Morgunblaðið - 19.06.2018, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
MANDUCA
BURÐARPOKINN
Manduca burðarpokinn er hannaður með
það markmið að leiðarljósi að barn geti
viðhaldið M-stellingu fóta og mjaðma.
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is bambus.is
Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Það er óhætt að segja að stjarna ís-
lenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu skíni skært þessa dagana.
Eftir frábæra frammistöðu gegn
sterku liði Argentínu á laugardag
hafa vinsældir strákanna margfald-
ast, ekki síst á samfélagsmiðlum.
Ber þar hæst vinsældir Rúriks
Gíslasonar, kantmanns landsliðsins,
en fylgjendafjöldi hans á Instagram
hefur á einungis þremur dögum far-
ið úr um 40.000 fylgjendum í tæp-
lega 400.000.
Fyrir leik liðsins á laugardag var
Gylfi Sigurðsson sá leikmaður þess
sem var með flesta fylgjendur á
Instagram, rúmlega 170.000. Rúrik
var hins vegar ekki lengi að skjótast
fram úr honum og er nú með um tvö-
falt fleiri fylgjendur.
Þrátt fyrir að fylgjendahópur
Rúriks hafi stækkað einna mest hafa
hinir strákarnir einnig vakið mikla
athygli. Fylgjendafjöldi Hannesar
Þórs Halldórssonar hefur ríflega
tvöfaldast en þegar flautað var til
leiks á laugardag var hann með rúm-
lega 23.000 fylgjendur en í gær voru
þeir orðnir 48.000 talsins. Svipaða
sögu er að segja af Alfreð Finnboga-
syni, Aroni Einari Gunnarssyni og
Birki Bjarnasyni, en samtals hafa
þeir aukið fylgjendafjölda sinn um
ríflega 100.000 manns. Flestir eiga
fylgjendur strákanna það sameigin-
legt að vera kvenkyns og frá Suður-
Ameríku, en við nýjustu myndir
strákanna hefur fjöldi kvenna skrif-
að til þeirra skilaboð.
Það er því óhætt að segja að leik-
menn íslenska landsliðsins hafi unn-
ið hug og hjarta heimsbyggðarinnar,
innan sem utan vallar.
aronthordur@mbl.is
Landsliðið slær rækilega
í gegn á samfélagsmiðlum
Ljósmynd/Instagram
Vinsæll Stjarna Birkis Bjarnasonar
hefur skinið skært síðustu daga.
Fylgjendafjöld-
inn margfaldast
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Margir Íslendingar lögðu leið sína til
Moskvu um síðustu helgi. Meðal
þeirra er íslensk fjölskylda sem lenti
í óskemmtilegri reynslu og var svik-
in um miða á leik Íslands gegn Arg-
entínu í Moskvu. Hallfríður Brynj-
ólfsdóttir og fjölskylda hennar
keyptu miða á leikinn en þau komust
aldrei lengra en að leikvanginum.
Misvísandi skilaboð
Hallfríður segist hafa keypt mið-
ana af vefsíðunni Ticombo. „Þetta
var mjög traustvekjandi til að byrja
með, skilaboðum svarað strax, lofað
endurgreiðslu ef eitthvað færi úr-
skeiðis. Svo áttu miðarnir að berast
heim til okkar fyrir 29. maí og þá
komu engir miðar.“ Þá fékk Hall-
fríður strax póst og var þar fullyrt að
miðarnir væru í Moskvu, hjá afhend-
ingarstöð Fifa. „Svo fór ég að senda
póst 5-6 dögum fyrir brottför – bara
til að gá í hvaða sæti við værum og
svona. Þá svarar Ticombo mér alltaf
að það sé mikið að gera, þeir biðja
um heimilisfang í Moskvu og segjast
ætla að senda miðana á hótelið,
þannig að það var ekki verið að svara
spurningunum mínum.“
Þá var Hallfríður farin að efast um
ferlið. „Svo voru miðarnir ekki á hót-
elinu þegar við komum daginn fyrir
leik, þannig að ég hringdi eins og
brjálæðingur, í tugatali.“ Segir Hall-
fríður ekki eitt einasta svar hafa bor-
ist seinustu tvo dagana fyrir leikinn.
„Á laugardeginum fer ég með
krakkana með mér og ætla bara að
gera gott úr þessu. Fer og finn stað
þar sem við verðum og ég verð bara
að sætta mig við það að við förum
ekki á leikinn.
Svo hringir maður í mig tveimur
og hálfum tíma fyrir leik og segist
vera með miðana mína, fyrir utan
leikvanginn. Þannig að við mætum
þangað tveim tímum fyrir leik og
enginn hringir. Ég reyni að hringja í
þetta númer, sem ég hef ekki séð áð-
ur, fjölmörgum sinnum en ekkert
svar. Hann hringir svo þegar 4 mín-
útur eru liðnar af leiknum. Ég segi
honum hvar erum, við bíðum í hálf-
tíma en hann kom aldrei. Svo gáf-
umst við upp og enduðum á því að
horfa á seinni hálfleikinn á bar með
eldhressum Argentínumönnum og
það var bara gaman.“
Hallfríður segir fyrrgreinda vef-
síðu vera nú í sambandi við sig og
lofa öllu fögru. „Lofa einhverri
Spánarferð og eitthvað. Við sjáum
hvernig það endar.“ Fjölskyldan
samanstendur af miklum fótbolta-
aðdáendum og fóru þau t.a.m. til
Frakklands á EM og á EM í Hol-
landi í fyrra. „Börnin eru búin að
bíða eftir þessu í hálft ár, að sjá
Messi. Þetta eru rosaleg vonbrigði,
tilfinningalega er þetta bara mjög
erfitt.“ Hallfríður veit um a.m.k.
eina íslenska fjölskyldu sem lenti í
sömu ógöngum og líklegt er að þær
séu fleiri. KSÍ ítrekar að almenn-
ingur hafi aðgát og kaupi ekki miða í
gegnum aðra en FIFA eða KSÍ.
Svikin um miða
á leik Íslands
gegn Argentínu
Miðar keyptir af erlendri vefsíðu
KSÍ hvetur fólk til að hafa aðgát
Vonbrigði Fjölskyldan beið fyrir utan leikvanginn í langan tíma.
Nína Guðrún Geirsdóttir
ninag@mbl.is
Á skyndibitastað í miðbæ Reykja-
víkur starfar Nígeríumaðurinn Olu-
fela Owolabi. „Ég er svartur maður,
alinn upp á Íslandi,“ segir Olufela og
hlær. Hann hefur búið hér á landi í
tuttugu ár, fyrstu tuttugu árin bjó
hann í heimalandi sínu. Hann kynn-
ist íslenskri stúlku sem var við nám í
Gana og þau hófu sambúð ári síðar á
Íslandi. Hann á tvö börn á aldrinum
18-20 ára á Íslandi. „Þó að ég hafi
fæðst þar þá er ég meiri Íslendingur
í hjarta mínu. Mér finnst miklu
skemmtilegra að horfa á Ísland
núna. Ekki láta það fréttast til Níg-
eríu,“ segir Olufela og skellihlær.
Lífið snýst um fótbolta
Olufela er frá Lagos, fyrrverandi
höfuðborg Nígeríu í vesturhluta
landsins. Hann segir lífið í Nígeríu
snúast að mestu um fótbolta en þar
er rík fótboltahefð. „Það eina sem ég
gerði þegar ég var lítill var að spila
fótbolta. Þér var réttur fótbolti sem
barn og þú látinn sjá um rest. Þetta
hefur alltaf verið okkar leið til að
finna gleðina. Það er svo mikið annað
í gangi, sem er ekki endilega já-
kvætt, en í fótbolta fáum við tæki-
færi til að standa okkur. Margir
krakkar fara ranga leið í lífinu en
margir ná að finna sig í fótboltan-
um,“ segir Olufela.
Nígería hefur sex sinnum áður
spilað á stórmótum í fótbolta og nú
síðast á HM 2014 þar sem liðið
komst í 16 liða úrslit. Olufela segir
landsliðið og leikmenn þess þjóð-
hetjur í landinu. Þá myndist mikil
stemning fyrir landsliðsleiki þar sem
fólk hóar sig saman og heldur stór
partí.
Strákarnir mínir
Olufela segist hafa fengið mikla
athygli frá fólki á Íslandi þegar frétt-
ist að Ísland myndi mæta Nígeríu og
margir áhugasamir um hvaða lið
hann ætli að styðja. Aðspurður hvort
hann muni halda upp á annað liðið
frekar en hitt í viðureigninni á föstu-
dag segir Olufela að hann hafi haft
sex mánuði til að hugsa málið og hafi
nú komist að niðurstöðu: „Fram að
þessu móti var auðvelt fyrir mig að
segjast vera Nígeríumaður og styðja
Nígeríu í íþróttum. En ef ég á að
vera hreinskilinn, þá er íslenska liðið
mitt lið, strákarnir okkar. Veit ekki
hvað það er, hvort það er af því að ég
hef búið jafn lengi hér og í Nígeríu,
en það spilar líka inn í að Nígería
hefur ekki gert neitt fyrir mig, allt
mitt líf er á Íslandi og á ég landinu
margt að þakka. Börnin mín, mennt-
un og allt sem ég á er hér. Ég er
gestur í Nígeríu, þó ég virði auðvitað
rætur mínar og bakgrunn.“
Hann segir nígeríska liðið hafa
staðið sig mjög vel. „Þetta er gott lið
og þarna eru frábærir leikmenn sem
gefa allt sem þeir eiga. Ég er sér-
staklega stoltur af markmanninum
okkar, Ezenwa, sem er eins og Spi-
derman.“
Olufela er viss um að Ísland vinni
leikinn og er spá hans sú að Ísland
vinni 2-0 eða 3-1. „Ég held að við
vinnum þetta. Hannes Þór er minn
maður, það er þvílíkur kraftur í hon-
um. Ég held að hann muni bjarga
okkur.“
Í flugi meðan á leik stendur
Svo (ó)heppilega vill til að Olufela-
verður staddur um borð í flugvél á
leið til Nígeríu á þeim tíma sem leik-
urinn mun fara fram.
Hann segist því feginn: „Það er
léttir, ég planaði þetta ekki svona en
ég er mjög ánægður með að fríið
mitt hafi raðast einmitt á þennan
veg. Þá þarf ég ekki að glíma við
þessar blendnu tilfinningar,“ segir
Olufela og hlær.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fótbolti Olufela Owolabi er Nígeríumaður sem hefur búið hér á landi í tuttugu ár. Hann heldur með Íslandi á HM.
„Er meiri Íslending-
ur í hjarta mínu“
Nígeríumaðurinn Olufela Owolabi heldur með Íslandi á HM