Morgunblaðið - 14.06.2018, Page 4
Í KAFFIKRÓKINN
Til að halda starfsfólkinu ánægðu
dugar ekki að bjóða bara upp á
kaffi á könnu. Í kaffikróknum þarf
helst að vera fullkomin vél sem
galdrar fram flókna kaffi- og
kakódrykki, og að auki úrval af te-
pokum. Vatnið má heldur ekki
skorta, og best að það komi úr
tæki sem getur bæði kælt og hitað
vatnið eftir þörfum – að skrúfa frá
krana yfir vaski er of mikið um-
stang.
Til að setja punktinn yfir i-ið
þarf líka að skaffa kolsýrt vatn, en
þá vandast málið því flest kolsýru-
tæki eru ekki sérlega falleg á að
líta og gera lítið fyrir kaffi-
herbergið.
Kolsýrutækið frá sænska fram-
leiðandanum Aarke er hins vegar
svo snoturt að þyrfti helst að stilla
því upp á áberandi stað og beint
undir ljóskastara.
Frá ákveðnu sjónarhorni lítur
tækið út eins og verðlaunagripur
eftir naumhyggjusinnaðan hönnuð,
og frá öðrum hornum eins og
gegnheilt, sterkbyggt, sígilt og
krómlitað þarfaþing í eldhúsið.
Aarke-kolsýrutækið má kaupa á
www.aarke.com á 199 sænskar
krónur. ai@mbl.is
Kolsýrutæki sem
þarf ekki að fela
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018FRÉTTIR
Margt er að gerast hjá Maríu
Björk um þessar mundir. Hún á
von á sínu fyrsta barni í október
og stefnt er að því að skrá fyrir-
tækið sem hún stýrir, Almenna
leigufélagið, í kauphöll á næsta
ári.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Almenna leigufélagið er til-
tölulega ungt félag, stofnað 2014,
og hefur vaxið hratt undanfarin ár.
Örum vexti fylgja alltaf áskoranir,
svokallaðir „vaxtarverkir“, sem er
bæði skemmtilegt og spennandi að
takast á við.
Hver var síðasti fyrirlesturinn
sem þú sóttir?
Ég sótti vel heppnaðan fyrir-
lestur kanadíska prófessorsins
Jordan B. Peterson í Hörpu á dög-
unum. Ég er hrifin af boðskap Pet-
ersons; hann er að mínu mati rödd
skynseminnar í heimi þar sem
öfgafull og popúlísk sjónarmið
hafa því miður öðlast meira vægi
síðustu ár.
Hvaða hugsuður hefur haft
mest áhrif á hvernig þú starfar?
Ég er mikill aðdáandi tölfræð-
ingsins Nassim Taleb og er að lesa
nýjustu bókina hans Skin in the
game þessa dagana. Hann hefur
einstaka sýn á það hvernig kerfin
sem heimurinn er samsettur úr
virka og það er hægt að beita
kenningum hans á nánast allar að-
stæður sem upp koma í starfi.
Hvert væri draumastarfið
ef þú þyrftir að finna þér
nýjan starfa?
Öll störf sem ganga út á að
byggja eitthvað upp og bæta
þannig að árangurinn sé sýni-
legur. Ég nýt þess að vinna með
fólki og það er nauðsynlegt að
starfið krefjist mikilla samskipta.
Hvernig heldurðu
þekkingu þinni við?
Aðallega með því að fylgjast vel
með alþjóðlegri þróun. Til dæmis
hlusta ég mikið á erlend hlaðvörp
og les tímarit og fréttabréf. Ég hef
sérstakan áhuga á því sem er að
gerast á sviði tækninnar þar sem
það er stutt í að gervigreind og
viðbótar/sýndarveruleiki muni
kollvarpa svo mörgu sem okkur
þykir eðlilegt í dag.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég blanda saman hreyfingu
sem byggist á áreynslu eins og
hjólreiðum og lyftingum, og slök-
un á borð við jóga og hugleiðslu.
Langbesta ákvörðunin var að fá
mér skrifborð sem hægt er að
standa við. Það léttir ótrúlegu
álagi af líkamanum.
Hvað myndirðu læra ef þú feng-
ir að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég hef mikinn áhuga á tungu-
málum og ég lét gamlan draum
rætast nýlega þegar ég byrjaði að
læra mandarin-kínversku með
hjálp einkakennara. Ég hef líka
gaman af forritun og er byrjuð á
tölvunarfræðigráðu sem ég setti á
ís vegna anna. Það er aldrei að vita
nema maður taki hana upp að nýju
í framtíðinni.
Hvaða kosti og galla sérðu
við rekstrarumhverfið?
Kostirnir við að starfa í jafn litlu
hagkerfi og því íslenska felast að-
allega í nálægð við fólk og stuttum
boðleiðum. Hins vegar má segja
að gallinn felist líka í smæð mark-
aðarins þar sem aðgerðir á borð
við innflæðishöft á erlent láns-
fjármagn, án þess að útflæðishöft
á íslenskt fjármagn séu við lýði,
skapa ójafnvægi á fjármagns-
mörkuðum með tilheyrandi kostn-
aði fyrir fyrirtæki og heimili.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Ég er svo heppin að vera um-
kringd skemmtilegu og hæfi-
leikaríku fólki í leik og starfi sem
veitir mér innblástur og hvatningu
á hverjum degi.
Hvaða lögum myndirðu breyta
ef þú værir einráð í einn dag?
Ég myndi leggja áherslu á að
breyta löggjöf sem skerðir at-
hafna- og viðskiptafrelsi, til að
mynda með því að afnema einokun
á leigubílaakstri og áfengissölu, og
lögum um mannanöfn. Þá mega
lög um trúfélög alveg missa sín en
það er algjör tímaskekkja að þeir
sem kjósa að vera ekki meðlimir í
trúar- eða lífsskoðunarfélagi séu
neyddir til þess að greiða hlutfalls-
lega hærri skatta en aðrir.
SVIPMYND María Björk Einarsdóttir frkvstj. Almenna leigufélagsins
Lærir kínversku og
er forvitin um forritun
Morgunblaðið/ Arnþór
Fengi María að ráða myndi hún m.a. vilja afnema einokun á leigubílarekstri og áfengissölu.
FYRIR BÁSINN
Góður bakki getur gert kraftaverk.
Það verður ekki hjá því komist, í
amstri dagsins, að þurfa að hafa
ýmsa smáhluti við höndina. Nema
hvað að vinnusvæðið getur fljótt
orðið frekar ósnyrtilegt ef þar eru
smámunir á stangli. Nafnspjöld,
skæri, pennar, strokleður: allt verð-
ur snyrtilegra þegar því hefur verið
raðað ofan í bakka.
Það þarf ekki endilega að raða í
bakkann af nákvæmni því bara það
eitt að ramma smáhlutina inn með
bakka skapar röð og reglu, og veld-
ur því að óreiðubás umbreytist á
einu augabragði í fyrirmyndar-
vinnustöð.
Bakkarnir frá Best Made eru
málið. Þeir eru hápunktur einfald-
leikans; fást í rauðum, svörtum,
gulum og bláum lit hjá bestmade-
co.com og kosta 48 dali. ai@mbl.is
Bakki til að halda
öllu snyrtilegu
Litríkir og í þremur stærðum.Bakki rammar inn óreiðuna.
NÁM: Stúdentspróf frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 2008;
B.Sc. í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2012.
STÖRF: Íslandsbanki 2012-2013; sérhæfðar fjárfestingar hjá
Gamma 2013-2014; framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins
frá 2014.
ÁHUGAMÁL: Ég elska að ferðast og upplifa nýja staði og
menningu, sérstaklega ef ég get samtvinnað ferðalögin við úti-
vist og hreyfingu. Ég hef alltaf lesið mjög mikið og Kindle-
lesbrettið mitt er sá hlutur sem mér þykir vænst um. Þá er ég
mjög áhugasöm um góðan mat og vín, þrátt fyrir að vera ekki
mjög liðtæk í eldhúsinu sjálf.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Er í sambúð með Ellerti Arnarsyni sjóðs-
stjóra og við eigum von á okkar fyrsta barni í október.
HIN HLIÐIN