Morgunblaðið - 26.06.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018
Garðtraktorar
í miklu úrvali
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Birni Bjarnasyni þykir réttilegaað Gunnlaugur Auðunn Júl-
íusson, sveitarstjóri í Borgar-
byggð, hafi birt áhugaverðan pistil
17. júní þar sem sagði meðal ann-
ars:
Það stekkur eng-inn lengra en
hann hugsar. Full-
veldið fyrir 100 ár-
um og síðan sjálf-
stæðið er að mínu
mati lykillinn að
þeim árangri sem
við höfum náð á al-
þjóðavettvangi í íþróttum og auð-
vitað svo mörgu öðru.
Hugarfarið er undirstaða svomargs. Að treysta á sjálfan
sig. Að vera stoltur af sér og sín-
um og gera sitt besta fyrir land og
þjóð. Að skipta máli. Nú er það
svo að það hefur örlað á því í um-
ræðunni á seinni árum að það sé
ekki sjálfsagt að vera stoltur af
landi og þjóð. Það þyki jafnvel
bera merki um annarlegar kennd-
ir í garð annarra þjóða að vera
ánægður með sitt. …
Þetta viðhorf kom upp í hugann,þegar ég horfði á mynd í
norska sjónvarpinu á dögunum,
sem var gerð um íslenska lands-
liðið í fótbolta. Það var rætt við
ýmsa sem ég tilgreini ekki frekar
og reynt að setja eitthvert sam-
hengi milli aðstæðna á Íslandi og
árangurs landsliðsins. Myndin var
gerð af íslenskum aðilum.
Tilfinningin, sem sat eftir aðþættinum loknum, var að það
virtist sameiginlegt með flestum
þeim sem rætt var við að þau virt-
ust eiga óskaplega erfitt með að
segja eitthvað jákvætt um sitt
heimaland. Það virtist frekar
reynt að tína til það sem lakara
var. Það var t.d. fussað þegar rætt
var um hvort Ísland væri velferð-
arríki.“
Gunnlaugur Auð-
unn Júlíusson
Sjálfsmarkakóngar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 25.6., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 7 rigning
Akureyri 11 skýjað
Nuuk 3 skúrir
Þórshöfn 11 léttskýjað
Ósló 29 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 18 léttskýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 24 heiðskírt
Glasgow 22 léttskýjað
London 27 heiðskírt
París 24 léttskýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Hamborg 15 súld
Berlín 20 skýjað
Vín 20 skýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 28 heiðskírt
Barcelona 26 heiðskírt
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 19 skúrir
Aþena 25 léttskýjað
Winnipeg 19 alskýjað
Montreal 18 léttskýjað
New York 24 léttskýjað
Chicago 23 heiðskírt
Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
26. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:59 24:04
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:14 23:47
Gríptu boltann er
heiti verkefnis
sem kynnt verður
á ráðstefnu á veg-
um Evris kl. 13 í
Iðnó í dag. Verk-
efnið er styrkt af
Erasmus+-
áætlun ESB, að
því standa fjögur
teymi frá Íslandi,
Bretlandi og
Litháen og þar er unnið að því að
þróa aðferðafræði og hugmyndir,
fyrir fólk um og yfir fimmtugt.
Í fréttatilkynningu frá Evris segir
að með hækkandi aldri og bættum
lífskjörum séu verulegar líkur á því
að um fimmtugt eigi fólk eftir 30 góð
ár. Spurningin sé hvernig eigi að
verja þeim með sem bestum hætti
bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og
vinnumarkaðinn.
Meðal þeirra sem flytja erindi á
ráðstefnunni er Frances Coppola,
sem er dálkahöfundur hjá m.a. BBC,
New York Times og The Guardian.
Hún segir frá eigin reynslu af því að
skipta um starfsferil á miðjum aldri
og mikilvægi fólks á þeim aldri fyrir
vinnumarkað og samfélagið.
Að skipta
um starf um
fimmtugt
Ráðstefna um
„Gríptu boltann“
Frances
Coppola
Líklegt má telja að ökumaður
Toyota Landcruiser-bifreiðar hafi
sofnað eða misst athygli við akst-
urinn af öðrum ástæðum þegar hann
ók yfir á rangan vegarhelming í
Hvalfjarðargöngunum fyrir tveimur
árum og olli bana 67 ára gamallar
konu. Þetta er niðurstaða skýrslu
Rannsóknarnefndar samgöngu-
slysa.
Slysið varð upp úr hádegi hinn 5.
júní árið 2016, um 700 metra fyrir
innan syðri munna ganganna.
Toyota-bifreiðin var á suðurleið og
var ekið yfir á rangan vegarhelming,
í veg fyrir Subaru-bifreið á norður-
leið. Konan sem lést var farþegi í
Subaru-bifreiðinni. Ökumenn
beggja bifreiða og farþegar í Toyota-
bifreiðinni slösuðust mikið en allir
voru í beltum.
Í skýrslu rannsóknarnefndar er
þeim ábendingum komið á framfæri
að til að auka öryggi ætti að kanna
með möguleika á að breikka rifflur á
milli akstursátta. Rifflur virka með
þeim hætti að þær mynda hávaða og
titring þegar ekið er yfir þær sem er
ætlað að vara ökumann við því að
bifreiðin sé að fara yfir miðlínu.
„Jafnframt beinir nefndin því til veg-
haldara að leita leiða til að auka vit-
und ökumanna á nauðsyn þess að
viðhalda nægilegu bili milli ökutækja
í göngunum,“ segir í skýrslunni.
hdm@mbl.is
Bílstjóri sofnaði sennilega undir stýri
Rannsóknarnefnd skilar skýrslu um banaslys í Hvalfjarðargöngum árið 2016
Morgunblaðið/Sverrir
Göngin Banaslys varð árið 2016.