Morgunblaðið - 19.06.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.06.2018, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Garðsláttuvélar sem slá á þínum gönguhraða Það er leikur einn að slá með nýju garðsláttuvélunum frá CubCadet. Þær eru með MySpeed hraðastilli sem aðlagar keyrsluhraða vélanna að þínum gönguhraða. Gerir sláttinn auðveldari ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is Í grein í Morgun- blaðinu 24.4. 2018 skrifaði ég um eign- arrétt Ytri-Sólheima til miðrar átjándu aldar. Hér eru þau mál áfram rakin og fjallað meir um þátt Bjarna Nikulássonar (1681-1764) í þeirri sögu: Sjálfsævisaga Bjarna er varðveitt og sýslulýsing hans á dönsku. Í ævi- sögunni kemur fram að á unglings- aldri er hann við fjármennsku hjá stóreignahjónunum Páli Ámunda- syni yngsta og Guðrúnu Hákonar- dóttur á Sólheimum ytri. Saga hans stendur heima við manntalið 1703. Bjarni var þrígiftur og missti fyrstu konuna í stórubólu eftir fárra vikna hjónaband. Niðjar hans með báðum seinni konunum eru fjölmargir. Bjarni var lögréttumaður 1709 og á næstu árum. Árið 1717 varð hann sýslumaður í vestursýslunni til 1728 er hann var dæmdur frá sýslu. Sýsluvöld sótti hann að nýju til Hæstaréttar í Höfn 1735 og hélt til 1757. Bjarni bjó á Sólheimum til 1711 og eftir það víða í Mýrdal og Álftaveri. Bjó hann þá á jörðum Þykkvabæjarklausturs, en hann var klausturhaldari lengi. Frá 1753 til dauðadags, 1764, bjó Bjarni á Sól- heimum í Bæjarstað og þáði þar síð- asta sakramenti hjá séra Jóni Stein- grímssyni. Bjarni átti frá unga aldri 10 H í Ytri-Sólheimum, en árið 1749 var hlutur hans 37 5/12 H eftir þrenn ný kaup. Hinn 13. júní 1749 var dóm- þing á Dyrhólum vegna 26 H fjár- kröfu konungs í Ytri-Sólheima. For- saga málsins er að Jón Þorsteinsson klausturhaldari og um tíma sýslu- maður hafði „pantsett“ hjá Eyrar- bakkakaupmanni 26 H kaupahlut auðkonunnar Guðrúnar Hákonar- dóttur í Sólheimum, án þess að vera handhafi veðsins. Jón var eigin- maður Kristínar Árnadóttur, bróð- ur- og stjúpdóttur Guðrúnar. Sækjandi dómsmálsins, séra Hálfdan Gíslason í Eyvindarhólum, krafðist þess að dómurinn hafnaði kröfu amtmanns; því krafa kóngs- valdsins væri reist á ólögmætri veð- setningu. Ágætar heimildir eru um málið og þau fyrirmenni, sem þar koma við sögu og flest höfðu stað- festu á Sólheimum. Séra Hálfdan var tengdasonur Kristínar Árna- dóttur, sem þá var ekkja. Dómari var Bjarni Nikulásson sýslumaður, gjörkunnugur öllu frá fornu á staðn- um. Krafa konungs hefur hert á eig- endum jarðarinnar að hafa á sér andvara um að gæta eignarhaldsins. Árið 1751 varð Þorsteinn Bjarna- son, lögsagnari föður síns, og kom í hans hlut að skrá jarðir sýslunnar samkvæmt Instruction Rentu- kammers í Höfn þ. 1.5. 1751 til land- fógeta. Sýslumenn á undan Þorsteini skráðu Ytri-Sólheima eins og bisk- upar; kaupahlutann 100 H og nefndu ekki kirkjueignina. Það var skilið svo á nítjándu öld að kaupa- hlutinn væri í raun 50 H og kirkju- hlutinn einnig 50 H, enda þótt göm- ul hefð væri að skrá kaupahlutann 100 H. Að svo hafi verið útlagt sýnir Landsyfirréttardómur 27.11. 1871. Samt héldu eignarmenn áfram að kaupa kaupahlutann, sem 100 H. Í fyrri greinum í blaðinu kom fram að Þorsteinn skráir kirkjuhlut- ann 100 H og kaupahlutann 100 H. Það er í samræmi við skýrslu Þor- láks prests frá 1593 og sýnist rök- rétt að gefnum forsendum, en þá þvert á útleggingu nítjándu aldar. Hvers vegna bætir Þorsteinn við álnunum 40? Því er til að svara að kaupbréf jarðarinnar á sautjándu og átjándu öld, og raunar einnig síðar, höfðu ekki alltaf summ- una 100 – nákvæmlega. Það er ógott fyrir eig- endur ef eignarpartar eru færri eða fleiri en eignin öll. Hver á að fá part sem er afgangs eða hver á ekki að fá sinn hlut ef aðilar oftelja sér? Voru eignarbréf að jörð- inni oftalin um 40 álnir? Skráði Þorsteinn svo til að hindra að bréfin lentu í uppnámi? Ef svo, þá ólögmæt fölsun hans! en gæti kallast rökrétt redding? Bjarni hafði marga fjöruna sopið, sem valdsmaður og í jarðaprangi. Þeir feðgar hafa vísast viljað tryggja að eignarbréf eigenda kæmust ekki í uppnám. Annað mál er að álnaskrán- ingin breytti ekki dýrleika jarðar- innar að lögum. Til slíkra breytinga þurfti vottaða og þinglýsta löggern- inga. Í fyrri greinum kom fram að Skúli fógeti flutti skýrslu Þorsteins til Hafnar til jarðabókargerðar ásamt skýrslum annarra sýslumanna. Skýrslurnar; Jarða- og bændatalið 1752-67 er í Landshöfðingjasafni Þjóðskjalasafns. Uppskriftin ýkt- skreytta, í stíl við rókókó aldarand- ans; Jarðabók Skúla 1760 kom ekki til Íslands fyrr en árið 1928 ásamt fleiri skjölum úr Rentukammeri. Mýrdælingar hafa áfram lifað og dáið óvitandi um skráningu þeirra feðga; Þorsteins og Bjarna eða vill- una í Kaupmannahöfn. Þorsteinn veikist og deyr um 1760 og nýr sýslumaður hélt sýsluna á efstu dög- um Bjarna. Enn fékk konungsvaldið skýrslu og þá vegna tukthústolla, sam- kvæmt Resolution Rentukammers 20.3. 1759. Á Dyrhólaþingi 10.11. 1759 votta átta þingvitni skýrslu Lýðs Guðmundssonar sýslumanns, um dýrleika jarða í Dyrhólahreppi. Þar eru Ytri-Sólheimar skráðir bændaeign 100 H, svo sem þá hafði verið um kaupahlutann frá setningu laga um tíund í landinu árið 1096. Á vefslóðinni: https://www.land- skuld.is/skjol eru myndir af skýrsl- unni á Dyrhólaþingi. Á vefnum eru einnig bæði Bændatalið og Jarðabók Skúla. Allir réttsýnir menn hljóta að sjá að skýrslan, þinglýst og vottuð á þingstað, hefur meira vægi í eign- arrétti Sólheima, en villuheimildir, uppskriftirnar: Jarðabók Skúla 1760 og Jarðatal Johnsens 1847. Fornir höfðingjar Sólheima Eftir Tómas Ísleifsson Tómas Ísleifsson » „… skýrslan, þing- lýst og vottuð … hefur meira vægi eignarrétti … en villu- heimildir, uppskrift- irnar: Jarðabók Skúla 1760 og Jarðatal Johnsens 1847.“ Höfundur er líffræðingur linekra@simnet.is Það, að vatnsorka keppi við jarðvarma- orku á íslenskum orku- markaði eftir evrópsk- um samkeppnisreglum fyrir raforku frá stein- runnu eldsneyti, er það sem innleiðing 3. orku- pakka ESB neglir fast. Samt gengur það ekki upp. Til að átta sig á þessu verður maður að grípa til kerfisfræð- innar, athuga hvaða aðrir markaðir styðja við innri raforkumarkaðinn í Evrópu og bera saman við stuðning- inn sem okkar innri raforkumark- aður hefur. Lítum fyrst á Evrópu. Birgjar innri raforku- markaðar Evrópu Í fyrra lagi má telja framleið- endur véla og rafbúnaðar. Þessir birgjar raforkugeirans eru sterkir í Evrópu og þeir keppa líka á alþjóð- legum mörkuðum. Heimamarkaður- inn er þessum birgjum afar mik- ilvægur og þar bjóða þeir fram stöðug lág verð og staðlaðar stærðir búnaðar sem henta þar. Síðan eru það hráorkumarkaðir, alþjóðlegir markaðir sem selja afl- stöðvum innri raforkumarkaðarins kol, gas eða olíu. Þarna keppa hin einstöku form jarðefnaeldsneytisins sín á milli og hagkvæmnin til raf- orkuvinnslu ræður þar miklu um verðmyndun. Jafnframt tryggja þessir markaðir nægt framboð elds- neytis, þannig að innri markaðurinn þarf aðeins að tryggja nægt vélarafl til að breyta orku eldsneytisins í raf- magn eftir þörfum. Samkeppnin sem ríkir á þessum alþjóðamörkuðum tryggir í raun jafnstöðu þeirra sem stunda raf- orkuvinnslu á innri markaði Evrópu. Birgjar raforkumarkaðar Íslands Markaðir með vélar og rafbúnað eru hér þeir sömu sem þjóna innri raforkumarkaði Evrópu og í raf- orkukerfi okkar er búnaður frá bæði evrópskum birgjum og frá öðrum heimsálfum. Þegar hins vegar kemur að markaði fyrir hráorku, þá er það aðeins nátt- úran sjálf. Orka úr- komunnar streymir fram í ám hálendisins og þangað getum við sótt hana með því að virkja svæðið. Orka jarðvarmans liggur djúpt í jörðu og þangað getum við borað til að ná gufu fyrir aflvélar á yfirborði. Náttúrulegar aðstæður á virkjunar- svæðum valda svo miklum kostn- aðarmun, að um eiginlega sam- keppni á jafnstöðugrunni milli virkjana verður ekki að ræða nema fjárfestingakostnaður þeirra sé með einhverjum hætti jafnaður. Þetta gildir jafnt, hvorrar auðlindarinnar sem litið er til en að auki er vatns- orkan sveigjanlegri en jarðvarma- orkan og leggur því fram verðmæt- ari vöru. Íslenskur raforkumarkaður Hægt er að finna leiðir til að nýta samkeppni til hagræðingar á vissum sviðum, samanber grein mína „Raf- orkumarkaður hér, hvernig“, í Morgunblaðinu 30/5 2018, þar sem því er lýst hvernig hugsanlegt er að nota vatnafærni til að grundvalla samkeppnismarkað. Eftir sem áður verðum við hér að leysa ýmis mál sjálf og þar ber hæst hvernig jafna má þann aðstöðumun fyrirtækja og aflstöðva sem náttúran skapar þeim. Það eru mál sem leysast með sam- keppni utan innri raforkumarkaðar ESB og reglugerðir innri markaðar- ins ná ekki þangað. Þessar reglu- gerðir munu hins vegar ná yfir þær ráðstafanir sem við kunnum að gera til að jafna aðstöðumun leikenda vegna náttúrulegra aðstæðna á virkjunarstöðum. Nauðsynleg jöfnun aðstöðumunar krefst í upphafi mikils samráðs, en allt samráð var eitt af því fyrsta sem tekið var fyrir þegar innri raforku- markaður Evrópu var innleiddur hér. Áður nefnd vatnafærni verður eitt af því mikilvægasta til að ná tök- um á því verkefni, en þegar upp er staðið verður munurinn fyrst og fremst fjárhagslegs eðlis. Að ræða önnur mál eins og uppskiptingu Landsvirkjunar til að losa um mark- aðsráðandi stöðu hennar er ekki tímabært fyrr en að séð verður hvort tekst að skapa jafnan sam- keppnisgrunn. Lokaorð Á innri raforkumarkaði ESB úti á meginlandi Evrópu eru það sam- keppni á ytri mörkuðum eins og hrá- orkumarkaði sem tryggir jafnstöðu- grunn fyrir raforkufyrirtækin að keppa á. Hér á Íslandi ætlum við að nota sem mest okkar eigin nátt- úrulegu orku og láta hana koma í stað eldsneytis af öllu tagi. Náttúran býr ekki til jafnstöðugrunn fyrir raf- orkufyrirtækin hér. Slíkan grunn verðum við að búa til sjálf með sam- vinnu og getum í því verki ekki lifað við það samkeppnisumhverfi sem okkur er búið með lögum ESB um innri raforkumarkað. Við getum ekki í annað sinn farið í það ferlið að samþykkja fyrst og sækja síðan um undanþágur frá lögum um sam- keppni á raforkumarkaði sem engan veginn henta hér. Þriðja orkupakka ESB ásamt ACER eigum við því einfaldlega að hafna og segja okkur frá lögum innri markaðarins. Sé eitt- hvað þar sem við viljum innleiða get- um við hjálparlaust skrifað eigin lög og samþykkt á Alþingi. Vilji ESB tengja okkur með sæstreng má semja um það á jafnréttisgrunni án þessa að hafa hin óviðeigandi lög innri markaðarins á bakinu. Þannig eiga samskipti okkar við ESB að vera. Á regnguðinn að keppa við eld- gyðjuna á íslenskum orkumarkaði? Eftir Elías Elíasson » Vilji ESB tengja okkur með sæstreng má semja um það á jafn- réttisgrunni án þessa að hafa hin óviðeigandi lög innri markaðarins á bakinu. Elías Elíasson Höfundur er sérfræðingur í orkumálum. eliasbe@simnet.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.