Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 3. J Ú L Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  154. tölublað  106. árgangur  HALLAR VERULEGA Á KARLKYNIÐ Á TÓNLEIKUNUM Í ÁR ÁTTRÆÐ PERLA GEFUR LAUNIN Á HM TIL GÓÐ- GERÐARMÁLA REYKJARFJARÐARLAUG HEILLAR ENN 12 KYLIAN MBAPPÉ ÍÞRÓTTIRHÁTÍÐ Í SKÁLH0LTI 30 500 SÆTI Á 5.000 KR. Fyrstur kemur, fyrstur fær Fljúgðu innanlands. Bókanlegt í dag frá kl. 10:00 til miðnættis. Ferðatímabil: 1.–31. ágúst. Morgunblaðið/Eggert Tjaldsvæði Gagnrýnt er að of þétt sé á milli húsbýla í Laugardal. Það skapi hættu.  Brunavörnum á tjaldsvæðinu í Laugardal er ábótavant. Þetta eru niðurstöður úr eldvarnaskoðun Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæð- inu. Þá er reglum Mannvirkjastofn- unar ekki fylgt eftir. „Það er bara allt í rugli þarna,“ segir Sigurmar Davíð Gíslason, sem hefur búið á tjaldsvæðinu síðan í september. Hann kveðst ósáttur við ástandið og hefur kvartað við starfsfólk tjaldsvæðisins. „Ég er bú- inn að tala við þau nokkrum sinnum en það er aldrei neitt gert í mál- inu,“ segir Sigurmar. Eftir því sem hann kemst næst hefur nálægð hús- bílanna áhrif á tryggingar hans. „Ef ekki er hugsað um bilið á milli húsbílanna getur það orðið til þess að tryggingarnar mínar falli úr gildi og ég fengi ekkert bætt ef kviknaði í.“ »4 Brunavörnum á tjaldstæði í Laugar- dal ábótavant Eitt starf dugar ekki » Laufey Elísabet Gissurar- dóttir, formaður Þroskaþjálfa- félags Íslands, segir marga fé- lagsmenn þurfa að vinna tvö störf til að láta enda ná saman. Leiðrétta þurfi launin. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Ís- lands, segir könnun meðal ljósmæðra benda til að meirihluti þeirra telji eðli- legt að fá 671 þúsund í grunnlaun. Til samanburðar hafi nýjar ljósmæður nú 461 þúsund í grunnlaun en þær reyndustu mest 611 þúsund í lok starfsævinnar að loknum öllum nám- skeiðum. Samkvæmt vef stjórnarráðsins höfðu ljósmæður að meðaltali 573 þúsund í dagvinnulaun að meðaltali í fyrra. Hugmyndir ljósmæðra um grunnlaun eru 17% hærri laun. Alltof fjarri læknum í launum Katrín Sif segir að leiðrétta þurfi laun ljósmæðra. Þær standi t.d. alltof langt að baki læknum í launum. Ljós- mæður höfðu að meðaltali 848 þúsund í heildarlaun í fyrra en félagar í Læknafélagi Íslands um 1.500 þúsund. Formenn Geislafræðingafélags Ís- lands og Þroskaþjálfafélags Íslands taka í sama streng. Hækka þurfi grunnlaun mikið. Vaktaálagið sé slít- andi og álagið of mikið. Grunnlaunin hækki mikið  Ljósmæður telja eðlilegt að hafa 671 þúsund í grunnlaun  Til samanburðar höfðu þær 573 þúsund í grunnlaun að meðaltali í fyrra  Vilja nálgast lækna MLjósmæður geti lifað … »2, 10 Vætutíðin suðvestanlands frá því í vor hefur gert það að verkum að grassláttumenn Reykjavíkur- borgar hafa haft meira en nóg að gera. Hér er verið að slá bletti meðfram Hringbrautinni. Vinnuaðstæður eru ekki alltaf skemmtilegar í rigningunni, en þetta er dugnaðarfólk sem er í starfinu og kippir sér ekki upp við vætuna. Veð- urspáin fyrir fimmtudaginn lofar sól og þurrki í Reykjavík, en aftur á að rigna á laugardaginn. Sól og þurrviðri spáð í Reykjavík á fimmtudaginn Morgunblaðið/Hari Mikill sláttur í vætutíðinni suðvestanlands  Gott andrúms- loft var á Lands- móti hestamanna í Víðidal í gær þrátt fyrir rign- ingarveður. Fyr- ir hádegi var keppt í B-flokki klárhesta og varð Nökkvi frá Syðra-Skörðugili hæstur, en hann var einnig sigurvegari á lands- mótinu 2016. Síðdegis var forkeppni í ungmennaflokki sem er knapar á aldrinum 18-21 árs. Alls kepptu 89 ungmenni. Í dag verður forkeppni í A-flokki á aðalvellinum og byrjar hún kl. 8:30 og stendur til 15:15. Eft- ir hlé hefjast milliriðlar í barna- flokki sem standa yfir fram á kvöld. Á kynbótavellinum hefst dagskrá 8:45 með framhaldi á kynbótasýn- ingum sex vetra hryssa. »14-15 Gott andrúmsloft á móti hestamanna Landsmót Elsti og yngsti knapinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.