Morgunblaðið - 13.06.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2018
ICQC 2018-20
AF DANSI
Nína Hjálmarsdóttir
ninahjalmars@gmail.com
Listahátíð í Reykjavík stendurnú yfir. Áberandi á hátíðinniað þessu sinni eru verk sem
hafa tengsl við samfélagið og bjóða
áhorfendum upp á persónulega upp-
lifun.
The Great Gathering eftir Ás-
rúnu Magnúsdóttur og Alexander
Roberts, var sýnt í annað sinn á Eið-
istorgi síðastliðinn föstudag. Flytj-
endur voru dansarar Íslenska dans-
flokksins ásamt hópi barna og
unglinga. Eiðistorg er gleymdur
gimsteinn í borgarinni, og sú
nostalgía unglingsáranna að hanga í
verslunarkjörnum svífur þar yfir.
Gjörningurinn var einskonar „flash-
mob“ eða leifturlýður. Þau dönsuðu
um allt rýmið, komu saman og
sundruðust, fóru í feluleik, blönd-
uðust inn í umhverfið. Húmorinn og
gleðin voru allsráðandi. Tónlistar-
maðurinn Hermigervill spilaði sínar
ábreiður af klassískum dægurlögum
sem passaði vel við rýmið og bjó til
ævintýralega stemmingu. Flytj-
endur voru óumræðanlega nett,
mjög fjölbreyttur hópur, og náðu
áhorfendum á sitt band sem dilluðu
sér með og brostu útað eyrum. Börn
fylgdust hugfangin með og vildu
vera með í dansinum. Venjulegum
viðskiptavinum Eiðistorgs brá í
brún við þessa sjón, og inn á milli
mátti sjá nokkra ruglaða túrista.
Verkið minnti á tónlistarmyndband,
og eins gaman og var að horfa á það,
má velta því fyrir sér hvort að verkið
hefði verið áhrifaríkara, ef áhorf-
endur hefðu tekið virkari þátt í sam-
komunni.
Blokkarpartí með
ókunnugum
Síðasta laugardag opnuðu íbúar
í Asparfelli í Breiðholti íbúðir sínar
og buðu gestum í blokkarpartí.
Verkið, Asparfell, sem einnig eftir
Ásrúnu Magnúsdóttur og Alexander
Roberts í samvinnu við íbúana, er
samstarfsverkefni Listahátíðar og
Breiðholt Festival.
Á fyrsta viðkomustað voru
feðgar sem báðir heita Siggi, sonur-
inn er dansari og býr í Ástralíu, fað-
irinn er tannsmiður og nuddari. Þar
inni mátti sjá leðurhúsgögn, tann-
smíðaverkstæði, styttur og eftir-
prentanir af málverkum Salvadors
Dali. Sonurinn sagði mér glettinn að
pabbinn hafði verið hoppandi
spenntur alla vikuna af tilhlökkun.
Gestir fengu síðan hressandi dans-
kennslu frá syninum, sem kenndi
grunnsporin í línudansi og dansinn
við „Blame it on the Boogie“.
Hvert heimili í Asparfelli sem
opið var bauð uppá mismunandi
upplifun, hannaða af húsráðendum.
Hvort sem það var að drekka Svala
og spila Super Mario-tölvuleik með
ungri stelpu í 90’s umhverfi, eða
heimsókn til ömmu sem settist ekki
niður því hún var svo upptekin við að
gæta þess að allir fengju kaffi. Hver
upplifun var náin, persónuleg og
snerti við manni. Ein kona spilaði
Mannakindur, mollið og blokkarpartí
Ljósmynd/Leifur Vilberg
Asparfell Línudans stiginn af gestum í einni stofu fjölbýlishússins.
uppáhalds tónlistina sína fyrir gesti,
og talaði um sveitaböll áttunda ára-
tugsins.
Blokkarpartíið bauð upp á
heillandi innsýn í líf ókunnugra, og
gestir sáu hvernig persónuleiki íbú-
anna endurspeglaðist í eigum þeirra
og smekk. Verkið var samfélagsleik-
hús sem leyfði áhorfendum að hitta
fólk í sínu umhverfi, og heyra sögur
þeirra. Heyra af hverju þau tóku
þátt, hvað þeim liggur á hjarta, hvað
hefur reynst þeim erfitt í lífinu og
hvað veitir þeim hamingju. Kon-
septið á sérstaklega vel við þema
Listahátíðar í ár, „Heima“. Það er
ánægjulegt að Listahátíð standi fyr-
ir svona verkefni, að bjóða allskonar
fólki í úthverfum borgarinnar að
taka þátt í að skapa upplifun sem
byggir á þeirra eigin „heima“.
Menn verða kindur
Á sunnudaginn upplifði rýnir
gjörninginn Kindurnar eftir kana-
díska sviðslistahópsinn Corpus, í
nýju útileikhúsi við Veröld – Hús
Vigdísar. Verkið var svipmynd
sveitasenu sem snýr upp á raun-
veruleikann. Flytjendur voru mann-
eskjur í líki kindahjarðar, og gerðu
það svo vel að áhorfendur komu
fram við þau líkt og þau væru kind-
ur. Flytjendur jörmuðu í óþreyju
sinni, hreyfðu sig kindalega, átu,
pissuðu, hlýddu hirðinum og leyfðu
börnum að klappa sér. Allt varð
þetta meira súrrealískt í borgar-
landslagi milli steypuklumpa. Boð-
skapurinn var fljótandi, átti að
benda áhorfendum á firringu nú-
tímamannsins? Óð til horfinna sam-
félaga? Að veganismi er framtíðin?
Verkið var svo furðulegt og fyndið
að það skipti ekki máli hvað það
þýddi, það var opið til túlkunar, til-
finningin sat eftir og líklegt er að
börnin gleymi þessu aldrei.
Hátíð fyrir alla
Listahátíð í Reykjavík er þver-
fagleg hátíð sem stendur til 18. júní.
Hún er og á að vera leiðandi afl í ís-
lensku menningarlífi. Það er mikil-
vægt að hátíð sem þessi setji upp
verk sem dansa á milli listforma. Að
Listahátíð standi fyrir nýsköpun og
komi verkum á framfæri sem hafa
samfélagslega nálgun og nái sem
víðast um borgina, og til sem flestra.
Verk sem ögra skilningarvitum okk-
ar, og vekja upp hjá okkur sam-
kennd og gleði. Listahátíð borgar á
að vera fyrir alla borgarbúa, sama
hver bakgrunnur þeirra er eða í
hvaða hverfi þeir búa. Listahátíð í
Reykjavík 2018 sýnir að þetta er
hægt án þess að slá af listrænum
kröfum og er vonandi að hátíðin
styrkist enn frekar á komandi árum,
sem hátíð allra borgarbúa.
» Boðskapurinn var fljótandi, átti að bendaáhorfendum á firringu nútímamannsins?
Óð til horfinna samfélaga? Að veganismi er
framtíðin? Verkið var svo furðulegt og fyndið
að það skipti ekki máli hvað það þýddi, það
var opið til túlkunar, tilfinningin sat eftir og
líklegt er að börnin gleymi þessu aldrei.
Ljósmynd/Leifur Vilberg
Kindur Kanadíski hópurinn sýndi í útileikhúsi við Veröld – Hús Vigdísar.
Morgunblaðið/Eggert
The Great Gathering Dansarar íslenska dansfloksins fluttu verkið ásamt hópi barna og unglinga á Eiðistorgi.
Ocean’s 8
Hér er um að ræða glæpagrínmynd
sem er afsprengi Ocean’s Eleven
sem Steven Soderbergh gerði
2001. Að þessu sinni er Debbie,
systir Danny Ocean úr fyrri mynd-
inni, í aðalhlutverki. Hún sér um að
plana rán sem á ekki að vera hægt
að framkvæma. Leikstjóri er Gary
Ross og í aðalhlutverkum eru
Sandra Bullock, Cate Blanchett,
Anne Hathaway, Dakota Fanning
og Helena Bonham Carter.
Rotten Tomatoes: 68%
Adrift
Nýjasta kvikmynd Baltasars Kor-
máks er byggð á sannri sögu
þeirra Tamiar
Ashcraft og
Richards Sharp
sem hittust 1983
og féllu fyrir
hvort öðru.
Stuttu síðar tóku
þau að sér að
sigla skútu um
6.500 kílómetra
leið yfir opið
Kyrrahafið. Það
reyndist feigðarför. Ítarlegt viðtal
við Shailene Woodley birtist í
Morgunblaðinu fyrir stuttu og í
blaðinu á morgun er leikstjórinn í
viðtali.
Bíófrumsýningar
Töff Sandra
Bullock í Ocean’s 8.
Hasar og lífsháski