Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.06.2018, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pappelina á pallinn Nú getur þú fengið þér púða með vatnsfráhrindandi Sunbrella® tækni og borðdregla í stíl við Pappelina mottuna þína. Motturnar henta í öll rými heimilisins, bæði úti og inni. Dagdvalir eru mik- ilvægur valkostur í þjón- ustu við aldraða sem stuðl- að geta að lengri dvöl þeirra á eigin heimili. Þjón- usta dagdvala er veitt af sveitarfélögum, hjúkr- unarheimilum og fé- lagasamtökum og eru rým- in ætluð einstaklingum 67 ára og eldri, en einnig í sér- tækum tilvikum yngri ein- staklingum eða ákveðnum hópum. Þeir sem sækja þjónustuna koma að morgni og fara heim aftur síðdegis, ýmist daglega eða tiltekna daga í viku. Í dagdvölum er lögð áhersla á að efla líkamlega og andlega færni ásamt því að rjúfa félagslega ein- angrun sem margir á efri árum byrja að finna fyrir. Mikilvægi þjónustunnar sem veitt er í dagdvölum er óumdeilt því auk þess að bæta lífsgæði og færni í gefandi fé- lagsskap með öðrum geta dagdvalir í mörgum tilvikum líka dregið úr tíðni innlagna á sjúkrahús. Má því sannarlega segja að þjónustan hafi mikið forvarn- argildi sem viðhaldi heilsu að ákveðnu marki og geri öldruðum kleift að búa lengur á eigin heimili. Í árslok 2016 voru samkvæmt tölum Sjúkratrygginga Ís- lands, heimildir fyrir 733 dagdvalar- rýmum á landinu. Samningaviðræður Í byrjun þessa árs hófust samninga- viðræður milli Sjúkratrygginga Íslands, Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Sambands íslenskra sveitarfélaga um nauðsynlega skilmála í rammasamningi fyrir þá þjónustu sem veitt er í dagdval- arrýmum. Nú þegar hafa velferðarráðu- neytið og Sjúkratryggingar lagt fram drög að þjónustukröfum (kröfulýsingu) fyrir dag- dvalarrými og er gengið út frá því að hægt verði að vinna með þær kröfur við samningaborðið. Áherslur þjónustuaðila Samtök fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu hafa um langt árabil gert þá kröfu til hins opinbera að ríkið greiði eðlilegt og sann- gjarnt verð fyrir þá þjón- ustu sem ríkisvaldið kaupir með því að fela öðrum að inna þjónustuna af hendi fyrir sína hönd. Dagdvalir eru á meðal þjónustuþátta þar sem ríkið reiðir sig á sveitarfélög, hjúkr- unarheimili og félagasamtök. Samtökin leggja áherslu á að til grundvallar ákvörðunar um eðlilegt endurgjald þurfi að liggja fagleg kostnaðargreining á þeim kröfum sem ríkisvaldið gerir til þjónustunnar. Þess vegna hafa samtökin ávallt og ítrekað lagt til að samningsað- ilar fælu óháðum aðila að framkvæma slíka kostnaðargreiningu. Þeirri mála- leitan hefur ríkisvaldið, því miður, ávallt hafnað fyrir sitt leyti. Á endanum tók stjórn Hrafnistu af skarið og fól ráð- gjafafyrirtækinu Nolta að taka að sér verkefnið og framkvæma slíka kostn- aðargreiningu á sinn reikning. Greining Nolta Í meginatriðum er niðurstaða skýrslu Nolta sú að til þess að unnt sé að veita þá þjónustu í almennu dagdvalarrými sem ríkið gerir kröfu um samkvæmt eig- in kröfulýsingu þurfi fjárframlög ríkisins að hækka um á bilinu 30 til 40%. Grein- ing Nolta byggir á upplýsingum frá sex þjónustuaðilum dagdvala á landinu til þess að fá eins raunsanna mynd af rekstrinum og unnt er. Tekin voru dæmi af 8 rýma einingu og 30 rýma einingu og miðað við 100% nýtingu plássa. Niður- stöðurnar gefa jafnframt til kynna að verulegur munur sé á rekstrarhag- kvæmni þessara tveggja eininga. Þannig gefur skýrslan til kynna að 30 rýma ein- ingarnar séu hagkvæmastar í rekstri enda þótt þar vanti um 30% hærri fjár- framlög frá ríkinu til að veita þá þjón- ustu sem fram kemur í kröfulýsingu rík- isins. Jafnframt sýnir skýrslan að minni rekstrareiningarnar, sem flestar eru á landsbyggðinni, þurfi 40% meiri fjár- framlög ofan á grunndaggjaldið sem rík- ið greiðir í dag. Krafa um raunverð Skýrsla Nolta var kynnt fulltrúum Sjúkratrygginga í lok mars. Síðan þá hafa samningaviðræður í raun verið í lausu lofti enda er varla hægt að ætlast til þess að þjónustuaðilar skrifi undir samning þar sem vitað er fyrirfram að greiðslurnar eru að minnsta kosti 30- 40% of lágar fyrir þá þjónustu sem verk- kaupinn gerir kröfu um. Veitendur þjón- ustunnar reka starfsemi sína án hagn- aðarsjónarmiða og því hlýtur það að vera sanngjörn krafa af þeirra hálfu að stjórnvöld móti betri og skýrar stefnu í hinni mikilvægu dagdvalarþjónustu og greiði fyrir hana sanngjarnt og gegnsætt verð sem byggir á raunkostnaði við þjón- ustuna. Yfir 30% vantar í daggjöld dagdvala Eftir Pétur Magnússon »Krafa SFV er að ríkið greiði raunkostnað við þjónustuna sem veitt er án hagnaðarsjónarmiða. Pétur Magnússon Höfundur er forstjóri Hrafnistuheimilanna og formaður Samtaka fyrirtækja í velferð- arþjónustu. Hátt lætur nú á alþingi Íslend- inga að lækka veiðigjöld sjávar- útvegsfyrirtækja. Gjaldið er ekki vegna þessa árs, heldur frá veið- um árum áður. Það ár var af- koman betri. Útgerðarmenn hefðu þá átt að leggja fjármagn til hliðar til greiðslu gjalda nú. Í stað þess greiddu sumir sér arð eins og komið hefur fram á und- anförnum mánuðum. Í nýútkominni skattskrá kemur fram að margir útgerðarmenn eru með hæstu skattgreiðendum svo afkoman virðist ekki hafa ver- ið slæm. Það er því nokkur þver- sögn í þessum málum. Á sama tíma fá sumir aldraðir endur- reikning frá Tryggingastofnun ríkisins þar sem þeim er gert að endurgreiða vegna ofgreiðslu á því ári. Þar er ekkert gefið eftir. Þeir skulu greiða, þó smátt hafi verið skammtað í launum til þeirra miðað við hátekjuaðalinn. Þeim er líka meinað að rétta hag sinn með vinnu, sem hefðu til þess vilja og getu, vegna skerðingarákvarðana stjórnvalda. Þeir sem gætu unnið, vilja fá að vinna og taka þátt í þjóð- félaginu eins og aðrir. Það væri öllum til góðs að afnema þessar skerðingar. Það er hrópandi mismunun milli þeirra sem fá greiðslu frá Tryggingastofnun og þeirra, sem hafa það há eftirlaun að þeir fá ekki greitt frá Tryggingastofnun. Þeir gætu unn- ið án skerðingar. Mannvonskan, sérhagsmunagæslan og yf- irgangurinn er svo yfirþyrmandi að furðu gegnir. Við þurf- um ríkisstjórn sem er allra landsmanna, en ekki bara þeirra ríku. Ríkisstjórn ríka fólksins Eftir Óla Stefáns Runólfsson Óli Stefáns Runólfsson Höfundur er rennismiður og eftirlaunaþegi. olistef1@simnet.is »Mann- vonskan, sérhagsmuna- gæslan og yf- irgangurinn er svo yfirþyrm- andi að furðu gegnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.