Morgunblaðið - 18.06.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Selirnir eru óhræddir við bát-inn og oft komumst við ímikið návígi, þar sem urt-urnar með kópana liggja á
skerjunum. Sennilega er óvíða á
landinu hægt að komast í meira ná-
vígi við seli hér við land en einmitt
hér enda koma ferðamenn hingað
mikið til að sjá og upplifa þetta fal-
lega líf hér við sjóinn,“ segir Eðvald
Daníelsson á Hvammstanga.
Eðvald stendur að rekstri fyrir-
tækisins Selasiglingar ehf. sem er
með selaskoðunarferðir þrisvar
sinnum á dag, alla daga frá 15. maí
til septemberloka. Þá er siglt frá
Hvammstanga þvert yfir Miðfjörð-
inn að Heggstaðanesi þar sem eru
selalátur og margt að sjá í ferðum
sem taka eina og hálfa klukkustund.
Tólf mínútur
„Hér yfir fjörðinn er aðeins tólf
mínútna sigling og þá má segja að
komið sé aðra veröld. Það eru ein-
hvers staðar á milli 70 og 90 dýr sem
halda sig á skerjunum þarna, allt
landselir þó við höfum reyndar líka
séð einum útselssflæking stundum
bregða þarna fyrir,“ segir Eðvald í
samtali við Mogunblaðið.
„Stundum erum við ekki nema
bátslengdina frá selunum og þá er
gaman að fylgjast með þeim. Kóp-
arnir eru mjög hændir að mæðrum
sínum, flatmaga með þeim og láta
sólina baka sig. Fara svo í sjóinn,
busla og taka allskonar kúnstir. Það
er virkilega gaman að fylgjast með
þessu, sérstaklega núna á vorin
meðan kóparnir eru ungir.“
Látur eru víða
Sellátur finnast víða við strand-
lengju Íslands. Landselir eru flestir
á svæðinu frá Ströndum að Skaga,
það er umhverfis Húnaflóann.
Einkar góðar aðstæður til að komast
Óhræddar urtur
og kóparnir sem
leika kúnstir
Selurinn heldur sig við Húnaflóa. Á Hvammstanga
er hægt að komast í áhugaverðar siglingar að látrum
við Heggstaðanes þar sem hægt er að sjá þessar fal-
legu skepnur, sem sumir segja að hafi mannsaugu.
Sennilega er óvíða á
landinu hægt að komast
í meira návígi við seli
hér við land.
Skipstjórinn Edvard Daníelsson - í
brúarglugganum á Brimli.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Brimill Traustur eikarbátur sem tekur 30 farþega í skemmtilegar ferðir.
Þessi pistill er fyrir þig sem viltbyggja upp grunnstyrk úti ífersku sumrinu. Sumarið er
tíminn á Íslandi. Sama hvort það er
sól eða rigning. Hér eru fimm æf-
ingar sem þjálfa allan líkamann. Ef
þú sinnir þeim vel í sumar áttu eftir
að njóta þess miklu betur en ella.
Byrjum á æfingu guðanna, upphíf-
ingum. Ekki hætta að lesa ef þú hef-
ur aldrei gert upphífingu og heldur
að þú munir aldrei geta framkvæmt
eina slíka. Það er alltaf leið.
Fyrsta skrefið er að finna leikvöll
eða leikskóla. Þar er mikið af góðum
æfingatækjum. Finndu slá sem nær
þér í höfuðhæð. Gríptu þétt utan um
hana og notaðu fæturna – sem nema
við jörðu – til að hjálpa þér að toga
þig upp þannig að hakan nemi við
slána. Svo lætur þú þig síga rólega
niður og notar fæturna eins mikið
og þú þarft til þess að geta sigið ró-
lega niður þangað til þú hefur náð
að rétta alveg úr höndunum. Sko!
Þarna er fyrsta hífan komin. Þessi
leið byggir togstyrk og með því að
gera æfinguna reglulega kemstu yf-
ir á næsta stig í upphífingaferlinu.
Næsta æfing, armbeygjur. Sama og
með hífurnar. Það er alltaf leið ef þú
hefur ekki styrk, enn, til þess að
framkvæma æfinguna eins og hún
getur verið erfiðust. Fyrsta skrefið
er að vera með hné í jörðu og láta
sig síga rólega að jörðu þannig að
brjóstkassi nánast nemi við jörð.
Passaðu að hálsinn sé í hlutlausri
stöðu, ekki hengja haus. Olnbogar
með síðum. Æfing númer þrjú, hné-
beygjur. Þú ferð eins djúpt og þú
kemst.
Ef þú hefur ekki farið djúpt í
langan tíma er góð leið að halda með
báðum höndum í handrið eða slá
fyrir framan þig á meðan þú tekur
hnébeygjurnar. Minnkar þannig
álag á hné og liði og hjálpar lík-
amanum að rifja upp þessa nátt-
úrulega hreyfingu sem við öll gátum
gert þegar við vorum börn og ættum
að geta gert út lífið.
Fjórða æfingin er liggjandi
mjaðmalyftur á öðrum fæti. Jane
Fonda gerði mikið af þessari æf-
ingu. Hún er eldhress í dag, 80 ára.
Engin læti, gera þessa og hinar æf-
ingarnar líka, hægt og rólega. Það
skilar sér í auknum styrk. Síðasta
æfingin planki. Gerðu þessar fimm
æfingar á hverjum degi í sumar. Í
samtals 10 mínútur. Það á eftir að
skila sér.
Njótum ferðalagsins!
Morgunblaðið/Ómar
Púl Hér er hressilega tekið á því en þó á að finna æfingar við sitt hæfi.
Sumaræfingar
Njóttu ferðalagsins
Guðjón Svansson
gudjon@njottuferdalagsins.is
Guðjón Svansson er Íslendingur,
ferðalangur, eiginmaður, fjögurra
stráka faðir, rithöfundur, fyrirles-
ari, ráðgjafi, þjálfari, mentor og
nemandi, sem heldur úti bloggsíð-
unni njottuferdalagsins.is
Leikskólinn Furugrund í Kópavogi
tekur þessi misserin þátt í Evrópu-
verkefni, ásamt leik- og grunnskólum
frá sjö öðrum löndum; Búlgaríu, Ítal-
íu, Kýpur, Norður-Írlandi, Portúgal,
Póllandi og Spáni. Verkefnið, sem
hófst í janúar 2017 og lýkur í júní á
næsta ári, er í gegnum Erasmus+ og
styrkt af Rannís. Er þarna leitað leiða
til að efla tilfinningagreind og fé-
lagsþroska nemenda, en tilgangurinn
er deila hugmyndum og verkfærum
með sameiginleg markmið í brenni-
depli og er notast við samskiptamið-
ilinn eTwinning til þess.
Dagana 4. - 7. júní tók starfsfólk
Furugrundar á móti gestum frá vina-
skólunum. Gestirnir fengu að taka
þátt í vinnustofum með nemendum
Furugrundar, sem kennarar stýrðu af
mikilli list. Gestunum bauðst sömu-
leiðis að kynnast listsköpun, hreyf-
ingu, tónlist, jóga og vináttuverkefn-
inu Blæ.
Í heimsókninni var einnig fundað,
afrakstur hvers skóla var sýndur og
næstu skref verkefnisins rædd. Gest-
irnir fengu auk þess að taka þátt í
sumarhátíð leikskólans, sem var sér-
lega vegleg að þessu sinni vegna 40
ára afmælis leikskólans.
Leikskólastjórinn, Helga Jóns-
dóttir, var heiðruð vegna 40 ára í
starfi hjá Kópavogsbæ. Skóla-
hljómsveit Kópavogs hóf hátíðina
með ljúfum tónum og Sirkus Íslands
kom og sýndi listir sínar, við mikla
kátínu hátíðargesta.
Efla tilfinningagreind og félagsþroska leikskólanema
Listsköpun, hreyfing og tónlist
Ljósmynd/Úr einkasafni
Kópavogur Fjör á Furugrund. Evrópuverkefnið tekur á ýmsu áhugaverðu.