Morgunblaðið - 14.06.2018, Blaðsíða 14
Kynnisferðir Ari Steinarsson hefur verið ráðinn markaðs-
stjóri Kynnisferða. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem
sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu hjá fyrirtækinu.
Ari hefur starfað við stafræna markaðssetningu síðastliðin
11 ár, meðal annars hjá TM Software og Netráðgjöf, fyrirtæki
sem hann stofnaði 2007.
Ari hefur haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra um stafræna markaðs-
setningu, ásamt því að kenna það fag í Háskólanum í Reykjavík.
Ari stundar nú mastersnám í stafrænni markaðssetningu hjá Digital
Marketing Institute.
Ari Steinarsson nýr markaðsstjóri
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 2018FÓLK
Reykjavíkurborg Harpa Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf
deildarstjóra kjaradeildar á fjármálaskrifstofu Reykjavíkur-
borgar.
Harpa er með grunn- og framhaldsgráðu í hagfræði frá
Georg-August Universität Göttingen í Þýskalandi. Hún út-
skrifaðist einnig úr MBA-námi Háskóla Íslands árið 2017.
Síðastliðin 15 ár hefur Harpa gegnt starfi forstöðumanns kjaramálasviðs
Eflingar. Hún þekkir vel til kjarasamningsumhverfis og starfsmatskerfis
borgarinnar í gegnum setu í samstarfsnefnd Eflingar og Reykjavíkurborgar.
Harpa ráðin deildarstjóri kjaradeildar
með fleiri hundruð milljónir króna af
tryggingafé á sínum herðum en mega
ekki ráðstafa því á nokkurn hátt eða
fjárfesta. Ávinningurinn er lítill sem
enginn en umstangið sem þessu
fylgir getur verið töluvert.“
Umsækjendum gefin einkunn
Vignir segir að húsaleiguábyrgðin
sé aðeins fyrsta þjónustan af mörgum
sem fyrirtækið hyggist bjóða upp á.
„Núna vinnum við að því að smíða
nýjan vettvang á netinu til að leiða
saman leigutaka og leigusala. Um er
að ræða vefsíðu sem virkar í megin-
atriðum ekki ósvipað og hefðbundinn
leiguvefur, en léttir notendum lífið á
ýmsa vegu,“ útskýrir Vignir.
Fólk í leit að húsnæði mun geta
þurfa að krefjast tryggingafjár frá
leigjendum. Raunar er þetta þróunin
í dag; að leigusalar og leigufélög er-
lendis keppast um að bjóða húsaleigu
með þessum hætti,“ segir Vignir og
Fjártæknifyrirtækið Leiguskjól hef-
ur um nokkurt skeið boðið leigj-
endum og leigusölum upp á húsa-
leiguábyrgð, sem komið getur í stað
þess að leigjandi leggi fram hefð-
bundna tryggingu í formi tveggja eða
þriggja mánaða leigu. Í sumar tekur
fyrirtækið þátt í Startup Reykjavík á
vegum Arion banka og verður tæki-
færið notað til að skoða grundvöll ým-
issa nýrra fjármálaafurða tengdra
leigumarkaðnum.
„Við gefum út ábyrgð sem leigusali
getur sótt í ef tjón verður á húsnæð-
inu af völdum leigutaka, eða ef van-
skil verða á leigu, en leigjandinn
greiðir mánaðarlegt iðgjald af
ábyrgðinni og er gjaldið í mörgum til-
vikum lægra en ef greiddir væru yfir-
dráttarvextir af sömu upphæð,“ segir
Vignir Már Lýðsson, fram-
kvæmdastjóri Leiguskjóls, en upp-
hæð gjaldsins og afgreiðsla ábyrgð-
arinnar tekur mið af lánshæfismati
umsækjandans skv. mælingu Credit-
info.
Eins og flestir vita hefur leiguverð
á Íslandi hækkað töluvert á undan-
förnum árum og ekki allir sem eiga
auðvelt með að reiða fram tryggingu í
reiðufé. Vignir segir að Leiguskjól
henti bæði þeim sem eiga ekki upp-
hæðina tiltæka og þeim sem vilja ein-
faldlega ekki binda svo háa fjárhæð
inni á bankareikningi í umsjá leigu-
salans. „Leigusalinn nýtur líka ávinn-
ings enda fær hann samkeppnis-
forskot á markaðinum ef hann getur
boðið húsnæði til leigu án þess að
minnir á að lögum samkvæmt verður
leigusalinn að leggja tryggingaféð inn
á bankabók og skila leigjandanum
vöxtunum þegar leigutíma lýkur.
„Stór leigufélög geta því jafnvel verið
stofnað sína eigin upplýsingasíðu og
safnað þar saman gögnum eins og
lánshæfismati, sakavottorði, með-
mælum, launaseðlum og öðrum upp-
lýsingum sem leigusalar gætu farið
fram á. „Ástandið er þannig á mark-
aðinum í dag að fólk getur átt von á
að þurfa að sækja um fjölda íbúða áð-
ur en það fær eign við hæfi, og getur
verið hausverkur að halda utan um
umsóknirnar og koma öllum umbeðn-
um gögnum á réttan stað. Nýja þjón-
ustan einfaldar þetta, og gætir þess
að leigjandinn missi ekki af neinu.“
Leigusalinn fær síðan gögnin í
hendurnar á stöðluðu og auðskiljan-
legu formi og getur borið umsóknir
saman á þægilegan hátt. „Ekki er
óalgengt að fólk þurfi að fara í gegn-
um marga tugi umsókna ef það hefur
til sölu góða eign á góðum stað á
sanngjörnu verði. Umfangið er mikið,
og hjálpar ekki til ef umsóknirnar
berast á mismunandi formi og úr
ýmsum áttum – gegnum tölvupóst,
gegnum Facebook eða eftir öðrum
leiðum.“
Kerfi Leiguskjóls mun ekki aðeins
halda öllu í röð og reglu heldur líka
færa leigusölum í hendurnar tól til að
einfalda valið á rétta leigjandanum.
„Leigusalinn getur flokkað umsækj-
endur t.d. eftir lánshæfiseinkunn,
tekjum eða leigumati sem er mæli-
kvarði sem við höfum þróað til að spá
fyrir um það hversu góður leigjandi
umsækjandinn mun verða.“
Vignir segir að ef vel gengur á Ís-
landi standi vonir til að selja lausnir
Leiguskjóls erlendis, og virðist fátt
standa í vegi fyrir útrás. „Regluverk
leigumarkaðarins er svipað í flestum
löndunum í kringum okkur og vanda-
málin nær alltaf þau sömu. Við lítum
á Ísland sem prufumarkað þar sem
við getum fínpússað þjónustu okkar,
en vörurnar eru þannig gerðar frá
grunni að ekki verður erfitt að fara
með þær inn á nýja markaði.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Ástandið er þannig á markaðinum í dag að fólk getur átt von á að þurfa að sækja um fjölda íbúða áður en
það fær eign við hæfi, og getur verið hausverkur að halda utan um umsóknirnar,“segir Vignir Már Lýðsson.
Vilja liðka fyrir leigu á húsnæði
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Leiguskjól stefnir að því að
smíða nýjan leiguvettvang
sem mun spara bæði leigj-
endum og leigusölum tölu-
vert umstang.
Morgunblaðið/Ómar
Leigusölum er vandi á höndum ef þeir þurfa að fara í gegnum tugi umsókna.
Meniga Finnur Pálmi Magnússon hefur tekið við sem
framkvæmdastjóri vöruþróunar hjá Meniga. Finnur tekur
jafnframt sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
Áður gegndi Finnur starfi vörustjóra hjá Meniga. Þar tók
hann virkan þátt í að byggja upp vöruþróun fyrirtækisins
síðastliðin fimm ár, samkvæmt tilkynningu frá Meniga.
Finnur hefur áður unnið verkefni í stafrænni þróun fyrir fyrirtæki hér-
lendis og erlendis, til dæmis Icelandair, Símann, Sony Computer Enterta-
inment, NokiaSiemens, Virgin og Woolworths.
Finnur framkvæmdastjóri vöruþróunar
SPROTAR
VISTASKIPTI
OCEAN MIST
Modus Hár og Snyrtistofa
Smáralind | harvorur.is
REF Stockholm er 12 ára gamalt
Professional haircare merki
Ocean Mist er 100 % Vegan ,
sulfate, Paraben, glúten
og Cruelity free
Verð 2.560 kr.
Sjá nánar á harvorur.is