Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. HM tilboð Múrbúðarinnar Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is BESTU MÚBÚÐARVERÐIN Made by Lavor 18.990 MOWER CJ20 Sláttuvél m/drifi, BS 5,0 hp Briggs&Stratton mótor. Rúmtak 150 CC, skurðarvídd 51cm/20”, sjálfknúin 3,6 km/h, safnpoki að aftan 65 L, hliðar útskilun, skurðhæð og staða 25-75mm/8 49.990 MOWER CJ18 BS 3,5hp Briggs&Stratton mótor, rúmtak 125 CC, skurðarvídd 46cm/18”. Safnpoki að aftan 60 L, skurðhæð og staða 25-85mm/8 29.990Kaliber Red gasgrill 4 brennara (12KW) + hliðarhella (2.5KW). Grillflötur 41x56cm Kaliber Black gasgrill 3x3kw brennarar (9KW). Grillflötur 41x56cm 39.900 25% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR 20% AFSLÁTTUR áður 23.990 Grillboð 44.900 áður 39.990 áður 62.990 14.390 Lavor Galaxy 140 háþrýstidæla 140 bör max, 450 lítr/klst. 1900W 20% AFSLÁTTUR áður 17.990 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Orrustuþotur og herskip frá Sádi- Arabíu létu sprengjum rigna yfir hafnarborgina Hudaydah í gær. Er með því verið að styðja við sókn stjórnarhers Jemen inn í borgina í þeirri von að honum takist að end- urheimta hana úr höndum uppreisn- arsveita Húta, sem njóta hernaðar- aðstoðar frá Írönum. Óttast er að allt að 250 þúsund manns missi allt sitt í átökunum og er búist við miklu manntjóni vegna þeirra. Fréttastofa CNN greinir frá því að landhernaður, undir stjórn Sádi- Arabíu, sé nú í fullum gangi við flug- völl borgarinnar og í hverfi í suð- austurhlutanum. Fá hermenn á jörðu niðri aðstoð frá herskipum, -flugvélum og þyrlum, en notast er við árásarþyrlur af gerðinni Boeing AH-64 Apache. Þyrlurnar eru bandarísk smíð, sérhannaðar til árásar á skotmörk á jörðu niðri og skarta fjölbreyttu vopnakerfi. Herskip brennandi eftir árás Ljóst er að orrustan um Huday- dah er afar hörð. Þannig greinir breska ríkisútvarpið, BBC, frá því að minnst fjórir hermenn Sádi-Arabíu hafi fallið og á þriðja tug uppreisnar- manna. CNN segir uppreisnarsveit- ir einnig hafa gert eldflaugaárás á herskip Sádi-Arabíu á Rauðahafi og var skipið í gær sagt nær alelda eftir átökin. Ekki er vitað hvort áður- nefndir hermenn Sáda hafi fallið í árásinni á skipið eða í öðrum átökum í Jemen. Að sögn BBC voru 18 loft- árásir gerðar á skotmörk tengd Hút- um við borgina Hudaydah. Hafnarborgin er sögð vera eins konar „lífæð“ fyrir Jemen. Um 90% af öllum matvælum, eldsneyti og lyfjum sem neytt er í Jemen eru inn- flutt og fara 70% þess í gegnum hafnarsvæði borgarinnar Hudaydah. „Að hertaka Hudaydah er eins konar brjálsemi í allri merkingu þess orðs vegna þess að Hudaydah er borg full af almennum borgurum og hún er lífæð allra Jemena í norðri og suðri,“ hefur CNN eftir íbúa þar. Annar íbúi borgarinnar sagðist ótt- ast mikið mannfall og hörmungar héldu átökin um borgina áfram. Þá er borgin einnig sögð mikilvæg fyrir hernað uppreisnarmanna, en þeir eru sagðir smygla vopnum til landsins þaðan frá Íran. Því hefur þó verið staðfastlega neitað af Hútum og stjórnvöldum í Íran. Barist um „lífæð“ Jemen  Herflugvélar, -þyrlur og -skip Sádi-Arabíu gerðu harðar árásir á hafnarborgina Hudaydah  Uppreisnarmenn svöruðu með eldflaugaárás á herskip á Rauðahafi AFP Liðsstyrkur Hersveitir Sádi-Arabíu sjást hér keyra í átt að herstöðinni al-Hamra eftir að hafa verið í Jemen. Orrustan um Hudaydah » 70% af innfluttri vöru Jem- en, þ. á m. matvæli, lyf og elds- neyti, eru flutt inn í gegnum hafnarborgina. » Minnst 300 þúsund börn búa í eða við borgina og er ótt- ast um öryggi þeirra. Ríkisfréttastofan KCNA í Norður- Kóreu sýndi á miðvikudag 42 mín- útna langt myndskeið frá heimkomu leiðtogans Kim Jong-un eftir fund hans með Donald J. Trump, forseta Bandaríkjanna. Hittust leiðtogarnir á Sentósaeyju í Singapúr í vikunni. Í myndbandinu sést Kim stíga út úr breiðþotu kínverska flugfélagsins Air China á flugvellinum í Pjongjang og ganga á rauðum dregli til móts við heiðursvörð hersins. Hundruð voru viðstödd heimkomuna og veifaði fólk fánum Norður-Kóreu og kommún- istaflokksins þar í landi. Var leiðtog- anum fagnað sem þjóðhetju. Er myndefnið eins konar heimildarmynd um ferðalag Kim Jong-un til Singapúr og fund hans með Bandaríkjaforseta. Álitsgjafar sem CNN leitaði til vegna efnisins telja líklegt að íbúar Norður-Kóreu séu margir hverjir í fyrsta skipti að sjá myndir frá erlendu ríki. Meðal þess sem fyrir augu ber eru svip- myndir frá Singapúr, skýjakljúfar og glæsihótelið á Sentósaeyju þar sem leiðtogarnir hittust. Þá sagði KCNA Kim afar ánægðan með Singapúr og á hann að hafa lofað borgina fyrir hreinlæti hennar og fegurð. Þulan fræga stóð vaktina Aðalþula KCNA, konan sem upplýs- ir norðurkóreskan almenning um meinta stórsigra Kim Jong-un og ríkisins, Ri Chun-hee, sá um að tala inn á heimildarefnið. „Fjölmargir þjóðhöfðingjar frá hinum ýmsu ríkj- um hafa sótt Singapúr heim, en það er án fordæmis í sögu Singapúr að götur fyllist af fagnandi fólki,“ sagði hún. „Götur fylltust af fólki sem lýsti yfir aðdáun sinni á æðsta leiðtoga vegna framúrskarandi hæfileika til að geta verið leiðandi í flóknum og margþættum alþjóðastjórnmálum.“ khj@mbl.is Fagnað sem þjóðhetju  Heiðursvörður og fjölmenni tóku á móti Kim Jong-un AFP Pjongjang Heiðursvörður hersins tók á móti leiðtoga sínum. Ákvörðun norskra stjórn- valda um að óska eftir því við Bandaríkjamenn að þeir tvöfaldi fjölda land- gönguliða sinna þar í landi mun að sögn Rússa hafa afleiðingar í för með sér. Fréttastofa Reuters greinir frá. „Noregur verður við þetta ekki eins fyrirsjáanlegur og það gæti aukið á spennu, komið af stað vopna- kapphlaupi og stuðlað að óstöð- ugleika í norðurhluta Evrópu,“ segir í tilkynningu sem sendiráð Rúss- lands í Ósló sendi frá sér. „Við sjáum þetta sem óvinveitta aðgerð og hún verður ekki án afleiðinga.“ Alls eru nú 330 bandarískir land- gönguliðar í Noregi og verður þeim að óbreyttu fjölgað í 700 árið 2019. NOREGUR Ákvörðun Ósló verð- ur ekki án afleiðinga Her Landgöngu- liðar við æfingar. Franska lögreglan hefur handtekið par sem grunað er um að hafa myrt og limlest dóttur sína árið 1987. Stúlkan, sem var þriggja til fimm ára gömul er hún var myrt, fannst látin við þjóðveg. Ekki var unnt að bera kennsl á hana á sínum tíma, en lögreglan hóf nýverið rannsókn sína á málinu eftir að DNA-tækni kom þeim á sporið. Var það DNA sonar þeirra sem rannsakað var í tengslum við annað mál lögreglu sem tengdi fólkið við stúlkuna. Par- ið á yfir höfði sér þunga dóma. FRAKKLAND DNA opnaði málið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.