Morgunblaðið - 18.06.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.06.2018, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ísland reyndiekkert,“sagði Ro- naldo fyrir tveim- ur árum þegar Portúgal mis- tókst að leggja Ísland á EM. „Þeir bara vörðust og vörðust og vörð- ust og spiluðu upp á skyndi- sóknir. Þeir voru heppnir þetta kvöld.“ Óhætt er að segja að þessi viðbrögð Ro- naldos hafi ekki hjálpað ímynd hans mikið, í það minnsta ekki hér á landi. Um helgina fetaði Messi í fótspor Ronaldos og sagði: „Ísland gerði nánast ekki neitt. Allt sem það gerði var að verjast og sóknarleik- urinn byggðist á löngum inn- köstum. Við verðskulduðum sigur í þessum leik.“ Þessi ummæli tveggja af helstu knattspyrnuköppum veraldar – veraldarsögunnar að margra mati – segja mikið um þau afrek sem íslenska landsliðið í knattspyrnu hef- ur unnið á undanförnum ár- um. Ronaldo taldi það aðeins heppni að Ísland næði jafn- tefli og Messi var bersýni- lega sömu skoðunar. En staðreyndin er sú að ekkert landslið í heimi getur reikn- að með sigri gegn íslenska landsliðinu. Það er engin heppni, það er þvert á móti mikil vinna, baráttuvilji og öflug liðsheild þeirra sem á vell- inum eru, að ógleymdum stuðningi landsmanna sem fá landslið, ef nokkurt, geta treyst á. Með jafntefli gegn firna- sterku liði Argentínu gerði íslenska landsliðið Íslend- inga enn og aftur stolta og ánægða. Og það sést vel af viðbrögðum erlendis hve mikill sigur úrslitin voru fyr- ir íslenska landsliðið. Er þá ekki aðeins átt við viðbrögð Messis eða landa hans Mara- dona, sem einnig tók nið- urstöðunni illa. Íslendingar töldu, rétti- lega, að þeir hefðu þegar sigrað með því að komast á HM og verða þar með fá- mennasta þjóð sem nokkru sinni hefur náð á það mikla mót. Jafnteflið um helgina staðfestir að Ísland átti fullt erindi á mótið og sýnir um leið að allt getur gerst á næstu dögum og vikum. Ævintýrið heldur þess vegna áfram og landsmenn bíða fullir eftirvæntingar og bjartsýni eftir næsta leik. Tapsár er orð sem lýsir ágætlega Messi og Ronaldo eftir leiki við Ísland} Ævintýrið heldur áfram Það er ekki að-eins á Íslandi sem vinstrimenn kosta kapps um að koma almenningi út úr bílum og inn í einhvers konar lestarvagna. Tom Welsh, blaðamaður á Telegraph í Bretlandi, skrifar um þessa áráttu og segir að barist sé fyrir þessu á öllum mögu- legum forsendum. Auknar al- menningssamgöngur eigi að draga úr loftslagsbreytingum, leysa húsnæðisvandann og jafnvel minnka einsemd. Hann segir að þess vegna hljóti ný skýrsla með tölum um notkun á lestum að hafa verið mikið áfall fyrir þessa baráttumenn. Skýrslan sýni að færri noti lestir, þar með talið neðanjarðarlestarkerfið, og notkun á strætisvögnum fari einnig minnkandi í stórum hlutum Bretlands. Talsmenn aukinna almenn- ingssamgangna reyni að kenna ýmsu um þetta, svo sem veðrinu, dýrum farmiðum og jafnvel Brexit. Welsh veltir því upp hvort skýringarnar kunni ekki að vera aðrar. Hvort ekki kunni að vera að þessar hefð- bundnu almenn- ingssamgöngur hafi þegar náð há- marki og séu á niðurleið. Hann bendir á að ef til vill vilji fólk ráða ferðum sínum meira sjálft og nota aðra fararmáta en þá sem bjóða upp á fyrir fram ákveðnar leiðir og tímasetn- ingar. Og hann telur að áður en að þróað verði dýrara lest- arkerfi í Bretlandi sé eðlilegt að meta hvort „ósveigjanlegt og gamaldags almennings- samgöngukerfi sé ekki að verða æ meira úrelt fyrir neytendur sem krefjast auk- ins vals og frelsis einstakl- ingsins“. Í Reykjavík blés Viðreisn lífi í gamla fallna vinstri meirihlutann sem hefur það sem eitt sitt helsta markmið að ryðja burt einkabílnum og koma upp klunnalegum, dýr- um og gamaldags almennings- samgöngum. Væri ekki ágætt áður en lengra er haldið að þessi meirihluti velti fyrir sér þróuninni í Bretlandi. Hugmyndirnar eru gamlar og úreltar eins og meirihlutinn sem fyrir þeim berst} Kallað eftir nýrri hugsun Þ etta íslenska lið gerði eiginlega ekki neitt.“ Einmitt. Messi hefur greinilega ekki lært neitt af hinum tapsára kollega sínum, Ronaldo, á EM í fótbolta sumarið 2016. Þetta lið gerði nefnilega mjög margt í þess- um leik á laugardaginn. Fyrir utan að skora mark, verja víti og pakka í stórkostlega vörn sem Messi og félagar réðu einfaldlega ekkert við gladdi íslenska karlalandsliðið í fótbolta þjóð sína og sameinaði um allt land – og er- lendis. Íslendingar fylltu bari á Spáni og í Washington. Fólk sem vissi ekki að það hefði nokkurn áhuga á knattspyrnu stóð sig að því að öskra sig hást á sjónvarpsskjáinn, fagna stórkostlega þegar markið kom og varpa önd- inni léttar í hvert sinn sem skot geigaði eða Hannes varði. En hver er lykillinn á bak við þetta? Á bak við þennan árangur? Einhver sagði að okkur langaði bara meira til að vinna, en vilji er ekki alveg allt sem þarf. Hæfileikar, þolinmæði, kraftur og úthald er nauðsynlegt. Samskipti og samstilling, að geta róið í sömu átt og skipt með sér verkum þannig að hver og einn blómstri í sínu hlutverki skiptir líka máli. Góð leiðsögn, hvatning fólks- ins í kring, skynsamleg gagnrýni og geta til að taka henni og bæta sig er nauðsynleg. Þetta allt má heimfæra upp á flest það sem við gerum í lífinu. Erlendir fjölmiðlar fá ekki nóg af íslensku hetjunum, sögunum af tannlækninum úr Eyjum og öllu því. Ég er ekkert að gera lítið úr ýmiskonar landkynn- ingarverkefnum sem farið hefur verið í í gegnum tíðina, en enginn hefði getað skipu- lagt öflugra átak en þetta. Á EM 2016 tvöfald- aðist fjöldi leitarfyrirspurna á Google þar sem Ísland kom fyrir og hafði þá ekki verið meiri síðan Eyjafjallajökull gaus 2010. Það er dálít- ið viðeigandi, enda er þetta lið út af fyrir sig eins og náttúruafl. Þannig getur framganga íslenska liðsins ekki einungis glatt okkur, sameinað og gert okkur stolt heldur haft raunveruleg áhrif á rekstur þjóðarbúsins með því að vekja áhuga fólks um allan heim á Ís- landi. En þetta er bara ein hlið á þessu öllu. Það sem þessir strákar og stelpur í landsliðunum okkar kenna okkur er að ekkert er ómögulegt og eru þannig frábærar fyrirmyndir. Það á að vera ómögulegt fyrir örþjóð eins og okkur að eiga landslið sem keppa við þá bestu og standa sig vel í fótbolta, handbolta og öðrum íþróttagreinum. En þetta snýst um það að setja sér markmið og trúa því að við höf- um það sem til þarf. Maður kemst nefnilega sjaldan lengra en maður ætlar sér. Og Messi getur alveg reynt að telja sér trú um að ís- lenska liðið geri ekki neitt. Við vitum betur. Við elskum þetta lið og styðjum það alla leið. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Við elskum þetta lið Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Nýsamþykkt lög um jafnameðferð á vinnumarkaðigætu reynst verkalýðs-hreyfingunni mikilvægt verkfæri, ekki síst í baráttu við launa- leynd og fjölþætta mismunun á vinnumarkaði. Þetta segir Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræði- deildar ASÍ. Of snemmt er þó að hans mati að fullyrða um hvaða heildar- áhrif löggjöfin muni hafa á íslenskan vinnumarkað. Lögin voru eitt þeirra mála sem Al- þingi kláraði undir lok þings í byrjun vikunnar, en markmið þeirra er að vinna gegn mismunum og koma á og viðhalda jafnri meðferð einstaklinga á vinnumarkaði óháð kynþætti, þjóð- ernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyn- tjáningu. Bann er lagt við hvers kyns mismunun af ástæðum sem greinir frá í lögunum og er framkvæmdin fal- in Jafnréttisstofu. Ágreiningsmálum samkvæmt lögunum verður beint til kærunefndar jafnréttismála. Beint að fjölþættri mismunun „Við búum sem betur fer í sam- félagi sem gerir ekki mikið af því að mismuna fólki. Við erum með viðvar- andi launamun milli kynjanna og þetta verður eitt verkfæri í viðbót til að taka á því. Þetta er líka gott verk- færi fyrir þá sem verða fyrir fjöl- þættri mismunun,“ segir Magnús. Í greinargerð er tekið dæmi um brot gegn fatlaðri konu af tilteknum kyn- þætti hvað fjölþætta mismunun varð- ar. Sérstaklega er tekið fram að byggja megi á tvennum eða fleiri lög- um sama máli í því skyni. „Við viljum hafa öll þau verkfæri sem möguleg eru til að koma í veg fyrir mismunun ef hana er að finna. Þar sem hana er að finna, þá viljum við eyða henni, hvort sem það er kyn- bundin mismunun eða mismunun af einhverjum þeim ástæðum sem nefndar eru í lögunum,“ segir Magn- ús. „Kannski bætist okkur þarna í vopnabúrið til að vinna gegn launa- leynd líka. Þá getum við kannski sýnt fram á að fyrirtæki bjóði tilteknum hópi launamanna önnur og verri kjör en Íslendingum með skipulegum hætti.“ Í frétt mbl.is í síðustu viku kom fram að líkur væru á því að laun 18 og 19 ára einstaklinga hækkuðu vegna laganna. Í tilteknum kjarasamn- ingum væri kveðið á um að starfs- menn á þeim aldri ættu aðeins rétt á 95% byrjunarlauna. Lára V. Júlíus- dóttir hæstaréttarlögmaður sagði að þetta væri ekki í samræmi við lögin eins og þau væru útfærð. Spurður út í þessa túlkun á lögunum kveðst Magnús fátt vilja fullyrða. „Það verð- ur að koma í ljós hvort þetta er rétt,“ segir hann og bendir á að áhrif lag- anna að öðru leyti eigi einnig enn eftir að koma í ljós. „Það er of snemmt að segja til um hvaða áhrif þessi lög munu hafa. Við eigum t.d. eftir að sjá dálítið hvernig máls- og kærumeðferðin mun virka og hvort stjórnvöld munu styrkja inn- viðina til að taka á málunum með góð- um hætti. Það á eftir að koma í ljós,“ segir hann. Aðspurður segir hann að óræð hugtök í lögunum séu ekki ný af nálinni, þau hafi fastan sess í laga- og dómaframkvæmd. „Lögin byggjast líka á tilskipun ESB og það verður til framkvæmd bæði fyrir EFTA-dómstólnum og Evrópudómstólnum um innihald og túlkun þessara hugtaka. Við erum ekki bundin af þeim túlkunum af því okkur var ekki skylt að innleiða þetta, en engu að síður verður að finna góða leiðbeiningu í framkvæmd dómstól- anna,“ segir hann. Verkalýðnum fengin ný vopn í hendur Morgunblaðið/Árni Sæberg Kröfuganga Magnús M. Norðdahl, deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ, telur að nýju lögin geti nýst verkalýðshreyfingunni í baráttu við mismunun. Verkalýðshreyfingin ráðgerir að nýta sér lög um jafna meðferð á vinnumarkaði ásamt fleiri lög- um. Sem dæmi má nefna lög um jafnan rétt karla og kvenna. Þannig munu heildræn áhrif laganna geta orðið til þess að uppræta fjölþætta mismunun. „Á sama tíma og þessi lög taka gildi taka einnig gildi lög um jafnlaunastaðal sem á fyrst og fremst við um kynbundinn launamun. Vonandi verða heild- aráhrifin af þessari lagasetn- ingu til þess að mismunun verði upprætt,“ segir Magnús. Notast má við fleiri lög ÖNNUR LÖG UM MISMUNUN Morgunblaðið/Eggert Kjör Ný lög sett um jafnlaunastaðal.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.