Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 13.06.2018, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Níu bílar skemmdir 2. Lögðu hald á 200 kríuegg 3. Dagur áfram borgarstjóri 4. Einn fluttur á slysadeild »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Málþing um nýjungar og stefnur í innanhússhönnun séðar frá sjónar- horni hönnuða og hönnunarkennslu er haldið í Norræna húsinu í dag kl. 17. Á málþinginu er lögð áhersla á sjálfbærar lausnir og framtíðarsýn í hönnun sem auknar lífsstílsbreyt- ingar kalla á óðfluga. Frummælendur á málþinginu eru Garðar Eyjólfsson og Thomas Pausz, fagstjórar meistaranáms í hönnun við Listahá- skóla Íslands, vöruhönnuðirnir Auður Inez Sellgren og Sigrún Thorlacius og Inga Kristín Guðlaugsdóttir, nemandi í vöruhönnun við IUA. Sérstakur heið- ursgestur er finnski iðnhönnuðurinn Ville Kokkonen sem á að baki glæsi- legan feril við hönnun og hefur starf- að með leiðandi norrænum vöru- merkjum á við Artek, Nokia, Iittala og Ups. Málþingið er skipulagt í tengslum við hönnunarsýninguna Innblásið af Aalto: Með sjálfbærni að leiðarljósi sem er hluti af 50 ára af- mælisdagskrá Norræna hússins. Morgunblaðið/Ómar Hannað fyrir framtíð- ina í Norræna húsinu  Tyrfingur Tyrfingsson, fyrrverandi hússkáld Borgarleikhússins, verður meðal gesta á leiklistarhátíðinni í Avignon í Frakklandi í næsta mánuði og er hann þar í hópi framsækinna ungra evrópskra leik- skálda. Leikrit hans, Bláskjár, sem frum- sýnt var í Borgarleik- húsinu í ársbyrjun 2014, verður leiklesið í nýrri franskri þýð- ingu í Avignon 6. júlí. Bláskjár eftir Tyrfing leiklesið í Avignon Á fimmtudag Norðaustan 8-13 m/s og súld eða rigning um landið norðan- og austanvert, en úrkomuminna annars staðar. Á föstudag Norðlæg átt, víða 3-8 m/s. Skýjað en þurrt að kalla norðanlands, en austlægari og dálítil væta um sunnanvert landið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 3-8 og þykknar upp um norðaust- anvert landið í kvöld og fer einnig að rigna austast. Hiti 6 til 15 stig. VEÐUR „Úrslit leiksins í kvöld skera úr um hvort við verðum inni á HM eða úti í kuldanum. Annað tækifæri verður ekki í boði og við treystum á að fólk fjölmenni í Höllina og styðji við bakið á okkur,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðs- þjálfari karla í handknatt- leik, við Morgunblaðið en Ís- land mætir Litháen í kvöld í úrslitaleik um sæti á HM 2019. »1 Hreinn úrslita- leikur í Höllinni „Ég var kominn inn í skóla í Banda- ríkjunum sumarið 2009. Örugga leið- in var að fara í námið. Erfiða leiðin var að reyna að verða atvinnumaður, af því að það er ekkert sjálfgefið í því. Tímabilið 2009 byrjaði hins vegar mjög vel, ég skoraði í fyrstu fimm leikjunum minnir mig, og þar með vissi ég að ég vildi gera allt til þess að ég gæti gert það sem mig hafði alltaf langað til – að verða atvinnu- maður í fót- bolta,“ segir Alfreð Finn- bogason. »2 Markaskorarinn ætlaði í markaðsfræði „Markmiðið er að klúbburinn haldi áfram að vaxa og dafna, það eru margir iðkendur í félaginu og við þurfum að stuðla að því að allir fái tækifæri, ef þeir halda áfram að standa sig vel,“ sagði Ingi Þór Stein- þórsson m.a. við Morgunblaðið eftir að hafa tekið við uppeldisfélagi sínu KR á ný. Ingi hefur síðustu níu árin verið hjá Snæfelli. »4 Félagið þarf að halda áfram að vaxa og dafna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Anna Sigfúsdóttir fagnaði í gær 100 ára afmæli sínu í faðmi vina og vandamanna. Hún hefur haft góða heilsu í öll þessi ár og segir að til þess að ná svo háum aldri þurfi að ýmsu að huga. ,,Ef ég á að gefa ein- hver ráð þá er það að lifa skyn- samlegu lífi í rólegheitum, það er mikilvægt að æsa sig aldrei mikið. Ég held líka að það sé ljómandi gott að sleppa því að reykja og drekka.“ Þrældugleg vinnukona Anna ólst upp á Hvalsá í Hrúta- firði en flutti þaðan í Borgarfjörðinn, á Kleppjárnsreykjahverfið. Þar stundaði hún grænmetisrækt með manninum sínum og hafði unun af því að vinna. ,,Ég hafði alltaf mikinn áhuga á því að vinna og var þrældug- leg vinnukona. Ég ólst upp í fátækt og það er svo yndislegt að geta kom- ið fjölskyldunni sinni upp sóma- samlega.“ Þegar Anna flutti til Reykjavíkur, fyrir fjörutíu árum, fór hún að vinna á barnaheimili og vann þar til sjötugs. ,,Það er alltaf gott að hafa einhverja vinnu,“ segir Anna. Sonur Önnu tók við búskapnum af móður sinni þegar hún flutti til Reykjavíkur fyrir fjörutíu árum, en Anna á fjögur börn. Þau eru á aldr- inum 66 til 78 ára. Ömmubörnin eru tólf og langömmubörnin orðin 21. Anna hefur dvalið á Hrafnistu í eitt ár og kveðst ánægð með dvölina. ,,Það hefur verið ágætt að vera hérna. Alveg hreint ljómandi gott.“ Áður hafði hún nokkrum sinnum farið á Hrafnistu í hvíldarinnlögn en annars búið ein. 295 ára systkin Anna er fjórða elst af systkinum sínum, en þau voru fjórtán talsins. Nú eru þrjú systkinanna eftir; Anna og tveir bræður hennar. Bræðurnir eru þeir Lárus, fyrrverandi ráð- herrabílstjóri, og Haraldur, fyrrver- andi bifreiðarstjóri og píanóstill- ingamaður. Lárus er 103 ára og Haraldur 92 ára, samanlagður aldur systkinanna sem eftir lifa er því 295 ár. Þegar Anna er spurð út í langlífi í fjölskyldu sinni segir hún að það hljóti að vera eitthvað fyrst bróðir hennar sé einnig búinn að ná 100 árum. ,,Foreldrar mínir voru ekki svona langlífir eins og við en þau urðu þó nokkuð fullorðin.“ Anna vill jafnvel meina að það sé enginn áfangi lengur að verða 100 ára. ,,Það er ekkert svo sérstakt lengur að verða 100 ára, þetta er bara að verða svolítið algengt.“ Ástæður þess segir Anna vera ein- faldar. ,,Við höfum það mikið betra nú til dags heldur en áður fyrr. Það er nú bara svoleiðis.“ Mikilvægt að æsa sig ekki um of  Anna Sigfúsdóttir grænmetisbóndi er orðin 100 ára  Tveir bræður hennar eru eftirlifandi, 103 og 92 ára  Hafði gaman af að sjá fyrir fjölskyldu sinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Langlífi Samanlagður aldur systkinanna þriggja, Önnu, Lárusar og Haraldar, er hvorki meira né minna en 295 ár. Anna er 100 ára, Lárus 103 ára og Hall- dór 92 ára. Þau eru þrjú eftirlifandi af fjórtán systkinum. Anna segir það ekkert sérstakt að vera orðin 100 ára enda nái nú margir þeim aldri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.