Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.06.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það vita ekki allir um konuna sem samdi eitt þekktasta ættjarðarljóð okkar, „Hver á sér fegra föðurland“, en það var Unnur Benediktsdóttir Bjarklind sem notaði skáldanafnið Hulda. Ljóðið var annað tveggja ljóða sem unnu samkeppni um hátíð- arljóð í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og flutt við lag Emils Thorodd- sens,“ segir Helga Kvam píanóleik- ari, sem ásamt Þórhildi Örvars- dóttur söngkonu stendur fyrir tónlistardagskrá á sjö stöðum víða um land í tali og tónum um líf skáld- konunnar Huldu. „Hugmyndin kviknaði hjá okkur Þórhildi á síðasta ári þegar við vor- um að vinna með kvenskáld ásamt hópi norðlenskra kvenna og rákumst á ljóðin hennar Huldu. Okkur lang- aði að gera list hennar góð skil. Að öllum líkindum hefur hún ekki feng- ið nægilega umfjöllun þar sem hún er kona fædd á þeim tíma í bók- menntasögu landsins þar sem ekki var mikið fjallað um konur, auk þess sem bækur hennar hafa aldrei verið endurútgefnar,“ segir Helga. Byrja á kvenréttindadaginn Að sögn Helgu gaf Unnur Bene- diktsdóttir Bjarklind út sex ljóða- bækur undir skáldanafninu Hulda og auk þess á annan tug bóka með skáldsögum, smásögum og ævintýr- um. Hún þýddi einnig bækur úr nor- rænum tungumálum og ensku. Fyrstu tónleikarnir, Hulda – Hver á sér fegra föðurland, verða í Hofi í kvöld á sjálfan kvenréttindadaginn. „Annað kvöld verðum við á Húsa- vík, sem á vel við þar sem skáldið er úr Laxárdalnum og bjó á Húsavík þar til hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún bjó síðustu tíu ár ævi sinn- ar. Okkur fannst því vel við hæfi að næstu tónleikar yrðu í Hannesar- holti 28. júní. Kvöldið eftir höldum við til Hólmavíkur og daginn þar á eftir verðum við á Ísafirði,“ segir Helga og bætir við að tónleika- ferðalaginu ljúki helgina 11. og 12. ágúst með tónleikum á Kópaskeri og Eskifirði. Dúettinn Helga og Þórhildur hef- ur starfað saman í nokkur ár og haldið þematengda tónleika um ljóð- og tónskáld, bæði klassísk og dæg- urlaga. Í ár fengu Helga og Þórhildur listamannalaun í þrjá mánuði hvor til þess að vinna að verkefninu um Huldu skáldkonu. „Það skiptir miklu máli að fá lista- mannalaun og stórkostlegt að geta einbeitt sér að einu verkefni í einu. Ef við hefðum unnið þetta með vinnu hefðum við aldrei getað kafað eins djúpt í líf Unnar og verk hennar sem skáldkonunnar Huldu,“ segir Helga og bætir við að auk listamannalaun- anna hafi gengið vel að safna styrkt- araðilum og fyrir það séu þær Þór- hildur þakklátar. „Í þessu verkefni höfum við getað sett verkefni yfir á aðra og greitt þeim fyrir í stað þess að væla út greiða eða gera alla hluti sjálfar,“ segir Helga, sem ásamt Þórhildi hef- ur áður farið í tónleikaferðalög um landið. „Í fyrra fórum við með tónleika- röðina Innlendar söngperlur og sönglög frá 1900 til dagsins í dag.“ Eitt þekktasta ættjarðarljóðið Fjórtán ljóð eftir Huldu verða flutt í tónleikaröðinni og er ljóðið „Hver á sér fegra föðurland“ eflaust það þekktasta. Sex af lögunum við ljóð Huldu eru samin af konum og sjö af körlum auk þess sem ljóðið „Við fjallavötnin fagurblá“ er finnskt þjóðlag. „Það var ekki um auðugan garð að gresja að finna útsetningar fyrir ein- söng og undirleik við ljóð Huldu. Á þeim tíma sem Hulda samdi ljóðin sín voru flestar útsetningar fyrir karlakóra. Til að ná heildstæðri dag- skrá báðum við Daníel Þorsteinsson að semja lög við tvö af ljóðum Huldu. Við höfum unnið mikið með Daníel og vitum hversu góðar tónsmíðar hans eru. Við erum mjög ánægðar með hversu margar konur sömdu lögin sem við flytjum,“ segir Helga. „Ljóð Huldu og lögin við mörg þeirra eru frá 1930 til 1950 og slá á þjóðlega strengi. Ljóðin tengjast sterkt þjóðernishyggjunni þar til rómantíkin tekur við og það má segja að rauði þráðurinn í verkum Huldu sé náttúran, heimahagarnir, fuglar og ferðaþrá,“ segir Helga. Auk þess að spila og syngja lög við ljóð Huldu verður lesið úr verkum hennar og tónleikagestir fá að kynn- ast konunni á bak við skáldanafnið Hulda. Hlegið og grátið í undirbúningi „Undirbúningurinn á bak við dag- skrána um Huldu er búinn að vera rosalegt ferðalag. Mikil heimilda- vinna sem tók langan tíma og við höfum bæði hlegið og grátið í þessu ferðalagi,“ segir Helga og bætir við að þær Þórhildur séu spenntar fyrir því að hefja ferðalagið um landið með tónleikadagskránni í Hofi á Akureyri í kvöld. Hver á sér fegra föðurland  Tónleikadagskrá um líf Huldu skáldkonu, afrakstur þriggja mánaða listamannalauna  Tónleikar á sjö stöðum á landinu  Á annan tug bóka eftir Huldu auk þýðinga úr ensku og Norðurlandamálum Ljósmynd/Daníel Starrason Tónlistarkonur Helga Kvam píanóleikari og Þórhildur Örvarsdóttir söngkona hefja tónleikaferðalag í Hofi í kvöld. Ljóð Huldu sem flutt verða: Nú rennur sólin og Farfuglarnir við lög Elísabetar Jónsdóttur frá Grenjaðarstað. Söngur Hrafns, Draumur Berg- ljótar og Barnið við lög Sigvalda Kaldalóns. Vikivaki, Gullský og Hellensk nótt við lög Hildigunnar Rúnars- dóttur. Liljur hvítar og Í fjarlægum skógi við lög Daníels Þorsteins- sonar. Aftansöngur við lag Lovísu Elísabetar Sigrúnardóttur. Lindin við lag Eyþórs Stefánssonar. Hver á sér fegra föðurland við lag Emils Thoroddsens. Við fjallavötnin fagurblá við finnskt þjóðlag. Efnisskrá um líf og list Huldu DAGSKRÁ Í TALI OG TÓNUM Hulda Unnur Benediktsdóttir Bjarklind, ljóðskáld, rithöfundur og þýðandi. Eiríkur Árni Sigtryggson tónskáld hefur verið valinn listamaður Reykjanesbæjar kjörtímabilið 2018 til 2022. „Eiríkur hefur starfað sem tónskáld, tónlistarkennari og myndlistarmaður um langt árabil, bæði innanlands og erlendis, en lengst af hefur hann þó starfað hér í Reykjanesbæ. Hann er afkasta- mikill listamaður á sviði tónsmíða og hafa mörg tónverka hans verið flutt hérlendis sem og erlendis, allt frá einleiks- og einsöngsverkum til hljómsveitarverka og kórverka. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur flutt verk eftir Eirík, ýmsir kamm- erhópar, kórar, einleikarar og ein- söngvarar hafa flutt verk eftir hann og mörg þeirra hafa verið sérpöntuð af listamönnunum. […] Eiríkur hef- ur lagt mikið af mörkum á sviði lista og menning- ar og átt sinn þátt í að litið er til Reykjanes- bæjar sem menn- ingarbæjar,“ seg- ir í tilkynningu frá bænum. Vinir og velunnarar Eiríks ætla að standa að hátíðartónleikum í Bergi í Hljómahöll 29. september í tilefni af 75 ára afmæli hans. Á efnisskrá verða eingöngu lög og tónverk eft- ir Eirík. Eiríkur listamaður Reykjanesbæjar Eiríkur Árni Sigtryggson Tónlistarmaðurinn Eðvarð Lárusson hefur verið útnefndur bæjarlista- maður Akraness 2018. Hann hóf ung- ur gítarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og útskrifaðist frá djassdeild Tónlistarskóla FÍH 1991. „Hann hefur á löngum og farsælum ferli spilað með mörgum af þekktustu tónlistar- mönnum landsins,“ segir í tilkynningu og í því samhengi minnst á Tíbrá, Start, Bubba, Blúsboltana, Bítladreng- ina blíðu, Andreu Gylfadóttur og Stórsveit Reykjavíkur. „Eddi hefur lengi starfað sem kennari við Tónlistarskólann á Akranesi. Hann hefur snert strengi í hjörtum ótal nemenda og þannig haft mikil og jákvæð áhrif á tón- listarmenntun Skagamanna og tónlistarlífið á Akranesi,“ segir í tilkynningu frá bænum þar sem einnig er bent á að Eðvarð sé vinsæll kennari. Eðvarð bæjarlistamaður Akraness 2018 Vinsæll Eðvarð Lárusson með gítarinn. Hraðþrif á meðan þú bíður Hraðþrif opin virka daga frá 8-18, um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Verð frá 4.300,- (fólksbíll) Bíllinn er þrifinn létt að innan á u.þ.b. 10 mínútum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.