 4,7/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Bókmennta- og kartöflubökufélagið Rithöfundur myndar óvænt tengsl við íbúa á eynni Guernsey, skömmu eftir seinni heimsstyrjöldina, þeg- ar hún skrifar bók um reynslu þeirra í stríðinu. Háskólabíó 18.10 Rampage 12 Metacritic 45/100 IMDb 6,4/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Smárabíó 15.10, 17.20 Pétur Kanína Smárabíó 15.00 Lói – þú flýgur aldrei einn Morgunblaðið bbbbn Smárabíó 15.30 Víti í Vestmanna- eyjum Myndin fjallar um strákana í fótboltaliðinu Fálkum sem fara á knattspyrnumót í Vestmannaeyjum. Morgunblaðið bbbbn Sambíóin Álfabakka 17.40 Sambíóin Akureyri 17.10 Midnight Sun Myndin fjallar um 17 ára gamla stelpu, Katie. Hún er með sjaldgæfan sjúkdóm sem gerir hana ofur- viðkvæma fyrir sólarljósi. Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.15 Sambíóin Kringlunni 17.30, 19.40, 21.50 Sambíóin Akureyri 19.30 Morgunblaðið bbbmn Metacritic 62/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 19.40, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.10 Sambíóin Kringlunni 16.40, 19.30, 22.20 Sambíóin Akureyri 16.40, 19.30, 22.20 Solo: A Star Wars Story 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdar- verkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og há- lendi Íslands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Laugarásbíó 17.40, 20.00 Smárabíó 17.40, 19.50 Háskólabíó 18.00, 21.00 Bíó Paradís 18.00, 20.00 Deadpool 2 16 Eftir að hafa naumlega komist lífs af í kjölfar nautgripaárásar á afmynd- aður kokkur ekki sjö dagana sæla. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 66/100 IMDb 8,1/10 Laugarásbíó 22.10 Smárabíó 19.50, 22.10 Háskólabíó 20.40 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.