Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
Reyktur lax
í brunchinn
Söluaðilar:
10-11, Hagkaup, Iceland verslanir,
Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup,
Sunnubúðin, Pure Food Hall flug-
stöðinni Keflavík.
Með því að velja
hráefnið af kostgæfni,
nota engin aukaefni og
hafa verkhefðir fyrri tíma
í hávegum, framleiðum við
heilnæmar og bragðgóðar
sjávarafurðir.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Frá sumardeginum fyrsta til og
með 17. júní voru aðeins 210 sól-
arstundir á höfuðborgarsvæðinu,
skv. upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands og teljist það langt undir
meðallagi.
Veðrið hafi verið tvískipt á land-
inu frá sumarbyrjun, en mikil hlý-
indi hafi verið norðaustan- og aust-
anlands, en svalara suðvestan til,
en frá því segir á bloggsíðu Trausta
Jónssonar, veðurfræðings og
áhugamanns um veður.
Úrkoma í Reykjavík hafi verið
óvenjumikil, en leita þurfi aftur til
mælinga ársins 1896 til að finna
sambærilegt magn, sem er þó
minna. Sólskinsstundir hafi verið
fáar á Suðvestur- og Vesturlandi.
Óvenjuþurrt hafi verið á Vest-
fjörðum. Framan af hafi rignt tals-
vert eystra, en síðan stytt upp og
sólin farið að skína. Síðustu daga
hefur aftur breytt til. Hiti suðvest-
anlands hafi mælst 1,3 gráðum und-
ir meðallagi sl. tíu ára en 0,8 gráð-
um yfir meðallagi sl. tíu ára á
Akureyri, en talsvert kaldara hafi
verið á sama tíma árið 2015.
Sjaldan hafi þessi árstími verið
hlýrri á Akureyri, en þó hafi verið
nokkru hlýrra árið 2014. Fyrstu
tvær vikur sumars hafi aldrei verið
jafnhlýjar þar og nú, sé tekið mið
af skráningum sem eru fyrir hendi,
þær elstu frá Dalatanga árið 1949.
Sólin dvalið norðaustan til
Tveir mánuðir
frá sumardeg-
inum fyrsta
Morgunblaðið/Eggert
Frá sumardeginum fyrsta Sunnlendingar hafa ekki skrælnað í sólinni.
Urtan Særún lætur vel að kópnum sínum sem kom í heiminn fimmtudaginn 14.
júní í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík. Kópurinn hefur ekki enn
fengið nafn þar sem hann hefur enn ekki verið kyngreindur. Kópurinn drekk-
ur mjólk frá móður sinni en hann étur ekki fisk fyrr en á fjórðu til sjöttu viku.
Morgunblaðið/Ómar
Urtan gefur kópnum sínum koss á kinn
Selunum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum fjölgar í byrjun sumars
Gestir í Bláa lón-
inu fengu óvænta
upplifun um tíu-
leytið í gærmorg-
un þegar jarð-
skjálfti rétt undir
þremur gráðum á
richter skók
Grindavík svo að
jörðin í kringum
lónið titraði. Már Másson markaðs-
stjóri Bláa lónsins sagði á mbl.is að
lóngestir hefðu ekki kippt sér upp
við skjálftann heldur fannst þeim
hann vera spennandi viðbót við þá
upplifun að vera í lóninu. Jarð-
skjálftar fyndust oft þar í kring og
venjulega hnykkti gestum ekki við.
Starfsmaður Veðurstofu segir
jarðskjálftann ekki athugaverðan.
Raunar hafi hann verið ögn undir
þeim þriggja gráða mörkum sem
venjulega sé miðað við til þess að til-
kynnt sé um skjálfta en tilkynning
hafi þó verið send um hann vegna
þess hve nálægt byggð hann var.
Ekkert bendi til þess að frekari
skjálftar séu í vændum.
Jarðskjálfti
rétt við
Grindavík
Skjálfti Jörðin við
lónið titraði
Gestir Bláa lónsins
kipptu sér ekki upp
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Framúrskarandi hæfni í mann-
legum samskiptum og reynsla af
stjórnun og rekstri eru einu skil-
yrðin sem um-
sækjandi þarf að
hafa til að eiga
möguleika á að
verða bæjarstjóri
í einu af sveit-
arfélögum lands-
ins, ef marka má
auglýsingu frá
bæjarfélaginu.
Verkefni bæj-
arstjóra og sveit-
arstjóra eru þau sömu í öllum
sveitarfélögum samkvæmt auglýs-
ingum um störfin: yfirumsjón með
framkvæmd ákvarðana sem teknar
eru af bæjarstjórn og bæjarráði.
Flest sveitarfélögin setja þær kröf-
ur að umsækjandi hafi framúrskar-
andi hæfni í mannlegum sam-
skiptum og reynslu af stjórnun og
rekstri. Þó eru ýmsar aðrar kröfur
til framkvæmdastjóra sveitarfélag-
anna misjafnar. Háskólamenntun
sem nýtist í starfi er einungis talin
kostur en ekki skilyrði, af því er
fram kemur í auglýsingu starfs
bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Það
sama á þar við um þekkingu og
reynslu af opinberri stjórnsýslu og
störfum á sveitarstjórnarstigi.
Til samanburðar er krafist þess
að umsækjandi hafi háskóla-
menntun sem nýtist í starfi, í aug-
lýsingu Akureyrarbæjar. Þar kem-
ur fram að farsæl reynsla af
stjórnun og rekstri sé æskileg auk
þekkingar og reynslu af opinberri
stjórnsýslu.
Hægt að velja „hvern sem er“
Eva Marín Hlynsdóttir, lektor í
stjórnmálafræði við HÍ, segir aug-
lýsingar eftir bæjarstjórum benda
til þess að sveitarstjórnin geti í
rauninni valið hvern sem hentar
eða hafnað öllum. ,,Grunnpunkt-
urinn er sá að það gilda ekki sömu
reglur um umsóknir til bæjar- og
sveitarstjórnar og gilda um aðrar
opinberar stöður. Þessi staða er
nátengd sveitarstjórninni sjálfri og
hún ræður algerlega hver er ráðinn
og hvernig samningurinn er.“
Einnig segir Eva fólk hafa skrítnar
hugmyndir um völd bæjarstjóra.
Hann sé ekki eins allsráðandi og
margir haldi. Þó tekur hún fram að
pólitískir bæjarstjórar hafi meiri
völd en þeir sem eru ópólitískir.
Mismiklar kröfur sveitarfélaganna
14 sveitarfélög hafa auglýst eftir bæjar- og sveitarstjórum Mismiklar kröfur
Morgunblaðið/Sverrir
Vinna Fjórtán sveitarfélög auglýsa stöðu bæjarstjóra eftir kosningar.
Eva Marín
Hlynsdóttir
Um 20 björgunarsveitarmenn frá
fjórum björgunarsveitum komu er-
lendri konu til bjargar á Ingólfs-
fjalli í gærkvöldi, en konan leitaði
aðstoðar björgunarsveita um
klukkan átján í gær eftir að hafa
lent í sjálfheldu á fjallinu. Konan
reyndist óslösuð en örmagna af
þreytu, að sögn Ægis Guðjóns-
sonar, svæðisstjóra hjá Landsbjörg.
Björgunarsveitir frá Selfossi,
Þorlákshöfn, Eyrarbakka og
Hveragerði komu að björguninni
og notast var við dróna, fjór- og
sexhjól auk sérhæfðra björg-
unarmanna. Um fjörutíu mínútur
tók að staðsetja konuna, en hún var
föst efst í stórgrýttu gili í fjallinu.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Ingólfsfjall Konan festi sig hátt uppi í gili.
Konu í fjallgöngu
bjargað úr sjálfheldu