Morgunblaðið - 15.06.2018, Síða 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pappelina á pallinn
Nú getur þú fengið þér púða með vatnsfráhrindandi Sunbrella® tækni
og borðdregla í stíl við Pappelina mottuna þína.
Motturnar henta í öll rými heimilisins, bæði úti og inni.
Dagdvalir eru mik-
ilvægur valkostur í þjón-
ustu við aldraða sem stuðl-
að geta að lengri dvöl
þeirra á eigin heimili. Þjón-
usta dagdvala er veitt af
sveitarfélögum, hjúkr-
unarheimilum og fé-
lagasamtökum og eru rým-
in ætluð einstaklingum 67
ára og eldri, en einnig í sér-
tækum tilvikum yngri ein-
staklingum eða ákveðnum
hópum. Þeir sem sækja
þjónustuna koma að morgni og fara
heim aftur síðdegis, ýmist daglega eða
tiltekna daga í viku. Í dagdvölum er lögð
áhersla á að efla líkamlega og andlega
færni ásamt því að rjúfa félagslega ein-
angrun sem margir á efri árum byrja að
finna fyrir.
Mikilvægi þjónustunnar sem veitt er í
dagdvölum er óumdeilt því auk þess að
bæta lífsgæði og færni í gefandi fé-
lagsskap með öðrum geta dagdvalir í
mörgum tilvikum líka dregið úr tíðni
innlagna á sjúkrahús. Má því sannarlega
segja að þjónustan hafi mikið forvarn-
argildi sem viðhaldi heilsu að ákveðnu
marki og geri öldruðum kleift að búa
lengur á eigin heimili. Í árslok 2016 voru
samkvæmt tölum Sjúkratrygginga Ís-
lands, heimildir fyrir 733 dagdvalar-
rýmum á landinu.
Samningaviðræður
Í byrjun þessa árs hófust samninga-
viðræður milli Sjúkratrygginga Íslands,
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
og Sambands íslenskra sveitarfélaga um
nauðsynlega skilmála í rammasamningi
fyrir þá þjónustu sem veitt er í dagdval-
arrýmum. Nú þegar hafa velferðarráðu-
neytið og Sjúkratryggingar lagt fram
drög að þjónustukröfum
(kröfulýsingu) fyrir dag-
dvalarrými og er gengið út
frá því að hægt verði að
vinna með þær kröfur við
samningaborðið.
Áherslur þjónustuaðila
Samtök fyrirtækja í vel-
ferðarþjónustu hafa um
langt árabil gert þá kröfu
til hins opinbera að ríkið
greiði eðlilegt og sann-
gjarnt verð fyrir þá þjón-
ustu sem ríkisvaldið kaupir
með því að fela öðrum að
inna þjónustuna af hendi fyrir sína hönd.
Dagdvalir eru á meðal þjónustuþátta þar
sem ríkið reiðir sig á sveitarfélög, hjúkr-
unarheimili og félagasamtök. Samtökin
leggja áherslu á að til grundvallar
ákvörðunar um eðlilegt endurgjald þurfi
að liggja fagleg kostnaðargreining á
þeim kröfum sem ríkisvaldið gerir til
þjónustunnar. Þess vegna hafa samtökin
ávallt og ítrekað lagt til að samningsað-
ilar fælu óháðum aðila að framkvæma
slíka kostnaðargreiningu. Þeirri mála-
leitan hefur ríkisvaldið, því miður, ávallt
hafnað fyrir sitt leyti. Á endanum tók
stjórn Hrafnistu af skarið og fól ráð-
gjafafyrirtækinu Nolta að taka að sér
verkefnið og framkvæma slíka kostn-
aðargreiningu á sinn reikning.
Greining Nolta
Í meginatriðum er niðurstaða skýrslu
Nolta sú að til þess að unnt sé að veita
þá þjónustu í almennu dagdvalarrými
sem ríkið gerir kröfu um samkvæmt eig-
in kröfulýsingu þurfi fjárframlög ríkisins
að hækka um á bilinu 30 til 40%. Grein-
ing Nolta byggir á upplýsingum frá sex
þjónustuaðilum dagdvala á landinu til
þess að fá eins raunsanna mynd af
rekstrinum og unnt er. Tekin voru dæmi
af 8 rýma einingu og 30 rýma einingu og
miðað við 100% nýtingu plássa. Niður-
stöðurnar gefa jafnframt til kynna að
verulegur munur sé á rekstrarhag-
kvæmni þessara tveggja eininga. Þannig
gefur skýrslan til kynna að 30 rýma ein-
ingarnar séu hagkvæmastar í rekstri
enda þótt þar vanti um 30% hærri fjár-
framlög frá ríkinu til að veita þá þjón-
ustu sem fram kemur í kröfulýsingu rík-
isins. Jafnframt sýnir skýrslan að minni
rekstrareiningarnar, sem flestar eru á
landsbyggðinni, þurfi 40% meiri fjár-
framlög ofan á grunndaggjaldið sem rík-
ið greiðir í dag.
Krafa um raunverð
Skýrsla Nolta var kynnt fulltrúum
Sjúkratrygginga í lok mars. Síðan þá
hafa samningaviðræður í raun verið í
lausu lofti enda er varla hægt að ætlast
til þess að þjónustuaðilar skrifi undir
samning þar sem vitað er fyrirfram að
greiðslurnar eru að minnsta kosti 30-
40% of lágar fyrir þá þjónustu sem verk-
kaupinn gerir kröfu um. Veitendur þjón-
ustunnar reka starfsemi sína án hagn-
aðarsjónarmiða og því hlýtur það að
vera sanngjörn krafa af þeirra hálfu að
stjórnvöld móti betri og skýrar stefnu í
hinni mikilvægu dagdvalarþjónustu og
greiði fyrir hana sanngjarnt og gegnsætt
verð sem byggir á raunkostnaði við þjón-
ustuna.
Yfir 30% vantar í daggjöld dagdvala
Eftir Pétur Magnússon »Krafa SFV er að ríkið
greiði raunkostnað við
þjónustuna sem veitt er án
hagnaðarsjónarmiða.
Pétur
Magnússon
Höfundur er forstjóri Hrafnistuheimilanna
og formaður Samtaka fyrirtækja í velferð-
arþjónustu.
Hátt lætur nú á alþingi Íslend-
inga að lækka veiðigjöld sjávar-
útvegsfyrirtækja. Gjaldið er ekki
vegna þessa árs, heldur frá veið-
um árum áður. Það ár var af-
koman betri. Útgerðarmenn
hefðu þá átt að leggja fjármagn
til hliðar til greiðslu gjalda nú. Í
stað þess greiddu sumir sér arð
eins og komið hefur fram á und-
anförnum mánuðum.
Í nýútkominni skattskrá kemur
fram að margir útgerðarmenn
eru með hæstu skattgreiðendum
svo afkoman virðist ekki hafa ver-
ið slæm. Það er því nokkur þver-
sögn í þessum málum. Á sama
tíma fá sumir aldraðir endur-
reikning frá Tryggingastofnun
ríkisins þar sem þeim er gert að
endurgreiða vegna ofgreiðslu á
því ári. Þar er ekkert gefið eftir.
Þeir skulu greiða, þó smátt hafi
verið skammtað í launum til
þeirra miðað við hátekjuaðalinn.
Þeim er líka meinað að rétta hag
sinn með vinnu, sem hefðu til
þess vilja og getu, vegna skerðingarákvarðana stjórnvalda.
Þeir sem gætu unnið, vilja fá að vinna og taka þátt í þjóð-
félaginu eins og aðrir. Það væri öllum til góðs að afnema
þessar skerðingar.
Það er hrópandi mismunun milli þeirra sem fá greiðslu
frá Tryggingastofnun og þeirra, sem hafa það há eftirlaun
að þeir fá ekki greitt frá Tryggingastofnun. Þeir gætu unn-
ið án skerðingar. Mannvonskan, sérhagsmunagæslan og yf-
irgangurinn er svo yfirþyrmandi að furðu gegnir. Við þurf-
um ríkisstjórn sem er allra landsmanna, en ekki bara þeirra
ríku.
Ríkisstjórn
ríka fólksins
Eftir Óla Stefáns Runólfsson
Óli Stefáns
Runólfsson
Höfundur er rennismiður og eftirlaunaþegi.
olistef1@simnet.is
»Mann-
vonskan,
sérhagsmuna-
gæslan og yf-
irgangurinn er
svo yfirþyrm-
andi að furðu
gegnir.