Morgunblaðið - 14.06.2018, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018 9VIÐTAL
arnar fóru að hrúgast inn til okkar kölluðu
þeir inn fólk frá Bretlandi, Boston og San
Francisco, með það að markmiði að mæta
álaginu. Innan mánaðar vorum við búin að
byggja upp teymi í Oxford, Boston, Singapore
og Las Vegas. Ég hef aldrei séð svona mikla
skilvirkni í jafn stóru fyrirtæki og þeir eru.“
Eins og sagði hér á undan eru flestöll ís-
lensk fyrirtæki sem selja ferðir og afþreyingu í
viðskiptum við Bókun, en einnig eru fjölda-
mörg erlend fyrirtæki einnig í viðskiptum við
fyrirtækið, enda segir Hjalti að það sé orðið
vel þekkt um víða veröld. „Auk TripAdvisor
erum við í viðskiptum við marga af stærstu
endursöluaðilum í heiminum í þessum bransa.
Þannig erum við með Expedia, sem margir
þekkja, og einnig stærstu „Hop On – Hop Off“
rútuferðafyrirtækin í heiminum. Þau nota Bók-
un fyrir allar bókanir sinna endursöluaðila um
allan heim. Sem dæmi myndi ferðaskrifstofa í
Indlandi sem vill selja rútuferð í Bretlandi
gera það í gegnum Bókun. Við erum stórir á
Íslandi, með mörg af stærstu fyrirtækjum í
heimi einnig í viðskiptum, og nú með hjálp
TripAdvisor ætlum við að fjölga til muna þess-
um minni aðilum um allan heim.“
Spurður að því sérstaklega hver galdurinn
sé við að vaxa jafn hratt og ná þeim árangri
sem náðst hefur á jafn stuttum tíma segir
Hjalti að mikilvægast sé að hlusta á viðskipta-
vininn. „En við vorum líka óhrædd við að segja
nei ef menn komu fram með hugmyndir sem
við töldum að við gætum útfært enn betur.“
Hann leggur áherslu á að núna eftir að
fyrirtækið sé komið í erlenda eigu verði félag-
inu áfram stjórnað frá Íslandi. Kjarnaþekk-
ingin verði hér til staðar og hér fari þróunin
og öll hugmyndavinna fram. „Við erum 20
manna fyrirtæki í dag, á Íslandi. Fyrir einu og
hálfu ári vorum við 10. Það eru ekki mörg fyr-
irtæki sem hafa náð útbreiðslu út um allan
heim sem eru jafn fámenn. Það helgast af því
að við höfum raunverulega ekki verið með
neina söludeild. Við höfum fengið viðskiptavin-
ina nánast sjálfkrafa, þjónusta hefur spurst vel
út. Nú á næstu vikum ætlum við að ráða inn
30 manns til viðbótar. Við ætlum ekki að
stoppa þar og munum vaxa hratt til að mæta
miklum metnaði TripAdvisor fyrir okkar hönd.
Það er mikilvægt að halda kjarnaþekkingunni
hér á landi, því að hér er mikil þekking á at-
vinnugreininni. Ferðir og afþreying eru mjög
stór hluti af hagkerfinu, miklu stærri en menn
átta sig á, enda bjóða hundruð aðila upp á
slíka þjónustu, af ýmsum toga, og ástæðan er
aðallega sú hve auðvelt er að koma inn á
markaðinn. Sem dæmi sýna tölur okkar að
bókunum í ferðum og afþreyingu fjölgaði um
38% á fyrstu fimm mánuðum þessa árs miðað
við sama tíma í fyrra. Stærstu 20 fyrirtækin
eru kannski ekki að stækka svona hratt, en
þau næstu 200 eru kannski að stækka um
meira en 38%.“
Hjalti segir að betra aðgengi að markaðnum
þýði líka aukna samkeppni, og meira lifandi
markað. „Ef fyrirtæki eru ekki á tánum er
mjög auðvelt að heltast úr lestinni. Það er
bara af hinu góða, og þýðir að þjónustan verð-
ur betri og betri fyrir viðskiptavininn, sem aft-
ur þýðir að við getum haldið áfram að vaxa í
ferðaþjónustunni á Íslandi.“
Það er þá ekkert að hægjast um í ferðaþjón-
ustunni eins og margir vilja meina?
„Nei. Það er jafnan mikill barlómur í grein-
inni í apríl – maí á hverju ári. Ein ástæðan er
þeir sem treysta á sölu frá ferðaskrifstofum
sem nota ekki netið til að selja erlendis, þær
eru bara að deyja út, og þá hverfa þeirra við-
skipti. Nú þurfa menn að horfa á nýja markaði
eins og Asíu, Bandaríkin o.fl. Þeir sem hafa
bara verið að horfa t.d. til Suður-Evrópu gætu
borið skarðan hlut frá borði. Þar er ekki eins
mikill vöxtur og jafnvel samdráttur.“
Hjalti ber lof á íslenska ferðamálafrömuði,
sem lyft hafa grettistaki að hans mati. „Það er
aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig við
Íslendingar höfum náð viljandi eða óviljandi að
markaðssetja Ísland sem „heitan reit“ fyrir
ferðir og afþreyingu. Fyrir mjög marga í
heiminum er Ísland það fyrsta sem kemur upp
í hugann þegar ferðir og afþreying eru annars
vegar.“
Spurður sérstaklega um söluna til TripAdvi-
sor segir Hjalti að Bókun hafi alls ekki verið
til sölu. „Erlendir aðilar hafa sýnt áhuga á að
kaupa Bókun í hverjum einasta mánuði síðast-
liðin tvö ár. Erlendir sjóðir hafa komið reglu-
lega að tala við okkur, en vel að merkja hefur
ekki einn einasti íslenski sjóður haft samband,
sem segir kannski eitthvað um hversu lágt við
höfum flogið á Íslandi. Þetta hafa verið risa-
stórir erlendir framtakssjóðir og einkafjárfest-
ingarsjóðir (e. private equity). Viðbrögð okkar
hafa alltaf verið á einn veg, að við værum ekki
til sölu.“
Hvað veldur þessum áhuga, hvernig vita
menn af ykkur?
„Ég talaði reyndar á yfir 20 ráðstefnum er-
lendis á síðasta ári, og það hefur kannski vakið
athygli á okkur. Ég hef nota bene ekkert talað
á ráðstefnum hér á landi, enda enginn boðið
mér,“ segir Hjalti og brosir.
Hann segir að viðræður við TripAdvisor hafi
upphaflega hafist um síðustu áramót. Þær við-
ræður hafi snúist um aukið samstarf, en Trip-
Advisor hefur um nokkra hríð selt ferðir í
gegnum Bókun. „Upp úr þessu spunnust um-
ræður um að þeir myndu reyna að koma Bók-
un til samstarfsaðila sinna um allan heim. Það
lá því beinast við að þeir myndu kaupa okkur,
og þeir gerðu tilboð í kjölfarið. Á sama tíma
voru aðrir að bera víurnar í okkur, en það kom
aldrei til greina að vinna með neinum öðrum
því okkur leist svo vel á að vinna með þessu
fólki. Það var einkum þessi hraði og þessi
langtímahugsun sem er við lýði hjá félaginu
sem heillaði okkur.“
Til útskýringar nefnir Hjalti að hann hafi
hitt stofnanda og forstjóra TripAdvisor, Steph-
en Kaufer, í söluferlinu. „Hann er einn merki-
legasti maður sem ég hef hitt. Þó að hann sé
að vinna í fyrirtæki sem er skráð á markað er
hann alltaf að hugsa mörg ár fram í tímann.
Næsti ársfjórðungur skiptir hann litlu máli í
stóra samhenginu. Ég heillaðist ótrúlega mikið
af þessari hugsun. Við ákváðum því að láta
slag standa og ég sé svo sannarlega ekki eftir
því. Þetta er ótrúlega skemmtilegt, og gaman
að fá inn alla þessa nýju kúnna, og stækka
fyrirtækið hratt upp, auk þess sem við þurfum
ekki að hugsa um að græða peninga næsta ár-
ið. Það hefur verið ótrúlega skemmtilegt að
byggja Bókun upp en ég mat það svo að þetta
gæti orðið næsti skemmtilegi kafli.“
Ódýrastir í bransanum
Hluti af ástæðunni fyrir hröðum vexti fé-
lagsins eftir kaup TripAdvisor á Bókun er að
gjaldinu fyrir notkun á kerfinu var breytt að
sögn Hjalta. Áður var rukkað á hvern notanda
með áskriftarfyrirkomulagi en nú er búið að
einfalda fyrirkomulagið og viðskiptavinur
greiðir 0,1% af þeirri veltu sem fer í gegnum
Bókun.
Auk Hjalta og Norvikur átti Ólafur Gauti
Guðmundsson tæknistjóri hlut í félaginu.
Hjalti segir að bæði hann og Ólafur muni
halda áfram að starfa fyrir Bókun og leiða
uppbygginguna. „Við ætlum að byggja upp
eins gott teymi hér á landi og við mögulega
getum, og höfum mikinn metnað fyrir því.“
Til að gefa dæmi um útbreiðslu Bókunar til
annarra landa segir Hjalti að Bókun hafi farið
nýlega með fulltrúum finnska flugfélagsins
Finnair á ferð um allt Finnland til að kynna
þjónustuna, og hún sé að fara í loftið nú á
næstu vikum. „Þeir vildu að allir aðilar sem
bjóða ferðir og afþreyingu í Finnlandi notuðu
Bókun. Þeir hugsuðu sem svo að til að ferða-
menn vildu koma til Finnlands þyrfti vöru-
framboðið í landinu að vera sýnilegra, eins og
á Íslandi. Þá styrktu ferðamálasamtök Írlands
alla í ferða- og afþreyingargeiranum þar í
landi til að taka upp okkar kerfi, til að gera
vöruframboðið sýnilegra.“
öpun í ferðamennsku
Morgunblaðið/Eggert
”
Það kom aldrei til greina
að vinna með neinum
öðrum því okkur leist
svo vel á að vinna
með þessu fólki.
Hjalti segir að það sé lán fyrirtækisins að
hafa verið heppið með starfsfólk. „Við höfum
fengið inn fólk með mikla ástríðu fyrir fyrir-
tækinu. Þumalputtaregla Price er að
kvaðratrótin af fjölda starfsfólksins vinnur
helming allrar vinnunnar á hverjum vinnu-
stað. Því hefur ekki verið að heilsa hér. Við
höfum haft í vinnu mjög ósérhlífið fólk, sem
setur vinnuna í fyrsta sæti og gerir það sem
gera þarf til að klára verkefnin. Ef við hefðum
ekki verið svona heppin með fólk hefðum við
ekki náð þessum árangri.“
Hann segir augjóst að reynt verði að halda
í þennan kúltúr þegar ráðnir verða 30 starfs-
menn nú á næstunni. „Við viljum fá fólk með
þessa ástríðu fyrir starfinu. Við höfum tekið
eftir að þegar við höfum ráðið fólk sem
skortir þessa ástríðu, þá gengur þetta ekki.“
Ráðnir verða tæknimenn, sölufólk og
þjónustufólk. „Við erum að fara að fá þús-
undir nýrra viðskiptavina. Við þurfum fólk
sem mun hjálpa til við uppsetningu. Allir
þurfa að kunna ensku, og við þurfum allar
gerðir forritara, bakenda – framenda og vef-
forritara, sem og markaðsfólk. Í raun erum
við að fara upp um deild, og stofna nýtt fyr-
irtæki. Svo þarf að manna erlendu skrifstof-
urnar.“
Ástríðan fyrir starfinu skiptir máli