Morgunblaðið - 18.06.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018
Morgunblaðið hefur fjallað umþað, meðal annars í frétta-
skýringu um helgina, að breytingar
séu framundan í losunarmælikvörð-
um bifreiða. Þessar breytingar hafi
þau áhrif að hækka gjöld á margar
bifreiðar og sú
hækkun geti numið
tugum prósenta.
Þetta hefur lengilegið fyrir en
þó hefur ekkert
gerst hjá ríkisvaldinu til að koma í
veg fyrir þessar hækkanir, nema að
vísu að skipa starfshóp. Starfs-
hópur hjálpar hins vegar ekkert
þeim sem eru að velta fyrir sér bíla-
kaupum og óvissa um verð bíla hef-
ur auðvitað neikvæð áhrif á þeim
markaði.
Það er furðulegt hve flókið reyn-ist jafnan að lækka skatta, eða
jafnvel bara að leiðrétta mæli-
kvarða til að koma í veg fyrir að
skattar hækki.
Ef áhrifin hefðu verið í hina átt-ina, ætli ríkisvaldið hefði þá
ekki verið fljótt að bregðast við og
koma í veg fyrir að skattarnir
lækkuðu?!
Skattar á bíla hér á landi eruhiminháir og hækkuðu meðal
annars í tíð vinstri stjórnarinnar
2009-2013. Síðan hafa setið óvenju-
lega margar ríkisstjórnir, en engri
þeirra hefur tekist að lækka skatta
á bíla.
Og það hefur ekki heldur tekistað laga skekkjuna sem sett var
inn í skattkerfið til að hygla dísel-
bílum, sem nú þykir sýnt að séu
ekki umhverfisvænni en aðrir bílar.
Hvernig stendur á því að ekkertgengur að lækka skatta og
lagfæra þá niður á við?
Furðulegur
seinagangur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 6 skýjað
Akureyri 10 rigning
Nuuk 6 léttskýjað
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 16 rigning
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Stokkhólmur 16 rigning
Helsinki 22 heiðskírt
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 14 alskýjað
London 16 skýjað
París 20 skýjað
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 18 skúrir
Berlín 25 heiðskírt
Vín 26 heiðskírt
Moskva 23 heiðskírt
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 28 þrumuveður
Aþena 23 þrumuveður
Winnipeg 19 skýjað
Montreal 24 skýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 31 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:55 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:10 23:48
Íslendingar léku á Evrópumótinu í
bridds sem fór fram í Ostend í Belg-
íu á dögunum. Íslendingar höfnuðu í
14. sæti í opnum flokki með 360,94
stig. Norðmenn unnu opinn flokk
karla með 417,24 stig, skammt á eft-
ir voru Ísraelsmenn með 415,34 stig
og Rússland tók þriðja sætið með
406,06 stig. Pólverjar sigruðu í
kvennaflokki, Svíar urðu í öðru sæti
og Norðmenn því þriðja. Þá unnu
Frakkar eldri flokkinn.
Efstu átta sætin gefa rétt til að
spila á heimsmeistaramótinu í
bridds sem fram fer á næsta ári. Það
er því ljóst að Íslendingar verða ekki
með á því móti.
Ísland í
14. sæti
í bridds
Norðmenn Evr-
ópumeistarar í bridds
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bridds Frá briddsmóti í Hörpu.
Landsréttur hefur dæmt karlmann í
10 mánaða fangelsi fyrir brot gegn
stjúpdóttur sinni, sem átti sér stað á
10 ára afmælisdegi hennar. Var
hann dæmdur til að greiða henni
600.000 krónur í miskabætur og
tvær milljónir í sakarkostnað.
Dómurinn er staðfesting á dómi
Héraðsdóms Reykjaness sem féll í
maí í fyrra, en þar var maðurinn
dæmdur til að greiða 800.000 krónur
í miskabætur og 1,3 milljónir í áfrýj-
unarkostnað. Fram kemur í dómi
Landsréttar að maðurinn hafi á
sameiginlegu heimili þeirra káfað á
kynfærum stúlkunnar innan klæða
og kysst hana á maga, bak og munn.
Maðurinn byggði málsvörn sína
fyrir Landsrétti m.a. á því að mat
héraðsdóms á trúverðugleika fram-
burðar hans og stúlkunnar hefði ver-
ið rangt og hafnaði ályktunum dóms-
ins vegna ófullnægjandi
rökstuðnings. Taldi hann framburð
stúlkunnar að mörgu leyti misvís-
andi sem leiða ætti til þess að hann
yrði metinn ótrúverðugur. Lands-
réttur mat framburð stúlkunnar
stöðugan og að dráttur hefði orðið á
rannsókn og saksókn í málinu sem
ekki hefði verið skýrður. Með tilliti
til þess var niðurstaða um fangels-
isrefsingu staðfest, en frá því myndi
dragast gæsluvarðhald sem hann
sætti í tengslum við rannsókn máls-
ins.
10 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
Karlmaður braut gegn stjúpdóttur sinni á 10 ára afmælisdegi hennar
Morgunblaðið/Hanna
Brot Landsréttur dæmdi í málinu.