Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.2018, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 Vala Garðarsdótir fornleifafræðingur skrifar grein í Mbl. 20. júní þar sem hún kvartar yfir ummælum í garð víkinga frá „sjálfskipuðum sér- fræðingum“ sem séu sett fram af „vanþekk- ingu og jafnvel for- dómum“. Hún telur að sérkenni víkinga hafi meðal margs annars verið rúnarist- ur og myntslátta, jafnvel ritstörf. Af því tilefni er við hæfi að varpa fram eftirfarandi spurningu: 1. Eru einhverjar heimildir um að Norðurlandabúar á miðöldum hafi verið nefndir víkingar ef þeir voru ekki ræningjar? Það voru einkum breskir og þýsk- ir rómantískir höfundar á 18. og 19. öld sem tóku upp á því í sögum sín- um að kalla norræna miðaldamenn víkinga. Það gat að vissu leyti verið skiljanlegt því nor- rænna víkinga var helst getið í gömlum annálum í samræmi við þá óskráðu reglu sem enn gildir í frétta- mennsku að hryðju- verk þykja frásagn- arverðari en friðsam- legt athæfi. Hvaða hvatir lágu til þess að farið var að upphefja víkinga sem hetjur á þessum tímum er efni í aðra og viðameiri um- fjöllun. Mér vitanlega er einungis getið um víkinga í tengslum við ránsferð- ir. Auðvitað er engan veginn úti- lokað að ræningjar þessir hafi gert sér ýmislegt til dundurs þegar þeir lágu ekki í hernaði, jafnvel fengist við rúnaristur og myntsláttu, en hvergi verður séð að þvílík iðja hafi verið einkennandi fyrir þá. Auk þess er það heldur lítillækkandi fyrir frið- sama kaupmenn, bændur, fiskimenn eða ágæta listamenn til munns og handa að kalla þá bara víkinga í staðinn fyrir til að mynda smiði og skáld. Þess má einnig geta að í sögum um íslensk skáld og ævintýramenn eins og Björn Hítdælakappa, Gunn- laug ormstungu, Hallfreð, Kormák og Þormóð, sem stundum ortu vísur um vígaferli, voru þeir aldrei nema örfá sumur í víkingu og þá sem óbreyttir liðsmenn en engir for- kólfar. Jafnvel Egill Skallagrímsson var ekki nema tvö sumur í víkingu og reyndar með þriggja áratuga millibili. Voru víkingar annað en ræningjar? Eftir Árna Björnsson » Auðvitað er engan veginn útilokað að ræningjar þessir hafi gert sér ýmislegt til dundurs. Árni Björnsson Höfundur er doktor í menningar- sögu. arnibjorns@simnet.is Þegar ég var lítil horfði ég stundum á Star Trek. Ég sá sam- töl milli aðalpersón- anna fara fram á stórum skjáum inni í gríðarlegum geim- stöðvum. Ég hugsaði með mér hversu „framtíðarlegt“ og framandi þetta væri. Nú sjáum við slík „framtíðarsamtöl“ eiga sér stað á hverjum degi og enginn talar kling- ónsku. Við erum greinilega stödd í framtíðinni – en hvað þýðir það? Frá árinu 2014 hefur Trappa boð- ið upp á fjarþjónustu talmeinafræð- inga og seinna atferlisráðgjafa, námsráðgjafa og einnig kennara. Trappa notar forritið Köru sem er íslenskur fjarfundahugbúnaður, þró- aður af sérfræðingum og forriturum sem hafa það að markmiði að breyta og umbylta aðgengi að sérfræð- ingum. Trappa hefur sett sér þá stefnu að sinna talþjálfun barna í nærumhverfi þeirra og fara tímarnir gjarnan fram á skólatíma og í skól- anum á öruggan hátt með fjarbúnaði Köru. Margir kostir fylgja þessu fyr- irkomulagi. Tæknin er nýtt til hins ýtrasta, notast er við íslensk og er- lend smáforrit, fundir með starfs- fólki og foreldrum eru reglubundinn hluti af þjónustunni og hluti tíma barns er markvisst nýttur í fræðslu til foreldra og/eða starfsfólksins sem heldur utan um þjálfunina á hverjum stað. Trappa hefur haldið áfram að þróa verklag utan um fjarþjónustu og sinnir nú fólki, börnum og full- orðnum víðs vegar um landið með góðum árangri. Nýlega var send út þjónustukönnun til þeirra 33 skóla (leik- og grunnskóla) sem við þjón- ustum. Niðurstöður voru afskaplega jákvæðar og sýna með ótvíræðum hætti að notendur þjónustu eru meira en reiðubúnir til þess að nýta sér þá kosti sem fjarheilbrigðisþjón- usta – og önnur fjarþjónusta – hefur í för með sér. Tæp 90% svarenda sögðu að börnunum þætti alltaf eða næstum alltaf gaman að fara í tal- þjálfun. 96% töldu að talþjálfun bæri árangur. 94,4% svarenda töldu sig hafa lært aðferðir í tímum barnsins sem þeir gætu sjálfir nýtt sér í starfi og er þar komin ein frumforsenda þess starfs sem við vinnum – fræðsla og handleiðsla til þeirra sem eru all- an daginn – alla daga með börn- unum. 83% svarenda höfðu enn- fremur áhuga á að fá enn meiri og sértækari fræðslu varðandi ýmislegt svo sem framburð, málþroska, smá- forrit og spil. 83,3% höfðu nýtt sér smáforrit og leiki sem talmeinafræð- ingur hafði notað eða kynnt fyrir þeim. Öllum svarendum þótti annað hvort gott eða mjög gott að eiga samskipti við talmeinafræðinginn í gegnum netið og 88,9% vildu gjarn- an nýta þjónustuna áfram. Við sjáum því að viðtökurnar eru ákaflega góð- ar, almenn ánægja með þjónustuna er mikil og mikill vilji til að halda henni áfram. Í könnuninni var einnig spurt um helstu kosti þjónustunnar og komu eftirfarandi fullyrðingar fram: – Auðvelt aðgengi að virkilega góðri þjónustu sem oft er mikil þörf á. – Gefur börnum tækifæri á kennslu sem annars stæði mögulega ekki til boða eða væri of flókið ferli fyrir for- eldra að standa í. – Lærum heilmikið og hægt að halda áfram með vinnuna á leikskól- anum og lítið rask fyrir barnið eru helstu kost- ir. – Hún er skilvirk og einföld, þægileg fyrir barnið og minnkar rask á degi þess – Ég sé eingöngu kosti. Frábær leið til að ná til þeirra sem ekki geta nýtt sér sérhæfða þjónustu á landsbyggðinni. Ég mæli með þessu við alla sem þurfa á tal- þjálfun að halda. – Frábær valkostur að geta setið tíma í gegnum netið, sparar m.a. tíma og ferðalög. Þekkingin situr eftir í skólanum og nýtist því nem- anda/nemendum áfram. Fjarheilbrigðisþjónusta breytir ekki einungis öllu fyrir notendur hennar. Hún mun með tíð og tíma breyta öllu fyrir sérfræðingana sem henni sinna. Búsetuskilyrði munu gjörbreytast fyrir allar tegundir sér- fræðinga sem geta sinnt störfum sín- um af sömu kostgæfni og gæðum og af þeim er krafist – en samt sem áð- ur í gegnum netið. Í framtíðinni munu sérfræðingarnir ekki einungis búa víðar en á höfuðborgarsvæðinu – þeir munu búa erlendis og samt sem áður geta sinnt sínum störfum vel. Það er því með ólíkindum – að yf- irvöld sjái ekki sóma sinn í því að spýta í lófana og gera það sem gera þarf til að aðlaga lög og reglugerðir að fjarheilbrigðisþjónustu og fjar- þjónustu. Fjarheilbrigðisþjónusta er ekki jafn framandi og klingónska og er þaðan af síður upprunnin frá Deltasvæðinu. Hún er raunveruleiki íslenskra heilbrigðisstarfsmanna, kennara og fjölda nemenda og skjól- stæðinga. Það eina sem þarf að gera er að hefjast handa. Íslenska og klingónska Eftir Tinnu Sigurðardóttur Tinna Sigurðardóttir »Niðurstöður sýna að notendur þjónustu eru meira en reiðubúnir til þess að nýta sér þá kosti sem fjarþjónusta hefur í för með sér. Höfundur er starfsmaður Tröppu og Köru Connect. tinna@trappa.is Gamalt þýskt orða- tiltæki segir: „Das letzte Hemd hat keine Taschen“. Þennan þýska málshátt mætti þýða: „Líkklæðin hafa enga vasa“. Hvað skyldi vera átt við með þessu? Þegar lífinu lýkur er líkami okkar færður í líkklæði og komið fyrir í líkkistu og henni lokað. Eðlilega þarf ekki að hafa neina vasa á þess- um hinstu klæðum því enga minnstu möguleika höfum við að hafa með okkur eftir dvöl okkar í þessum heimi einhver veraldleg verðmæti sem eru okkur kær. En hvað við höfum gert fyrir samfélagið og hvernig breytni okkar hefur verið í lifandi lífi mun lifa áfram í minningu þeirra sem áfram lifa og minnast þeirra sem látnir eru. Ætli ekki sé mikilvægara að vera minnst fremur með góðar en blendnar tilfinningar. Hvers vegna eru svo margir uppteknir af auðsöfnun sem að lok- um kemur þeim ekki að neinu gagni? Dans- inn kringum gullkálf- inn hefur sjaldan verið stiginn jafn mikið og nú, launamunur á Ís- landi hefur líklega aldrei verið meiri. Sjaldan hefur orðið jafndjúp gjá og nú milli þeirra sem mest eiga og hinna sem lítið eða jafnvel ekkert hafa. En er það tak- mark lífsins? Gera allir sér grein fyrir þeirri ábyrgð að taka til sín með lítilli fyrirhöfn með einu hand- taki það sem aðra nægir kannski ekki öll ævin? Eitt af þeim athafnaskáldum sem mörgum auðmönnum hefur fundist mest til koma og sjá sem sína miklu fyrirmynd er Einar Benediktsson skáld. Hann var um tíma á bestu ár- um sínum meðal allra auðugustu Ís- lendinga. Þegar líða tók á ævi hans hallaði heldur betur undan fæti hjá honum. Eftir fyrri heimstyrjöldina fjaraði hratt undan velgengni Ein- ars og hann varð háður öðrum sök- um erfiðleika í einkalífi. Stundum átti hann fátt annað en fötin sem hann stóð í fyrir utan nokkrar jarð- eignir sem ekki voru eftirsóknar- verðar sökum þess hversu þær voru rýrar til búskapar. Einar samdi á bestu árum sínum einhvern merkasta útfararsálm sem unnt er að hugsa sér og oft er sung- inn við jarðarfarir á Íslandi. Kvæðið er fjögur erindi og er það fyrsta og þekktasta : Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi’ ei saka. Einar var með okkar fremstu öndvegisskáldum í byrjun síðustu aldar. En hann var allt í senn lög- fræðingur og sýslumaður, ritstjóri og blaðaútgefandi, skáld, braskari og prettari fram í fingurgóma, heimsmaður, tungumálagarpur hinn mesti en umfram allt heimspek- ingur og lífslistamaður. Höfum hugfast: „Hver er sinnar gæfu smiður.“ Hvernig verður minningin um okkur? Verður okkar minnst með trega og söknuði vina og ættingja – eða munu sam- tímamennirnir minnast okkar með fyrirlitningu fyrir að hafa vera ein- staklega harðir í horn að taka og hugsa einungis um að efnast á kostnað annara! „Sá má súpa hel – Farvel!“ Hver er tilgangurinn með auðsöfnun? Eftir Guðjón Jensson »Misskipting auðs er eitt af klassísku um- ræðuefnum fólks í menningarlöndum. Auð- menn hafa alltaf verið til sem og fátækt fólk. Guðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. Í kenningum mor- móna segir skýrt, að maðurinn eigi sér for- tilveru og sé kallaður til mismunandi starfa á jörðu, jafnvel löngu áð- ur en líkami hans byrj- ar að myndast. Við komum samkvæmt því inn í þennan heim vegna tilgangs og sú leið liggur inn í móð- urlíf, þar sem sálin klæðist holdi, sem er í mótun alveg frá getnaði til fæðingar. Í Níkeujátningu kristinna manna segir að Jesús Kristur hafi klæðst holdi, þegar hann kom til jarðar og tók á sig mannsmynd. En líkaminn er stundum nefndur hús eða bústað- ur úr holdi. (The Paraleipomena of Jeremiah 6:3) Að klæðast holdfötum sálarinnar í búningsherbergi því, sem kallast móðurlíf, er því mikil og nauðsynleg undirbúningsvinna fyrir jarðlífið. Í The Apocalypse of Esdras 5:13, sem er eitt af hinum apókrýfu ritum, segir „að sálin komi í fóstrið á sjö- unda mánuði, þar sem það sé þá tilbúið að taka við henni“. Það segir sig því sjálft, að ef búið er að eyða fóstrinu fyrir þann tíma, er það ekki lengur staður fyrir sál- ina að búa í. Það er því ljóst, að vera fóstursins í móð- urlífi er lífsnauðsyn- legur þroskatími mannverunnar alveg frá getnaði, tímaskeið fyrir fæðingu, ómiss- andi tímabil í lífi hvers manns, því án hennar ætti maðurinn sér enga leið inn í mannheim, sem lifandi sál í lifandi holdlíkama. Því segir í Genfarheiti lækna, að vernda skuli mannslíf allt frá getnaði. Nýlega voru samþykkt ný lög á Írlandi, sem gera konum þar í landi auðveldara að eyða fóstrum sínum á öruggan og löglegan hátt með svo- kölluðu þungunarrofi, sem eins mætti nefna lífrof. Reitt er þungt til höggs gagnvart hinum varnarlaus- ustu á meðal varnarlausra. Kristindómurinn kennir hins veg- ar, að lífið sé heilagt og trúaðir menn treysta á betri tíma þeim til handa, sem virða og halda boðorð Guðs. Mér kom í hug í þessu sambandi fal- leg tilvitnun, sem ég hafði nýlega lesið áður en umrædd frétt barst frá Írlandi, og er á þessa leið: „Vegna kærleika til þeirra, sem enn eru óbornir, mun hin nýja kynslóð rækja helgasta starf náttúrunnar, það, að gefa þeim sálum, sem eiga að íklæð- ast holdi, hið besta er hún getur látið í té.“ (Andi hinna óbornu, bls. 28-29) Hversu langt hefur ekki hin and- lausa kynslóð vorra tíma borið af leið með helstefnu sinni í garð hinna óbornu sálna. Vonandi sjá fleiri ung- ar og verðandi mæður hið göfuga hlutverk móðurinnar, sem opnar hinum óbornu leið til jarðlífsins. Hinir óbornu Eftir Einar Ingva Magnússon » Vera fóstursins í móðurlífi er lífs- nauðsynlegur þroska- tími mannverunnar al- veg frá getnaði, tímaskeið fyrir fæðingu, ómissandi tímabil í lífi hvers manns. Einar Ingvi Magnússon Höfundur er áhugamaður um trú- og samfélagsmál. einar_ingvi@hotmail.com Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.