Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
✝ Dóra Skúla-dóttir fæddist
12. janúar 1940 í
Skerjafirði í
Reykjavík. Hún
lést á Hrafnistu á
Nesvöllum í
Reykjanesbæ 11.
júní 2018.
Foreldrar
hennar voru Stef-
anía Stefánsdóttir
húsfreyja, f. 8.9.
1920 í Stóra-Lambhaga í
Hraunum, sunnan Hafn-
arfjarðar, d. 8.12. 2007, og
Skúli Magnússon, frá Efri-
Hömrum í Ásahreppi í Rang-
árvallasýslu, skrifstofumaður
og síðar vörubifreiðastjóri, f.
1.7. 1915, d. 27.6. 1995.
Systkini Dóru eru: Bergþóra,
f. 1943, Stefán, f. 1947, d. 1983,
Magnús, f. 1951, Jóhanna, f.
1954, Sigríður Þyrí, f. 1958, og
Árný, f. 1965.
Dóra giftist 5. febrúar 1961
Þorvarði Brynjólfssyni heim-
ilislækni, f. 4.5. 1938. Foreldrar
Þorvarðar voru Ásta Þórbjörg
Beck Þorvarðsson húsfreyja,
frá Sómastöðum í Reyðarfirði,
f. 14.9 1913, d. 22.2. 2011, og
Brynjólfur Þorvarðsson versl-
unarmaður, frá Stað í Súganda-
firði, f. 6.5. 1902, d. 19.12. 1974.
Dóra Björg, nemi, f. 2.4. 2007.
4) Skúli Dór Þorvarðarson
hagfræðingur, f. 13.1. 1977.
Eiginkona hans er Veronika,
fædd Oduro, sérkennari
heyrnarlausra, f. 14.4. 1978.
Tvíburadætur þeirra f. 8.6.
2016.
Dóra flutti með foreldrum
sínum að Nýbýlavegi í Kópa-
vogi vorið 1944 og ólst þar upp.
Eftir barnaskóla lá leiðin í
Kvennaskólann í Reykjavík þar
sem hún lauk námi. Hún hóf
störf hjá heildverslun Davíðs S.
Jónssonar og vann ýmis
skrifstofustörf á fleiri stöðum.
Fyrstu hjúskaparár hennar
og Þorvarðar stundaði hann
nám í læknisfræði. Framhalds-
nám í heimilislækningum dró
fjölskylduna búferlaflutningum
til Danmerkur. Þar sinnti Dóra
fjölskyldunni og stundað nám í
verslunarskóla jafnframt. Fjöl-
skyldan stækkaði og að námi
loknu snéru þau aftur heim.
Þegar heim var komið hóf Dóra
nám í viðskipta- og hagfræði-
deild við Háskóla Íslands og
lauk Cand. Oecon. gráðu. Eftir
dvöl í Noregi og Svíþjóð á síð-
ustu árum settust Dóra og Þor-
varður að í Reykjanesbæ til að
eyða ævikvöldinu nærri ætt-
ingjum á Íslandi.
Dóra verður jarðsungin frá
Digraneskirkju í Kópavogi í
dag, 19. júní 2018, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Börn Dóru og Þor-
varðar eru:
1) Brynjólfur Þor-
varðsson tölvunar-
fræðingur, f. 27.12.
1962. Hans börn með
fyrrv. konu sinni
Steingerði Hreins-
dóttur útibússtjóra, f.
24.7. 1970, eru a) Þor-
varður Hreinn, land-
vörður og nemi, f.
31.3. 1992, og b) Urð-
ur Ýrr, mannfræðingur, f. 26.2.
1994.
2) Stefanía María Dórudóttir,
löggiltur endurskoðandi, f. 8.11.
1964. Eiginmaður hennar er
Malcolm Biggart, löggiltur end-
urskoðandi, f. 12.5. 1965. Þeirra
börn eru a) Vala Katherine,
meistaranemi í lífefnafræði, f.
18.7. 1996, og b) Ari Scott, há-
skólanemi, f. 5.4. 1998
3) Ragnheiður Ásta Þorvarð-
ardóttir verkfræðingur, f. 2.8.
1971. Sambýliskona hennar er
Þórunn Guðjónsdóttir, sjón-
varps- og kvikmyndagerðar-
kona, f. 17.12. 1969. Hennar
börn með fyrrv. konu sinni
Brynju Brynleifsdóttur, sér-
kennslu- og tölvuráðgjafa
blindra og sjónskertra, f. 29.1.63,
eru a) Emil Örn, mennta-
skólanemi, f. 7.12. 2001, og b)
Ástkær eiginkona mín lést
þann 11. júní og er borin til
grafar í dag, 19. júní, 78 ára.
Hún hafði þá verið eiginkona
mín í 59 ár og gefið mér fjögur
börn, öll mjög vel gerð og góð.
Það hefur margt hrjáð hana
á öllum þessum árum. Hún hef-
ur fengið rúm 30 beinbrot og
barist við óteljandi sjúkdóma á
mörgum spítölum, bæði hér á
landi og víða erlendis.
Fyrir 10 árum gáfu nýrun sig
og var hún þá svo lánsöm að fá
nýra frá yngsta syni okkar.
Fyrir rúmlega hálfu ári fékk
hún blóðtappa í höfuðið og hef-
ur verið á spítölum síðan þá.
Fyrst í Reykjavík, en mest hér
í Keflavík og undir lokin á
Hrafnistu á Nesvöllum. Á þess-
um mánuðum hefur hún barist
við hinar ýmsu sýkingar og á
Nesvöllum fékk hún sitt síðasta
beinbrot og í kjölfarið á því
lungnabólgu sem henni tókst
ekki að ná sér upp úr.
Ég vil að endingu þakka öll-
um læknum og öðrum sem
hjálpuðu henni, ekki síst þeim á
HSS og á Nesvöllum, og mest
af öllu börnum mínum.
Þorvarður
Brynjólfsson.
Mín fyrsta minning af okkur
Dóru var þegar við lékum okk-
ur með dúkkur í stofunni heima
þegar Stefán bróðir fæddist.
Önnur minning er þegar við
vorum sendar til að kaupa
mjólk í brúsa til Matthíasar
bónda.
Við leiddumst í myrkrinu og
með í farteskinu var vasaljós
með týru sem lýsti okkur leið-
ina, sú týra lýsti ekki á baka-
leiðinni.
Síðari æskuár þegar hægt
var að vera í stórfiskaleik og
fallin spýta á Nýbýlavegi en þá
var öðruvísi umhorfs en nú er.
Spil voru vinsæl afþreying á
veturna ásamt sleðaferðum í
brekkunni fyrir ofan heimilið.
Báðar unnum við í miðbæn-
um þegar unglingsárum lauk,
þá hittumst við oft í hádeginu
og borðuðum saman. Kannski
átti aldursmunur á okkur
systkinunum þátt í að við vor-
um nánar hvor annarri. Við
fylgdumst að, eignuðumst maka
og börn á svipuðum tíma og alla
tíð voru mikil samskipti og
samband milli okkar. Hvort
sem var með heimsóknum, sím-
tölum, pökkum eða bréfaskrift-
um milli landa þegar Dóra og
fjölskylda dvöldust erlendis.
Jólahangikjöt skilaði sér alltaf
út nema einu sinni, þegar Gar-
demoen-flugstöðin í Noregi var
tekin í notkun, en þá barst það
á afmælisdegi Dóru.
Það var aðdáunarvert hve
Dóra var dugleg, ekki eingöngu
við að sækja sér menntun held-
ur líka þegar veikindi blöstu
við, alltaf tókst henni að rífa sig
upp og halda áfram. Hún var
myndarleg og dugleg húsmóðir
og á tímabili stóð hún í sjálf-
stæðum rekstri ásamt því að
sinna heimili og fjölskyldu. Síð-
ustu árin ágerðust veikindin en
hún tók þeim með æðruleysi.
Skúli Dór gaf henni annað nýra
sitt, gjöf sem var henni ómet-
anleg og gaf henni betri líðan
síðustu æviárin.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Ég sendi Þorvarði, börnum
og fjölskyldum þeirra og öðrum
nákomnum ættingjum samúð-
arkveðjur um leið og ég kveð
Dóru systur mína og þakka
henni fyrir samfylgdina.
Guð blessi minningu þína.
Þín systir
Bergþóra.
Dóra Skúladóttir
✝ Baldur Ingv-arsson fæddist
19. janúar 1934 í
Reykjavík. Hann
andaðist á Hrafn-
istu í Reykjavík 22.
maí 2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Ingvar
Júlíus Guðmunds-
son vélstjóri, f.
1898, fórst 1940
með B.V. Braga við
Englandsstrendur og Ingibjörg
Margrét Sigurðardóttir hús-
freyja, f. 1904, d. 1981. Bræður
Baldurs voru: 1) Guðmundur, f.
1929, d. 1997, 2) Sigurður Al-
freð, f. 1931, d. 1963, 3) Trausti,
Baldur gekk í Austurbæjar-
skóla og einn vetur í skóla að
Núpi í Dýrafirði (1950-1951),
hann útskrifaðist frá Vélskól-
anum í Reykjavík árið 1960.
Hann var vélstjóri á ýmsum
skipum, m.a. á Hamrafellinu,
vitaskipinu Árvakri og skipum
Landhelgisgæslunnar. Lengst af
starfaði hann á rannsóknarskipi
Hafrannsóknastofnunar, Bjarna
Sæmundssyni. Þegar sjó-
mennskunni lauk starfaði hann
m.a. sem verkstjóri hjá Hamp-
iðjunni, eftirlitsmaður hjá
Vinnueftirlitinu, hjá Landspít-
alanum, Reykjarvíkurhöfn og
síðustu starfsárin var hann hús-
vörður í Vörðuskóla, Iðnskól-
anum í Reykjavík.
Útför Baldurs fór fram í kyrr-
þey 30. maí 2018 frá Háteigs-
kirkju.
f. 1932, d. 1971, og
4) Bragi Rafn, f.
1935, d. 2008.
Eftirlifandi eig-
inkona Baldurs er
Aðalheiður Ísleifs
Hafliðadóttir hús-
móðir og símamær,
f. 1929.
Börn þeirra eru:
1) Bergsteinn, f.
1960, kvæntur
Eddu Pétursdóttur,
f. 1960, 2) Ingvar Júlíus, f. 1961,
í sambúð með Sigurrósu Krist-
jánsdóttur, f. 1962. 3) Ingibjörg
Margrét, f. 1964, gift Magnúsi
Inga Ásgeirssyni, f. 1959.
Barnabörnin eru alls níu.
Baldur tengdafaðir minn fékk
hægt andlát á Hrafnistu þar sem
hann dvaldi síðustu æviárin. Þeg-
ar ég kynntist honum var hann
nýhættur að vinna og sat þá oft í
skrifstofuherberginu sínu og
sökkti sér í bækur, stundum
gamlar enskukennslubækur.
Hann vildi ná betri færni í ensku
og spurði mig oft um framburð á
hinum og þessum orðum, því
hann treysti mér þar sem ég var
sigld eins og hann tók til orða.
Sjálfur var hann sigldur í bók-
staflegri merkingu þess orðs en
drjúgan hluta sinnar starfsævi
var hann til sjós. Um tíma starf-
aði hann á Hamrafellinu og sigldi
þá yfir Atlantsála, bæði í austur-
átt alla leið í Kyrrahaf og í vest-
urátt í Svartahaf. Lengst af var
hann vélstjóri á hafrannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni.
Í mörg ár var hægt að stilla
klukkuna eftir því hvenær Bald-
ur og Aðalheiður leiddust hönd í
hönd í sína daglegu göngutúra
frá Bólstaðarhlíðinni þar sem þau
bjuggu nánast alla sína búskap-
artíð en hún spannar hartnær 60
ár. Reglufesta og nægjusemi
voru í heiðri höfð og vistvænn
lífsstíll var engin nýjung í þeirra
ranni heldur eðlileg flétta dag-
legs lífs.
Ef Baldur var ekki að sýsla
með bækurnar sínar eða í tölv-
unni þá sat hann tilbúinn með
spilin og fljótt gefið í vist. Hann
sá í gegnum fingur sér ef mér
urðu á mistök en krafa var gerð
um að fylgjast vel með og spila af
skynsemi. Tölur voru honum
dægrastytting, bæði í spilum,
lottó og ekki síst í bridsinu sem
hann iðkaði með ólíkum hópum.
Síðustu árin var gefið í olsen ol-
sen og alla tíð lagði hann kapp á
að vinna.
Það er með þakklæti í huga
sem ég kveð Baldur.
Edda.
Baldur Ingvarsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERLA PÁLSDÓTTIR
frá Reyni í Mýrdal,
til heimilis að Klausturhólum,
Kirkjubæjarklaustri,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Klausturhólum, sunnudaginn 10. júní.
Útförin fer fram frá Reyniskirkju í Mýrdal fimmtudaginn 21. júní
klukkan 13.
Páll Jónsson M. Sigríður Jakobsdóttir
Margrét Jónsdóttir Sigurjón Árnason
Sigurlaug Jónsdóttir Ólafur Helgason
Sveinn Jónsson Jóna Svava Karlsdóttir
Jónatan G. Jónsson Valgerður Guðjónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Jón E. Einarsson
Einar Jónsson Ágústa Bárðardóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐLAUG HELGA
GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Gulla frá Hvammsvík,
sem lést sunnudaginn 27. maí, verður
jarðsungin frá Reynivallakirkju í Kjós fimmtudaginn 21. júní
klukkan 15.
Guðrún Bjarney, Jóna Guðbjörg, Sigríður
Helgi, Margrét, Valgerður, Guðbjörn,
Bára, Þorbjörg og Hrönn Samsonarbörn
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓNAS HELGASON SIGURÐSSON,
Hlíðarvegi 22,
400 Ísafirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 16. júní. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 23. júní klukkan 14.
Lóa Guðrún Guðmundsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Sæviðarsundi 88, Reykjavík,
lést í faðmi ástvina 3. júní.
Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey
samkvæmt ósk hinnar látnu.
Fríða Steinarsdóttir Sigurbjörn Bárðarson
Agnes Steinarsdóttir Sigurður Ólafsson
Snjólaug Steinarsdóttir
Guðjón Steinarsson Anna María Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Kær frændi okkar,
BJÖRN UNNSTEINN KARLSSON,
fv. aðalbókari,
Grænuhlíð 16, Reykjavík,
lést á heimlii sínu mánudaginn 21. maí.
Úförin hefur farið fram í kyrrþey.
Frændfólk
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÖLVER SKÚLASON,
Sverigesgade 12,
Hirtshals,
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu
föstudaginn 15. júní.
Katrín S. Káradóttir
Kári M. Ölversson Margrét Karlsdóttir
Svandís Þ. Ölversdóttir Konráð Árnason
Erla D. Ölversdóttir Guðmundur Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BIRGIR EINARSSON
kennari,
lést laugardaginn 9. júní á dvalarheimilinu
Grund í Reykjavík.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum auðsýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hrafnhildur Kristjánsdóttir