Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 13
aðferðum Mike Reynolds, sem er
upphafsmaður Earthship. Í akademí-
unni var kennsla, verkleg vinna og
fræðilegir fyrirlestrar. Við vorum 90
manns hjá akademíunni og skipt-
umst í alþjóðlegan enskumælandi
hóp og spænskumælandi suður-
amerískan hóp. Einnig var þarna
vinnuflokkur Mike Reynolds frá
Earthship, hann sjálfur og fólkið sem
starfar með honum. Þar fyrir utan
voru fjölmargir sjálfboðaliðar sem
lögðu hönd á plóg,“ segir Sigríður og
bætir við að ekki megi neyta vatnsins
sem er á svæðinu þar sem þau voru
að byggja skólann, því þar er arsenik
í jörðu af náttúrulegum ástæðum.
„Vatn er flutt þangað langan veg í
tönkum. En þarna rignir mikið svo
það blasti við að koma upp kerfi í
skólanum sem safnar og hreinsar
rigningavatn. Á þessu getur allt sam-
félagið þarna lært.“
Montin að fá íslenska konu
Sigríður segir heilmikla vinnu-
hörku hafa verið við verkið, þau hafi
unnið fullan verklegan vinnudag sex
daga vikunnar, frá klukkan níu til
fimm.
„Þetta var vissulega mjög röff
og töff, tók alveg á, en hressandi var
það og gaman. Ég var ein af þeim
elstu, en flestir voru á aldrinum 25 til
35 ára, frá Suður Ameríku og Banda-
ríkjunum, og einstaka undanvillingur
frá Evrópu, eins og ég. Samtökin
voru óskaplega montin með að kona
frá Íslandi kæmi alla þessa leið til að
taka þátt í verkefninu, þau áttu ekki
orð yfir að ég legði á mig þetta langa
ferðalag til að leggja þeim lið. Og
borga fyrir það, búandi við daprar
húsnæðisaðstæður, netleysi og ein-
angrun. Þetta var útnári og ögrandi
verkefni að vera þar innilokuð í heil-
an mánuð. Á sunnudögum var frí en
þá þurftum við gjarnan að gera mjög
flókin heimaverkefni í akademíunni.“
Vill byggja Earthship á Íslandi
Sigríður segir mörg þeirra sem
tóku þátt hafa verið að ljúka meist-
araverkefnum í arkitektanámi en
einnig ungir starfandi arkitektar sem
voru að leita að einhverju nýju.
„Unga fólkið sem lærir arkitektúr í
Bueno Aires fer aldrei á bygg-
ingasvæði í náminu, þau snerta aldrei
á efni í byggingu. Þegar þau fara að
vinna á arkitektastofu, sitja þau þar
og teikna háhýsi og velja bygging-
arefni úr verðlista. Þau þoldu þetta
ekki, og kusu því að koma í Earth-
ship. Aðrir voru að leita eftir hug-
myndum og verklagi, vildu bæta
sjálfbærni inn í sína vinnu.“
Sigríður segir Suður-Ameríku-
búana sem hún kynntist á þessum
mánuði hafa verið miklar yndis-
persónur. „Þau voru öll svo félags-
lynd og hlýjar manneskjur, mikið ró-
lyndisfólk. Og enginn egóismi til í
neinum, þau buðu alltaf öllum með í
allt. Og mikil líkamsnánd er þeim eðl-
islæg, maður var knúsaður sundur og
saman, sem var gott fyrir Íslending-
inn,“ segir Sigríður og bætir við að
áhugi hennar á Earthship spretti af
því að hana langi til að rækta sinn
mat sjálf.
„Mig hefur lengi dreymt um gróð-
urhús þar sem margir geta komið
saman, gróðurhús sem væri þá hluti
af samræktun margra. Fyrst hugsaði
ég þetta út frá mínu eigin heimili, en
nú langar mig til að þetta sé sam-
félag. Ég er að íhuga að bæta við mig
í þessu námi til að geta útskrifast
sem Earthship-byggingameistari, en
til þess þarf ég að gera sjálfstæða
rannsókn og sjálfstætt verkefni, sem
gæti þá falist í því að byggja Earth-
ship-hús á Íslandi. Ég vil kalla eftir
fólki sem er að spá og spekúlera um
svipaða hluti hér á Íslandi, ég er að
útbúa fyrirlestur um þetta efni til að
fræðslu og upplýsingar.“ Áhuga-
samir geta sent póst:
sigridurmelros@gmail.com
Flott Einn af félögum Siggu byggir hér vegg úr dósum, dekkjum og steypu.
Margar hendur vinna létt verk Rúlla þurfti þungum trjádrumbum og þá var gott að hafa fjölmennt lið til taks.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Sigríður segir Earthship vera húsa-
gerð sem bandaríski arkitektinn Mike
Reynolds hefur þróað. „Hann er gam-
all hippi sem lauk arkitektúrnámi ár-
ið 1970, þá var hann ungur og upp-
reisnargjarn og þá var náttúrubylgja í
heiminum, ekki ólík því sem núna er.
Þá var áhersla á að eyða ekki skógum
og hann fór að hugsa um hvernig
hann gæti reist byggingu sem krefð-
ist ekki efnis sem við eyddum af jörð-
inni og yrði ekki til þess að við
skemmdum auðlindir. Hann fór út í
eyðimörkina í Nýju-Mexíkó þar sem
var svakalegur ruslahaugur en
meginuppistaðan í honum voru not-
aðir hjólbarðar undan bílum. Hann
ákvað að vinna eitthvað úr þeim og
líka dósum og flöskum, því gríðarlegt
magn féll til af þeim á þessum tíma,
þá var ekki endurnýtt eins og núna.
Hann notaði þetta þrennt sem bygg-
ingarefni í hús; dekk, málmdósir og
glerflöskur. En líka jarðveg auðvitað
og byggingarefni eins og steypu, en
dósirnar og flöskurnar þjóna hlut-
verki múrsteina, þær eru holar að
innan og þannig sparast steypan.
Einnig notaði hann mikið leir í stað
steypu. Hann þróaði þetta og að lok-
um tókst honum að búa til algerlega
sjálfbæra byggingu, eigið heimili.
Jarðmassinn heldur í sér hita
En í stað þess að láta gott heita og
búa þar í rólegheitum fór hann að
þróa þetta lengra og hann þurfti að
takast á við yfirvöld, því bygginga-
reglugerðir þvældust fyrir. Dósir finn-
ast til dæmis ekki í slíkum reglugerð-
um. Einnig fór Mike að velta fyrir sér
hvernig hægt væri að halda jöfnum
hita í þessum húsum, en það er mjög
kalt yfir vetrartímann í Nýju-Mexíkó
og sjóðheitt yfir sumarið. Þarna er
lítið vatn, en Mike hefur ævinlega
verið mjög umhugað um vatn. Hann
vildi ekki brenna timbur eða olíu til
að hita upp og ekki sækja vatn um
langan veg. Hann fór því að líta til
jarðmassans, en jörðin heldur varma
mjög lengi. Hann vildi líka að fólk
gæti ræktað mat heima hjá sér.
Lausnin hjá honum var að í norðan-
verðri byggingunni er mikið magn af
jarðmassa, sem umluktur er hlöðnum
vegg með dekkjum fylltum af mold,
en heimilið er sunnanmegin í bygg-
ingunni sem er byggð með u-lagi.
Móti sólu í suðri eru glerveggir, gróð-
urhús. Á daginn á sumrin skín sólin
inn og í gróðurhúsinu ræktar heim-
ilisfólkið matjurtir, en jörðin geymir
varmann, sem dugar til að hita upp á
kalda tímanum. Svona hús eru m.a.
byggð í Alaska, Kanada, Svíþjóð og
Noregi, og Mike er mjög spenntur fyr-
ir því að svona hús verði byggt á Ís-
landi,“ segir Sigríður og bætir við að
á bak við þetta sé mikil verkfræði-
hugsun. „Til dæmis eru stórar loft-
ræstitúbur í jörðinni sem flytja inn
kalt loft sem hitnar á leiðinni og fer
síðan út um lúgur í þakinu. Það er því
stöðugt loftflæði. Mike hefur sem-
sagt fundið út hvernig hægt er að
halda hita í híbýlum með sól og jarð-
massa. Þetta byggist í raun á því
sama og torfbærinn okkar íslenski.
Það hefur heillað mig, því ég hef mik-
inn áhuga á íslenskum torfbæjum þar
sem hlaðin er veðurkápa sem snýr í
norður og gaflinn snýr í suður. Það er
alltaf sjö gráðu hiti í íslensku torf-
húsi án upphitunar.“
Nánar: earthshipglobal.com
Hvað er Earthship?
Uppreisnargjarn hippi lagði
af stað fyrir fimmtíu árum
Arkitekt og hugsjónamaður Mike Reynold heldur ótrauður áfram starfi sínu.