Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 6

Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 6
Í KABARDINKA Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Landsliðið í knattspyrnu fékk óvænta heimsókn á hótelið við Svartahaf í gærkvöldi þegar fjórir fé- lagar úr Mið-Íslandi mættu og skemmtu landsliðsmönnunum með uppistandi. Mikið var hlegið og hátt. Forráðamenn landsliðsins vita að mikilvægt er að brjóta upp rútínu æfinga og leikja, létta mönnum lund- ina, og að hláturinn lengir lífið. Von- andi lengir hann líka dvöl landsliðs- ins á HM fram yfir riðlakeppnina. Leynd hvíldi yfir ferðalagi fjór- menninganna því heimsóknin átti að koma leikmönnum á óvart. Skemmtikraftarnir flugu utan á föstudag, sáu leikinn við Argentínu í Moskvu á laugardag og flugu síðan suður að Svartahafi í gær. „Það var stórkostlegt að upplifa leikinn á móti Argentínu,“ sagði Bergur Ebbi Bendiktsson, einn fjór- menninganna, við blaðamann eftir að hlátur fjölmiðlafólksins var þagn- aður. „Ég er svolítil HM-bulla og hef verið síðan ég var krakki. HM er einn stærsti viðburður sem maður veit um.“ Bergur Ebbi segist sem barn hafa lesið bók Sigmundar Ó. Steinars- sonar um HM, sem kom út eftir keppnina 1990, upp til agna. „Þar var stuttur kafli sem ég man alltaf fyr- irsögnina á: Langt í land. Þetta var tilvitnun í Ásgeir Sigurvinsson og var samt í raun mesta bjartsýni sem hægt var að segja um Ísland og HM á þessum tíma. Þýðir eiginlega: Gleymið þessu!“ Hann segir fyrirsögnina sífellt koma upp í huga sinn þegar HM er annars vegar „en það sem er að ger- ast núna er ótrúlegt. Það er á ein- hverjum biblískum skala í mínum huga. Að hafa svo náð góðum úrslit- um á móti Argentínu var frábært og segja má að sú góða byrjun sé alveg fullkominn endir eða byrjun á þess- ari sögu, eftir því hvernig maður lítur á þetta. Að sumu leyti má segja að sagan um það að komast á HM sé að enda 16. júní í Moskvu.“ Bergur Ebbi segir að sitt HM- ævintýri hafi haldið áfram við að fá að skemmta strákunum í gærkvöldi. „Það er draumi líkast að fá að peppa strákana og þjálfarana, að fá að fara inn í þetta innsta vígi hefur næstum á sér hernaðarlegan blæ, sérstaklega hérna í Rússlandi því öryggisgæslan er svo mikil. Ég lít fyrst og fremst á þetta sem pepp; það er gott fyrir þá á milli leikja þegar þeir mega hætta að hugsa um fótbolta í smástund.“ Bergur Ebbi segist ekki í vafa um hvernig næsti HM-kafli verður: „Það er svo mikil fagmennska í kringum liðið að sama hvernig fer mun það fara út sem sigurvegari í mínum huga. Liðið mun taka sigri eða ósigri af fagmennsku.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Á landsliðsvellinum Dóri DNA, Bergur Ebbi, Björn Bragi Arnarsson og Jó- hann Alfreð Kristinsson eftir að þeir skemmtu fjölmiðlafólkinu. Hláturinn lengir lífið og vonandi HM-dvölina 6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Epicurean skurðarbretti Verð frá 2.690 kr. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er ofboðslega skemmtilegt starf. Það er mjög gaman að setjast yfir þessi lið sem ég hef sjálf fylgst með á stórmótum frá því ég var pínu- lítil. Það er einfaldlega frábært að fá að taka þátt í þessu núna,“ segir Kristjana Arnarsdóttir, íþrótta- fréttakona á RÚV. Kristjana hefur vakið athygli fyrir framgöngu sína í HM-stofunni á RÚV síðustu daga. Á sínu fyrsta stórmóti mætir hún til leiks eins og hún hafi aldrei gert annað og er sem ferskur andvari inn í umhverfi sem jafnan er nær eingöngu skipað körl- um. Kristjana og stallsystir hennar, Edda Sif Pálsdóttir sem flytur fréttir frá Rússlandi, eiga sannarlega hrós skilið fyrir frammistöðu sína. Kristjana steig sín fyrstu skref í fjölmiðlum á Fréttablaðinu árið 2010 en var lengi vel efins um hvort hún ætti að ílengjast í fjölmiðlaumhverf- inu. „Ég reyndi viljandi að fá áhuga á einhverju öðru. Ég vann eitt sumar í banka, var flugfreyja og flutti meira að segja til Danmerkur. Ég viður- kenni það alveg, mig langaði á þeim tíma ekki að vinna með pabba,“ segir hún en faðir hennar er hinn kunni íþróttafréttamaður Arnar Björnsson. „Ég ákvað það bara í hausnum að ef ég gerði það yrði hlutunum stillt þannig upp að ég hefði fengið vinn- una af því pabbi er pabbi. Ég sá ekk- ert fyrir mér að þessi kúltúr myndi breytast. Á þessum tíma var engin kona á Stöð 2 Sport og mér fannst virka erfiðara að komast inn á RÚV. En um leið langaði mig alltaf að verða íþróttafréttamaður, ég vissi að þetta ætti ótrúlega vel við mig.“ Sem það augljóslega gerir. Krist- jana réð sig í afleysingar sumarið 2016 við skrif íþróttafrétta á vef RÚV og hefur ekki litið til baka síð- an. Nema rétt aðeins til að ljúka meistaraprófi í markaðsfræðum við HR. Nú blasir framtíðin við þessari 27 ára Kópavogsmær. Hún er á föstu með golfaranum Haraldi Franklín Magnús og búin að finna drauma- starfið. „Já, ég held það. Mér hefur aldrei fundist jafn gaman í vinnunni áður. Ég sé mig ekki fara í eitthvað annað eins og staðan er núna.“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ný stjarna Kristjana Arnarsdóttir er á sínu fyrsta stórmóti en frammistaðan ber þess engin merki. Hefur aldrei fundist jafn gaman í vinnunni og nú  Kristjana Arnarsdóttir slær í gegn í umfjöllun um HM Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Við vissum að við værum með virki- lega flotta sögu í höndunum enda er það einstakt að leikmaður í liði á HM sé að leikstýra auglýsingum. Við bjuggumst líka við því að hugmyndin að baki auglýsingunni myndi hrífa fólk. Þessi viðbrögð hafa þó verið langt umfram væntingar,“ segir Stef- án Magnússon, markaðsstjóri Coca Cola á Íslandi. Auglýsingin sem Hannes Halldórs- son, markmaður íslenska landsliðsins á HM í Rússlandi, gerði fyrir Coca Cola hefur farið á mikið flug á sam- félagsmiðlum eftir fyrsta leik liðsins um helgina. Hannes átti sem kunnugt er stórleik gegn Argentínumönnun- um og varði vítaspyrnu frá Lionel Messi. Fyrir leikinn höfðu um 300 þúsund manns horft á auglýsinguna á Youtube en síðdegis í gær var sú tala komin í rétt tæp 1,2 milljón áhorf. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Samkvæmt upplýsingum frá Coca- Cola European Partners Ísland hefur auglýsingin auk þess fengið 520 þús- und áhorf á Facebook og er það áhorf nánast allt sjálfsprottið (e. organic). Dekkun (e. reach) á Facebook er sem stendur 1,6 milljónir manna. Þá er þátttökuhlutfall (e. engagement rate) um 13.800 manns og er það bæði inn- lent og erlent. „Coca Cola hefur deilt auglýsing- unni til neytenda víða um heim. Er- lendir fréttamiðlar hafa einnig deilt auglýsingunni og sýnt henni og lands- liðinu mikinn áhuga. Til að mynda Sports Illustrated,“ segir Stefán. Hannes starfaði sem leikstjóri áður en hann fór í atvinnumennsku og gerði meðal annars Coca Cola-auglýs- ingu þegar 21 árs lið Íslands keppti á EM fyrir nokkrum árum. „Við þekkj- um hann því að góðu, hann er frábær leikstjóri. Það var smá púsl að koma þessu öllu saman, þetta ferli er búið að taka marga mánuði. En þetta tókst sem betur fer.“ Hannes á allra vörum á netinu  Ótrúlegt áhorf á auglýsingu hans Skjáskot úr auglýsingu Coca Cola Saman Hannesi Halldórssyni bregður sjálfum fyrir í auglýsingu sem hann gerði fyrir Coca Cola á Íslandi. Hér sést hann að baki fyrirliðans Arons. Íslenska þjóðin er nokkuð bjartsýn á gengi íslenska landsliðsins í knattspyrnu á heimsmeistara- mótinu í Rússlandi samkvæmt könnun MMR. Töldu alls 59% að- spurðra að íslenska landsliðið kæm- ist upp úr riðlakeppninni en þar af töldu tæp 19% að liðið kæmist í 8- liða úrslit eða lengra. Tvö prósent töldu að íslenska liðið mundi vinna keppnina. Konur töluvert bjartsýnni Konur voru bjartsýnni en karlar hvað varðar gengi íslenska liðsins, en 67% aðspurðra kvenna töldu Ís- land komast áfram úr riðlakeppn- inni, samanborið við 52% karla. Voru yngstu og elstu þátttakendur könnunarinnar jafnframt þeir bjartsýnustu, 66% svarenda á aldr- inum 18-29 ára og 69% 68 ára og eldri spá Íslandi í 16-liða úrslit. Tröllatrú hjá Miðflokknum Er litið er til stjórnmálaskoðana var það stuðningsfólk Miðflokksins sem var líklegast til að telja ís- lenska liðið líklegt til afreka í riðla- keppninni, eða 79%. Þá töldu 7% fylgjenda Flokks fólksins að ís- lenska liðið mundi hampa heims- meistaratitlinum. Könnunin var framkvæmd dag- ana 12. – 18. júní og tæp 4% svara bárust eftir að leik Íslands og Arg- entínu lauk. Heildarfjöldi svarenda var 925. axel@mbl.is Hófleg bjartsýni meðal Íslendinga fyrir HM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.