Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 1
1DAGUR Í FYRSTA LEIK ÍSLANDS
Mikill fjöldi Íslendinga er nú kominn til
Moskvu þar sem íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu leikur sinn fyrsta leik á HM á
morgun við lið Argentínu. Gríðarleg eftir-
vænting er meðal íslensku stuðnings-
mannanna í borginni, en allar tegundir
tilfinninga brjótast út hjá landanum nú
þegar styttist í leikinn. Geðshræringarnar
einskorðast þó ekki við Íslendinga því
í Reykjavík en líkur eru á að það muni
haldast þurrt í borginni meðan á viðureign-
inni stendur. Ljóst er að á meðan beðið er
eftir leiknum gera margir vel við sig í mat
og drykk úti í Moskvu en það gera Íslend-
ingar heima fyrir líka. Búist er við að al-
menn neysla taki stökk en sala á áfengi,
gosdrykkjum, grillkjöti og sjónvörpum jókst
mikið fyrir EM 2016. »4, 6 og Íþróttir
þeirra séu verulega hræddir við íslenska
liðið.
Leikurinn verður sýndur á risaskjám víða
Argentínumenn eru ekki minna spenntir,
segir heimildarmaður Morgunblaðsins í
Buenos Aires. Hann fullyrðir að sumir
Morgunblaðið/Eggert
Íslenskt stuðningsfólk í Moskvu fullt eftirvæntingar
F Ö S T U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 139. tölublað 106. árgangur
SÝNINGIN HVER /
GERÐI ER UM
HVERI OG GRÓÐUR NÝ HEILDARÚTGÁFA
SKEPNURNAR
ERU ALLS EKKI
SKYNLAUSAR
ÍSLENDINGASÖGURNAR 38 BJARNI HARÐARSON 12SIGRÚN HARÐARDÓTTIR 39
Framsóknarflokkurinn má vel við
una að loknum kosningum, að mati
Grétars Eyþórssonar stjórnmála-
fræðings sem segir að árangur
Framsóknar í nýliðnum sveitar-
stjórnarkosningum sé góður, sér-
staklega í ljósi þess að Miðflokkurinn
lét finna fyrir sér. Framsókn er í
meirihluta í sjö bæjarstjórnum í tólf
stærstu sveitarfélögunum. Fram-
sókn og Samfylking sitja saman í
fjórum meirihlutum og Sjálfstæðis-
flokkurinn er eini flokkurinn sem sit-
ur í hreinum meirihluta í tveimur
sveitarfélögum, Garðabæ og Sel-
tjarnarnesi. Hann situr einnig þrem-
ur tveggja flokka meirihlutum. »10
Framsókn
situr í sjö-
meirihlutum
Má vel við una
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Haraldur Johannessen ríkislögreglu-
stjóri segir að tveir sérsveitarbílar
lögreglunnar séu stórskemmdir eftir
ofsaakstur tveggja ökuníðinga að
undanförnu. Að auki hafi samtals
fjórir lögreglubílar frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu skemmst við
eftirför, annars vegar í fyrrinótt og
hins vegar fyrir nokkrum dögum.
„Lögreglan hefur orðið fyrir veru-
legu tjóni á lögreglubílum vegna
þessa glæfraaksturs í tvígang. Það
eru margir lögreglubílar stór-
skemmdir og úr umferð,“ sagði rík-
islögreglustjóri í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Haraldur segir að í þessum tveim-
Milljónatjón eftir ofsaakstur tveggja ökuníðinga Sex bílar skemmdir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á verkstæði Tvær bifreiðar sérsveitarinnar eru mikið skemmdar.
Stórskemmdir lögreglubílar
ur nýju tilvikum um ofsaakstur hafi
samtals sex lögreglubifreiðar orðið
fyrir tjóni, alveg frá því að vera smá-
vægilegt upp í að vera stórtjón.
„Af þessum sex lögreglubílum eru
tveir sérsveitarbílar sem eru mikið
skemmdir og óökufærir. Tjónið
hleypur á milljónum króna. Hinir
fjórir lögreglubílarnir eru svokallaðir
„patrol-bílar“ frá LRH.“
Spurður hvort þetta tjón á hinum
nýju og sérútbúnu bílum sérsveitar-
innar hefði þær afleiðingar að sér-
sveitin hefði takmarkaðri starfsgetu
sagði Haraldur: „Nei, það gerist ekki.
Við höfum önnur úrræði. En þetta
eru ný og dýr ökutæki og það er af-
skaplega svekkjandi að lögreglubílar
verði fyrir slíku tjóni vegna ofsaakst-
urs ökuníðinga.“