Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 19

Morgunblaðið - 19.06.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Sumar Það hefur farið misjafnlega mikið fyrir sumrinu á Íslandi þetta árið. Engu að síður hafa sóleyjarnar náð að blómstra og ungviðinu líkar vel að kafa í gegnum blómahafið. Kristinn Magnússon Íslendingar hafa borið gæfu til að ná fram breytingum sem hafa miðað að því að allir hafi jöfn tækifæri. Þess vegna eru Íslend- ingar fremstir meðal þjóða þegar kemur að jafnréttismálum. Hverju skiptir þá 19. júní og af hverju þarf að tala fyrir auknum hlut kvenna? Sú stefnumótun sem varð á sínum tíma innan raða skólakerfisins til að fjölga konum í háskólum er til eftir- breytni. Sérstaklega má horfa til fjölgunar kvenna á sviði raungreina og hvernig átak var gert svo að ár- angur næðist. Það var ekki slegið af kröfum til menntunar eða settur á kynjakvóti. Það var fyrst og fremst fyrir hvatningu alls kerfisins sem ýtti undir breytingu, sameiginlegt átak til að efla áhuga og þátttöku ungra stúlkna. Þetta er hægt að yfirfæra á önnur svið samfélagsins. Hvatning allra skiptir máli Á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins sl. vor var kjörorð Lands- sambands sjálfstæð- iskvenna að hugsa stærra og fljúga hærra. Við sáum það með stofnun Bakvarða- sveitar sjálfstæð- iskvenna í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga að hvorki skorti konur né áhuga þeirra til þátttöku. Bakvarðasveitin var mynduð af hópi kvenna sem hefur mikla reynslu úr stjórnmálum og voru reiðubúnar að styðja konur sem ætluðu í framboð. Konur hafa kraft og hugsjónir og Bakvarðasveitin veitti þeim aukinn stuðning til að sækja fram. Við fund- um það að þetta styrkti sókn þeirra um land allt. Formaður flokksins kallaði eftir því á landsfundinum að konum yrði veitt enn frekar brautargengi. Flokksmenn svöruðu kallinu strax. Fyrst á sjálfum fundinum þar sem sex konur voru kjörnar formenn í átta málefnanefndum sem marka stefnu flokksins á næstu tveimur ár- um. Þá kusu vel yfir 90% landsfund- argesta konu sem varaformann flokksins og aðra sem ritara. Stuðningurinn sást líka í sveitar- stjórnarkosningunum. Sjálfstæð- isflokkurinn bauð fram í 34 sveit- arstjórnum í ár. Enginn flokkur bauð fram í jafnmörgum sveitarstjórnum og á jafnmarga kjörna fulltrúa og Sjálfstæðisflokkurinn, eða 118 full- trúa. Fimmtíu og sjö konur sitja í sveitarstjórnum fyrir Sjálfstæðis- flokkinn eða um 48% kjörinna full- trúa hans. Þessi árangur náðist ekki með íhlutun heldur með hvatningu, sem verður að teljast afbragðs- árangur. Allir hafa hlutverk í jafnréttismálum Sjálfstæðisflokkurinn mun án nokkurs vafa eignast formann sem verður kona. Hún verður ekki kjörin vegna kyns heldur vegna hæfileika, starfa og hugsjóna sinna. Kona mun líka veita ríkisstjórn landsins forystu fyrir hönd Sjálfstæðisflokkins. Ekki af því hún er kona heldur vegna þess að hún á fullt erindi þangað. Í Sjálf- stæðisflokknum starfar fjöldi kvenna sem hafa svarað kallinu og sinna störfum sínum af ábyrgð og festu. Það sem er mikilvægara er að flokk- urinn í heild styður konur og hefur þegar sýnt það í verki. Viljinn er til staðar og framtíðin er björt. Í dag eru 103 ár liðin frá því að konur öðluðust fyrst kosningarétt. Það eru 98 ár frá því að allar konur 18 ára eldri fengu kosningarétt til jafns á við karlmenn. Þær voru hug- aðar Bríet Bjarnhéðinsdóttir og samherjar hennar sem töluðu fyrir breytingum á stjórnarskrá til að tryggja að allir landsmenn stæðu jafnir að rétti. Þær hófu baráttuna einar en með festu náðu þær fylgi við baráttu sína og höfðu að lokum sigur. #Metoo risaskref í jafnréttismálum Við vitum í dag að jafnrétti er ekki aðeins hagsmunamál kvenna. Ein stærstu áhrif sem konur hafa hrund- ið af stað á síðustu árum er #metoo- byltingin sem kristallast svo skýrt í því að konur knúðu fram breytingar. Ótti varð að hugrekki og þögnin var rofin. Hvoru tveggja varpaði ljósi á athæfi og ábyrgð. Byltingin hefur breytt hugarfari fjölda fólks, ekki bara kvenna heldur einnig karla. Það er sameiginlegt verkefni okkar að tryggja öruggt og opið umhverfi fyr- ir alla. Þetta snýst á endanum um jöfn tækifæri svo samfélagið verði betra. Við eigum aldrei að hætta að tala fyrir jafnrétti og framförum þó brekkan virðist brött. Stundum þarf hugrekki en oftar hvatningu. Það er verk allra að efla, hvetja og styðja konur til starfa öllum til heilla. Til hamingju með daginn, Íslend- ingar. Eftir Völu Pálsdóttur » Flokkurinn í heild styður konur og hef- ur þegar sýnt það í verki. Viljinn er til stað- ar og framtíðin er björt. Vala Pálsdóttir Höfundur er formaður Lands- sambands sjálfstæðiskvenna. Hvetjum, eflum og styðjum konur Mikil umræða hefur skapast vegna þeirrar ákvörðunar heil- brigðisráðherra að neita nýjum sér- fræðilæknum um að- gang að rammasamn- ingi við Sjúkra- tryggingar Íslands (SÍ), þrátt fyrir að fjöl- margir læknar hafi hætt störfum á und- anförnum tveimur árum og tilfinn- anlegur skortur sé á sérfræði- læknum í mörgum sérgreinum. Enginn nýr sérfræðilæknir hefur fengið samning sl. tvö ár. Samningur við SÍ tryggir greiðsluþátttöku við komu til sérfræðilæknis. Án slíks samnings lendir allur kostnaður við komu til sérfræðilæknis á sjúklingi og einnig kostnaður við rannsóknir sem kunna að vera nauðsynlegar við greiningu og meðferð. Sá kostnaður getur hæglega hlaupið á tug- um þúsunda. Heilbrigðisráðherra vill efla göngudeild- arþjónustu á Landspít- ala (LSH). Rök heil- brigðisráðherra eru tvíþætt, skilst mér. Annars vegar að kostn- aður við sérfræðiþjón- ustu utan LSH hefur farið fram úr fjárheimildum og hins vegar að teymisvinna sé öflugri á LSH. Hið fyrra stenst skoðun en um hið síðara má deila. Það er rétt að sérfræðiþjónusta hefur farið fram úr fjárheimildum. Sé þessi þjónusta flutt á LSH þá fer LSH líka fram úr fjárheimildum, en fullt verð fyrir ósjúkratryggða á stofu hjá sérfræð- ing í lyflækningum er 8.600 kr. en 13.200 kr. á göngudeild LSH. Ljóst er að kostnaður fyrir ríkið verður meiri á LSH en á einkareknum stofnun. Ég hef starfað sem sérfræðingur á sjúkrahúsum í Reykjavík í 35 ár, síðast á LSH. Álag þar er geysimik- ið eins og ég veit og lesa má nær daglega um í fjölmiðlum. Ég get ekki séð að LSH geti aukið göngu- deildarþjónustu svo nokkru nemi þótt litið sé til langrar framtíðar. Ég hef heldur ekki séð að LSH hafi auglýst eftir sérfræðilæknum til að sinna göngudeildarþjónustu. Í dag eru fjölmargar læknastöðv- ar sérfræðilækna sem byggst hafa upp á undanförnum ártugum. Upp- bygging þeirra hefur kostað millj- arða. Þær sinna árlega 500 þúsund sjúklingum sem er meira en göngu- deildir LSH og heilsugæslur til sam- ans. Nýliðun í sérfræðingastétt er nauðsynleg til að viðhalda gæðum heilbrigðisþjónustunnar, það veit ég manna best. Þegar ég kom frískur frá námi í Bandaríkjunum fyrir rúm- um 40 árum var mikið sótt í mína þekkingu og reynslu af eldri lækn- um. Síðan hafa komið nýir sérfræð- ingar með nýja þekkingu og reynslu sem við eldri sækjum í. Þannig á þetta að sjálfsögðu að vera. Nýj- ungar í læknisfræði verða til í virt- um háskólum vestanhafs og austan og þangað sækja íslenskir læknar sína menntun. Séu atvinnumögu- leikar ungra sérfræðinga sem eru við nám eða störf erlendis takmark- aðir vegna fárra auglýstra starfa á LSH og aðgangsleysis á samning við SÍ munu gæði heilbrigðisþjónust- unnar versna. Íslenskir sérfræðingar munu þá áfram starfa erlendis enda eftir- sóttir starfskraftar og því lengur sem þeir starfa erlendis þeim mun minni líkur eru á að þeir snúi heim. Sérfræðiþjónusta utan LSH hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt. Sér- fræðiþjónusta læknastöðva er skil- virk og teymisvinna mikil enda oft fjölmargar sérgreinar undir sama þaki og samskipti lækna auðveld. (Á Læknasetrinu eru t.d. sérfræðingar í 12 undirgreinum læknisfræðinnar.) Við skulum vona að heilbrigðis- ráðherra bregði ekki fæti fyrir eðli- lega þróun góðrar heilbrigðis- þjónustu og leyfi nýjum sérfræð- ingum að fá samning við SÍ. Eftir Ásgeir Jónsson »Nýjungar í læknis- fræði verða til í virt- um háskólum vestan- hafs og austan og þangað sækja íslenskir læknar sína menntun. Ásgeir Jónsson Höfundur er læknir, sérfræðingur í lyflækningum og hjartasjúkdómum. Þróun sérfræðiþjónustu lækna í hættu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.