Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
Misty
Skyrta 9.990 kr.
Buxur 9.990 kr.
Bolur 6.950 kr.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það var sérstök upplifun aðfinnast ég vera maur meðmörgum öðrum maurum ístórri mauraþúfu, því sam-
an lyftum við grettistaki. Mér fannst
ég ekki koma miklu í verk á hverjum
degi, en ég var reyndar komin með
magnaða upphandleggsvöðva eftir
þennan mánuð og ég léttist um mörg
kíló, svo heilmikið var lagt af mörk-
um. Við skiptumst á, til að læra sem
flest verk, en ég forðaðist eitt mjög
erfitt verk, að berja jarðveg inn í
hjólbarða með sleggju, en það fóru
900 dekk í þessa húsbyggingu. Ef ég
ætla að byggja svona hús hér heima á
Íslandi, þá verð ég að geta kennt
drengjunum mínum hvernig á að
gera þetta, svo ég lét mig hafa það að
fara í sleggjuvinnuna. Suma daga var
ég kannski að handlanga mold, en
aðra daga við steypuvinnu, og allt
handgert, við þurftum að hræra
steypu og setja hana í mót. Þetta
hefði einn maður ekki getað gert, en
saman gátum við það öll sem komum
að þessari byggingu. Árangurinn var
eins og tónverk sem small saman úr
mörgum þráðum. Það var magnað að
upplifa á eigin skinni hvernig margar
hendur vinna létt verk,“ segir Sigríð-
ur Melrós Ólafsdóttir sem dvaldi í
mánuð í Argentínu fyrr á þessu ári til
að taka þar þátt í að byggja grunn-
skóla á vegum samtakann Earthship
Biotecture og Tagma en saman
standa þau að því að byggja einn
sjálfbæran grunnskóla í hverju landi
Suður-Ameríku.
„Ég hafði lengi haft áhuga á að
kynna mér þessa húsagerð sem kall-
ast Earthship, en það er heiti yfir hús
sem eru fullkomlega sjálfbær. Slík
hús eru byggð úr náttúrulegum efn-
um sem og endurvinnanlegum efnum
sem falla til í sorpi, t.d. hjólbörðum,
glerflöskum og áldósum. Hluti af
byggingunni er gróðurhús þar sem
ræktaðar eru matjurtir fyrir heim-
ilisfólk. Í byggingum Earthship er
rafmagn framleitt með sólarsellum
og eða vindi og þær eru sjálfbærar
um vatn, því regnvatn er nýtt til
neyslu. Það er galið að við byggjum
þök á húsunum okkar hérlendis sem
eru hönnuð til að safna vatni, en við
látum það leka beint þaðan ofan í
jörðina eða í skólpleiðslur. Í stað þess
að safna því í tank og nota til að
sturta niður úr klósettum okkar. Það
er fáránlegt hversu mikil sóun er á
vatni á Íslandi, við sturtum niður úr
klósettum okkar með
Gvendarbrunnarvatni, hreinu dýr-
indis drykkjarvatni sem hefur
hreinsast og síast í þúsundir ára.
Þetta er rugl, við eigum að nota rign-
ingarvatnið af þökunum til þess og
líka endurnýta vatnið úr sturtunni og
þvottavélinni til að sturta úr klóinu.“
Hollt að þurfa að deila rúmi
Sigríður segir að sér hafi fundist
dásamlegt að detta inn í þetta verk-
efni að byggja skóla. „Ég er kenn-
aramenntuð og mér finnst fátt
skemmtilegra en menntun og upp-
eldi barna. Og þetta var heilmikil lífs-
reynsla, meðan á þessu stóð bjó ég
með sjö konum í húsi sem lak og var
myglað. Ég, fimmtug konan, þurfti
að deila rúmi með ókunnri konu, en
það var hollt fyrir velmegunargrís
eins og mig,“ segir Sigríður og hlær.
„Ég kom að þessu verkefni í
Argentínu sem nemandi í akademíu,
en verkefni okkar fólst í því að
byggja skólann eftir teikningum og
„Ég var einn maur-
inn í mauraþúfunni“
Það er fáránlegt hversu mikil sóun er á vatni á Íslandi, við sturtum niður úr kló-
settum okkar með Gvendarbrunnavatni, hreinu dýrindis drykkjarvatni sem hefur
hreinsast og síast í þúsundir ára. Þetta er rugl, við eigum að nota rigningarvatnið
af þökunum til þess og líka endurnýta vatnið úr sturtunni og þvottavélinni til að
sturta úr klóinu,“ segir Sigríður Melrós sem byggði sjálfbært hús í Argentínu.
Verkleg Sigga í fullum skrúða í byggingarvinnunni í Argentínu.
Það er vel við hæfi að fimm konur
fagni í dag, á kvennadeginum 19. júní,
útgáfu nýs ljóðverks, en hópur
kvenna sem kallar sig Svikaskáld
býður til út-
gáfuhófs í
dag í Mengi,
Óðinsgötu 2 í
Reykjavík, kl
17 - 19.
Ljóðverkið
þeirra heitir
Ég er fagn-
aðarsöngur,
og er það nýtt
ljóðverk eftir
svikaskáldin
Fríðu Ísberg,
Melkorku Ólafsdóttur, Ragnheiði
Hörpu Leifsdóttur, Sunnu Dís Más-
dóttur og Þóru Hjörleifsdóttur.
Konur þessar og ljóðskáld ætla í
útgáfufögnuðinum í dag að lesa upp
úr verkinu og er um að gera fyrir
áhugasama að gera sér ferð í Mengi,
því þær hafa allar getið sér gott orð
fyrir það sem þær hafa sent frá sér.
Bókin, Ég er fagnaðarsöngur, er
annað ljóðverk Svikaskálda, en á síð-
asta ári sendu þær frá sér verkið Ég
er ekki að rétta upp hönd. Svikaskáld
er sex kvenna ljóðakollektív, skipað
höfundunum fimm hér að ofan, sem
og Þórdísi Helgadóttur.
Boðið verður upp á léttar veitingar
í útgáfugleðinni og gestum gefst
kostur á að kaupa sér eintak af bók-
inni á staðnum.
Fésbókarsíða Svikaskálda:
facebook.com/svikaskald
BOGI
Krosslegðu ekki fótleggi
segir amma
þú færð æðahnúta
en ég var í skátunum
ég hnýti mína eigin hnúta
ríð mín eigin net
tálga örvar
yfir sakamálaþáttum vetrarins
ein ör fyrir hverja
myrta konu
réttu úr bakinu
segi ég systur minni
sittu gleið
spenntu lífbeinið mót þeim
eins og boga
(Sunna Dís Másdóttir)
BERGFLÉTTA
Stundum er ég draugahús
þéttofin bergfléttu
íbúar mínir frjósemisgyðjur
framstignar úr ryki feðranna
góðhjartaðar skessur allra kynja
kattardýr og draumdýr
stundum er ég draugahús
þar sem myrkur markar nýjan dag
kveiki elda í stássstofum
vek forvitni vegfarenda
tæli þá til tilfinningasemi
ég kyssi þá í hársvörðinn
munúðarmánaskini
þá hefst gleðskapurinn
og þeir vita ekki lengur
hvað er rétt
(Melkorka Ólafsdóttir)
Konur gefa út ljóðverk á kvennadeginum, í dag 19. júní
Ljósmynd/Saga Sigurðardóttir
Ljóðakonur Ragnheiður Harpa, Fríða Ísberg, Þóra, Melkorka, Sunna Dís.
Fagnaðarsöngur Svikaskálda
Sumarsólstöður eru sannarlega ynd-
islegt fyrirbæri, þegar sólargangur er
lengstur hér á norðurhveli jarðar. Og
um að gera að fagna því, en til þess
gefst tækifæri þann daginn, fimmtu-
daginn næstkomandi 21. júní, en þá
verður boðið til sólstöðugöngu í Við-
ey. Í tilkynningu kemur fram að Þór
Jakobsson veðurfræðingur sé einn af
upphafsmönnum þessarar göngu og
að hann ætli að segja frá sólstöðum
og hefðum tengdum þeim. Skáldkon-
an Gerður Kristný mætir líka og verð-
ur með hugvekju í tilefni dagsins.
Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri
Borgarsögusafns, leiðir gönguna.
Gengið verður um sögulegar slóðir á
vesturhluta Viðeyjar og staðnæmst í
Endilega …
… farið í sól-
stöðugöngu
Viðey Gaman er að syngja saman við
varðeld og fá sér bita af nesti sínu.
fjöruborðinu við varðeld. Gestir eru
hvattir til að taka með sér nesti því
notalegt verður að fá sér bita við
varðeldinn, þar sem Jón Svavar Jós-
efsson mun stýra fjöldasöng.
Siglt frá Skarfabakka kl. 20.