Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 29

Morgunblaðið - 19.06.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Leður strigaskór Verð: 11.995 Stærðir 36-42 Eigum úrval af strigaskóm úr leðri að innan sem utan. Mjúkur leðurinnsóli sem gerir skóna einstaklega þægilega. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er tímabært að þú ráðist í til- tekt og viðgerðir á heimilinu. Vinir þínir bjóða þér að gera hluti sem hljóma ekki vel í fyrstu. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú virðist vera rétta tækifærið fyrir þig að koma málum þínum áfram. Varastu samt að ganga of langt svo ekki komi til eftirmála. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur ekkert upp úr því að gagnrýna skoðanir annarra í stjórnmálum og trúmálum í dag. Stundum er nóg að yppta öxlum og halda áfram með það sem skiptir máli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér finnst engu líkara en þér sé haldið í heljargreipum og þú eigir ekki undankomu auðið. Nýttu samskiptahæfileika þína til að halda friðinn í samskiptum þínum við aðra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Löngun þín til þess að gera eitthvað öðruvísi veldur eirðarleysi. Skipuleggðu vinnutímann betur og leitaðu aðstoðar með það sem þarf. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er komið að þeim tímamótum í lífi þínu að þú hrindir í framkvæmd þeirri áætlun sem þú hefur svo lengi verið með í undirbúningi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Taktu þér tíma í að koma röð og reglu á hlutina heima fyrir. Gættu þess bara að stíga ekki á tærnar á öðrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert aufúsugestur en þarft þess vegna að gæta þess að misbjóða ekki gestrisni fólks. Spyrðu ástvini til hvers þeir ætlast af þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að taka á öllu þínu til þess að finna réttu leiðina að takmarki þínu. Mundu að samstarf byggist á tillitssemi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú mátt eiga von á því að óvænt- ir gestir berji að dyrum þér til lítillar ánægju. Sinntu sjálfum þér og láttu það ganga fyrir öðru fyrst um sinn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Farðu ákaflega varlega í sam- skiptum við ókunnuga, sérstaklega ef þau snúast um fjármál að einhverju leyti. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þrátt fyrir góðan ásetning geta af- skipti orðið til þess að færa mál til verri vegar. Gættu þess í öllum samskiptum við aðra, að frelsi þitt takmarkast við frelsi þeirra. Ég átti leið upp í Hlíðar og aldreiþessu vant sá ég karlinn á Laugaveginum þar sem hann stóð á horni Rauðarárstígs og velti vöng- um yfir Miklubraut og Klambrat- úni. „Nýtt að sjá þig hér,“ sagði ég við hann. „Hvað er í fréttum?“ Hann hnykkti aftur höfðinu og tautaði: Miklabraut, merkilegt nokk, mun verða bið- sett í -flokk. Dags er það lína að láta í það skína en loforðin lögð verða í stokk. Á fimmtudag orti Sigrún Har- aldsdóttir á Leir: Skyggja vindaskýin grá, skjálfa blöðin rósa. Núna væri sælt að sjá sólarglitið ljósa. Fía á Sandi tók undir: Úfin skýin ullargrá æðrast gamla brýnið. Það væri fegri sjón að sjá sólina skína á vínið. Daginn áður hafði Ingólfur Ómar skroppið í smá-fjallgöngu, – „það rigndi aðeins en ekkert að ráði“: Vorsins ilm að vitum ber vill það orna geði. Þegar ég til fjalla fer fyllist andinn gleði. Sigrún svaraði: Basl mér reynist brekkan þver, bitrar gráu klappirnar, þegar ég til fjalla fer fæ ég verk í lappirnar. Páll Imsland sagði að það væri aðeins að rofa til og spurði: „Ætli ég sé nokkuð farinn að leggja Sig- rúnu í einelti?“: Oft á göngu lappalúin lyppast niðrá stein, aum í skrokknum, orkan búin, æmtir við hvert bein. Sigrún lét ekki standa upp á sig og spurði hvort ekki væri sagt að tvisvar yrði sá feginn sem á stein- inn settist: Stundum freistar steinninn hvass á strangri göngu vega þótt merji ‘ann bæði mjöðm og rass og meiði illilega. Fía á Sandi var með á nótunum: Fögur eru fjöllin há fagur á þeim snjórinn. Þó er fegri sjón að sjá sólina skína á bjórinn. Og kvað síðan fastar að orði: Fallirðu niður fjöllin há fallið mölvar beinin. Þú skalt heldur sitja og sjá sólina skína á steininn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Loforð í stokk og fjallgöngur „JÁÁÁ... NÚ SKIL ÉG HVAÐ ÞIÐ ERUÐ AÐ GERA.“ „ÞESSI BÓK SEM ÉG KEYPTI HÉRNA, ENGINN SKORTUR Á AULUM, ER BARA TÓMAR SÍÐUR!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að bíða eftir símtali, skilaboðum eða tölvupósti frá honum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG HEF VERIÐ AÐ SPÁ MIKIÐ Í FRAMTÍÐINA. OG, SKO... REYNDAR SÉ ÉG EKKERT. ÞVÍLÍK SÓUN Á FORTÍÐ ÞINNI ÉG GET ÞVÍ MIÐUR EKKI LÁNAÐ ÞÉR NEMA ÞÚ HAFIR VIÐSKIPTAÁÆTLUN! ÉG ER MEÐ ÁÆTLUN! OG EF ÞÚ LÁNAR MÉR EKKI KEMSTU AÐ ÞVÍ HVER ÁÆTLUNIN ER! TAKK FYRIR! Rétt eins og stærstur hluti þjóðar-innar hefur Víkverji legið mar- flatur í sófanum heima síðustu daga og horft á HM í fótbolta. Aðeins eru nokkrir dagar liðnir af mótinu og Víkverji er þegar farinn að óttast að fá legusár af þessu öllu saman. Reyndar hafa nokkur örlagarík augnablik fengið Víkverja til að standa upp og þau komu flest í leik Íslands og Argentínu. Guði sé lof. x x x Frammistaða drengjanna okkar ersjálfsagt tilefni í marga pistla en hér skal látið duga að þakka kærlega fyrir. Takk fyrir að bjarga þessu kolómögulega sumri. Takk fyrir að afsanna enn og aftur svartsýnisspár Víkverja. Og takk fyrir að skemma gleðina fyrir Diego Maradona. Kall- greyið virtist hafa náð sér í kvef á mótinu, svo mikið nuddaði hann á sér nefið, og hefði ekkert mátt við því ataka þátt í sigurgleði þann daginn. x x x Þegar fylgst er með umfjöllun umHM í Rússlandi á RÚV er margt jákvætt en líka eitt og annað nei- kvætt. Vitaskuld er út í hött að hið opinbera sópi upp auglýsingamark- aðinn af þessu tilefni og skemmi fyrir litlum miðlum. En RÚV má eiga það að öll umgjörðin í kringum leikina, álitsgjafar og íþróttafréttamenn hafa staðið sig fantavel. Flestir þulirnir eru auk þess mjög góðir, þótt þeir séu vissulega misgóðir. x x x Hins vegar mætti alvarlega skoðaþað að bæta við aukamanni í lýs- ingarnar þegar líður á mótið. Vík- verji hefur verið svo heppinn að sjá nokkra leiki á bandarísku sjónvarps- stöðinni Fox Sport og þar eru lýs- ingar afar líflegar og skemmtilegar. Einn aðalþulur leiðir mann í gegnum leikinn en við hlið hans er svo sér- fræðingur sem bætir við og dýpkar umfjöllunina. Sá heldur sig til hlés og gaukar inn punktum sem hinn sér ekki, til að mynda um taktík liðanna eða dómgæsluna. Þar með færðu minna af aðalþulnum, sem er gott. Og meiri og betri fróðleik um leikinn. Sem er enn betra. vikverji@mbl.is Víkverji Guð vonarinnar fylli yður öllum fögn- uði og friði í trúnni svo að þér séuð auðug að voninni í krafti heilags anda. (Rómverjabréfið 15.13)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.