Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Laugavegur 133, Reykjavík, fnr. 200-9739 , þingl. eig. Birgir Örn Tho-
roddsen, gerðarbeiðendur Tollstjóri og Reykjavíkurborg,
þriðjudaginn 19. júní nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
14 júní 2018
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17.
Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vöfflukaffi kl. 14.15-15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Blómsveigur
verður settur að minnismerki Jóns Sigurðssonar í garðinum við
Jónshús kl. 15.15. Allir velkomnir.
Gerðuberg Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 glervinnustofa
(sumarfrí), kl. 10-12 prjónakaffi, kl. 10-10.20 leikfimi gönguhóps, kl.
10.30 gönguhópur um hverfið, kl. 13-16 bókband með leiðbeinanda,
kl. 13-15 kóræfing (sumarfrí), kl. 12.20-13.30 qigong (sumarfrí).
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30. Fatasala kl. 11.30. Síðasta
bingó fyrir sumarfrí kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13 og
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, botsía kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá kl. 9-16, síð-
degiskaffi kl. 14-15, allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í
Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, leikfimi í salnum Skóla-
braut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30. Minnum á snjallsíma og spjald-
tölvunámskeið sem hefst mánudaginn 18. júní, skráning á námskeið-
in er á bæjarskrifstofunni í síma 5959100. Vinsamlegast komið með
eigin tæki á námskeiðið.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10.
Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13. Allir eru hjartan-
lega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586.
Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit
hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær, heitir pottar
og jarðgerðarílát
Rotþrær – heildarlausnir með
leiðbeiningum um frágang.
Ódýrir heitir pottar – leiðbein-
ingar um frágang fylgjar.
Mjög vönduð jarðgerðarílát til
moltugerðar.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
VAÐNES - sumarbústaðalóðir
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir með
aðgangi að heitu og köldu vatni í
vinsælu sumarhúsahverfi í landi
Vaðness í Grímsnes- og Grafnings-
hreppi. Vaxtalaus lán í allt að eitt ár.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón í
síma 896-1864 og á facebook síðu
okkar vaðnes-lóðir til sölu.
Til sölu
HITAVEITU-
SKELJAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Fasteignir
Til sölu La Marína á Spáni
25 mín. frá Alicante flugvelli. Gott
einbýlishús, stutt í alla þjónustu,
strönd og golfvellir á svæðinu.
38 millj. ísl. kr.
Upplýsingar í síma 7742501.
eyvindur@simnet.is
Ýmislegt
Gleraugu
fundust
Gleraugu fundust við Miklubraut í
Skeifunni, 13. júní um klukkan hálf
fimm. Upplýsingar í síma 831-9688,
Stefanía, Sléttuvegi 7.
Veiði
HM er tíminn
S. 892 8655 • heimavik.is
Tilboð á silunganetum
Nr. 1 Ísland 1-? -10% afsláttur
Nr. 2 Ísland 1-? -15% afsláttur
Nr. 3 Ísland 2-? -20% afsláttur
Nr. 4 Ísland - Keypt 3 net
-20% afsláttur og við borgum
flutning.
Að auki með öllum tilboðum:
Vettlingar í aðgerðina - bólfæri
- netpokar fyrir þyngingu og
eitthvað meira skemmtilegt.
Þekking • Reynsla • Gæði
Heimavík ehf
Tveir góðir úr nýju netunum
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Trausti RúnarHallsteinsson
bifreiðasmíða-
meistari fæddist á
Akranesi 30. sept-
ember 1947. Hann
lést á heimili sínu
þann 6. júní 2018.
Foreldrar hans
voru Hallsteinn
Tómasson frá Læk
í Leirársveit, f. 5.
janúar 1916, og
Herdís B. Þ. Ebenezersdóttir, f.
2. febrúar 1920, frá Bolung-
arvík. Hálfsystir Trausta sam-
mæðra var Ellen Guðrún Karls-
dóttir, f. 8. september 1938, d. 8.
júlí 2009. Bróðir Trausta er
Guðmundur Ebenezer Hall-
steinsson, f. 3. janúar 1956. Eft-
irlifandi eiginkona Trausta er
Björk Ingvarsdóttir, f. 12. nóv-
ember 1949. Trausti og Björk
gengu í hjónaband 14. nóvember
1970. Synir þeirra eru 1) Hall-
steinn Ingvar Traustason, f. 5.
október 1970. Hallsteinn kvænt-
ist Ruth Hinriksdóttur, saman
áttu þau dótturina Herdísi Hall-
steinsdóttur, f. 18. júní 2000, þau
skildu, fyrr átti hann dótturina
Elínu Björk Hallsteinsdóttur, f.
19. júlí 1994, barnsmóðir Gunn-
hildur Georgsdóttir. Hallsteinn
er í sambúð með Nínu V. Björns-
dóttur, f. 14. mars 1977, sonur
hennar er Þorbjörn
Egill Óskarsson, f.
8. ágúst 2005. 2)
Vignir Þór
Traustason, f. 11.
júní 1975. Vignir
kvæntist Kristínu
Stefánsdóttur og
saman eiga þau
synina Daða Frey,
f. 29. apríl 1995, og
Stefán Mána, f. 18.
nóvember 2005.
Eiginkona Vignis er Inga Helma
Guðfinnsdóttir, f. 13. júní 1977,
synir hennar eru Arnar Fann-
berg, f. 19. júní 1996, Aron
Freyr, f. 23. febrúar 2002,
Bjarki Þór, f. 9. desember 2003.
Trausti flutti 13 ára gamall til
Reykjavíkur. Leið Trausta lá í
Iðnskólann í Reykjavík þar sem
hann nam bifreiðasmíði, en
starfsnám sitt stundaði hann hjá
Agli Vilhjálmssyni. Eftir að
Trausti lauk námi og hafði feng-
ið meistararéttindi, opnaði hann
réttingaverkstæði ásamt félaga
sínum Gísla Jónssyni. Síðar
stofnaði Trausti Bílasprautun
og réttingar Trausta, þar sem
hann starfaði allan sinn starfs-
feril, utan tveggja ára sem hann
starfaði hjá VÍS.
Útför Trausta fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 15. júní
2018, og hefst athöfnin kl. 13.
Með Trausta Hallsteinssyni
er fallinn frá góður félagi sem
við minnumst með virðingu og
þakklæti.
Í áratugi var Trausti félagi í
Golfklúbbi Öndverðarness.
Hann var vinsæll og skemmti-
legur félagi sem gott var að
umgangast og spila með golf.
Hann var í hópi þeirra félaga
sem hafa látið mikið og gott af
sér leiða fyrir samfélagið í
Öndverðarnesi.
Golfklúbbur Öndverðarness
hefur gengist fyrir vinnudögum
sjálfboðaliða allt frá stofnun
klúbbsins. Trausti tók virkan
þátt í öllu sjálfboðastarfi og
hlífði sér ekki þegar tekið var
til hendinni í þeim verkum sem
fyrir lágu hverju sinni. Það er
mikill missir að Trausta fyrir
samfélagið okkar í Öndverðar-
nesi.
Um leið og við þökkum
Trausta fyrir samveru og fram-
lag hans til Golfklúbbs Önd-
verðarness viljum við senda
Björk, Hallsteini, Vigni Þór og
öllum afkomendum og ástvinum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Trausta
Hallsteinssonar.
Aðalsteinn Steinþórsson,
formaður GÖ.
Nú er liðin rúmlega hálf öld
síðan við Trausti kynntumst en
segja má að vinskapur okkar
hafi hafist strax daginn sem við
hittumst.
Við vörðum miklum tíma
saman á unglingsárunum, við
þrír vinirnir, Trausti, Kristján
Örn og ég.
Fljótlega fórum við jafn-
framt að vinna saman þrír;
fyrst við að rífa mót í uppmæl-
ingu og síðan í ýmsum störfum
hjá Bæjarútgerðinni m.a. við að
hengja upp fisk á hjöllum við
Smiðjuveginn þar sem BYKO
er í dag.
Þó svo að Trausti hafi verið
minni að vöxtum en við hinir þá
gaf hann okkur svo sannarlega
ekkert eftir i þeirri erfiðisvinnu
nema síður sé og mátti snemma
sjá að þar fór hamhleypa til
verka.
Þegar kom að því að fara að
mennta sig ákvað Trausti að
leggja fyrir sig bifreiðasmíði.
Fyrstu tvö árin í Iðnskólanum
fylgdumst við félagarnir enn að
eða þar til hann hélt áfram í
sínu sérnámi og ég mínu.
Við vinirnir vorum allir sam-
an í skátahreyfingunni árum
saman en þar myndaðist hópur
sex félaga sem haldið hefur
saman alla tíð síðan. Það var
margt gert sér til skemmtunar
á okkar yngri árum og standa
Þórsmerkur- og Öræfaferðir
þar upp úr auk margra annarra
dægradvala.
Trausti kynntist elskulegri
og góðri stúlku á þessum árum;
henni Björk og var það mikið
gæfuspor hjá honum þegar þau
gengu í hjónaband sem hefur
alla tíð verið gifturíkt og ham-
ingjusamt.
Saman eignuðust þau hjónin
synina tvo Hallstein og Vigni
sem báðir hafa fetað í spor föð-
ur síns og unnið á réttingaverk-
stæði fjölskyldunnar. Um það
leyti sem Trausti hætti í sam-
starfi við fyrri samstarfsfélaga
sína og stofnaði Réttingaverk-
stæði Trausta byggðum við
saman verkstæðishús að Kapla-
hrauni 8 í Hafnarfirði og vorum
þar með rekstur hvor í sínu
plássi um árabil. Þar sannaðist
enn og aftur hvers konar gæða-
maður Trausti var, ég man ekki
til þess að nokkurn tíma hafi
komið upp ósætti milli okkar,
hvorki í þessu samkrulli, né
annars staðar.
Trausti rak verkstæðið sitt
með myndarskap og velvild alla
tíð.
Það var reyndar alls ekki
hans sterkasta hlið að rukka
fólk fyrir þær viðgerðir sem
hann framkvæmdi og hef ég
grun um að margur hafi fengið
lagaða beyglu á bíl sínum fyrir
afar sanngjarnt verð svo ekki
verði fastara að orði kveðið.
Það má kalla það algjör for-
réttindi að hafa eignast svo
góðan vin, engan mann veit ég
sem ber nafn sitt með meiri
reisn; traustari vinur er vand-
fundinn.
Við Björk sendum þeim
Björku, Hallsteini, Vigni og
öðrum fjölskyldumeðlimum
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Eiður Haraldsson.
Trausti Rúnar
Hallsteinsson
Fleiri minningargreinar
um Trausta Rúnar Hall-
steinsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.