Morgunblaðið - 19.06.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 25. júní.
Landsmót hestamanna
Veglegt sérblað tileinkað Landsmóti hestamanna
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 29. júní
Blaðið mun gera mótinu, og hestamennsku
góð skil með efni fyrir unnendur íslenska hestsins.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sigríður Hvönn Karlsdóttir
Sími: 569 1134
siggahvonn@mbl.is
SÉRBLAÐ
Hagstofan hefur tekið samanýmiskonar tölulegan sögu-
fróðleik í tilefni af 100 ára fullveldi
landsins.
Eitt af þvísem þar er
að finna eru töl-
ur um stúdents-
próf karla og
kvenna síðustu
öldina og segja
þær heilmikið um það þrekvirki
sem unnist hefur í jafnréttisbarátt-
unni.
Samkvæmt upplýsingum Hag-stofu brautskráðust vorið 1918
24 karlar og 2 konur með stúdents-
próf hér á landi, eða 1,6% af fjölda
tvítugra landsmanna.
Hin síðari ár lætur nærri að þríraf hverjum fjórum ljúki stúd-
entsprófi og nær 6 af hverjum 10
eru konur. Raunar er það svo að í
fjóra áratugi hafa fleiri konur en
karlar lokið stúdentsprófi.
Svipaða þróun má sjá þegar há-skólapróf eru skoðuð en þar er
kynjahallinn jafnvel enn meiri.
Árangurinn af jafnréttisbarátt-unni á menntasviðinu er svo
mikill að segja má að ef hafa þarf
áhyggjur af kynjahalla er það
fremur að karlar hafi dregist aftur
úr.
Þetta er án efa nokkuð sem skól-arnir þurfa að huga meira að.
Aðalmálið í þessu og öðru semsnýr að jafnrétti er þó að allir
séu jafnir fyrir lögum og njóti sömu
tækifæra.
Sem betur fer standa Íslendingarafar vel í þeim efnum.
Alger umskipti
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 18.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 5 súld
Akureyri 8 alskýjað
Nuuk 5 léttskýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló 15 skúrir
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 19 heiðskírt
Helsinki 18 skýjað
Lúxemborg 19 skýjað
Brussel 19 skýjað
Dublin 18 súld
Glasgow 15 alskýjað
London 23 léttskýjað
París 23 léttskýjað
Amsterdam 17 skýjað
Hamborg 20 skýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 26 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 24 skúrir
Aþena 25 skýjað
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 22 skúrir
New York 28 léttskýjað
Chicago 31 léttskýjað
Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:55 24:04
ÍSAFJÖRÐUR 1:35 25:35
SIGLUFJÖRÐUR 1:18 25:18
DJÚPIVOGUR 2:10 23:48
Um helgina var
búið að veiða um
þriðjung þess
afla sem miðað
var við á strand-
veiðum sumars-
ins, eða 3.327
tonn af 10.200
tonnum. Alls
höfðu 468 bátar
hafið veiðar en
þeir voru 526 eft-
ir átta daga á
veiðum í júní í fyrra. Bátum hefur
fækkað á þremur svæðum, en fjölg-
að á suðursvæði.
Frá upphafi vertíðar er meðalafli
á bát 8,6 tonn á A-svæði, 5,7 tonn á
B-svæði, 5,8 tonn á C-svæði og 6,6
tonn á D-svæði. Í heildina er með-
alafli á bát 7,1 tonn í ár, en var 6,5
tonn í fyrra.
Í yfirliti á heimasíðu Lands-
sambands smábátaeigenda kemur
fram að í ár hafa 135 bátar landað
meira en 10 tonnum frá upphafi
vertíðar, en þeir voru 121 í fyrra. Í
strandveiðum ársins er heimilt að
róa 12 virka daga í mánuði frá maí
til loka ágúst. aij@mbl.is
Þriðjungur
aflans kom-
inn á land
Færri á strand-
veiðum en í fyrra
Fern samtök launþega og atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi hafa sent
stjórnvöldum áskorun um að hefja nú
þegar endurnýjun á skipakosti Haf-
rannsóknastofnunar og efla hafrann-
sóknir við Ísland. Samtökin eru Sjó-
mannasamband Íslands, Félag skip-
stjórnarmanna, VM - Félag vélstjóra
og málmtæknimanna og Samtök
fyrirtækja í sjávarútvegi.
Í áskoruninni segir m.a.: „Samtök
þau sem undir þessa ályktun rita
skora á stjórnvöld að gera hið fyrsta
bragarbót á flota Hafrannsókna-
stofnunar. Það verður að kaupa skip í
stað Bjarna Sæmundssonar og það
verður strax að fara að huga að skipi
til að taka við af Árna Friðrikssyni.
Með því móti tryggjum við að skiln-
ingur okkar á hafinu og lífverum þess
aukist og þá einnig að umgengni
verði með forsvaranlegum hætti.
Þannig rísum við undir þeirri ábyrgð
sem okkur er falin í umgengni við sjó-
inn. Í þeim efnum er betra að vita en
hyggja.“
Í áskoruninni er rakið að fyrsta
sérsmíðaða rannsóknarskip Íslend-
inga kom til landsins 1967, Árni Frið-
riksson RE100. Þremur árum síðar,
1970, kom Bjarni Sæmundsson RE30
til landsins. Bjarni er enn í notkun, en
kominn mjög til ára sinna, einangrað-
ur með asbesti og tímaspursmál hve-
nær honum verður lagt.
Bjarni hefur þjónað vel en að-
stæður um borð eru ekki lengur boð-
legar vísindalegum rannsóknum eða
starfsmönnum, segir í áskoruninni.
Nýr Árni Friðriksson kom til lands-
ins 2000 og er því að verða 20 ára.
Ekki sé bara nauðsyn fyrir okkur
að hafa nýjustu tækni tiltæka og boð-
leg skip, „okkur ber skylda til að sjá
til þess að hafrannsóknir við Ísland
séu ætíð í fremstu röð. Þá skyldu höf-
um við því miður vanrækt,“ segir í
áskoruninni. aij@mbl.is
Efla þarf skipakost til hafrannsókna
Fern samtök skora á stjórnvöld Eldra skipið að verða 50 ára gamalt