Morgunblaðið - 19.06.2018, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
Mér lærðist
fljótt að vinátta er
það sem hjúpar
hversdagsleikann
gleði. Fyrirmyndirnar sá ég í
vinkonuhópi móður minnar sem
nefndar hafa verið hver af ann-
arri í samtölum frá því ég man
eftir mér. Vinkonurnar ellefu,
sem þéttu vinaböndin á
menntaskólaárunum, hafa hald-
ið hópinn í vel yfir sex áratugi
og eru órjúfanlegur hluti af lífi
hver annarrar. Raggý, Kristín
Mjöll, Sigga Einars, Hildigunn-
ur, Ingunn, Stín-Stín, Solla,
Anna Eym, Vala, Sif og mamma
var hópurinn sem hélt saman.
Þetta er eins og sagt er við alt-
arið; saman í blíðu og stríðu þar
til yfir lýkur.
Sif var í fyrstu nafn sem ég
þekkti vel en setti ekki saman
við andlit fyrr en ég var líklega
komin á skólaaldur. Heimsókn
á sýninguna Heimilið í Laug-
ardalshöll á 8. áratugnum, þar
sem Sif var komin frá Svíþjóð í
öllu sínu veldi, er fyrsta minn-
ing mín um hana. Hún var örlít-
ið frábrugðin vinkvennahópnum
sem ég þekkti, frjálslegri og
kannski meiri bóhem en samt
hæglát. Upp frá því urðu kynn-
in meiri enda sænska fjölskyld-
an flutt heim og þá styttist
vegalengdin á milli húsa þótt
síminn væri kannski frekar not-
aður, jafnvel fullmikið að mati
heimilisfólks.
Hópurinn hittist reglulega
þótt makar, börn og vinna
tækju tíma. Eitt þriðjudags-
kvöld í mánuði var fastur
punktur yfir veturinn og heilög
stund þeirra vinkvenna. Gleðin
er við völd þegar þær gera sér
dagamun, jafnvel svo að hlátra-
sköll hafa kostað brottrekstur
af veitingahúsum. Hópurinn
hefur glaðst og samfagnað þeg-
Sif Sigurðardóttir
✝ Sif Sigurð-ardóttir fædd-
ist 23. nóvember
1943. Hún lést 10.
maí 2018.
Sif var jarð-
sungin 29. maí
2018.
ar svo bar undir en
ávallt staðið fast
saman þegar á móti
blés. Það var óhjá-
kvæmilegt að börn
þeirra blönduðust
með einhverjum
hætti inn í þessi
sterku vinabönd.
Ég stend í mikilli
þakkarskuld við
Sif. Eitt sinn þegar
mér fannst brekk-
an brött og vissi ekki hvert ég
gat leitað opnaði hún dyrnar að
heimili sínu hvar ég naut hlýju
hennar og velvildar. Það spillti
ekki fyrir að því fylgdi und-
ursamlegur matur og afslappað
andrúm. Hversdagslegur mánu-
dagur varð að veislu fyrir
bragðlaukana, fimmtudags-
kvöld breyttist í notalegt bíó-
kvöld í sófanum og auðvitað var
rætt um menningu, tónlist og
sitthvað annað við litla borðið í
eldhúsinu. Í skjóli Sifjar öðl-
aðist ég ró og öryggi fyrir
næstu skref. Henni fannst þetta
svo sjálfsagt en ég minnti hana
á að í huga tvítugrar stúlku
sem hafði mætt lokuðum dyrum
var þetta styrk hönd sem hún
rétti og því myndi ég aldrei
gleyma.
Ekki renndi ég í grun þegar
ég hélt afmæli fyrir mömmu í
janúar og gestirnir voru sauma-
klúbbsvinkonur, makar þeirra
og börn, að það myndi kvarnast
svo fljótt úr hópnum. Sif hafði
látið mig vita að hún treysti sér
ekki en ég var þess viss að hóp-
urinn myndi hittast fljótt aftur
enda var það ákveðið þá um
kvöldið að þetta yrði endurtek-
ið. Ég er þakklát fyrir vinkonur
mömmu og vona að við stöndum
við orð okkar þótt tvær hafi nú
kvatt okkur á skömmum tíma.
Í dag skil ég enn betur hvað
djúp og einlæg vinátta skiptir
miklu í lífinu. Ég var lánsöm að
kynnast Sif og njóta velvildar
hennar.
Megi góður Guð gefa fjöl-
skyldu Sifjar styrk til að takast
á við sorgina. Blessuð sé minn-
ing Sifjar.
Vala Pálsdóttir.
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur
Þörungaverksmiðjunnar hf. verður haldinn
miðvikudaginn 4. júlí 2018 kl. 13.00 á skrif-
stofu félagsins, Karlsey, 380 Reykhólum.
Dagskrá: Aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð verður haldið á skrifstofu Sýslumannsins á
höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1, 2.hæð þriðjudaginn
26. Júní 2018 10:00 og 10:20.
Uppboð á öllum hlutum í einkahlutafélaginu þrautin ehf.,
kt. 660213-1040 100% hlutir.
Uppboð á hlutum í einkahlutafélaginu Mýverk ehf., kt. 600717-1030
50% hlutir.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
18. júní 2018
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Velkomin. S. 535-2700.
Boðinn Bridse og kanasta kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingarjóga hjá Lilju Steingríms kl. 9-9.50, allir
velkomnir. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-10.30.
Leshópur Hjördísar kl. 10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Bónusrútan kemur
kl. 14.40. Opið kaffihús kl.14.30.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.14.
Garðabær Jónshúsi / félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 14-15.30. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 11.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45.
Gerðuberg Kl. 8.30-16 opin handavinnustofa, kl. 9-12 keramikmálun
(sumarfrí), kl. 13-16 glervinnustofa (sumarfrí), kl. 10-10.45 leikfimi
Maríu (sumarfrí), kl. 10-10.30 leikfimi gönguhóps, kl. 10.30 göngu-
hópur um hverfið, kl. 12.20-13.30 qigong (sumarfrí), kl. 13 tölvu-
fræðsla hjá Helgu
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu og pútt kl. 13 og
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan opin fyrir alla kl. 9-16, brids kl. 13, enskunámskeið,
tal, kl. 13, bókabíll kl. 14.30, Bónusbíll kl. 14.55, síðdegiskaffi kl. 14.30,
allir velkomnir óháð aldri. Nánari í síma 411-2790.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.15, snjallsíma og spjaldtölvunám-
skeið kl. 10-12, pútt á Eiðistorgi kl. 10.30, kaffispjall í króknum kl.
10.30, ganga frá Skólabraut kl. 15.
Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið
upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og kaffi og meðlæti er selt á vægu
verði kl. 14.30-14.55. Bónusbíll kl. 14.40 og bókabíll kl. 13.15. Allir eru
hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í
síma 568-2586.
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
550 ljóðabækur til sölu á 82
þúsund. Einnig bréf til Láru,
1. útg. 2. útg. og 3. útg.
Egilssaga 1809.
Upplýsingar í síma
898 9475.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Bókhald
NP Þjónusta
Annast bókanir, reikningsfærslur
o.f.l. Upplýsingar í síma 649-6134.
Fasteignir
Til sölu La Marína á Spáni
25 mín. frá Alicante flugvelli. Gott
einbýlishús, stutt í alla þjónustu,
strönd og golfvellir á svæðinu.
38 millj. ísl. kr.
Upplýsingar í síma 7742501.
eyvindur@simnet.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI GEIR SIGURGEIRSSON,
bifvélavirki og kennari,
lést á Landspítalanum 11. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 21. júní klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta líknarfélög
njóta þess.
Elsa Særún Helgadóttir
Sigurgeir Þór Helgason
Ragnhildur Lára Finnsdóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug vegna andláts og útfarar
DAVÍÐS GUÐMUNDSSONAR
bónda frá Glæsibæ, Hörgársveit.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sandgerðis,
öldrunarheimilinu Lögmannshlíð, Akureyri,
fyrir hlýju og góða umönnun.
Sigríður Manasesdóttir
og fjölskylda