Morgunblaðið - 19.06.2018, Síða 27
Björn stofnaði fyrirtækið Hrað-
myndir og starfrækti það um árabil,
lengst af á Hverfisgötu 59 í Reykja-
vík: „Ég hafði fest kaup á sérstakri
ljósmyndavél sem tók passamyndir
og við sérhæfðum okkur því töluvert
á því sviði. Auk þess tók ég mikið
tækifærismyndir við brúðkaup, stór-
afmæli og ýmsar uppákomur hjá fé-
lögum og stofnunum. En ég starf-
rækti aldrei stúdíóljósmyndastofu.“
Ertu enn að taka ljósmyndir?
„Já, ég get ekki neitað því. Ég hef
að vísu dregið töluvert úr rekstrinum
en er enn að. Ég myndaði lengi vel
hátíðahöldin á sjómannadaginn en
nú tek ég bara tilteknar myndir af
þeim sem eru heiðraðir í tilefni dags-
ins. Auk þess er ég enn að taka
myndir fyrir tónlistarskólana, við
skólaslit og tónleika. Þótt þetta sé
ekki mikið umstang hef ég enn alltaf
jafn gaman af þessu stússi.“
Björn var trúnaðarmaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og sat
fjölda ASÍ- og Sjómannasambands-
þing. Hann er fulltrúi Sjómanna-
félags Íslands (áður Sjómannafélag
Reykjavíkur) í sjómannadagsráði frá
1968, situr í skipulagsnefnd sjó-
mannadagsráðs frá 1968, sat í stjórn
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar og
Bessastaðahrepps og var formaður
þeirra 1982-85, formaður fulltrúa-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ
og Bessastaðahreppi 1985-92 en árið
1990 unnu sjálfstæðismenn sinn
stærsta sigur í Garðabæ er þeir
fengu 67,3%. Hann ritstýrði auk þess
Görðum, blaði Sjálfstæðisflokksins í
Garðabæ, 1984-2000.
Björn sat í skólanefnd Tónlistar-
skóla Garðabæjar 1978-2008. Hann
hefur setið í nefnd um málefni eldri
borgara, var forseti Kiwanisklúbbs-
ins Heklu 1988-89 og var ritstjóri
safnaðarblaðs Garðasóknar 2002-
2008.
Björn er heiðursfélagi Sjálfstæð-
isfélags Garðabæjar og Sjómanna-
félags Íslands. Hann hlaut Garða-
steininn 2015 frá Rotary-klúbbnum
Görðum í Garðabæ og hlaut heiðurs-
merki sjómannadagsins árið 2008
fyrir félagsstörf í þágu sjómanna.
Fjölskylda
Björn kvæntist 1.10. 1960 Sigur-
laugu Björnsdóttur, f. 3.7. 1930,
lengst af starfsmanni Pósts og síma.
Foreldrar hennar voru hjónin Björn
Árnason bifreiðastjóri og Guðfinna
Sigurðardóttir húsfreyja, frá Ási í
Hafnarfirði.
Börn Björns og Sigurlaugar eru
Páll, f. 12.1. 1961, sagnfræðingur og
prófessor við Háskólann á Akureyri,
kvæntur Ingibjörgu Sigurðardóttur,
aðjúnkt við Háskólann á Akureyri,
og eiga þau tvö börn, og Guðfinna, f.
24.12. 1964, sjálfstætt starfandi
sjúkraþjálfari, búsett í Garðabæ, gift
Bjarnsteini Þórssyni tölvunar-
fræðingi og eiga þau þrjú börn.
Systkini Björns: Garðar, f. 22.4.
1922, d. 21.11. 2010, skipherra,
kvæntur Lilju Jónsdóttur og eiga
þau tvö börn; Hannes, f. 9.10. 1924, d.
31.12. 2014, ljósmyndari í Reykjavik;
Áróra, f. 29.4. 1926, fyrrv. banka-
starfsmaður, gift Hafsteini Jónssyni
verkamanni.
Foreldrar Björns voru Páll Hann-
esson, f. 18.5. 1896, d. 28.1. 1956,
skipstjóri, og Ásta Ingveldur Eyja
Kristjánsdóttir, f. 28.1. 1896, d. 8.6.
1986. Þau bjuggu á Ísafirði og síðar í
Reykjavík.
Björn Pálsson
Friðrika Kristjánsdóttir
saumakona Ísafirði
Hjalti Magnússon
form., skáld og
kennari á Ísafirði
Vilhelmína María Hjaltadóttir
húsfr. í Hnífsdal
Kristján Gíslason
kaupm. á
Sauðárkróki
Ásta Ingveldur Eyja Kristjánsdóttir
húsfr. á Ísafirði
Elísabet Pálmadóttir
húsfr. á Eyvindarstöðum, frá Sólheimum
Gísli Ólafsson
b. á Eyvindarstöð
um Blöndudal
Sigurður Símonarson
skútuskipstj. Í Rvík
Anna Guðrún
ónsdóttir hús-
fr. í Rvík
Margrét
Kristjáns-
óttir húsfr.
á AkranesiSímon Símonarson tannlæknir og
margfaldur Íslandsmeistari í brids.
Magnús Hjaltason skáldið
á Þröm (Ljósvíkingurinn)
Bjarni Símonarson b. á
Álftamýri íArnarfirði
Jóhanna Pálsdóttir
prestfr. í Otradal og
á Bíldudal
Páll Ásgeir Tryggva-
son sendiherra
Hallur Halls-
son framkvstj.
í Rvík
Emilía Kristín
KofoedHansen
ræðism. Íslands
í Grikklandi
Jón Páll Bjarnason gítarleikari
Herdís Ás-
geirsdóttir
húsfr. í Rvík
Hallur Símonarson
blaðam. og marg-
faldur Íslands-
meistari í brids
Björg Ko-
foedHansen
húsfr. í Rvík
J
Anna G. Bjarnason blaðamaður
Rannveig Sigurðar-
dóttir húsfr. í Rvík
Friðrik Ólafsson
stórmeistari og
forseti FIDE
Axel Gíslason
forstjóri VÍS
Markús Bjarnason fyrsti skólastj. Stýrimannaskólans
Sigríður Símonar-
dóttir húsfr. í Rvík
SólveigAxels-
dóttir húsfr. á
Akureyri
Kristján
Símonarson
skipstj. á
InnriHólmi
d
Símon Svein-
björnsson
skipstjóri í
Rvík
Axel
Krist-
jánsson
kaupm. á
Akureyri
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. í Stapadal
Páll Símonarson
útvegsb. í Stapadal, f. á Dynjanda
Guðbjörg Pálsdóttir
húsfr. í Hnífsdal
Hannes Jónsson
útvegsb. í Hnífsdal
Margrét Jónsdóttir
vinnuk. í Djúpi
Jón Friðriksson
vinnum. í Vatnsfirði í Djúpi
Úr frændgarði Björns Pálssonar
Páll Hannesson
skipstjóri á Ísafirði
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018
VANTAR ÞIG STARFSFÓLK?
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is
Við útvegum hæfa
starfskrafta í flestar
greinar atvinnulífsins
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára reynslu
á markaði þar sem við
þjónustum jafnt stór
sem smá fyrirtæki.
Kristján Kristjánsson fæddist áKambsstöðum 19.6. 1899.Hann var sonur Kristjáns
Kristjánssonar og Arndísar Níels-
dóttur, hjóna í húsmennsku í Ljósa-
vatnsskarði sem fluttu til Akureyrar
1904 þar sem Kristján var lengi síma-
verkstjóri.
Kristján og Arndís eignuðust fjóra
syni og var Kristján elstur þeirra, en
allir þrír bræður hans létust úr berkl-
um á unga aldri. Kristján veiktist
reyndar einnig og varð að dvelja á
Vífilsstöðum í eitt ár, en náði fullum
bata. Hann kvæntist Málfríði Frið-
riksdóttur frá Sauðárkróki og eign-
uðust þau fjögur börn.
Kristján var í sveit á unglingsárun-
um, stundaði verkamannavinnu á
Akureyri og var m.a. til sjós um skeið
og í símavinnu. Hann hóf að aka bílum
er hann var 23 ára en ári áður hafði
hann fest kaup á sínum fyrsta bíl,
hjólalausum Ford-bíl sem hann keypti
á Húsavík. Kristján fékk Ebenharð
Jónsson í lið með sér að gera bílinn
gangfæran og sama ár, 1922, opnuðu
þeir saman bílaverkstæði sem er upp-
hafið að BSA bílaverkstæðinu.
Kristján stofnaði Bifreiðastöð
Akureyrar, ári síðar, en þá hafði hann
eignast þrjá bíla. Árið 1926 var Krist-
ján kominn með tvo vörubíla og
skömmu síðar hóf hann áætlunar-
ferðir til Reykjavíkur og síðar austur
á land. Rekstur hans varð nú æ um-
svifameiri og á 20 ára afmæli BSA
voru bílar fyrirtækisins 50 talsins og
starfsmenn bifreiðastöðvarinnar,
verkstæðis og yfirbygginga-
verkstæðis 98 manns.
Kristján dró úr bílaútgerð eftir
stríð, keypti Bílasöluna hf., ásamt
Ólafi Benediktssyni, var einn af stofn-
endum Dráttarbrautar Akureyrar og
einn af stofnendum Flugfélags Akur-
eyrar sem síðar sameinaðist Flug-
félagi Íslands. Hann hætti rekstri á
Akureyri, flutti til Reykjavíkur 1960
og hafði þar nokkra umsýslu, en var
þó fyrst og síðast einn af frum-
kvöðlum samgöngubyltingar og
bílaaldar á Íslandi.
Kristján lést 16.6. 1968.
Merkir Íslendingar
Kristján
Kristjánsson
90 ára
Jóhanna Dóra
Jóhannesdóttir
Matthildur Björnsdóttir
Valborg Lárusdóttir
85 ára
Björn Pálsson
Gígja Þórleif Marinósdóttir
80 ára
Bergljót Kristjánsdóttir
Gunnar Eiríkur Haraldsson
Jenný Ágústsdóttir
Magnús Guðbjarnason
Pálína Gísladóttir
Sigríður Halblaub
75 ára
Auður Valdís
Guðmundsdóttir
Guðjón Skarphéðinsson
Haraldur Egill Sighvatsson
Katrín Hermannsdóttir
Reynir Kristjánsson
Sara Elíasdóttir
70 ára
Bára Valtýsdóttir
Jón Grímsson
Jónína Guðrún
Ármannsdóttir
Lárus Örn Óskarsson
Margrét Gísladóttir
Ólafur Rúnar Björgúlfsson
Ragnheiður Baldvinsdóttir
Sveinbjörn Stefánsson
Trausti Tómasson
Þórður Jóhannesson
Þórey Magnúsdóttir
60 ára
Guðrún Karen
Tryggvadóttir
Jóhann Guðmundsson
Kristján Sveinbjörnsson
Óskar Pétur Friðriksson
Snorri Halldórsson
Stefanía Arna
Marinósdóttir
Sveinn Ólafsson
Torfhildur Stefánsdóttir
50 ára
Arturas Slimas
Auður Ketilsdóttir
Bryndís Guðmundsdóttir
Einar Kári Kristófersson
Hafsteinn Kjartansson
Johna Kristín Zamora
Lucyna G. Brzuszkiewicz
Sveinn Reynir Pálsson
Zbigniew Wlodzimierz
Deszczka
40 ára
Arna Björk Árnadóttir
Bára Borg Smáradóttir
Dagbjört G. Magnúsdóttir
Einar Snorrason
Eva Dögg Þorsteinsdóttir
Friðrik Unnar Arnbjörnsson
Ingibjörg S. Finnbogadóttir
Jacek Krzysztof Pudo
Katrín Ósk Pétursdóttir
Krzysztof Roszak
Mariella Celevante Rosento
Tómas Eiríksson
Trausti Gíslason
Vignir Örn Oddsson
30 ára
Agnes Sif Eyþórsdóttir
Ágústa Sverrisdóttir
Ármann Sverrisson
Ársæll Páll Kjartansson
Bernharður Bjarnason
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Emil Ólafur Ragnarsson
Hrefna F. Friðgeirsdóttir
Mateusz S. Jezierski
Richardas Laurinavicius
Þórunn Sif Guðlaugsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Þórunn ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
BSc-prófi í sálfræði frá
Universitá Cattolica í
Mílano og starfar við leik-
skólann Aðalþing.
Maki: Giuseppe Porricelli,
f. 1985, flugvirki.
Dóttir: Olivia Lóa Porri-
celli, f. 2014.
Foreldrar: Guðlaugur Ingi
Sigurðsson, f. 1963, og
Vala Rós Ingvarsdóttir, f.
1966. Þau eru búsett í
Kópavogi.
Þórunn Sif
Guðlaugsdóttir
30 ára Hrefna ólst upp í
Hafnarfirði, býr þar og
stundar nú nám við Keili.
Systkini: Ásthildur
Embla, f. 1990; Oddrún
Lára, f. 1991, Guðmundur
Hermann, f. 1993, og Vil-
dís Inga, f. 1996.
Foreldrar: Friðgeir Guð-
jónsson, f. 1961, og
Hrefna Margrét Guð-
mundsdóttir, f. 1962, d.
2006. Stjúpmóðir: Ragn-
heiður Gunnarsdóttir, f.
1963.
Hrefna Freyja
Friðgeirsdóttir
30 ára Ársæll ólst upp í
Reykjavík, býr þar og
starfar við malbikun hjá
Hlaðbæ Colas.
Maki: Anna Nadalía
Koper, f. 1990,
verslunarmaður hjá
Hagkaupum.
Bróðir: Gunnar Páll
Kjartansson, f. 1993,
leikskólakennari.
Foreldrar: Guðrún Ár-
sælsdóttir, f. 1965, og
Kjartan Halldór Antons-
son, f. 1968.
Ársæll Páll
Kjartansson