Morgunblaðið - 18.06.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 18.06.2018, Síða 13
í Selalátur eru við Illugastaði á Vatnsnesi, spölkorn norðan við Hvammstanga, en það svæði er lok- að út júní vegna æðarvarps. Raunar er umferðinni á selslóðir stýrt þann- ig að hægt er að komast að látrunum á Vatnsnesi landleiðina en að þeim á sjó við Heggstaðanesið, þangað sem Eðvard fer alla daga á Brimli HU–18, en svo heitir báturinn sem er 24 tonna, smíðaður úr eik 1973 og tekur 30 farþega. „Bátar eins og þessi hafa reynst vel þegar siglt er með farþega. Sel- urinn er orðinn vanur mjúkri sigl- ingu bátsins sem hefur þar af leið- andi mjög lítil áhrif á hegðun hans. Það sem af er sumri hefur þetta ver- ið mjög skemmtilegt; sunnanáttin ráðandi, og því aflandsvindur og gott í sjóinn,“ segir Eðvald sem hóf þessa útgerð ásamt annarri fjölskyldu 2010. Hefur útgerðin eflst síðan og átt sinn þátt í því að koma Húna- þingi vestra á kortið sem áhugaverð- um ferðamannastað. Má í því sam- bandi nefna starfsemi Selaseturs Íslands á Hvammstanga, þar sem er fróðleg sýning um líf sela við strend- ur landsins auk þess sem þar eru gerðar margvíslegar rannsóknir á lifnaðarháttum skepnunnar. Kópur Skriðið upp á agnarsmátt flæðisker sem þakið er þaragróðri. Selalátur Urtur og kópar flat- maga og sleikja geisla sól- arglennunnar. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúd- entaráðs Háskóla Íslands, hefur verið kosin forseti Stúdentaráðs Aurora, sem er samstarfsnet níu virtra evr- ópskra háskóla sem eiga það sameig- inlegt að leggja áherslu á hágæða rannsóknir, samfélagslega ábyrgð og að gera samfélögum betur kleift að takast á við áskoranir samtímans. Sem forseti mun Elísabet leiða stúdentaráð Aurora og hafa yfirum- sjón með starfi þess frá degi til dags. Samanlagður fjöldi stúdenta innan netsins er um 230 þúsund og má ætla að forystufólk íslenskra stúd- enta hafi ekki áður farið fyrir jafn fjölmennri sveit. Jafnrétti og sjálfbærni „Verkefni sem eru meðal annars á borði mínu í augnablikinu eru að skipa fulltrúa stúdenta í vinnuhópa innan Aurora sem snúa til dæmis að alþjóðamálum, jafnréttismálum og sjálfbærni, halda áfram með vinnu við undirbúning alþjóðlegs íþrótta- móts Aurora stúdenta, styrkja al- þjóðlegt nám og námsmöguleika fyrir stúdenta innan samstarfsnetsins og undirbúa og stýra fundum stúdenta, bæði í gegnum netið og á ráð- stefnum,“ segir Elísabet í tilkynningu frá HÍ þar sem fjallað er um þetta nýja hlutverk sem hún hefur nú tekist á hendur. „Samstarfsnetið skapar mikilvægan vettvang þar sem háskól- ar geta bæði litið út fyrir sinn ramma og séð hverju aðrir eru að vinna að og gera vel sem og deilt góðum starfs- háttum,“ segir Elísabet um sam- starfsnetið og viðfangsefni þess. Skólar víða í Evrópu Háskólar í Aurora eru auk Háskóla Íslands, Grenoble-Alpes háskóli (Frakklandi), Háskólinn í Aberdeen (Skotlandi), Háskólinn í Antwerpen (Belgíu), Háskólinn í Björgvin (Nor- egi), Háskólinn í Duisburg-Essen (Þýskalandi), East Anglia háskóli (Englandi), Gautaborgarháskóli (Sví- þjóð) og Vrije-háskóli í Amsterdam (Hollandi). Elísabet Brynjarsdóttir er úr Garðabæ, 25 ára gömul. Er hjúkr- unarfræðingur og stefnir í fram- haldsnám í geðhjúkrun eða alþjóða- samskiptum eftir starfsár sitt hjá Stúdentaráði og Aurora. Í forystu samstarfs níu evrópskra háskóla Elísabet kosin forseti Aurora Morgunblaðið/Hari Forysta Elísabet Brynjarsdóttir tekst á við nýtt fjölþjóðlegt verkefni. „Það er mikið fuglalíf hér á svæðinu, við vatnið, í flæðarmálinu og í skógum,“ segir Sigurjón Einarsson á Hvanneyri. Opnuð var nú á laugardaginn á Stálpastöðum í Skorra- dal ljósmyndasýningin Fuglar í Skorradal, hvar í skógarlundi eru sýndar alls ellefu stór- ar myndir. Eru þær af til að mynda himbrima, músarrindli, branduglu og flórgoða, svo nokkar tegundir séu nefndar. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til sýn- inga á ljósmyndum á Stálpastöðum, sem eru fyrir miðju norðanverðu Skorradalsvatni. Hefur efni sýninga þessara jafnan tengst dalnum, náttúru þar og sögu á einhvern hátt. Óvenjuleg ljósmyndasýning haldin utandyra í Skorradalnum Fuglarnir í dalnum til sýnis á Stálpastöðum Ljósmynd/GAJ Ljósmyndari Sigurjón Einarsson, hér með brandugluna við hlið sér.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.