Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 6

Morgunblaðið - 15.06.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI STÆRÐ FRÁ 360-550 L FARANGURSBOX Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tveir fyrrverandi formenn Knatt- spyrnusambands Íslands og heiðursformenn, þeir Geir Þor- steinsson og Eggert Magnússon, gera sér vonir um jafntefli á móti Argentínumönnum á morgun. Sá þriðji í þessum hópi, Ellert B. Schram, vonast eftir góðum úrslit- um, án þess að vilja giska á úrslit eða tölur. Hann segir að stór sigur sé þegar unninn; að eiga lið í úrslitum heimsmeistaramóts. Engan hafi ór- að fyrir því þegar hann var að leika með landsliðinu á sjöunda áratug síðustu aldar. Innan um stjörnur leiksins Geir Þorsteinsson kom til Moskvu á miðvikudag í boði Alþjóða knatt- spyrnusambandsins, FIFA, en Geir situr í nefnd á vegum FIFA sem fjallar m.a. um málefni knattspyrnu- sambanda í heiminum. Hann segir að á hóteli FIFA í Moskvu séu m.a. helstu ráðamenn hreyfingarinnar „innan um stjörnur leiksins,“ eins og Geir orðar það. Hann var að búa sig undir að fara á leik Rússa og Sádi- Araba þegar rætt var við hann í gær og verður síðan á leik Íslands og Argentínu á morgun og leik okkar manna gegn Nígeríu. „Fyrir tveimur árum var í nógu að snúast hjá mér sem formanni KSÍ á Evrópumótinu í Frakklandi,“ segir Geir. „Nú glíma aðrir við verkefnin, sem eru vafalaust óteljandi án þess að ég sé inni í málunum, en ég er hér til að fylgjast með og njóta.“ Hann segir að í grunninn séu Evr- ópumót og heimsmeistaramót sam- bærileg, en Geir hefur fylgst með lokakeppni stórmóta í mörg ár þó svo að Ísland hafi ekki átt lið í úr- slitakeppni karlaliða fyrr en á EM 2016. Þá hafi gífurlegur fjöldi stuðn- ingsmanna haft talsverða vinnu í för með sér fyrir starfsfólk KSÍ. Í Rúss- landi séu vegalengdir á milli staða miklu meiri og það hafi áhrif á allt skipulag og kalli á aukna vinnu. Þá sé allt þyngra í vöfum þegar komi að samskiptum og skipulagi hjá FIFA heldur en UEFA, sem sé eðlilegt þar sem allur heimurinn sé undir, en ekki aðeins ein heimsálfa. -En hvaða væntingar fer Geir með á leikinn á móti Argentínu? „Ég er búinn að segja það svo oft að draumurinn um að halda jöfnu lif- ir góðu lífi. Mér líður svipað eins og þegar við mættum Portúgal í fyrsta leiknum á EM, þá dreymdi mig um að halda jöfnu, sem varð svo niður- staðan, en Portúgalar urðu síðan Evrópumeistarar. Ég geri mér þó grein fyrir því að Argentína er með eitt besta lið í heimi ef það nær góð- um leik,“ segir Geir Þorsteinsson. Ljónheppnir að mæta Argentínu í fyrsta leik „Við hjónin verðum á tveimur fyrstu leikjum Íslands í Rússlandi gegn Argentínu og Nígeríu og finnst það hæfilegt. Ég er sannast sagna búinn að fá hundleið á Króötum, en svo getur vel verið að maður skipti um skoðun haldi ævintýrin áfram að gerast,“ segir Eggert Magnússon. Hann fer með flugi til Moskvu frá Valencia í dag, en þar hefur hann bú- ið síðustu misseri. „Þegar það lá fyrir hverjir and- stæðingar okkar yrðu í HM-riðlinum sagði ég strax að við værum ljón- heppnir að mæta Argentínu í fyrsta leik,“ segir Eggert. „Ég hef verið viðstaddur mörg HM-úrslit og séð enn fleiri og yfirleitt er það þannig að þessi lið sem eiga bestu leikmenn- ina í bestu liðum Evrópu, sem leika hvað flesta leiki koma oft ryðguð til leiks. Þessi bestu lið byrja yfirleitt varfærnislega á HM og verðandi heimsmeistari er ekkert endilega það lið sem sýnir bestu leiki í riðl- inum.“ En hver er spáin og verður dans- að á vellinum í Moskvu á laugardag- inn? „Mín spá er jafntefli og ég dansa þá í stúkunni við hana Guðlaugu mína, en ætli ég láti það ekki ógert að fara niður á völl að þessu sinni. Ég mun eflaust sýna tilfinningar enda frægur fyrir það eins og í Frakklandi 2016 þegar við Dorrit forsetafrú tókum nokkur spor. Stóra málið er hins vegar að það er algert ævintýri að vera að fara á leiki Íslands í úrslitum heimsmeist- aramóts. Það segir manni að eitt- hvað höfum við gert rétt þessir kall- ar sem stóðum í baráttunni í áratugi. Þetta hefur lengi verið draumur minn og nú er draumurinn sem dreif okkur áfram orðinn að veruleika,“ segir Eggert Magnússon. Ellert B. Schram segist ekki ætla að lýsa yfir einhverjum sigrum fyrir fram en segist ekki efast um að strákarnir muni standa sig. Hann heldur til Moskvu á morgun og kem- ur heim aftur á sunnudag en útilokar ekki að hann fari einnig á leikinn á móti Nígeríu. „Auðvitað von- ast ég eftir hag- stæðum úrslitum en fyrst og fremst er þetta sögulegur at- burður, sem mér finnst vænt um að fá að taka þátt í og fylgjast með leiknum á leikvang- inum í Moskvu. Leikurinn á morgun og þátttaka Íslands í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins er ein stærsta og merkilegasta stundin í ís- lenskri íþróttasögu,“ segir Ellert. Allt hægt í liðakeppni þegar menn standa saman Hann man tímana tvenna í fót- boltanum, en Ellert er 78 ára og lék 23 landsleiki fyrir hönd Íslands á ár- unum 1960-1970. Oft var leikið gegn liðum frá Norðurlöndunum og Bret- landseyjum og aldrei gegn þeim lið- um sem Ísland mætir í riðlakeppn- inni í Rússlandi. Ellert bendir á að Króatía hafi ekki verið til sem sjálf- stæð þjóð á þeim tíma og heims- myndin hafi breyst verulega. „Þegar ég var að keppa var knatt- spyrnuhreyfingin fátæk og landið einangrað,“ rifjar Ellert upp. „Það var mesta basl að fá að vera með og oft byggðust landsleikir á greiða- semi annarra þjóða. Þegar ég fór að spila í meistaraflokki var enginn grasvöllur til og spilað var á Mela- vellinum. Fyrstu leikirnir fóru síðan fram á grasi á Laugardalsvelli 1957, sem var vígður 1959, og fleiri góðir vellir komu í kjölfarið. Til að við KR- ingar fengjum að taka þátt í Evrópu- keppni þurftum við leikmennirnir að berja í borðið og við spiluðum svo á móti Liverpool og fleiri góðum liðum. Það hefur margt breyst síðan þetta var.“ -En hvað hefur gert það að verk- um að við erum að fara að spila á HM? „Það er allt hægt í liðakeppni þeg- ar menn standa saman í þolinmæði, vinnu, samstöðu, með skynsamleg leikkerfi, flotta knattspyrnumenn og þjálfara og jákvætt hugarfar. Ef í harðbakkannn slær minni ég á að ég var lengst af fyrirliði í landsliðinu, spilaði bæði í sókn og vörn. Það er því gott að hafa mig í Moskvu, þeir geta þá sett mig inn á ef þörf er á,“ segir Ellert hlæjandi að lokum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tilfinningar Að loknum sigurleik Íslendinga gegn Englendingum á EM í Frakklandi fyrir tveimur árum tóku þau Eggert Magnússon og Dorrit Moussaieff, þáverandi forsetafrú, létt dansspor á vellinum. „Draumurinn sem dreif okkur áfram“  Heiðursformenn KSÍ bjartsýnir fyrir HM í Rússlandi Geir Þorsteinsson Eggert Magnússon Ellert B. Schram Níu karlar hafa gegnt for- mennsku í Knattspyrnusam- bandi Íslands frá því að það var stofnað 1947. Síðustu 45 árin hafa fjórir setið á formanns- stóli. Ellert B. Schram frá 1973 til 1989, Eggert Magnússon 1989 - 2007, Geir Þorsteinsson 2007 - 2017 og núverandi formaður, Guðni Bergsson, frá 2017. Formenn í áratugi KNATTSPYRNUSAMBANDIÐ Aðgengi ungs fólks að íþróttum, þátttaka barna af erlendum uppruna í íþróttastarfi og einmanaleiki í sam- félagi var meðal þess sem Lilja Al- freðsdóttir menntamálaráðherra og Tracey Crouch, íþróttaráðherra Bretlands, tæptu á á fundi í gær. Einmanaleiki og félagsleg ein- angrun hefur verið vaxandi vanda- mál í Bretlandi, en nýverið var sett á stofn ráðuneyti sem ætlað er að vinna gegn einmanaleika og fé- lagslegri einangrun þar í landi. Talið er að þátttaka í íþróttum geti stuðlað að því að börn einangrist síður. „Bæði lönd leggja áherslu á að tryggja gott aðgengi að íþróttum, óháð efnahag. Ég hef lagt áherslu á að skoða sérstaklega þátttöku barna af erlendum uppruna til að skoða hvort staða þess hóps sé lakari en annarra barna. Fundurinn var uppbyggilegur og urðum við sam- mála um að auka samvinnu Íslands og Bretlands á þessum sviðum,“ sagði Lilja. Að fundi loknum ræddu ráðherr- arnir heimsmeistaramótið í Rúss- landi. Í tilefni af þátttöku Íslands í mótinu ákvað Lilja að færa Crouch íslenska landsliðstreyju að gjöf, en fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn Argentínu og fer fram á morgun. aronthordur@mbl.is Ljósmynd/Menntamálaráðuneytið Gjafir Ráðherrarnir færðu hvor öðrum treyju að gjöf að fundi loknum. Ræddu íþróttamál og einmanaleika  HM barst í tal hjá ráðherrunum Ágætis veður er í kortunum fyrir leik Íslands og Argentínu á heims- meistaramótinu í fótbolta. Leikur- inn fer fram klukkan eitt, að ís- lenskum tíma, í Moskvu á laugardaginn. Leikurinn verður sýndur utandyra á hinum ýmsu stöðum á höfuðborgarsvæðinu, í Hljómskálagarðinum, Boxinu í Skeifunni, við Vesturbæjarlaug, á Ingólfstorgi og Garðatorgi svo ein- hverjir staðir séu nefndir. Því er vel við hæfi að huga að veðri í höfuð- borginni. Spá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir ellefu gráðum og nánast algeru logni. Þrátt fyrir að veðurstofan spái ekki rigningu verður að öllum líkindum alskýjað svo að sólin mun líklega ekki líta á þá sem kjósa að horfa á leikinn ut- andyra. Meiri líkur eru á að sólin muni skína á áhorfendur leiksins sem staddir eru í Moskvu. Þar er spáð blíðskaparveðri, tuttugu stiga hita og þremur metrum á sekúndu en þó verður hálfskýjað. ragnhildur@mbl.is Sólríkt í Moskvu en skýjað í Reykjavík Morgunblaðið/Inga Rún Hraðbanki Íslendingar flykkjast í rúbluhraðbanka Landsbankans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.