Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 ✝ Pétur Böðv-arsson fæddist í Reykjavík 18. ágúst 1948. Hann lést á Landspít- alanum 18. júní 2018. Foreldrar Pét- urs voru Böðvar Pétursson f. 25. desember 1922, d. 21. febrúar 1999 og Halldóra Jóns- dóttir f. 27. ágúst 1920, d. 16. nóvember 2000. Systur Péturs eru Guðrún Auður f. 11. júlí 1946, búsett í Reykjavík, og Margrét f. 8. maí 1952, búsett í Hafnarfirði. Pétur giftist Guðbjörgu Úlfs- dóttur 25. júlí 1976. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru Kol- brún Erla f. 1. mars 1973, maki Björn Sveinlaugsson f. 4. nóv- ember 1966, börn: Hildur María f. 13. október 1995, d. 2. maí 2003 og Daníel f. 22. des- ember 1998. Hjördís f. 4. júlí 1975, maki Jonas Hansen f. 9. júní 1979, börn Hjördísar: Jas- Erna Þórðardóttir f. 28. desem- ber 1995. Pétur var fæddur og uppal- inn í Reykjavík þar sem hann stundaði og keppti í íþróttum með Fram og ÍR. Pétur var valinn í unglingalandsliðið í handknattleik og varð bæði Reykjavíkur- og Íslandsmeist- ari í knattspyrnu með Fram. Þá varð hann Íslandsmeistari í körfuknattleik með ÍR. Pétur lauk íþróttakennaranámi frá Kennaraskólanum á Laugar- vatni og var í lýðháskóla í Søn- derborg í Danmörku eitt ár. Pétur starfaði lengst af við kennslu í Seyðisfjarðarskóla og var skólastjóri við skólann frá 1991 til 2003. Pétur sat í bæjarstjórn Seyðisfjarðar í eitt kjörtímabil fyrir Tinda. Á ár- um sínum á Seyðisfirði var Pétur mjög virkur með íþrótta- félaginu Hugin þar sem hann meðal annars keppti sjálfur og var þjálfari m.a. í handbolta. Fyrir störf sín í þágu íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar var honum veitt starfsmerki ÚÍA 1987. Útför Péturs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 26. júní 2018, klukkan 11. on Ýmir f. 17. des- ember 2001 og Sunna Maren f. 27. ágúst 2008. Böðvar f. 15. desember 1985, maki Val- gerður Björns- dóttir f. 15. janúar 1991. Fyrir átti Pétur Írisi Brynju, f. 28. júlí 1972, maki Tom Eg Tychsen f. 5. októ- ber 1971, synir þeirra eru Tobias f. 22. júní 2002 og Pat- rick f. 6. ágúst 2004. Dóttir Ír- isar Brynju af fyrra hjónabandi er Sara f. 24. maí 1994. Sambýliskona Péturs er Val- gerður Petra Hreiðarsdóttir f. 7. apríl 1961. Börn hennar eru Hafþór f. 23. júlí 1985, maki Sara Alexía Sigríðardóttir f. 23. janúar 1992, sonur Hafþórs: Aron Dagur f. 19. desember 2005. Elsa f. 1. október 1989, maki Eggert Gunnþór Jónsson f. 18. ágúst 1988, börn: stúlka f. 13. maí 2018. Hilmir f. 22. október 1995, maki Svandís Pétur bróðir okkar hefur kvatt þennan heim. Hann hringdi í okkur systurnar 22. maí sl. og sagði okkur að hann hefði greinst með krabbamein. Innan mánaðar er hann farinn, tveimur mánuðum fyrir sjötugs- afmælið sitt. Við systurnar höfðum verið að gantast við hann um hvað við ættum að gera á afmælisdaginn hans. Þegar hann varð sextugur, heimsóttum við hann ásamt mökum okkar til Spánar, þar sem hann dvaldi. Ferðin var mjög ánægjuleg og er okkur öllum mjög minnisstæð. Pétur bróðir var hógvær maður, hafði skemmtilegan húmor og gat verið mjög stríðinn. Hann var góður íþróttamaður, Reykjavík- urmeistari og Íslandsmeistari með Fram í handbolta og spil- aði knattspyrnu með öllum flokkum Fram og endaði í meistaraflokki. Hann varð einnig Íslands- meistari í körfubolta með ÍR. Hann hafði mikinn áhuga á blaki og fylgdist grannt með Formúlunni. Seinna tók svo golfið við. Við systurnar eigum margar minningar um góðan bróður og er aðfangadagur í æsku okkur minnisstæður. Rétt fyrir kl. 4 þann dag hljóp Pétur út í Steinasjoppu sem var á Langholtsveginum og keypti allar jólagjafirnar, kon- fektkassa, handa öllum. Þar með var jólagjöfunum reddað. Við þökkum Pétri samfylgdina og kveðjum hann með þessum ljóðlínum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guðrún Auður (Auja) og Margrét (Magga). Fyrsta myndin sem kemur upp í hugann af Pétri er hann sitjandi örlítið álútur, pottþétt með sígarettu, segir fátt en laumar við og við út úr sér at- hugasemdum sem oftar en ekki hitta í mark. Ef hann náði góðu skoti á viðmælandann kom al- veg sérstakur glampi í augun á honum sem ekki er hægt að kalla annað en Pétursglampa því þá var honum skemmt. Pét- ur var stríðinn með afbrigðum, jafnvel mætti segja að hann hefði verið óþolandi stríðinn á köflum. Flest okkar kunna sög- ur af honum þar sem stríðnin kemur við sögu, þar má nefna talandi tölvur í upphafi tölvu- aldar, dönskuprófin sem voru svo erfið að ekki var hægt að eyða þeim og fleira í þeim dúr. Vinaleikinn „víðfræga“ í jóla- gleðinni tók hann alla leið og ekki leiddist honum járnbraut- arlestarleikurinn; saklausir kennarar hlaupandi út um allt hús kallandi tjú tjú fannst hon- um nú ekki leiðinlegt. Pétur var mikill íþróttamað- ur á sínum yngri árum og var jafnvígur á flestar boltaíþróttir. Það var þó ekki það fyrsta sem manni datt til hugar þegar mað- ur hitti hann því aldrei var síg- arettan langt undan. Hann var jafnvel búinn að þróa með sér reykingatækni sem fólst í því að anda reyknum frá sér út um munninn og svo aftur inn um nefið og þar með nýta sígarett- una til fulls. Hann drakk mikið kók og hefur sennilega verið svokallaður kókisti. Já, ekki fór hann vel með heilsuna og hafði nokkurt heilsuleysi hrjáð hann árum saman, hann hafði fengið hjartaáfall, var einnig lengi slæmur í baki. En aldrei skyldi hann kvarta né sleppa vinnu vegna heilsubrests, nei, það var þrjóskast áfram og má með sanni segja að hann hafi verið með þrjóskari mönnum, sem var bæði kostur og galli í hans lífi. Sem kennari og skólastjóri var Pétur skipulagður, ná- kvæmur og metnaðarfullur. Hann lagði mikla áherslu á að skólinn stæði sig vel í hvívetna og það skilaði sér líka í árangri skólans, m.a. á samræmdum prófum. Nýir kennarar voru jafnvel teknir á teppið hjá hon- um og þeim lesinn pistillinn um að menn ættu að standa sig. Pétur var vinsæll meðal nem- enda, hann náði vel til þeirra og var flinkur í agastjórnun. Hann var góður íþróttakennari og far- sæll þjálfari, var m.a. fenginn til að þjálfa handboltalið ÚÍA, sem undir hans stjórn náði frá- bærum árangri, varð t.d. lands- mótsmeistari. Starfsfólk skólans var mjög ánægt með starfsandann í skól- anum undir hans stjórn. Sam- heldnin var mikil, samskiptin voru jafnræðisleg og mátti jafn- vel líkja hópnum við stóra fjöl- skyldu. Alltaf var auðvelt að leita til hans og hann ávallt all- ur af vilja gerður að liðka til og leysa úr málum. Meðfram kennara- og þjálf- arastarfinu var Pétur árum saman forstöðumaður Sundhall- ar Seyðisfjarðar og stjórnaði þar af sömu nákvæmni og reglufestu og einkenndi hann og störf hans hvarvetna. En bak við reglufestuna og stríðn- ina leyndist fleira og hann var einstaklega umhyggjusamur við þá sem hann hélt utan um, jafnt í þjálfun sem kennslu. Það segir ansi margt um persónu Péturs; hann var ekki að bera tilfinn- ingar sínar á torg, eða tjá sig meira en þurfti en fyrir innan skelina var hjarta úr gulli. Við viljum votta aðstandend- um Péturs okkar innilegustu samúð. Minning um stríðinn, góðan og ljúfan samstarfsmann lifir í hjörtum okkar. Takk fyrir allt, Pétur Bö. F.h. starfsfólks Seyðisfjarð- arskóla, Jóhanna Gísladóttir og Þórunn Hrund Óladóttir. Margs er að minnast, þegar hugsað er til baka og valdar eru úr minningar um þig, kæri Pét- ur. Ég átti þess kost að kynnast þér sem íþróttakennaranum mínum þegar ég var barn, þjálf- aranum mínum þegar ég varð unglingur og svo sem sam- starfsmaður í Seyðisfjarðar- skóla, þar varst þú besti fyr- irliði sem hægt er að hugsa sér. Þar sem er góður fyrirliði er gott lið, reynsla þín af bolta- íþróttum og liðsheild skilaði sér vel inn í starf skólastjóra. Liðið þarf að standa þétt saman og vera í sókn, það er besta vörnin áttir þú til að segja og það var sókn í liðinu þínu hér í Seyð- isfjarðarskóla. Með þig sem fyr- irliða, alltaf léttur í skapi, lyftir undir þegar á þurfti að halda studdir og stappaðir stálinu í starfsfólk og nemendur. Ef við vældum undan einhverju náðir þú að breyta því á augabragði í ákafa löngun af okkar hálfu til að bæta skólann sem heild. Endalaus hvatning og glettni og gaman að koma til vinnu alla daga og öll árin. Fyrirliðinn sá til þess að allir voru með alltaf, sporléttur og hjálpsamur, lausnamiðaður. Þú settir þína liðsmenn í fyrsta sæti, bæði starfsfólk og nemendur. Böfflur (vöfflur) á föstudögum svo við gætum endað vikuna á góðum samræðum og fengið klapp inní helgina. Alla daga var maður tilbúin að vera besta útgáfan af sjálfum sér svo liðið Seyðis- fjarðarskóli næði að eflast og blómstra, takk fyrir samveruna, kæri vinur, njóttu þess að elta bolta og horfa á leiki í drauma- landinu. Unnur Óskarsdóttir, Seyðisfirði. Pétur Böðvarsson Við vorum fimm til sex barnabörn afa Páls og ömmu Sigríðar sem nánast fluttum með ömmu og mæðrum okkar á hverju vori upp í sumó og dvöldumst þar mestallt sumarið. Þar var meira frelsi en í miðbæ Reykjavíkur og þar áttum við, auk ömmu og við- komandi mömmu, tvær sumar- mömmur hver, auk margra unglingsfrænkna og -frænda Anna Sigríður Gunnarsdóttir ✝ Anna SigríðurGunnarsdóttir fæddist 31. október 1929. Hún lést 13. júní 2018. Útförin fór fram 25. júní 2018. sem fylgdu og gjarnan hjálpuðu til með heimilis- haldið. Pabbarnir og afi komu bara um helgar því langt var að fara; alla leiðina inn fyrir Elliðaár og upp Ár- túnsbrekkuna, eftir Kóngsveginum, yfir heyribrúna og upp eftir fram hjá Reykjalundi, þar niður aðra ógn- arbratta brekku og inn í skóg- inn. Þarna var sælureitur, heitur hver undir bílskúrsgólfinu, sund- laug, volgur lækur, rifs, sólber, jarðarber ömmu og afi sem sló með orfi og ljá, allt nema álfhól- inn. Við lékum okkur úti við all- an liðlangan daginn, reyndum að byggja brýr yfir slýhallir, veiða ál eða ná hestunum, sóttum mjólkina á brúsa upp á Sólvelli eða egg í poka, fórum í fjall- göngur, berjaferðir eða skottuð- umst á hitaveitustokknum með tjörutyggjó í munni, kannski eft- ir einhverju sem vantaði úr kaupfélaginu. Í minningunni ríkti gleðin ein, kæruleysislegt öryggi og alltaf gott samkomu- lag. Við undirritaðar vorum svo heppnar að Anna Sigga var þarna önnur sumarmamma okk- ar og síðar þegar hún og Magn- ús bættu um betur, nefndu húsið Hvarf og bjuggu þar með börnin fimm og Sigurveigu móður Önnu var alltaf gaman að koma í heimsókn hvort sem var í helg- argistingu eða ófá afmæli og jólaveislur. Anna Sigga var alltaf góð við okkur, skemmtileg, falleg, minn- ug, fróð og auðvitað myndarleg húsmóðir að þeirra tíma hætti. En um leið var hún í hópi vin- kvenna sem samhliða barneign- um og heimilisstörfum öfluðu sér flestar háskólamenntunar. Þær voru af kynslóð reykvískra kvenna sem tóku vaxandi þátt í atvinnulífinu og af áhuga ruddu þær brautina, bjuggu í haginn og gerðu það til að mynda að verkum að okkur, jafnt dætrum þeirra sem sonum, þótti sjálf- sagt að konur og karlar stæðu jafnfætis hvert öðru. Það var vegna elju þeirra, forgöngu og víðsýnis að okkar varð valið og að við gátum gert hvað það sem hugur okkar stóð til. Við þökkum Önnu Siggu fyrir að vera okkur góð fyrirmynd og fyrir þann tíma sem við áttum með henni. Vinum hennar og fjölskyldu allri sendum við inni- legar samúðarkveðjur. Ingibjörg Pétursdóttir, Guðrún Þorgrímsdóttir og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Móðir mín og tengdamóðir, GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, Gurra, frá Fögrubrekku í Súðavík, til heimilis í Kaliforníu, lést í Anaheim í Kaliforníu laugardaginn 16. júní eftir stutt veikindi. Fyrir hönd aðstandenda, Edward Magni Scott Jónína Karvelsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR, Skipastíg 6, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 23. júní. Sveinn Þ. Sigurjónsson Sjöfn Sveinsdóttir Sólmundur Sigurðsson Ásta Sveinsdóttir Þorsteinn Helgason Jóhannes G. Sveinsson Rakel Erlingsdóttir Þór Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, JÓHANNA AÐALBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR frá Hestgerði í Suðursveit, lést sunnudaginn 17. júní. Útför hennar fer fram frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 28. júní klukkan 14. Jarðsett verður í Kálfafellsstaðarkirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda, Trausti S. Harðarson Birna R. Aðalsteinsdóttir Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, LÁRUS J. HELGASON geðlæknir, Miðleiti 7, Reykjavík, lést á Vífilsstöðum laugardaginn 23. júní. Ragnhildur Jónsdóttir Marta Lárusdóttir Ólafur Þór Ævarsson Helgi Lárusson Hólmfríður Haraldsdóttir Guðrún Lárusdóttir Vignir Sigurðsson Rafnar Lárusson Þorbjörg M. Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar og amma, ÁSLAUG HARTMANNSDÓTTIR sérkennari, lést á heimili sínu laugardaginn 23 júní. Hartmann Ingvarsson Kristín Ósk Ingvarsdóttir Emil Hjörvar Petersen Ronja Áskatla Petersen Þrándur Alvar Petersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.