Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRAKvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Vinnupallar
margar stærðir
og gerðir
VIÐ leigjum út
palla og kerrur
„Smíði tveggja nýrra skipa fyrir
Eimskip í Kína gengur samkvæmt
áætlun,“ segir Ólafur William
Hand, upplýsingafulltrúi félags-
ins. Þetta verða stærstu skip í
eigu íslensks skipafélags.
Búið er að skera niður allt stál í
fyrra skipið og smíði þess er haf-
in. Áætlað er að skipin verði af-
hent um mitt ár 2019. Þau munu
sigla á áætlunarleiðum milli Ís-
lands og Evrópu.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu skrifaði Eimskip
undir samning þann 24. janúar
2017 um smíði tveggja nýrra
gámaskipa. Skipin tvö eru smíðuð
hjá China Shipbuilding Trading
Company Limited og Guangzhou
Wenchong Shipyard Co. Ltd. Báð-
ar þessar skipasmíðastöðvar eru
ríkisreknar og með ríkisábyrgð.
Hvort um sig verða skipin 2.150
gámaeiningar, 180 metrar á
lengd, 31 metri á breidd og búin
aðalvélum frá MAN með sér-
stökum búnaði til að draga úr út-
blæstri köfnunarefnis (NOx) út í
andrúmsloftið. Ganghraði verður
20,5 sjómílur á klukkustund.
Nýju skipin verða 26.500
brúttótonn. Til samanburðar eru
stærstu skip Eimskips nú, Detti-
foss og Goðafoss, 14.664 brúttó-
tonn, 167 metra löng og 28 metra
breið. Ganghraði þeirra er 20 sjó-
mílur. Gámafjöldi er 1.451 eining.
Þau skip eru orðin yfir 20 ára
gömul, voru smíðuð árin 1995 og
1996.
Samningsverð hvors skips nem-
ur um 32 milljónum dollara, eða
3,7 milljörðum íslenskra króna.
Heildarfjárfestingin er því 7,4
milljarðar miðað við gengið þegar
skrifað var undir samningana við
kínversku skipasmíðastöðvarnar í
fyrra. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Eimskip
Byrjun Búið er að skera niður allt stál í fyrra skipið og smíði er hafin.
Smíði er hafin á
skipum Eimskips
Verða stærstu skip íslenska flotans
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Útlendingastofnun hefur ákveðið að
lengja viðmið um afgreiðslutíma fyr-
ir umsókn um fyrsta dvalarleyfi úr
90 dögum í 180 daga. Frá þessu er
greint á vefsíðu stofunarinnar.
Ástæða lengingarinnar er mikil
fjölgun umsókna um dvalarleyfi, en
samanlagður fjöldi þeirra jókst um
25% árið 2016 og aftur um 25% árið
2017. Stofnuninni hefur ekki tekist
að fjölga starfsmönnum í takt við
aukningu á umsóknum og því geta
umsækjendur um fyrsta dvalarleyfi
nú átt von á að bíða allt að 180 daga
frá því að greitt hefur verið fyrir um-
sókn þar til hún er tekin til vinnslu.
Samhliða lengingu á afgreiðslu-
tíma dvalarleyfa verður afgreiðslu-
tími umsókna um íslenskan ríkis-
borgararétt lengdur úr sex til átta
mánuðum í tólf. Umsóknum um rík-
isborgararétt hefur aðeins fjölgað
lítillega síðustu ár en hlutfall um-
sókna um ríkisborgararétt sem lagð-
ar eru fyrir Alþingi hefur hins vegar
hækkað umtalsvert og er afgreiðsla
slíkra umsókna jafnan mun tíma-
frekari. Í tilkynningu stofnunarinn-
ar er þó lögð áhersla á að umsóknir
verði áfram afgreiddar eins hratt og
unnt er og að flestar umsóknir verði
áfram afgreiddur innan viðmiðanna.
Flýtimeðferðin lengri
Útlendingastofnun hefur enn
fremur lengt afgreiðslutíma á um-
sóknum í flýtimeðferð gegn þjón-
ustugjaldi. Boðið hefur verið upp á
slíka flýtimeðferð fyrir umsóknir á
grundvelli atvinnuþátttöku frá árs-
byrjun og hefur eftirspurn verið
mikil. Vegna skorts á fjármagni og
þar sem talið er að hún geti haft nei-
kvæð áhrif á afgreiðslutíma al-
mennra umsókna verður afgreiðsla
flýtimeðferða lengd úr tíu dögum frá
greiðslu í þrjátíu daga.
Morgunblaðið/Hari
Dvalarleyfi Hús Útlendingastofnunar á Dalvegi 18 í Kópavogi.
Afgreiðsla á dval-
arleyfum lengd
Afgreiðsla á umsóknum um
ríkisborgararétt einnig lengd
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Eva Sigurbjörnsdóttir heldur
áfram starfi sínu sem oddviti Ár-
neshrepps, en hún var endurkjörin
á fyrsta fundi nýrrar hrepps-
nefndar í gær eftir sveitarstjórn-
arkosningarnar í maí.
Þá var Guðlaugur Agnar Ágústs-
son kjörinn varaoddviti en hann
tekur við af Guðlaugi Ingólfi Bene-
diktssyni. Ekki var kosið í nefndir
á þessum fyrsta fundi nýrrar
hreppsnefndar né voru önnur málin
tekin fyrir.
Hjón í hreppsnefnd
Alls sitja fimm í hreppsnefnd,
þar á meðal eru ein hjón, þau
Bjarnheiður Júlía Fossdal og Björn
Torfason, bændur á Melum I í Tré-
kyllisvík. Ásamt þeim eru Eva Sig-
urbjörnsdóttir, Guðlaugur Agnar
Ágústsson og Arinbjörn Bernh-
ardsson.
Eva endurkjörin sem oddviti
Nýkjörin hreppsnefnd Árneshrepps kom saman í gær
Fullskipað Nýkjörin hreppsnefnd
Árneshrepps fundar á Norðurfirði.