Morgunblaðið - 26.06.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 26.06.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2018 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Útsöluverð 4.997 verð áður 9.995 stærðir 37-41 Útsöluverð 2.998 verð áður 9.995 stærðir 36-42 Útsalan er hafin 30-70% afsláttur Leður sandali Leður strigaskór Kr. 14.900.- Str. 36-46 3 litir 2-BIZ buxur Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Næstkomandi fimmtudag mun „Formula Student“-lið Háskóla Ís- lands, Team Spark, afhjúpa nýj- asta bíl sinn við athöfn á Háskóla- torgi klukkan 17. Marín Lilja Ágústsdóttir, framkvæmdastjóri Team Spark, segir í samtali við Morgunblaðið verkefnið vera gríð- arlega tímafrekt en liðið heldur með bílinn á verkfræðikeppni í Barcelona nú í sumar. „Við förum til Barcelona á Formula Student og keppum á formúlubrautinni þar,“ segir Mar- ín en um 70 lið keppa í kepnninni í ár. Aðspurð hvort keppnin sé eins og hver önnur formúlukeppni segir Marín: „Nei. Við keppum í kapp- akstri en svo keppum við líka í hönnun og erum með hönnunar- kynningar. Þetta er svona verk- fræðikeppni.“ Lið Háskóla Íslands hefur tekið þátt í keppninni frá árinu 2011 en Marín tekur nú þátt í verkefninu í annað skipti. Hún segir íslenska liðið hingað til ekki hafa komist til neinna sérstakra metorða í keppn- inni en bætir við: „Það er bara mjög stórt afrek að ná að keyra í keppni. Við höfum einu sinni náð að keyra.“ Liðið samanstendur af um 40 há- skólanemum sem flestir leggja stund á einhvers konar verkfræði- nám. Meirihluti liðsmanna mun fara í keppnina á Spáni en Marín segir að liðsmenn starfi á einn eða annan hátt við bílinn á hverjum degi í næstum heilt ár. „Við erum að breyta burðar- virkinu. Við höfum alltaf verið með stálgrind en núna verður þetta svona sjálfberandi burðar- virki,“ segir Marín spurð að hvaða leyti bíllinn í ár er frábrugðinn þeim fyrri. Þá er bíllinn einnig rafmagnsbíll en lið Háskóla Ís- lands hafa alltaf teflt fram bílum knúnum rafmagni í Formula Stud- ent-keppninni. Við athöfnina á fimtudag mun einnig fara fram kynning á nafni bílsins og mun dr. Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands, flytja stutta ræðu. Þá verða einnig fulltrúar frá þeim fyrirtækjum sem styrkt hafa Team Spark við- staddir en Marín segir kostnað við verkefnið hlaupa á tugum millj- óna. Formúlubíll afhjúpaður í HÍ  Team Spark kynnir nýjasta formúlubílinn á Háskólatorgi á fimmtudag  Fjörutíu manns vinna við bílinn  Það er afrek að ná að keyra í keppni Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Kappakstursbíll Marín Lilja telur góðar líkur á að bílinn taki þátt í keppn- inni í Barcelona í ár. Mynd frá afhjúpun á formúlubíl Team Spark 2016. Fjórir eru slasaðir eftir harðan tveggja bíla árekstur á þjóð- vegi 1 nálægt afleggjaranum að Uppsölum, rétt vestan við Vatnsdalshóla, laust eftir klukkan hálfsex í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var fólkið flutt til aðhlynningar á Heilbrigðis- stofnunina á Blönduósi en einn- ig var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti þrjá á Landspítalann í Foss- vogi. Ekki hafa fengist upplýs- ingar um orsakir slyssins. Lög- regla var að störfum á vett- vangi til kl. rúmlega sjö í gærkvöld. Tveir bílar skullu harkalega saman Meirihluti hluthafa í Vinnslustöð- inni í Vestmannaeyjum (VSV) samþykkti á hluthafafundi í gær að fara fram á rannsókn á skulda- afskriftum Landsbankans gagn- vart félögum tengdum Guðmundi Kristjánssyni, nýráðnum forstjóra HB Granda, sem oftast er kenndur við Brim. Bæði Vinnslustöðin og Seil ehf. sem er stærsti hluthafi fyrirtækisins eru hluthafar í Landsbankanum. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum var kallað eftir rannsókn á því hvort um óeðlilega undir- verðlagningu hafi verið að ræða þegar félagi tengdu Guðmundi var veitt heimild til að kaupa Brim hf. út úr gjaldþrota móðurfélagi sínu, Línuskipum ehf., og skilja það fé- lag eftir sem eignalaust félag með milljarðaskuld við bankann. Sigurgeir Brynjar Kristgeirs- son, framkvæmdastjóri VSV, sagði í samtali við mbl.is í gær að rann- sóknarbeiðnin yrði lögð fyrir næsta hluthafafund Landsbank- ans. „Þar verður kannað hvernig það getur verið að maður sem hefur fengið afskrifaða 15 til 20 milljarða hjá bankanum sé kominn með 40 til 50 milljarða króna lán aftur,“ en þar vísar Sigurgeir Brynjar m.a. til þess að Landsbankinn fjár- magnaði 21,7 milljarða kaup Guð- mundar á ríflega 34% hlut Guð- mundar í HB Granda. Vilja rannsókn á lánveitingu Grímur Sigurðsson, lögmaður Brims, gefur lítið fyrir tillöguna. „Í huga Brims er augljóst að þessi tillaga Seilar hefur ekkert með rekstur VSV að gera og ekk- ert með hagsmuni hluthafa VSV að gera. Tillagan er greinilega svar meirihluta hluthafa VSV við lög- mætum beiðnum minnihluta hlut- hafa félagsins um rannsókn á lán- veitingum VSV til hluthafa félagsins og eingöngu sett fram til að drepa þessu máli á dreif.“ Þar vísar Grímur til tillögu sem var forsendan að baki boðun hluthafa- fundarins í gær. Hann var boðaður að kröfu Brims til að taka fyrir til- lögu um að lánveitingar VSV til tveggja starfsmanna og hluthafa í fyrirtækinu árið 2008 yrðu rann- sakaðar. Stjórnarformaður VSV hvatti fulltrúa Brims á hluthafafundinum til að draga tillögu sína til baka. Við því var ekki orðið og var sam- þykkt að efna til rannsóknarinnar. Aðeins þurfa 10% hluthafa að vera samþykk tillögu af þessu tagi til að rannsókn fari fram en Brim á 33,28% í VSV. Eigendur VSV takast hart á  Kalla eftir rannsóknum á báða bóga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Átök Eigendahópur VSV hefur um langt skeið verið klofinn vegna ágrein- ings. Ekkert bendir til þess að breyting verði á miðað við nýjustu vendingar. Um 90 fíkniefnamál komu upp í tengslum við tónlistarhátíðina Secret Solstice sem haldin var í Laugardaln- um um helgina. Lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu lagði aðallega hald á kannabisefni, en einnig ætlað kókaín, amfetamín, MDMA og e-töflur. Í tilkynningu frá embættinu kem- ur fram að við eftirlitið hafi lögreglan notið aðstoðar tveggja fíkniefnaleit- arhunda og reyndust þeir mjög vel. Eitthvað var um pústra á hátíðinni, en níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu. Eins og vænta mátti var ástand gesta misjafnt og þurfti að fjarlægja nokkra þeirra af svæðinu af þeirri ástæðu. Nokkuð var um kvartanir íbúa í nágrenninu vegna hávaða frá hátíðinni, en tilkynningarnar voru vel á annan tug. Í gærkvöldi sendi stjórn Foreldrafélags Laugalækjar- og Laugarnesskóla frá sér ályktun þar sem farið er fram á að borgaryfirvöld rifti samningi við skipuleggjendur hátíðarinnar þar sem ekki hafi verið staðið við fyrirheit um framkvæmd hátíðarinnar. Í ályktuninni er farið fram á að hátíðin fari ekki aftur fram í Laugardal og á svæði íþróttafélags- ins Þróttar. Þar kemur einnig fram að stjórn foreldrafélagsins viti fyrir víst að börnum og unglinum, allt nið- ur í 15 ára, hafi verið hleypt inn á svæðið og gert kleift að kaupa áfengi á svæðinu. Níutíu fíkniefnamál og níu líkamsárásir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.