Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.07.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2018 ✝ Vignir MárEinarsson fæddist í Reykjavík 31. desember 1987. Hann lést í Dan- mörku 11. júní 2018. Foreldrar hans eru Sveinbjörg Steingrímsdóttir, f. 15. júni 1949, og Einar Gunnar Ósk- arsson, f. 24. ágúst 1943, d. 20. júlí 2003. Bræður: Ingvar Ellert Ein- arsson, f. 5. desember 1983. Ragnar Ingi Ein- arsson, í sambúð með Gunnhildi B. Jónasdóttur. Börn hans eru þrjú. Ró- bert Jónsson, kvæntur Hrefnu Grétarsdóttur, og eiga þau tvær dæt- ur. Vignir Már var háseti á Goðafossi hjá Eimskip. Útför hans fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 3. júlí 2018, klukkan 15. Elsku hjartans drengurinn minn. Maður spyr eins og alltaf þegar ungt fólk í blóma lífsins er hrifið á brott: Hver er tilgang- urinn? En eins og Ingvar bróðir þinn sagði: „Þeir góðu fara alltaf fyrst.“ Þú sem áttir allt lífið fram undan, varst búinn að plana svo margt sem nú verður ekkert af. Þú varst búinn að vera í burtu meira og minna í tvo mánuði og núna síðast í slipp í Danmörku með Goðafossi. Svo áttirðu að fara í mánaðarfrí og þú varst far- inn að hlakka til að koma heim og flatmaga yfir HM og borða skyndibita sem þú elskaðir þegar þú varst heima. Enda alltaf þegar ég sótti þig um borð komum við fyrst við á KFC. Elsku hjartað mitt, þú barst alltaf hag mömmu þinnar fyrir brjósti, alveg frá því pabbi þinn dó, þá varstu aðeins 15 ára, sem var mjög erfitt, frá þeirri stundu varst þú alltaf hræddur um mig. En minningarnar hrannast upp og ekki hægt að koma þeim öllum á blað svo ég geymi þær í hjarta mér. Ég á eftir að sakna þess þegar síminn hringir og sjá ekki Vigga á skjánum. Þú hringd- ir í mig næstum daglega. Það var sama hvort það var dagur, kvöld eða nótt; alltaf þegar ég svaraði sagðir þú: „Góðan daginn“ og ég sagði: „Það er kvöld elskan,“ þá sagðir þú: „Mamma það er alltaf dagur hjá mér.“ Elsku hjartað mitt, það er erf- itt að kveðja, en ef það er líf eftir þetta líf þá vona ég að þú sért í faðmi pabba þíns. Við verðum að trúa á það. Farðu í friði hjartað mitt. Mamma. Fyrstu minningar mínar af Vigni eru 25 ára gamlar þegar hann sat í drullupolli á skólalóð- inni rennandi blautur og var að sulla, þarna sá ég strax að þetta var strákur sem ég vildi vingast við og þar með hófst okkar vin- átta sem varði í öll þessi ár. Á 25 árum höfum við gert margt og mikið, ferðast innan- lands, farið í frábærar utanlands- ferðir, nú síðast í haust til Finn- lands, farið á tónleika, farið á leiki með okkar uppáhaldsliði, KR, og kynnst alls konar fólki og haft endalaust gaman. Vignir var alltaf brosandi, hann var glaðlegur og frábær vinur í öll þessi ár og átti maður auðvelt með að plata hann í alls konar vitleysu. Símtalið sem ég fékk mánu- daginn 11. júní er eitt það erf- iðasta sem ég hef fengið – þegar mér var sagt að Vignir væri lát- inn. Það var eins og heimurinn hefði hrunið á augabragði og ég vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við – sorgin og reiðin tóku við, allt var ómögulegt. Hvað ætti ég að gera nú er spurning sem ég spyr sjálfan mig oft en aldrei ætlar svarið að koma en eins og kóngurinn segir þá er „mótlæti til að sigrast á“. Elsku besti vinur minn Vignir, ég sakna þín strax og mun alltaf gera og á einhverjum tímapunkti munum við hittast aftur þótt það verði langt í það. Ég kveð þig nú kæri vinur, kveð þig í hinsta sinn. Íslenski eðalhlynur, einstaki vinur minn. (Valdimar Lárusson) Elska þig – Áfram KR! Kveðja, Júlíus. Það er erfitt að kveðja vin sinn. Kveðja klettinn sem stóð allan sjó af sér. Einstakling sem var bæði sterkur á sál og líkama. Kveðja sinn besta vin til næstum tveggja áratuga mörgum áratug- um fyrr en við áttum von á. Vign- ir var yndislegur vinur og ein- stakur maður. Við eigum erfitt með að hugsa til þess að við fáum aldrei að heyra þig hlæja aftur. Það var alltaf hægt að fá Vigga með sér í hvaða vitleysu sem er. Eitt símtal og Viggi var mættur, hvort sem það var í partí, fjall- göngu, fótbolta, blak, sveitaferð, bíó, á tónleika, rúntinn, fótbolta- leiki eða hvað sem er. Maður fann alltaf fyrir öryggi þegar maður var með honum. Hann veitti öryggistilfinningu. Það var ekkert mál að ganga í gegnum dimmt húsasund seint á kvöldin í myrkrinu ef Viggi var með manni. Eða þegar maður gerði sig að fífli fyrir framan hóp af fólki, manni leið ekkert asna- lega ef Viggi var með. Viggi vissi oftar en ekki hvað var best fyrir mann, betur en maður sjálfur. Hann gerði hik- laust grín að okkur ef honum fannst við vitlaus. Hann var alltaf að gera grín að manni, svona vin- agrín sem særir engan. Hann fann upp á fjöldamörgum gælu- nöfnum fyrir fólkið í kringum sig. Viggi var einn af þeim sem gefa lífinu lit. Umfram allt var hann alltaf samkvæmur sjálfum sér. Þegar við rifjum upp allar dásamlegu minningarnar um Vigga stendur upp úr hversu of- boðslega fyndinn hann var. Hann á endalaust mörg gullkorn sem við vinahópurinn getum minnst til að ylja okkur um brotnar hjartaræturnar. Við erum þakk- lát fyrir vináttuna og góðu tím- ana sem við áttum með Vigga. Lífið er örlítið litlausara núna þegar hann er farinn frá okkur. Við munum sakna þín til æviloka og aldrei gleyma minningunum um þær stundir sem við áttum saman. Við sendum fjölskyldu Vigga og vinum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þínir æskuvinir, Þórður Roth og Íris Katrín Barkardóttir. Látinn er fyrir aldur fram Vignir M. Einarsson, skipsfélagi okkar á m/s Goðafossi, sem varð 30 ára á gamlársdag til sjós. Við skipsfélagarnir erum harmi slegnir vegna andlát Vignis. Þeg- ar starfsmannastjóri Eimskips hringdi í mig og tjáði að Vignir væri allur var mér ekki auðvelt að halda aftur tárum. Svona er lífið, það skiptir ekki máli hversu góður maður er. En traustari og betri félaga hef ég ekki siglt með í þá áratugi sem ég hef starfað á skipum Eimskipafélagsins. Það er nokkuð sem maður ákveður ekki sjálfur, en mér var gefið og eftir stendur djúpt þakklæti fyrir tímann sem við sigldum saman. Vignir var trúaður enda bar hann kross sinn alla daga í vinnu og á öðrum stöðum lífsins, nema síð- asta kvöldið þegar hann var hugsanlega að undirbúa svefn í sínu herbergi á síðasta degi lífs hans. Hann hlakkaði svo til að fara þessa ferð í dokku sem er við Óðinsvé, það var málið að fara með Guðmundi Þór Sigurjóns- syni og Ingólfi Guðbrandssyni fé- laga okkar til að kynna sér danska tilveru sem hann hafði ekki gert áður, enda er Guð- mundur félagi okkar fræðimaður að dönskum sið. Tónlist, fótbolti og að hitta félaga sína voru að- almerki hans enda tókst honum að sækja tónleika í Dyreskudsp- ladsen í Óðinsvéum þar sem Guns n’ Roses hélt útitónleika sem hann sótti ásamt félögum okkar á Gullinu og naut þess í botn. En eftir var það atriði sem hann beið eftir, það voru tón- leikar á Secret Solstice í Laug- ardalnum sem honum tókst ekki að hlusta á og voru í göngufæri þar sem móðir hans á heima, Sveinbjörg Steingrímsdóttir, sem honum þótti svo vænt um. Ekkert komst að nema mamma í huga hans, hann hafði hug á því að festa sér íbúð sem var í und- irbúningi, en Vignir okkar var þannig gerður að hann vildi fyrst eiga fyrir útborgun áður en af kaupunum yrðu. „Flott hjá þér, Vignir minn, þá getur þú byrjað að eiga þitt heimili,“ sagði ég en svarið sem ég fékk frá honum var: „Nei, ég ætla að leigja hana og vera hjá henni mömmu minni, það er nefnilega svo gott. Mamma ertu vakandi mamma mín, það er svo gott að koma til þín, þú varst drottning í hárri höll. Það var fleira sem Vignir hafði áhuga á, auðvitað KR. Ekk- ert komst annað að í huga hans, enda voru bolir og kaffikannan hans merkt KR og svo Manchest- er United í enska boltanum. Ekki má gleyma hvað þú varst hugul- samur í verkum okkar um borð, það stóð aldrei á þér þegar við vorum saman að ganga frá farmi Gullskipsins að þú komst til að hjálpa þeim „gamla“ eins og þú orðaðir það. Ganga frá lúgu, ég gerði það, fella kranana, nei, þessir ungu gera það. Og meira að segja átti hann það til að koma inn í messa okkar þegar við vor- um í pásu og segja upphátt: „Þarf Vignir að gera allt?“ Nú kveð ég þig, kæri Vignir minn. Ég veit að við munum hittast síðar og tökum þá slag á sjóbúningstöngunum sem við unnum saman við. Elsku hjartans Sveinbjörg Steingrímsdóttir og fjölskylda, við félagarnir á Gullskipinu send- um þér innilega samúðarkveðjur, megi elskulegur guð umvefja þig og vera með þér. Háseti á m/s Goðafossi, Jóhann Páll Símonarson. Vignir Már Einarsson ✝ Jóna KristjanaJónsdóttir fæddist í Reykjavík 10. júlí 1930. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 25. júní 2018. Foreldrar hennar voru Jón Kristján Kristjánsson, sjó- maður frá Bíldu- dal, f. 1. september 1894, d. 13. desem- ber 1929, og Guðrún Helga Guðmundsdóttir húsfreyja, f. á Sólheimum í Hrunamanna- hreppi 23. mars 1900, d. 11. jan- úar 1981. Stjúpfaðir Jónu og seinni maður Guðrúnar Helgu var Hannes Magnússon, tré- smíðameistari í Reykjavík, f. 24. september 1891, d. 31. desem- ber 1968. Systir Jónu sam- mæðra var Guðlaug Sjöfn Hannesdóttir, húsfreyja á Hrafnkelsstöðum í Hruna- mannahreppi, f. 28. júní 1938, d. 11. ágúst 2006. og kona hans Halldóra Þórðar- dóttir Johnsen húsfreyja, f. í Reykjavík 4. október 1892, d. 21. febrúar 1958. Synir Lárusar og Jónu eru: 1) Jón Kristján Johnsen, f. 17. október 1956, kvæntur Sigrúnu Gunnarsdóttur, f. 14. júní 1954. Sonur þeirra er Lárus Kristján Johnsen, f. 23. janúar 1992, og áður átti Sigrún soninn Hrólf Sigurðsson, f. 1. september 1977. 2) Hannes Johnsen, f. 19. september 1967. Jóna ólst upp í Reykjavík hjá móður sinni og stjúpföður á Hverfisgötu 119 í Reykjavík og Þverholti 20. Hún nam hár- greiðslu við Iðnskólann í Reykjavík og vann við iðn sína um tíma í Kaup-mannahöfn. Jóna varð síðar hárgreiðslu- meistari og rak eigin hár- greiðslustofu í áratugi. Eftir að Jóna og Lárus gengu í hjóna- band bjuggu þau fyrst á Hverf- isgötu 119 í Reykjavík en byggðu sér síðar hús í Holta- gerði 67 í Kópavogi og bjuggu þar tæpan áratug. Eftir það fluttu þau aftur til Reykjavíkur og bjuggu í Hlíðahverfi. Útför Jónu fer fram frá Garðakirkju í dag, 3. júlí 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Sjöfn var gift Sveini G. Sveins- syni, Hrafnkels- stöðum, f. 1932. Börn þeirra eru fjögur: Helga Sig- ríður sjúkraliði, f. 1962, maki Sverrir Ágústsson, börn þeirra eru Inga Sjöfn, Ármann og Sveinn Ágúst, Kol- brún klæðskeri, f. 1964, Sveinn Hannes, bóndi á Hrafnkelsstöðum, f. 1965, maki Eva Marín Hlynsdóttir, börn þeirra eru Silja Rut og Sveinn Jökull, Magnús starfsmaður Símans, f. 1983. Hinn 14. apríl 1956 giftist Jóna Lárusi Johnsen, kennara og skákmanni, f. í Reykjavík 12. septem-ber 1923, d. 26. ágúst 2006. Foreldrar hans voru Lár- us Kristinn Johnsen, verslun- armaður og konsúll í Vest- mannaeyjum, f. þar 31. desem- ber 1884, d. 15. október 1930, Tengdamóðir mín, Jóna Krist- jana Jónsdóttir, er nú látin tæp- lega áttatíu og átta ára að aldri eftir stutta sjúkralegu. Eftir lát eiginmannsins árið 2006 hélt hún heimili ásamt Hannesi syni sín- um í Stigahlíð 36. Jóna bjó lengst af við ágæta heilsu, sá um mat- seld ásamt syninum og keyrði bíl og útréttaði þar til síðasta hálfa árið. Jóna var nýflutt í þjónustuí- búð við Norðurbrún í Reykjavík þegar hún lést og hafði aðeins bú- ið þar í nokkrar vikur. Ég kynntist Jónu og manni hennar Lárusi fyrir tæpum 30 ár- um, þegar þau voru orðin nokkuð roskin. Sonur okkar Jóns Krist- jáns, Lárus Kristján, er eina barnabarn þeirra og var í miklu uppáhaldi hjá þeim og það var gagnkvæmt. Jóna var hárgreiðslumeistari og rak eigin hárgreiðslustofu í áratugi. Hún hafði gott auga fyrir því hvað fór viðskiptavinunum vel og þeir héldu mjög margir tryggð við hana til lengri tíma. Eftir að Jóna hætti að reka eigin stofu stundaði hún áfram hárgreiðslu með hléum fram yfir sjötugsaldur og leysti stundum af stallsystur sínar þegar þær tóku sér frí. Eftir að starfsævinni lauk gerði Jóna mikið af því að hitta vinkonur og frænkur og var fróð um ættir og tengsl. Hún sinnti hugðarefnum sínum, sem meðal annars var teikning, lestur danskra blaða og ráðning á krossgátum í þeim. Ég þakka tengdamóður minni samfylgdina. Sigrún Gunnarsdóttir. Jóna frænka hefur verið órjúf- anlegur partur af fjölskyldunni svo lengi. Í æsku fór ég öll sumur og var í viku eða svo hjá henni, þetta var „orlof“ frá sveitinni og skemmti ég mér vel. Þær systur mamma og Jóna voru nátengdar og bar mamma mikla umhyggju fyrir systur sinni. Í æsku Jónu tíðkaðist að krakkar færu í sveit og fór hún öll sumur frá því að hún var smá- stúlka til móðursystur sinnar Láru sem bjó í Flóanum, á Lækjamóti. Þarna undi hún hag sínum vel með frændfólki sínu. Jóna sagði mér oft söguna af því þegar hún frétti fyrst að hún ætti orðið litla systur. Hún var á engj- unum með fólkinu þegar ná- grannakonan á næsta túni kallaði til hennar, „hún var með þessa fínu málmhrífu sem glampaði á“. Hún kallaði með skrækum rómi: „Ég var að frétta að þú ættir orð- ið litla systur.“ Þarna hefur Jóna verið átta ára og var hún á sumr- in á Lækjamóti fram yfir 15 ára aldur. Sumarið 1955 fóru þær systur í siglingu með Gullfossi og keyrðu síðan með rútu til margra landa í Evrópu og aftur heim með Gull- fossi. Þetta hefur verið mikið æv- intýri, mamma aðeins 17 ára og Jóna 25 ára. Þarna eignuðust þær minningar sem þær yljuðu sér oft við. Jóna lærði hárgreiðslu ung og varð hárgreiðslumeistari sem tók að sér nema og hjá henni lærði meðal annars mamma hár- greiðsluiðn. Hún vann um tíma í Kaupmannahöfn og allar götur síðan keypti hún dönsku blöðin vikulega til að lesa. Jóna giftist Lárusi Johnsen 1956 og eignuðust þau tvo syni, þá Jón Kristján og Hannes. Kona Jóns Kristjáns er Sigrún Gunn- arsdóttir og eiga þau einn son, Lárus Kristján. Alla tíð átti hún og rak hárgreiðslustofur, síðast með stól heima hjá sér eða fór heim til kúnnanna. Jóna var mjög frændrækin og vissi góð skil á frændfólki sínu. Þetta ólst hún upp við hjá móður sinni og var dugleg að hitta og seinna að hringja á afmælisdögum í frænk- ur sínar. Núna í seinni tíð fór ég að launa Jónu orlofið í æsku og kom hún til mín á Selfoss á sumr- in í þrjá daga í senn ár hvert og ég dekraði við hana eftir bestu getu. Fórum í bíltúr um æskuslóð- irnar, bæði í Hreppinn og Lækja- mót. Þar benti hún mér á þennan hól og þennan skurð og sagði sög- ur. Ég á eftir að sakna þessara samverustunda. Elsku frændur mínir, Nonni og Hannes, ég votta ykkur samúð mína sem og Sigrúnu og Lárusi Kristjáni. Helga S. Sveinsdóttir. Jóna Kristjana Jónsdóttir Hver er vilji þinn varðandi skipulag og fyrirkomulag útfarar, þ.e. hinsti vilji. Við bjóðum þér til samtals um það sem er þér mikilvægast við lífslok þín. Viljayfirlýsing þín verður eftirlifendum mikilvægt leiðarljós. Samtalið og varðveisla upplýsinga er þér að kostnaðarlausu. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Elín Sigrún Jónsdóttir, lögfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.