Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 15

Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 „Efni myndarinnar snertir málefni sem brenna á Vestfirðingum, hug- myndin er að í framhaldinu geti orðið samtal á milli fólks,“ segir Benedikt Erlingsson, leikstjóri og framleiðandi verðlaunakvikmynd- arinnar Kona fer í stríð, í samtali við Morgunblaðið. Hann mun halda sérsýningu á kvikmyndinni í Ísa- fjarðarbíói kl. 17 síðdegis. „Það er mikilvægt að vera ekki alltaf að predika fyrir trúaða, við þurfum líka að hlusta hvert á ann- að,“ segir Benedikt, í ljósi langra átaka á milli sjónarmiða verndunar og nýtingar hérlendis. Bæjarfulltrúum boðið í bíó Á sýninguna er boðið sérstaklega bæjarfulltrúum Ísafjarðar og Bol- ungarvíkur, forsvarsmönnum Vest- urVerks og Vestfjarðastofu og á eftir verða pallborðsumræður sem Ragnar Bragason, leikstjóri og kvikmyndagerðarmaður, stýrir, með Benedikt, Birnu Lárusdóttur, upplýsingafulltrúa Vesturverks, Pétri Markan, sveitarstjóra Súða- víkurhrepps, og Tómasi Guðbjarts- syni lækni. Miðaverð verður lækk- að og allir velkomnir á sýninguna. Á leiðinni vestur heldur Tómas um klukkutíma ljósmyndasýningu og fyrirlestur á Kaffi Galdri á Hólmavík, þar sem myndir Tóm- asar, Ólafs Más Björnssonar augn- læknis og Ragnars Axelssonar ljós- myndara af fossum á Vestfjörðum verða sýndar. Sveitarstjórnar- mönnum Árneshrepps er sér- staklega boðið og ókeypis verður inn. ernayr@mbl.is Ljósmynd/Tómas Guðbjartsson Hvalárfoss Myndasýning verður haldin á Kaffi Galdri fyrr um daginn. „Kona fer í stríð“ sýnd á Ísafirði  Pallborðsumræður eftir sýningu Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Aukið álag hefur verið að undanförnu hjá Samhjálp, segir Vörður Leví Traustason framkvæmdastjóri. Sam- hjálp heldur úti fjórum áfangahúsum, meðferðarheimili og kaffistofu. Vörður segir að fleiri heimsæki kaffistofuna, sem m.a. býður upp á morgunmat og hádegisverð, og bið- listar í meðferðarúrræðin lengist. Vörður segir Samhjálp vera einu hjálparsamtökin sem séu opin yfir sumarið. Þegar önnur samtök fari í sumarfrí þá aukist aðsóknin hjá Sam- hjálp. „Þegar öllum þessum stöðvum er lokað þá kemur fólk til okkar í auknum mæli,“ segir Vörður og bætir við að áfengis- og fíkniefnavandi fari ekki í sumarfrí. Hefur ekkert minnkað Ásgerður J. Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar, segir í samtali við Morgunblaðið að samtökin loki aldrei á sumrin, það gangi ekki. „Þetta fólk hefur ekkert meiri fjárráð á sumrin. Við reynum að halda þessu eins lengi opnu og við getum.“ Hún segir ástandið hafa lítið batn- að undanfarin ár. „Við verðum 15 ára á þessu ári og þetta hefur ekkert minnkað.“ Spurð hvort aðsókn hafi aukist hjá Fjölskylduhjálpinni segir Ásgerður: „Okkur finnst fjöldinn allt- af nægur en við finnum ekki fyrir samdrætti. Það er nýr hópur sem við sjáum, þeir sem misstu allt sitt í hruninu. Þar er fólk sem í mörgum til- vikum er ekki komið í framtíðarhús- næði, eða er í leiguhúsnæði og við vit- um hvert leiguverðið er. Þannig að margur á bara ekkert eftir þegar búið er að borga húsaleiguna. Dæmi eru til um að foreldrar hringi og spyrji hvort ostur eða brauð sé til, svo að barnið geti fengið nesti í skólann. Ég sé eng- an mun á þessu á 15 árum.“ Fyrir síðustu páska keypti Fjöl- skylduhjálp inneignarkort fyrir rúm- ar fjórar milljónir króna og yfir 1.700 manns nutu þeirrar aðstoðar. Opið fyrir frí- stundastyrki Mæðrastyrks- nefnd lokaði á matargjafir sl. fimmtudag og stendur það tíma- bil til 21. ágúst nk. „Við erum nú samt ekki farnar í sumarfrí en það er sumarlokun á mat- argjafir. Ástæðan fyrir því að við lok- um fyrir matinn er að við fáum svo fáa sjálfboðaliða á sumrin og það fækkar svo fólkinu sem leitar til okkar á sumrin,“ segir Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar. Hún segir eftirspurn ekki hafa aukist á undanförnu ári. Spurð hvort margir hafi sótt um frístundastyrk segir Anna: „Við erum enn að vinna í frístundastyrkjunum, þannig að það er opið hjá okkur fyrir það.“ Hún segir líklegt að þeir verði færri í ár en áður. „Svo voru færri sem sóttu um fermingarstyrk í ár en árin áður og það er mjög ánægjulegt.“ Mæðrastyrksnefnd fagnaði 90 ára afmæli á dögunum og seldi vörur í Smáralind og Kringlunni sl. fimmtu- dag og föstudag. „Við erum ennþá í átaki, við erum að selja þessar vörur okkar í tilefni af 90 ára afmælinu. Við erum ennþá að vinna á fullu.“ „Fólk hefur ekkert meiri fjárráð á sumrin“  Aukið álag hjá Samhjálp  Lítið batnað hjá Fjölskyldu- hjálp  Mæðrastyrksnefnd segir eftirspurn ekki vera meiri Vörður Leví Traustason Ásgerður Jóna Flosadóttir Anna H. Pétursdóttir Morgunblaðið/Styrmir Kári Matvörur Fjölskylduhjálp Íslands lokar ekki yfir sumartímann. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Trilene XL nylon línur til lax- silungs- og sjóveiða í fjölbreyttu úrvali einnig taumaefni. Fjölbreyt úrval af hjólum og stöngum, til sportveiða fyrirliggjandi. Vöðluskór með skiptanlegum sóla, filt, gúmmí og negldir sólar. Tvennir sólar fylgja. Þessir skór voru valdir bestu Vöðlu skórnir á Efftex veiðisýningunni 2016. Ugly Stik kaststang- irnar eru sterku stangir á mark- aðnum. Gott úrval af kast- stöngum og hjólum, strandveiðstangir, Combo strand- veiðistöng og hjól, sjóstangir. Stærsta úrval stanga og hjóla til sjóveiði. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Veiðisport Selfossi Þjónustustöðvar N1 um allt land. Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.